Dagur - 20.01.2001, Page 5
LAUGARDA GUR 20. JANÚAR 2001 - 29
FRÉTTIR
Vantreysta stjórum
í álveri í Straumsvík
Ólga vegna kjaramála í Straumsvík.
Starfsfólk felldi ný-
gerðan kjarasamning.
Óánægja með launa-
hækkun, samnings-
tíma og skort á trygg-
ingarákvæði. Nýjar
viðræður.
Starfsmenn álversins í Straums-
vík felldu nýgerðan kjarasamn-
ing í allsherjaratkvæðagreiðslu
en talið var í gærmorgun. Félags-
menn í Verkalýðsfélaginu Hlíf og
Verslunarmannafélagi Hafnar-
fjarðar felldu samninginn með
192 atkvæðum gegn 59 og iðn-
aðarmenn með 63 atkvæðum
gegn 56. Framhald málsins verð-
ur rætt eftir helgina.
Athygli vekur að ein af aðalá-
stæðunum fyrir þessum úrslitum
eru sögð vantraust á stjórnendur
fyrirtækisins til að framfylgja
ýmsum ákvæðum samningsins
vegna reynslu sinnar af þeim.
Þess utan voru starfsmenn óá-
nægðir með launahækkun samn-
ingsins og lengd samningstímans
sem var til nóvember 2004.
Þögn í álverinu
A skrifstofu forstjóra fengust
þær upplýsingar að Rannveig
Rist forstjóri sem jafnframt var
kosin kona ársins ekki alls fyrir
Iöngu væri í barnsburðarfríi.
StaðgengiII hennar væri Einar
Guðmundsson. Hrannar Péturs-
son upplýsingafulltrúi álversins
sagði í gær að stjórnendur þess
vildu ekki tjá sig um málið að svo
stöddu en vísuðu því til Samtaka
atvinnulífsins.
Brennt af fyrri reynslu
Sigurður T. Sigurðsson formaður
Verkalýðsfélagsins Hlífar segir
að upphafshækkun samningsins
hefði falið sér allt að 21% launa-
hækkun en allt að 30% á samn-
ingstímanum með öllu. Þrátt fyr-
ir það hefði starfsfólkið talið það
vera of lítið. Það hefði líka farið
illa í fólk að engin opnunará-
kvæði voru í samningnum vegna
verðlags- og launaþróunar frá
ársbyrjun 2001 til loka samn-
ingstímans.
Þá hefði fólk verið brennt af
fyrri reynslu sinni af stjórnend-
um fyrirtækisins og m.a. hefði
það ekki notið ýmissa hagræð-
inga í launum eins og talað hefði
verið um á síðasta samnings-
tímabili. Af þeim sökum og ann-
arra trúnaðarbresta hefði það
ekki treyst því að fyrirtækið
mundi halda ýmis ákvæði samn-
ingsins er lúta að bónus og öðru
álíka.
Ekki líklegt til árangurs
Hannes G. Sigurðsson aðstoðar-
framkvæmdastjóri Samtaka at-
vinnulífsins og formaður samn-
inganefndar þess í stóriðjusamn-
ingum segir að niðurstaðan hefði
komið sér á óvart, enda hefði
samningurinn verið áhugaverður
fyrir starfsmenn. Hann segir að
næstu skref sé að hitta forystu-
menn verkalýðsfélaganna og fara
yfir það hvað hefði farið úrskeið-
is og skoða hvernig hægt sé að
leiða það til endanlegra Iykta.
Hann segir að ummæli um van-
traust starfsfólks á stjórnendur ál-
versins séu ekki til þess að það
verði líklegra að menn nái saman
í þessari deilu. I það minnsta sé
engin ástæða til að vantreysta því
að bónusákvæði samningsins
Ótti við mengunarslys í Keflavík.
Kæra sjó-
kvíeldi
Sýslumaðurinn í Keflavík hefur
fengið til rannsóknar kæru á
hendur eigendum Silungs ehf
vegna sjókvíaeldis fyrirtækisins
með norska laxastofna. Kært var
fyrir hönd eigenda Haffjarðarár
og Verndarsjóðs villtra laxa sem
óttast mengunarslys verði ekkert
aðhafst.
Kært var m.a. út af því að um
síðustu helgi var fyrirtækið með
þrjár sjókvíar af sex í höfninni í
Helguvík en hefur Ieyfi fyrir sjó-
kvíaeldi í Stakksfirði við
Vogastapa. I kærunni er einnig
bent á að fyrirtækinu sé óheim-
ilt að vera með sjókvíaeldi á
tímabilinu 1. janúar - 31. mars
samkvæmt leyfisveitingu fyrir-
tækisins. Þá verði ekki séð af
leyfinu að fyrirtækinu sé heimilt
að flytja kvíar úr Stakksfirði til
Helguvíkur.
Jafnframt var vakin athygli
sýslumanns á þeirri hættu sem
það skapar að hafa þúsundir
norskra laxa í sjókvíum í höfn
þar sem skip eiga leið um. — grh
Nasco úr hond-
um heimamaima
Formadur Verkalýðs-
og sjómannafélags
Bolimgarvíkur er
stöðugt saunfærðari
um að það skaði
byggðarlagið að for-
maður Byggðastofn-
uuar, Kristinn H.
