Dagur - 20.01.2001, Qupperneq 2
26 - I. A U G A H DA G U II 2 0. JA XÚAH 200 1
rD^r
FRÉTTIR
Segj a borgina
reÍKna vitlausi
aust
ÁróduTsstríðið imi
framtíð Vatnsmýrar
harðnar. Verulegur
inimur á verðmæti
flugvallarlands. Frá
2,7 - 75 milljarðar.
Hörð gagnrýni á borg-
aryfirvöld
Samtök um betri byggð telja að
verðmæti lands sem liggur undir
Reykjavíkurílugvelli sé 40 - 75
milljarðar króna ekki 2,7 millj-
arðar eins og embætti borgar-
verkfræðings hefur haldið fram.
Það sé þó háð því hvað þéttleiki
byggðar sé mikill. Þau gagnrýna
það einnig alvarlega að í hug-
myndum um gerð nýs innan-
landsflugvallar í umdæmi Vatns-
leysustrandarhrepps sé það Iand
metið sem ókeypis. Þess í stað
telja samtökin að land undir
llugvöll á þessum stað muni
kosta 2-5 milljarða króna.
ÓfuUkomið
Þessar upplýsingar sem samtök-
in gagnrýna komu fram í greinar-
gerð sem samvinnunefnd um
Samtök um betri byggð segja iandið undir Reykajvíkurflugvelli hafa verið
gróflega vanmetið í útreikningum borgarverkfræðings.
svæðisskipulag íyrir höfuðborg-
arsvæðið kynnti ásamt borgar-
stjóra sl. þriðjudag um flugvall-
arhugmyndir á svæðinu. Arni
Þór Sigurðsson formaður sam-
vinnunefndarinnar neitar því að-
spurður að nefndin hafi verið að
vaða reyk í þessari framsetningu
sinni.
Hann viðurkennir þó að
nefndin hafi ekki gert ráð fýrir
verði fyrir landakaup undir flug-
völl í umdæmi Vatnsleysustrand-
arhrepps. Af þeim sökum sé það
„sjálfsagt einn af veiku hlekkjun-
um“. Hann bendir einnig á að
þessi verðsamanburður sem
fram kemur í greinargerð nefnd-
arinnar sé ekki fullkominn og
það séu skekkjur í honum.
Orkar tvímælis
Hann segist reikna með að menn
yrðu að gera ráð fyrir einhverju
verðmæti lands undir flugvöll í
Vatnsleysustrandarhreppi. Hann
segist hins vegar ekki vita það
hvort brugðist verður á einhvern
hátt formlega við þessum mikla
mismun sem er á kostnaðartöl-
um Samtaka um betri byggð
annars vegar og hins vegar á því
sem fram hefur komið hjá sam-
vinnunefndinni og borgaryfir-
völdum. Hann bendir einnig á að
í forsendum fyrir útreikningum
sínum séu samtökin að gefa sér
mjög hátt lóðaverð og að land-
nýtingin í Vatnsmýrinni verði al-
veg gríðarlega mikil. Hann segir
að þær forsendur orki mjög tví-
mælis.
Fjöldi álitlegra staða
Samtökin um betri byggð benda
m.a. á að Reykjavík og nágrenni
sé eitt allra dreifbýlasta höfuð-
borgarsvæði sem um getur. Með
því nýta Vatnsmýrina undir
blandaða miðborgarbyggð mætti
ná fram umtalsverðum hagræn-
um samfélagslegum ávinningi.
Þau benda einnig á að á höfuð-
borgarsvæðinu sé fjökli álitlegra
staða fyrir flugvöll eins og t.d. í
Engey, Akurey, Skerjafirði og á
Alftanesi.
-GRH
Geir Haarde fjármálaráðherra.
