Dagur - 20.01.2001, Page 10
3é - LAUGARDAGUR 20. J A N Ú A R 2001
ÍÞRÓTTIR
ísland á HM í 12. skípti
Þeir ruddu brautina. Liðiö sem spiladi fyrsta HM-leikinn fyrir íslands hönd í úrslitakeppninni i Austur-Þýskalandi
árið 1958, gegn Tékkum. Talið f.v.: Birgir Björnsson, fyrirliði, Guðjón Ólafsson, Kristófer Magnússon, Þórír Þor-
steinsson, Reynir Ólafsson, Gunnlaugur Hjálmarsson, Hermann Samúelsson, Einar Sigurðsson, Ragnar Jónsson,
Karl Jóhannsson og Bergþór Jónsson.
Úrslitakeppni heims-
meistaramótsms í
handknattleik, HM-
2001, hefst í Frakk-
landi á þriðjudaginn
og hefja „okkar
menn“ þá leikinn gegn
frændum okkar Sví-
um, sem mæta fullir
sjálfstrausts til leiks
eftir laufLéttau undir-
búning.
Islenska karlalandsliðið í hand-
knattleik leikur sinn fyrsta leik á
heimsmeistaramótinu í Frakk-
landi á þriðjudaginn og mæta
strákarnir þá frændum okkar Sví-
um, sem í gegnum árin hafa verið
íslenskum handknattleikslands-
Iiðum hvað erfiðastir. Það er að
heyra á landanum að væntingarn-
ar í Frakklandi séu yfirleitt ekki
miklar, en þegar svo er vill árang-
urinn oft verða betri, það hefur
reynslan sýnt til þessa. Góð byrj-
un á mótinu hlýtur að vera Iiðinu
mikilvæg og má því búast við að
hart verði barist til sigurs gegn
Svíum. Alla vega ættu möguleik-
arnir að vera betri núna heldur en
oft áður, þvá auðsjáanlega er farið
að halla undan fæti hjá gullaldar-
liði Svía, sem óðum fcr að syngja
sitt síðasta. Lengi getur þó lifað í
gömlum glæðum og það sönnuðu
Svíar reyndar um síðustu helgi,
þegar þeir tóku Frakka í kennslu-
stund á æfingamóti sem fram fór
f Malmö í Svíþjóð. Þeir hafa þó
tekið því frekar rólega á undir-
búningstímanum og komu ekki
saman fyrr en 10. janúar og hafa
síðan leikið þrjá Ieiki á áður-
nefndu æfingamóti. Fyrir mótið
höfðu leikmenn jafnvel skroppið
til Mallorca og slappað rækilega
af á meðan öll önnur lið æfðu á
fullu. Liðið kom síðan aftur sam-
an á fimmtudaginn eftir þriggja
daga frí og hófst þá lokaundirbún-
ingurinn. Það er stór spurning
hvernig þessi óvenjulegi undir-
búningur Svía virkar þegar í alvör-
unni er komið í Frakklandi, en
vonandi er gamla „Svíagrýlan"
týnd og tröllum gefin.
MiMlvægur leikur gegn
Portúgölum
Annar leikur íslenska liðsins
verður á miðvikudag, en þá mæta
strákarnir Portúgölum og er sá
leikur mjög mikilvægur ekki síst
ef leikurinn við Svía tapast. Portú-
galir mæta sífellt sterkari til leiks
undir stjórn spænska þjálfarans,
Xavier Cuesta, en nú er lögð mik-
il áhersla á uppbyggingu liðsins
fyrir HM-2003 sem fram fer í
Portúgal. Þeir unnu sér sæti í úr-
slitakeppninni með því að slá
Tékka út í undankeppninni.
Þriðji leikurinn er gegn
Marokkóum á fimmtudaginn og
þar ætti sigur íslands að vera
nokkuð borðliggjandi. Marokkóar
komust í úrslitakeppnina með því
að ná fjórða sætinu í keppni Afr-
íkuþjóða, en þier voru einnig
meðal þátttakenda í tveimur síð-
ustu keppnum og lentu f 17. sæti
í síðustu keppni í Egyptalandi.
Á laugardaginn verða Egyptar
mótherjar íslenska liðsins, en
strákarnir fengu aðeins að snerta
á þeim á æfingamótinu á Spáni,
þar sem Iiðin skildu jöfn. Egyptar
eru með sterkt lið og eru núver-
andi Afríkumeistarar og gætu orð-
ið erfiður viðureignar.
Síðasti leikurinn í riðlinum er
gegn Tékkum á sunnudaginn, en
á pappírunum eru þeir með
slakasta liðið í riðlinum og
komust bakdy'ra megin inn í
keppnina eftir að fulltrúar Eyja-
álfu höfðu hætt við þátttöku.
Sautjánda HM-keppnin
Heimsmeistarakeppnin í Frakk-
landi er sú sautjánda í röðinni frá
upphafi og tekur Island þar þátt í
sinni tólftu úrslitakeppni. Island
tók fyrst þátt í úrslitakeppni HM
árið 1958 í Austur-Þýskalandi,
sem var sú þriðja í röðinni, en
fyrsta keppnin fór fram í Berlín í
Þýskalandi árið 1938. Þar voru
þátttökuþjóðirnar aðeins fjórar,
en það voru auk gestgjafanna lið
Dana, Svía og Austurríkismanna
og \'ar öll keppnin spiluð á einni
helgi. Þjóðverjar sigruðu á mótinu
og urðu því fyrstu heimsmeistarar
í handknattleik, en Austurríkis-
menn urðu í öðru sæti, Svíar í því
þriðja og Danir ráku lestina.
