Dagur - 20.01.2001, Qupperneq 1
Ólgaí
álvermu
bls. 29
Einfaldara
að telja
fram
bls. 28
Hvalveiðar
eða ekki?
bls. 32-33
Urmull lögfræðinga í kringum Ástu
Ragnheiði Jóhannesdóttur.
Logfræð-
ingará
fænbandi
„Við teljum okkur auðvitað þurfa
að ræða við fjölmarga aðila. Það
er komin dagskrá fyrir daginn í
dag en við erum þegar komin dá-
lítið aftur úr enda er þetta meira
mál en reiknað var með þegar
dagskrá nefndarinnar var samin.
Að öðru Ieyti þori ég ekki að spá
um hve langan tíma nefndar-
starfið tekur,“ sagði Ásta Ragn-
heiður Jóhannesdóttir, fulltrúi
Samfylkingarinnar í heilbrigðis-
og trygginganefnd Alþings í sam-
tali við Dag í gær.
Nefndin er nú með frumvarp
ríkisstjórnarinnar vegna öryrkja-
dóms Hæstaréttar til meðferðar
milli 1. og 2. umræðu.
Lögfræðingar á færibandi
Ásta Ragnheiður sagðist ekki
hafa orðið vör við það að stjórn-
armeirihlutinn ætlaði að taka-
marka þann fjölda sem stjórnar-
andstaðan telur sig þurfa að
kalla fyrir nefndina og ágætt
samkomulag hafi verið um það
til þessa.
Hún sagði að meðal þeirra
sem koma á fund nefndarinnar í
dag, (föstudag) væru talsmenn
Oryrkjabandalagsins með Ragn-
ar Aðalsteinsson hrl. í broddi
fylkingar. Hún segir að mest séu
það lögfræðingar sem nefndin er
að ræða við, þar á meðal lög-
fræðinganefndin margumrædda
sem ríkisstjórnin skipaði.
„Það eru lögfræðingar á fundi
okkar nú á þessari stundu og við
verðum með lögfræðinga hjá
okkur fram eftir degi. Þetta eru
sérfræðingar í hinum ýmsu þátt-
um málsins. Allt tekur þetta
drjúgan tíma og því erfitt að
segja til um hvenær starfi nefnd-
arinnar lýkur," sagði Ásta Ragn-
heiður Jóhannesdóttir. - S.DÓR
Frá og með gærdeginum og næstu fjórar vikur er í góðu lagi að blóta, enda þorri haf/nn. Hnossgæti stendur fjöl-
margt til boða og munu margir vafalítið anga af hákarli og öðru góðu. mynd: gva
84. og 85. árgangur - 14. tölublað
Meirihlut-
inn á móti
stjóminni
MikiII meiri-
hluti þeirra
þúsunda sem
sögðu skoðun
sína á Netinu
telja að ríkis-
stjórnin hafi brugðist rangt við
dómi Hæstáréttar.
Dagur spurði eftirfarandi
spurningar á vefnum: Brást ríkis-
stjórnin rétt við dómi Hæstarétt-
ar? Þátttaka var afar mikil því ríf-
lega sex þúsund rnanns svöruðu.
Afgerandi meirihluti, eða 64
prósent, svöruðu spurningunni
neitandi, en 36% töldu að ríkis-
stjórnin hefði brugðist rétt við.
Nú er hægt að greiða atkvæði
um nýja Dags-spurningu á Net-
inu, svohljóðandi: Á að byggja
nýjan innanlandsflugvöll vestan
Hafnarfjarðar? Slóðin er sem
fyrr: visir.is
Dtíwwr
vísir.is
Hrun framuitdan
í hótelrekstri?
MiML uppbyggiug hef-
ur orðið á gistirými
úti á laudi á sama
tíma og illa gengur að
auka nýtingu. Lána-
kostnaður sligar
marga og sér hótel-
stjórinn í Reynihlíð
fram á erfiða tíma hjá
mörgum.
