Dagur - 20.01.2001, Side 9
LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2001 - 33
FRÉTTIR
n“ vestra
.
r eigi að hefja hvalveiðar á ný.
þær voru áður en hvalveiðarnar
hættu. Það er óljóst hvenær það
nákvæmlega gerist, gæti verið í
námunda við einn áratug, en eftir
stendur að þetta skiptir verulegu
máli til langs tíma,“ segir Jóhann.
Aðrir hagsmimir
milvlti meiri?
A móti þeim hugsanlegu 4 til 4,5
milljörðum sem hafa mætti af
þessum tveimur oftnefndu hvala-
tegundum, miðað við magndllög-
ur Hafrannsóknastofnunar, standa
hugsanlega gríðarlegir hagsmunir
þjóðarbúsins vegna annars út-
flutnings. Stórfyrirtæki í útflutn-
ingi sjávarafurða á borð við SÍF og
SH óttast um fisksöluna og fyrir-
tæki eins og Flugleiðir og Eimskip
telja hvalveiðarnar geta skaðað þá
ímynd sem menn hafa verið að
byggja upp.
Þá hefur verið bent á að hags-
munir vegna hvalaskoðunarferða
erlendra túrista hér við land sé
vaxandi atvinnugrein. Þannig hef-
ur þeirri tölu verið varpað fram að
tekjurnar vegna hvalaskoðana og
annarrar starfsemi til hliðar nemi
nú vart undir einum milljarði
króna, en sagt er að 44 þúsund
manns hafi borgað fyrir hvala-
skoðunarferðir.
Landkyiming í hættu
Arni Finnsson, formaður Náttúru-
verndarsamtaka íslands, segir
vafamál að hvalveiðar hefjist í ár
og vísar þá til ummæla sjávarút-
vegsráðherra í Utveginum. „Ég sé
ekki fyrir mér að hvalveiðar hefjist
nema Alþjóðahvalveiðiráðið nái
um það samkomulagi. Og það
verða þá fyrst hrefnuveiðar, en
ekki þau stórhveli sem Kristján
Loftsson í Hval hf. sækist eftir og
aðalpeningurinn liggur í.“
Arni gefur lítið fyrir vinnu
stjórnvalda að málinu og kynningu
á afstöðu íslands í Bandaríkjun-
um. „Þessir aurar sem menn hafa
sett í kynningu erlendis, um 17
milljónir króna, eru ekki miklir í
samanburði við landkynningar-
peningana, milljarðana fjóra. En
sjálfsagt gætu þessir hvalveiði-
kynningarpeningar eyðilagt megn-
ið af þeim árangri sem náðst hefur
með landkynningunni. Þetta sjá
allir og manni finnst hvalveiðium-
ræðan mestmegnis meiningarlaus.
Eg hef enda tekið eftir því að hvor-
ki forsætisráðherra né utanríkis-
ráðherra tjá sig um málið og sjáv-
arútvegsráðherra lítið," segir Arni.
Garðar Sverrisson: Málsrök ríkisstjórnarinnar byggjast á tveimur setningum.
Vilja þeir fá yflr
sig þriðja dómiim?
Garðar Sverrisson
spyr hvort ekki verði
stofnuð ný lögfræð-
inganefnd ef farið
verður aftur í mál
vegna frumvarps rík-
isstjórnarinnar og til
komi nýir útúrsnún-
ingar og undanbrögð.
Jónfna Bjartmarz alþingismaður
og formaður heilbrigðisnefndar
zMþingis, sem nú er að fara yfir
frumvarpið vegna dóms Hæsta-
réttar, sagði í Degi í gær að einn
öryrki yrði að fá gjafsókn til að
fara í mál út af lögunum sem Al-
þingi er að setja þcssa dagana til
að fá úr því skorið hvað Hæsti-
réttur sé í raun að meina með
dómi sfnum. Garðar Sverrisson,
formaður Oryrkjabandalagsins,
var spurður hvað hann segði um
þessi ummæli Jónínu og hvort
hann teldi að einhver muni fara
í mál?
„Við erum að eiga við fólk á Al-
þingi sem hagar sér ekki eins og
siðaðar manneskjur. Þess vegna
er engin trygging fyrir því að það
bregðist þá bara ekki við með
nýrri lögfræðinganefnd og nýj-
um útúrsnúningum og undan-
brögðum að Ioknum enn einum
dómnum ef það endilega vill fá
sig dæmt fyrir þriðja réttarbrotið
á skömmum tíma. Það hefur
farist fyrir og þarna talar fólk
sem nýbúið er að dæma fyrir
mannréttindabrot og það eru
ekki efnisleg rök í máli að hamra
á því að það sé bara hægt að
kæra og kæra. Ekki frekar en að
það eru ekki efnisleg rök fyrir því
að klifa á því að menn séu með
mcnntun í lögfræði og að þeir
hafi sem slíkir lesið dóminn tíu
eða tuttugu sinnum," segir
Garðar Sverrisson.
