Dagur - 20.01.2001, Side 8
32- I, AUGARDAGUR 20. JANÚAR 2001
Ðaqur
i
FRÉTTASKÝRING
Hvalurinn í „kynningi
FRIÐKIK
ÞOR GUÐ
MUNDSSON
SKRIFAR
Hvalaumræðan af stað
á ný. Hvalveiðar ólík-
legar í ár. Tekjumögu-
leikar á fimmta miHj-
arð. Hvalimir éta 6
miUjón tonn en við
veiðum 1,5 miUjón
tonn. Geta minnkað
afrakstursgetu jiorsks-
ins um 10-20%. Aðrir
hagsmunir hindra
hvalveiðar.
Allt frá því að síðasti hvalurinn
var drcginn á land á Islandi fyrir
12 árum hefur uniræða komið
upp einu sinni eða tvisvar á ári
um að taka upp hvalveiðar á ný. A
Alþingi fór síðasta umræðulotan
fram í október og nóvember á síð-
asta ári, en umræðan er aftur
komin á skrið í þjóðfélaginu í
tengslum við þá ákvörðun Norð-
manna að afnema útflutnings-
bann á hvalaafurðum. I sjálfu sér
hefur hins vegar ekkert gerst af
stjórnvalda hálfu frá því í lok
næstsfðasta löggjafarþings, þegar
samþykkt var ályktun um að
„hefja skuli hið fyrsta hvalveiðar
hér við land" og ríkisstjórninni
falið „að undirbúa hv'alveiðar,
meðal annars með því að kynna
málstað og sjónarmið íslendinga
nteðal viðskiptaþjóða okkar.“
Það sem einkum stendur í vegi
fý'rir því að hvalveiðar hefjist á ný
eru aðrir viðskiptalegir hagsmun-
ir landsins; óttinn við að aðgerðir
hvalaverndunarsinna valdi þjóð-
inni tekjutapi vegna annarra út-
flutningsafurða. Einnig er bent á
að hvalaskoðunartekjur fari vax-
andi og fari fyrir bí verði hvalveið-
ar leyfðar. Stjórnsýslulega stend-
ur ísland einnig verr en Norð-
mcnn að vígi með því að við mót-
mæltum ekki hvalveiðibanninu á
sínum tíma og gengum út úr Al-
þjóðahvalveiðiráðinu.
Ólíklegt á þessu ári
Arni Mathiesen sjávarútvegsráð-
herra er erlendis og náðist ekki í
hann vegna samningu þessarar
fréttaskýringar. I umræðum á Al-
þingi síðasta haust sagði Arni:
„Akvörðun um hvenær hvalveiðar
eiga að hefjast hefur ekki ennþá
verið tekin. Hins vegar er verið að
vinna eftir ályktun Alþingis um
að kynna afstöðu Alþingis fslend-
inga til málsins og verið að undir-
búa á margvíslegan hátt að
ákvörðun verði tekin. Kynning-
unni miðar vel áfram á þann hátt
að það hefur verið hægt að tala
við marga aðila, stjórnmálamenn,
embættismenn og fjölmiðla-
menn. En það er hins vegar ekki
hægt að segja að undirtektir við
málstað okkar séu nokkuð betri
en áður var. Síðan er verið að
vinna að sérstakri kynningu í
Bandaríkjunum. Eg geri mérvon-
ir um að hún verði okkur til fram-
dráttar. Eins og sakir standa, á
Mikill atgangur fylgir hvalskurði og það er ekki síður stormasamt að taka ákvarðanir um það hvort Islendinga
meðan kosningabaráttan þar
stendur yfir, er ekki mjög þægi-
legt að vera með slíka starfsemi í
Bandaríkjunum og þarafleiðandi
er hlé á þeim undirbúningi. En
þráðurinn verður síðan tekinn
upp aftur þegar við vitum hver
staðan verður í Washington
næstu árin“.
I desember sl. sagði ráðherra
síðan i viðtali við Útveginn, blað
LlÚ, að frckar ólíklegt væri að
hvalveiðarnar myndu hefjast árið
2001.
Samkvæmt þessu virðist það
ráða miklu hver stefna Bush-rík-
isstjórnarinnar verður. Vitað er að
hvalveiðistefnan er talin mæta
vinsamlegri móttökum hjá Bush
en ef Gore hefði unnið. Ætli
rnuni samt ekki meiru um áhrifa-
mátt hvalaverndunarsinna og
vilja almennings vestra til að
kaupa okkar mikilvægu fiskafurð-
ir, ef sami almenningur verður
var við að Islendingar byrja að
stráfella ástsælu og greindu
Keikóana.