Seinni heimsstyrjöldin og hörm-
ungarástandið sem fylgdi í kjölfar-
ið, varð til þess að keppnin var
ekki haldin aftur fyrr en sextán
árum síðar, eða árið 1954 og var
hún þá haldin í Svíþjóð. Þátttöku-
þjóðunum hafði fjölgað til muna
og voru þær nú ellefu talsins. Sví-
ar urðu heimsmeistarar og hefur
engri þjóð sfðan tekist að vinna
titilinn á heimavelli. Vestur-Þjóð-
verjar urðu í öðru sætinu og Tékk-
ar í því þriðja.
ísland með í fyrsta skipti
árið 1958
Þriðja keppnin fór fram í Austur-
Þýskalandi árið 1958 og voru Is-
Iendingar þá, eins og áður sagði,
meðal þátttakenda í fyrsta skipti.
Keppnin var þá í fyrsta skipti
komin í það form sem hún er í
dag og voru þátttökuþjóðirnar í
úrslitakeppninni nú orðnar sext-
án. Svíar endurtóku nú leikinn frá
síðustu keppni og sigruðu eftir úr-
slitaleik við Tékka. Vestur-Þjóð-
verjar urðu í þriðja sætinu og
Danir í því fjórða. Islenska liðíð
lenti í níunda sæti ásamt Frökk-
um, Austurríkismönnum og
Spánverjum og var fyrsti leikur
liðsins á mótinu gegn Tékkum.
Fjórða keppnin fór fram í Vest-
ur-Þýskalandi árið 1961 og þar
náði íslenska liðið þeim frábæra
árangri að lenda í sjötta sætinu á
eftir Dönum, sem lentu í því
fimmta. Rúmenar unnu heims-
meistaratitilinn í fyrsta skipti og
áttu eftir að vinna hann þrisvar
sinnum til viðbótar í næstu fjórum
keppnum og má segja að þar með
hafi blómaskeið Austur-Evrópu-
þjóðanna hafist í boltanum. Tékk-
ar urðu í 2. og Svíar í 3. sæti.
Svíar lagðir í Bratislava
I fimmtu keppninni sem fram fór
í Tékkóslóvakíu árið 1964, lenti
íslenska liðið í níunda sætinu
ásamt Noregi, Sviss og Austur-
Þýskalandi, en Rúmenar unnu nú
titilinn annað árið í röð og nú eft-
ir úrslitaleik við Svía. Heima-
menn náðu þriðja sætinu og Vest-
ur-Þjóðverjar því fjórða. Þar gerð-
ist sá fáheyrði atburður að ís-
Ienska Iiðið vann sigur á Svíum í
eftirminnilegum leik sem fram fór
í Bratislava. Islendingum tókst
ekki að komast í sjöttu úrslita-
keppnina, sem fram fór í Svíþjóð
árið 1967. Þar urðu Tékkar
heimsmeistarar í fyrsta skipti eftir
úrslitaleik við Dani, en Rúmenar
náðu þriðja sætinu og Sovétmenn
því fjórða. I næstu keppni sem
fram fór í Frakklandi árið 1970
voru Islendingar aftur með og
hafa síðan alltaf nema tvisvar
verið með, í Þýskalandi árið 1982
og nú síðast í Egyptalandi árið
1999. Arangurinn hefur verið
misjafn, en bestur varð hann í
Japan árið 1997, þegar liðið lenti
í 5. sæti. Áður hafði það Ient í 6.
sæti í Svisss árið 1986, í 10. sæti
í Tékkóslóvakíu árið 1990, í 8.
sæti í Svíðþjóð árið 1993 og loks í
15. sæti hér heima á Islandi árið
1995.
Árangnr þátttöknþjóða á HM frá upphafi
Þjóð: 1938 1954 1958 1961 1964 1967 1970 1974 1978 1982 1986 1990 1993 1995 1997 1999
Alsír 13-16 16 16 16 16 15
Austurríki 2 9-12 14
Brasilía 13-16 16
Búlgaría 11 13-16
Danmörk 4 5 4 5 7 2 4 8 4 4 8 9 9
Egyptaland 13-16 12 7 6 7
Finnland 13-16
Frakkland 6 9-12 8 13-16 9-12 12 13-16 9 2 1 3 6
Holland 9-12
Hvíta Rússl. 9
ísland 9-12 6 9-12 11 13-16 13-16 6 10 8 15 5
Japan 9-12 13-16 9-12 10 12 12 14 15 15
Júgóslavía (1) 8 9-12 6 7 3 3 5 2 I 4
Júgóslavía (2) ' 9 3
Kanada 13-16 13-16
Króatía - 2 13 10
Kúba 13 15 14 14 14 8
Kúveit 15 ■' -
Litháen 10
Lúxemborg 13-16
Noregur 6 7 9-12 13-16 13-16 13 12 13
Pólland 5 9-12 13-16 4 6 3 14 11
Rúmenía 13-16 1 1 3 1 1 7 5 9 3 10 10
Rússland 5 1 2
Sviss 4 9-12 9-12 13-16 13-16 12 11 13 4 6
Sovétríkin 5 4 9 5 2 1 10 2 1
Spánn 9-12 13-16 10 8 5 5 5 11 7 4
Svíþjóð 3 1 1 3 2 5 6 10 8 11 4 1 3 3 2 1
S.-Kórea 12 12 15 12 8 14
Tékkland 8 11
Tékkóslóvakía 3 2 2 3 1 7 6 11 10 13 7 7
Túnis 13-16 13 16 12
llngverjaland 7 8 8 8 7 9 9 2 6 11 4 11
Bandaríkin 13-16 13-16 13-16 16
A.-Þýskaland 9-12 9-12 2 2 3 6 3 8
V.-Þýskaland 2 3 4 4 6 5 9 I 7 7
Þýskaland 1 6 4 5