Vantar efaisleg rök
Hann segir að það vilji svo til að
í Hæstarétti íslands sitji líka
menn sem hafa staðist sömu
próf í lögfræði og formaður heil-
brigðis- og trygginganefndar.
„Það er tími til kominn að hún
og aðrir komi með og færi fram
efnisleg rök fyrir máli sfnu og
Iáti af þeim skrípalátum sem þau
hafa staöið fyrir á hinu háa Al-
þingi síðustu daga. Þar hefur allt
verið gert til að forðast kjarna
málsins. Þar hefur verið rætt út
og suður og fólki talin trú um að
þetta snerti hálaunafólk og að
þetta kunni að hafa fordæmis-
gildi fyrir ríkissjóð og annað í
þeim dúr. Þótt hvort tveggja væri
rétt og allt væru þetta milljóna-
mæringar sem dómurinn fjallaði
um og að þetta ætti eftir að hafa
gríðarlegt fordæmisgildi, þá ber
að fara eftir dómnum. Það setur
að mér óhug að hugsa þá hugs-
un til enda að meirihluti Alþhig-
is skuli ætla að taka þátt í þess-
um leik," segir Garðar.
Hann segir málsrök ríkis-
stjórnarinnar í þessu máli bvggj-
ast á tveimur setningum sem
klipptar eru úr samhengi og
dregnar af þeim ályktanir sem er
svo augljós útúrsnúningur að all-
ir læsir og hugsandi Islendingar
sjá það. Hann bendir á að skiln-
ingurinn í þessu máli kalli bara á
heilbrigða skynsemi. — S.DÓR
Coldwater í 25. sæti
í Bandaríkj luiuin
Coldwater Seafood Corp., dótt-
urfyrirtæki SH í Bandaríkjunum,
var í 25. sæti yfir þau fvrirtæki
sem seldu mest af sjávarafurðum
í Norður-Ameríku á sl. ári ef
miðað er við verðmæti. Sala
Coldwater nam 174 milljónum
dollara eða sem svarar til rúm-
lega 14,6 milljarða íslenskra
króna. Þetta kemur fram á Inter-
seafood.com.
A toppnum yfir söluhæstu fyr-
irtækin er Sysco Corp. með 1250
milljónir Bandaríkjadollara eöa
rúmlega sjö sinnum meira verð-
mæti en Coldwater. I öðru sæt-
inu er Starkist Seafood Co. með
1200 milljónir dollara, Bumble
Bee Seafoods er í því þriðja með
750 milljónir dollara, Red
Chamber (Group) er í fjórða
sætinu með 665 milljónir dollara
og í fimmta sæti er Trident
Seafoods Corp með sölu upp á
600 milljónir dollara.
Samkvæmt upplýsingum
WorldCatcb er röð annarra fyrir-
tækja á listanum sem hér segir:
Fishery Products Ltd. á Ný-
fundnalandi (510), Pacific
Seafood Group (450), Tri-Mar-
ine Int. Inc (449), ConAgra
Seafoods Cos. (410), Gorton’s
Seafood (350), Ocean Garden
Products Inc. (350), Tri-Union
Seafoods (340), Aqua Star (324),
Alliant Foodservice (315), U.S.
Foodservice (305), Rich-SeaPak
Corp. (290), Ocean Beauty
Sealood lnc. (290), American
Seafoods Co. (270), Beaver
Street Fisheries (270), The
Mazzetta Co. (250), Clearwater
Fine Foods lnc., Nova Scotia
(235), Aurora Foods (225), Icicle
Seafoods Inc. (220), Contessa
Food Products (210), H&N Fish
Co. (210), North Pacific
Prosessors Inc. (202), Peter Pan
Seafoods Inc. (200), High Liner
Foods, Nova Scotia (196) og
Coldwater Seafood Coiy). (174).
Rétt er að taka fram að
Bumhle Bee Seafoods var selt
ConAgra í ágúst 2000 og var
sameiginleg sala fyrirtækjanna
tveggja á árinu 1160 milljónir
dollara. Tölurnar fyrir U.S.
Foodservice og Aurora Foods eru
frá árinu 1999. — GG