Tekjumar 4 til 4,5
milljarðar
Víst er að nóg er af hval í námun-
da við Island, hann er ónýtt en
verðmæt sjávarafurð og hann
étur heil ósköp af fiskmeti og átu,
sem bitnar að líkindum með" vax-
andi þunga á uppgangsmöguleik-
um t.d. þorsksins.
Misjafnlega áreiðanlegir út-
reikningar benda til þess að hóf-
leg veiði á hrefnum og langreyð-
um gæti skilað 4 til 4,5 milljörð-
um króna í þjóðarbúið árlega. Þá
er miðað við að veiddar yrðu 250
hrefnur, að tillögu Hafrann-
sóknastofnunar og að fyrir kjöt og
spik af þeim fáist um 750 millj-
ónir. Og þá er miðað við veiðar á
um 200 langreyðum, sem gæfu
kjöt og spik að verðmæti 3,5 til
3,7 milljarða. Veiðar á öðrum
hvalategundum yrðu alltaf tak-
markaðri, en þó mest í sandreyð-
um.
Tölur um fjökla hvala í námun-
da við ísland byggja mest á taln-
ingu árið 1995, en geta má þess
að næsla sumar eru nýjar talning-
ar ráðgerðar. A íslenska talningar-
svæðinu voru hrefnur taldar vera
um 56 þúsund árið 1995, en um
40 þúsund 1989 og um 25 þús-
und 1987. Fjölgunin er því
greinileg þótt talningaraðferðirn-
ar hafi farið hatnandi. Arið 1995
var talið að á A-Grænlands/Is-
lands-svæðinu hefði langreiðum
fjölgað frá 1989 úr 8.900 í
16.000. Hafrannsóknastofnun
telur óhætt að veiða á þessum
svæðum 250 hrefnur og 200
langreyðar.
Hvalur 6 miHjón -
maður 1,5 mílljón
„Hvalurinn tekur 10 til 20 pró-
sent af þorskinum okkar" sagði
Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð-
herra á Norðurlandaráðsþingi í
nóvember síðastliðnum. Haf-
rannsóknastofnun hefur reynt að
meta „heildarafrán" hvalateg-
unda við Island og gerir Gísli A.
Víkingsson hvalasérfræðingur
stofnunarinnar grein fyrir niður-
stöðunum í Sjávarsýn, blaði
meistaranema í sjávarútvegsfræð-
um við HÍ. Þar segir Gísli:
„Samkvæmt [útreikningunum]
éta hvalir við Island rúmlega 6
milljónir tonna af sjávarfangi ár-
lega, þar af tæplega 3 milljónir
tonna af krabbadýrum, rúmlega 1
millj. tonn af smokkfiskstegund-
um og rúmlega 2 millj. tonna af
fiskmeti. Hrefnan er atkvæða-
mesti afræninginn bæði hvað
varðar heildarmagn (2 millj.
tonna) og fiskát (1 millj. tonn).
Langreyðarnar étar samkvæmt
þessu urn 1.5 millj. tonn af sjáv-
arfangi, mcstmegnis átu, en ein-
ungis um 21 þúsund tonn af
fiski... Heildarneysla hvala upp á
6 millj. tonna er vissulega ntikil
t.d. í samanburði við heildarafla
íslendinga, sem numið hefur 1.5
millj. tonna að meðaltali undan-
farin ár.“
Minnkar afrakstursgetu
þorsksins
Jóhann Sigurjónsson sjávarlíf-
fræðingur og forstjóri Hafrann-
sóknastofnunar segir að stofnun-
in sem slík hafi enga einhlíta af-
stöðu til spurningarinnar um
hvort taka eigi upp hvalveiðar að
nýju, en bendir á að stofnunin
hafi árlega um nokkurt skeið lagt
til aflamark fyrir hrefnur og lang-
reyðar.
En hvaða áhrif telur Jóhann að
vaxandi stærð hvalastofna hér við
land hafi á þorskinn og annað líf
í hafinu í kringum ísland? „Við
höfum metið afránið með rann-
sóknum og teljum að hvalirnir éti
um 6 milljónir tonna af fiski,
smokkfiski og átu árlega. Okkar
vitneskja bendir til þess, að gefn-
um ýmsum óvissum forsendum,
að langtíma afrakstursgeta
þorsksins gæti minnkað um 10 til
20 próscnt á ári, ef þessar teg-
undir f’á að vaxa upp í það sem