„Það má segja að rekstrarvandi
landsbyggðarhótela sé eitt af
erfiðustu vandamálum ferða-
þjónustunnar,“ segir Erna
Hauksdóttir, formaður Samtaka
ferðaþjónustunnar. Þar vísar hún
einkum til lélegrar nýtingar úti á
landi en á sama tíma vekur at-
hygli að ráðist hefur verið í mild-
ar framkvæmdir og hafa ný hótel
sprottið upp nánast eins og
gorkúlur, t.d. hefur orðið tvö-
földun í Mývatnssveit á nokkrum
árum. Hótelstjórinn í einu fjöl-
sóttasta hóteli landsbyggðarinn-
ar yfir sumartímann, Hótel
Reynihlíð, segir að ofurbjartsýni
hafi gætt í þessum geira og menn
eigi eftir að taka afleiðingunum.
Órannhæf yfirvöld
„Fjölgun hótela er
mjög merkilegt mál,
því það er búið að
vera vandamál alla
tíð að halda þeim
hótelum gangandi
sem fyrir voru úti á
landi. Nýting fjárfest-
inganna er svo hæg
að öll, þessi uppbygg-
ing stingur gjörsam-
lega í stúf við rekstr-
arumhverfið og nú
fer að koma að
skuldadögum. Við
horfum fram á erfið-
leika í gistiþjónustu úti á landi
sem eru sambærilegir fyrrum
vandamálum í fiskeldi og loð-
dýrarækt. Þetta ástand er afleið-
ing þess að yfirvöld hafa lánað
opinbert fé til hægri og vinstri án
þess að gæta að arðsemiskröfum
og þau hunsa öll samkeppnis- og
markað'ssjónarmið. Það er ekki
Pétur Snæbjörnsson:
Gríðarleg uppstokkun
framundan.
smuga að reka þetta,“ segir Pétur
Snæbjörnsson, hótelstjóri í
Reynihlíð.
Þekkt óskhyggja
Pétur segir að ofur-
bjartsýni hafi gætt í
þessum geira og það
sé því miður þekkt
minni í sögunni.
„Það kpma alltaf
reglulega upp á Is-
landi svona lausnar-
orð. Áður vorum við
með loðdýrarækt og
fiskeldi en núna er
töfraorðið ferða-
mennska. Allar
mögulegar og
ómögulegar bjöllur
eru hengdar á ferða-
þjónustuna og allt á
að gerast á örskömmum tíma. I
reynd er þessu öfugt farið.
Ferðamennska á að byggjast upp
mjög hægt, við stýrum ekki fólki
eins og að reka fé í réttum."
Pétur bendir einnig á að ferða-
þjónusta sé geysilega mannfrek
grein og það séu að skapast
vandamál úti á landi við mönnun
fyrirtækjanna. Greinin krefjist
sérþekkingar en hafi ekki bol-
magn til að greiða há Iaun fyrir.
Hótelrekstur sé jafnframt þess
eðlis að þótt nýting sé með ágæt-
um, borgi fjárfestingar í grein-
inni sig yfirleitt upp á löngum
tíma, borið saman við ýmsan
annan rekstur. Pétur nefnir sem
dæmi að ef einhver hyggst bygg-
ja fjögurra stjörnu hótel frá grun-
ni þá kosti hvert herbergi um 8
milljónir. Raunhæf afkoma sé að
selja herbergið fyrir eina milljón
á ári en þá sé allur annar kostn-
aður eftir. Uti á landi sé enn-
fremur sérstakt vandamál hve
samgöngukerfið sé ófullkomið og
það standi gistiþjónustu í dreif-
býli stórlega fyrir þrifum. „Það er
engin spurning að margir muni
riða til falls á næstunni," segir
Pétur.
Eignarhald á hótelum hefur
færst á sífellt færri hendur und-
anfarið og er frekari gerjun
framundan á þessum markaði.
Hvað varðar Hótel Reynihlíð sér-
staklega upplýsir Pétur að þar á
bæ horfi menn jafnvel til erlends
samstarfs. - BÞ