Gunnarsson, og einn
nefndarmanna, Einar
H. Guðfinnsson, skuli
vera frá Bolungarvík.
EgiII Guðni Jónsson, forstjóri
Nasco í Reykjavík, sem lýst hef-
ur verið gjaldþrota ásamt dóttur-
fyrirtækinu Nasco-Bolungarvík,
átti annað tveggja tilboða í
rækjuverksmiðjuna í Bolungar-
vík. Hitt tilboðið kom frá AG-
fjárfestingu í Bolungarvík, en að
því stendur m.a. Agnar Ehenes-
erson í Bolungarvík, sem var
framkvæmdastjóri fyrirtækisins.
Tilboð Egils hljóðar upp á 245
milljónir króna en tilboð AG-
tjárfestingar upp á 145 milljónir
króna. Egill Guðni Jónsson segir
að Tryggvi Guðmundsson,
skiptastjóri á ísafirði, hafi tekið
tilboði hans í verksmiðjuna í
Bolungarvík með fyrirvara um
samþykki fimm stærstu veðhaf-
anna. Einn þeirra hefur þegar
samþykkt það að sögn Egils
Guðna, en hann eigi von á svör-
um frá hinum fjórum aðilum á
næstu dögum. Gangi þetta eftir
á Egill Guðni von á því að starf-
semin geti hafist að nýju í byrjun
marsmánaðar.
Lárus Benediktsson, formaður
Verkalýðs- og sjómannafélags
Bolungarvíkur, segir að lögð hafi
verið áhersla á það að heima-
menn kæmu að endurreisn verk-
smiðjunnar. Það séu honum því
mikil vonbrigði ef verksmiöjan
verði ekki seld AG-fjárfestingu.
Hann telur það verulega ámælis-
vert ef Byggöastofnun ætli ekki
að aðstoða við endurreisnina og
leggja fé til þes's og þannig stuðla
að því að verksmiðjan verði í
eigu heimamanna.
„Eg er stöðugt sannfærðari um
að það skaðar byggðarlagið að
formaður stjórnar Byggðastofn-
unar, Kristinn H. Gunnarsson,
og einn stjórnarmanna, Einar H.
Guðfinnsson, skuli vera héðan
frá Bolungarvík. Ekki síst í þeirri
viðleitni heimamanna að eignast
rækjuverksmiðjuna. Það varð
ekki lítill hvellur þegar það frétt-
ist að til stæði að innheimta
Byggðastofnunar skyldi færast til
Sparisjóðs Bolungarvíkur. Það er
líka einkennileg byggðastefna af
hálfu alþingismanna að leyfa
framsal kvóta, því það sogast
veiðiheimildir frá landsbyggð-
inni vegna þess að stór útgerðar-
fyrirtæki gleypa hann og þá um
leið störf og atvinnutækifæri á
lansbyggðinni. Þetta er hrein
mafíustarfsemi," segir formaður
Verkalýðs- og sjómannafélags
Bolungarvíkur. — GG
Helgi til Norðurmjólkiir
Helgi Jóhannesson hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri
mjólkursamlagsins Norður-
mjólkur. Norðurmjólk varð til
við sameiningu MSKEA,
MSKÞ og Grana, sem er hluta-
félag í eigu Auðhumlu - sam-
vinnufélags í eigu mjólkur-
framleiðenda í Eyjafirði og
Þingeyjarsýslu. Helgi tekur við
starfinu á næstu dögum.
Helgi hefur starfað sem
framkvæmdastjóri Norðlenska,
sem varð til við samruna kjöt-
iðnaðarsviðs KEA og Kjötiðj-
unnar á Húsavík á sl. ári, en
hann kom til starfa sem for-
stöðumaður slátrunar- og kjöt-
iðnaðarsviðs KEA í ársbyrjun
1997. Við starfi llelga tekur
Jón Helgi Björnsson, sem hef-
ur verið aðstoðarframkvæmda-
stjóri Norðlenska með aðsetur
á Húsavík. — GG
FH selux hlut sinu í Geflu
á Kópaskeri
Fiskiðjusamlag Húsavíkur hefur selt 34,07% eignarhlut sinn í rækju-
verksmiðjunni Geflu á Kópaskeri og eru kaupendur lyrst og fremst
aðrir eigendur Geflu á staðnum. Atli Viðar Jónsson, framkvæmda-
stjóra Fiskiðjusamlags Húsavíkur, að salan nú byggist m.a. á því að
FH sé ekki tilbúið eða í stakk húið til að fara í uppbyggingu verk-
smiðjunnar í kjölfar þess að innfjarðarækjuveiði á Oxarfirði hefur
verið hönnuð, en heimamenn nú fullir baróttuþreks, og því eðlilegt
að þeir takist á við verkefnið. Auk þess hefur eignarhluti FH í Geflu
verið færður töluvert niður, og þannig afskrifaðar töluverðar upp-
hæðir.
Atli Viðar segir að yfir standi endurskipulagning á starfsemi FH,
reksturinn hafi verið erfiður vegna þess að hráefnisverð sé ótrúlega
hátt í dag og afurðaverð mjög lágt á rækju. Hann segist ekki vcra
bjartsýnn á framhaldið verði ekki hreyting þar á. — GG