Umbi kreflir
Geir svara
Umboðsmaður Alþingis hefur
óskað eftir lagalegum rökstuðn-
ingi frá Geir Haarde og fjármála-
ráðuneytinu á því af hverju skatt-
ur sé greiddur af húsaleigubótum
en ekki vaxtabótum. Þetta var
gert í framhaldi af erindi þessa
efnis sem Leigjendasamtökin
höfðu sent umboðsmanni Alþing-
is á þessum skattalega mismun.
Hagsmunir leigjenda
Jón Kjartansson formaður Leigj-
endasamtakanna segir að fullur
skattur sé greiddur af húsaleigu-
bótum, eða 38,4%. Hann segir að
þegar fjármálaráðuneytið hefur
svarað þessari beiðni umboðs-
manns muni hann meta það
hvort rök ráðuneytisins séu full-
nægjandi eða ekki. Jón segir að ef
umboðsmaður fellst ekki á út-
skýringar ráðuneytisins þá standa
menn frammi lyrir því að stjórn-
völd hafa lagt á ólöglega skatta á
leigjendur með skattlagningu
húsaleigubóta. Hann segir þetta
vera mikið hagsmunamál fyrir
leigjendur og því brýnt að fá úr
þessu skorið sem fyrst. -GRH
Úttekt gerð á
kúariðusmiti
Óháðir aðilar fengnir
til að skoða hættu ís-
lenskra neji:enda
vegna kúariðu í út-
löndum.
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi
sínum í gær tillögur landbúnað-
arráðherra, umhverfisráðherra
og sjávarútvegsráðherra um
kúariðu og innflutning matvæla.
Samþykkt var að óháður aðili
verði fenginn til að gera úttekt,
byggða á fyrirliggjandi gögnum á
hugsanlegri hættu sem neytend-
um stafi af neyslu á vörurn sem
innihalda innflutt nautakjöt eða
nautakjötsafurðir. Þá verður
óháður aðili einnig fenginn til að
gera úttekt á lögum, reglum og
alþjóðlegum skuldbindingum Is-
lands (s.s. WTO og EES) sem
snúa að innflutningi matvæla. I
úttektinni skal koma fram skipt-
ing ábyrgðar og verkefna ein-
stakra eftirlitsaðila og til hvaða
stjórnsýsluaðgerða megi grípa,
gerist þess þörf.
Guðni Ágústsson: Landbúnaðar-
ráðuneytið ber kostnað afsam-
þykkt rikisstjórnar.
Ekkí jiörf á bráðaviðbrögðum
Matvælaráð og stjórnskipuð
samstarfsnefnd um sóttvarnir
(SSUS) komu saman þann 17.
þ.m. til að fjalla um hugsanlega
hættu á að kúariðusmit berist til
landsins með innfluttum mat-
vælum. Þeir aðilar telja ekki þörf
á bráðaviðbrögðum en sam-
þykktu að leggja til við landbún-
aðarráðherra, sjávarútvegsráð-
herra og umhverfisráðherra of-
angreindar aðgerðir til að fyrir-
byggja sem kostur er að kúa-
riðusmitefni berist til landsins
með matvælum og efnum til
matvælavinnslu.
Fulltrúar ráðuneytanna hafa
farið yfir ofangreindar tillögur og
mun ríkisstjórnin veita 3,2 millj-
ónum til starfans. Landbúnaðar-
ráðuneytið mun bera þann
kostnað og leggja ráðuneytin
jafnframt til að Vilhjálmi Rafns-
syni, prófessor í heilbrigðisfræði,
og Ólafi Oddgeirssyni, dýra-
lækni, verði falið að vinna fyrr-
nefndu úttektina en Eiríki
Tómassyni, lagaprófessor, og
Skúla Magnússyni, lektor, verði
falið að vinna þá síðarnefndu.
Ahersla er lögð á að úttektun-
um verði lokið sem fyrst, þeirri
fyrrnefndu eigi síðar en 15. febr-
úar n.k. og þeirri síðarnefndu
eigi síðar en þann 1. mars n.k.
BÞ
Blótað saman í 35 ár
Fjórir valinkunnir menn í við-
skiptalífinu hafa sl. 35 ár blótað
saman þorra á bóndadcginum í
Naustinu, og hefur aldrei fallið
úr ár hjá þeim.
Hörður Sigurjónsson, veitinga-
stjóri í Naustinu, segir að nokkr-
ir hópar hafi komið árlega á fyrs-
ta degi þorra, bóndadeginum, sl.
30 ár, nokkrir í hádeginu en þó
llestir um kvöldið. Þetta séu
vinnufélagar, saumaklúbbar,
skólafélagar og jafnvel söng-
bræður í binum ýmsu kórum
höfuðborgársvæðisins. Um 200
manns blótaði þorra í Naustinu í
gærkvökli og hefur talsvert verið
bókað um næstu helgar. Þorra-
maturinn er því fjarri því að vera
á undanhaldi.
GG
INNLENT
Frá undirritun samninganna.
oft erfitt með að stíga fyrsta
Styrkja geðvemd
Nýlega undirrituðu forsvarsmenn
Geðheilsu ehf. samstarfssamning
við lyfjafyrirtækið GlaxoSmit-
hKline ehf., sem gera mun
GlaxoSmithKline einum helsta
styrktaraðila nýrrar vefsíðu, per-
ona.is. Nýi vefurinn, persona.is,
fjallar um geðræn vandamál og
önnur skyld mál en upplýsingar
um þau hafa verið lítt aðgengileg-
ar hér á landi til þessa. Fólk sem
þjakað er af geðrænum erfiðleikum a
skrefið í átt til hjálpar hugsanlega vegna orðspors sjúkdóma í samfé-
laginu.sem hefur verið heldur neikvætt. í skýrslu heilbrigðisráðu-
neytisins, Drög að heilbrigðisáætlun til ársins 2005, kemur fram að
einungis um 10-30% þeirra sem þjást af geðrænum vandamálum fá
viðunandi meðferð.
Íbiíð eyðilagðist í bruna
Eldur eyðilagði þakíbúð á Laugavegi 18b í fyrrakvöld. íbúðin er í
sama húsnæði og verslunin Dressman en að sögn talsmanns Slökkvi-
liðsins í Reykjavík, urðu góðar eldvarnir til þess að ekki fór verr.
Starfsfólk Máls og menningar lét vita af eldinum en þá var ekki vit-
að hvort fólk væri inni í íbúðinni. Allt tiltækt lið var kallað til og gekk
vel að slökkva eldinn. Eldsupptök eru ókunn samkvæmt upplýsing-
um frá lögreglu.
Samþykkja stækkun Nesjavalla
Skipulagsstofnun hefur við mat á umhverfisáhrifum fallist á fj'rir-
hugaða stækkun Nesjavallavirkjunar í Grafningi úr 76 í 90 MW.
Stefnt er að því að framkvæmdir hefjist nú í vor og ljúki á haustdög-
um. Vegna þessa þarf að bora holur, byggja dælustöðvar og lokahús,
leggja aðveituæðar og fleira slíkt. Umhverfisáhrif stækkunar virkjun-
arinnar Iúta einkum að förgun affallsvatns, en samkvæmt framlögð-
um gögnum Orkuveitu Reykjavíkur, sem stendur að framkvæmdum,
er fyrirhugað að farga því vatni í borholur við virkjunina. Skipulags-
stofnun telur að þcssi leið við förgun affallsvatns sé ásættanleg, þrátt
fyrir að með stækkun virkjunarinnar muni streymi skiljuvatns tæp-
lega tvöfaldast frá því sem nú er. Urskurður Skipulagsstofnunar var
kveðinn upp sl. miðvikudag, en hann er hægt að kæra til umhverfis-
ráðherra fram til 14. febrúar. -SBS.