Dagur - 20.01.2001, Page 11
LAUGARDAGUR 20. JAWÚAR 2001 - 35
ERLENDAR FRÉTTIR
Lögreglumaður í Málmey í húsrannsókn í íbúð þar sem margir eiturfíklar hafast við.
Síðasti dagur Clinton í Hvíta húsinu
WASHINGTON - Síðasti formlegi vinnudagur
Bills Clinton sem Bandaríkjaforseta var í gær,
en í dag tekur George W Bush við forsetaemb-
ættinu. Clinton virtist njóta kveðjustundar-
innar vel og í ávarpi sem sjónvarpað var í gær
dró hann upp bjartsýná mynd af framtíðinni.
Sjónvarpsræðan var þó einugis ein af mjög
mörgum kveðjuræðum sem hann flutti í gær,
en í þessari aðalræðu gat Clinton ekki stillt sig
um að gefa eftirmanni sfnum nokkur góð ráð.
Þannig varaði hann við því að Bandaríkin
drægju sig frá þeim alþjóðlegu skuldbindingum
sem þau hafa gegnist undir og hann sagði líka
að peningamálastefna ríkisins yrði að beinast
að því að halda áfram að greiða niður skuldir.
Þessi skilaboð er ekki hægt að misskilja, því Bush hefur boðað óvirk-
ari stefnu gagnvart umheiminum og er með á prjónunum gríðarlega
skattalækkun sem mun takmarka getu ríkissjóðs til að greiða niður
skuldir.
Bill Clinton.
DauðsföH vegna ofnotk-
unar fíkniefna margfaldast
í Málmey í Svíþjod
dóu þrisvar siiiuuin
fleiri vegna heróínn-
eyslu en árid áður.
Framboð eykst og
íikluin fjölgar
Fíkniefnanotkun eykst jafnt og
þétt þrátt fyrir mikinn áróður
gegn eiturlyfjum og mikla sam-
vinnu lögreglu og tollgæslu fleiri
landa til að loka flutningsleið-
um. Mikið magn alls kyns efna
er gert upptækt og alltaf telur
löggæsla sig ná góðum árangri í
því að ná til smyglara og eitur-
lyfjasala. En það stafar af því að
magnið sem sett er í umferð
eykst en það er ekki víst að hlut-
fallið sem lögregla næ,r sé neitt
hærra þótt árangurinn sýnist
betri ár frá ári. Og ekki skortir
markaðinn.
Dæmi um misnotkun eitur-
Iyfja eru tölur um dauðsföll eit-
urlyfjasjúklinga í Málmey, sem
nýverið voru gefnar upp og vekja
óhug meðal borgarbúa. I fyrra
dóu 34 manns vegna of stórra
heróínskammta. Þeir voru þre-
falt fleiri en árið þar á undan. En
alls dóu 1 50 manns vegna mis-
notkunar eiturlyfja á svæðinu.
Lögreglan telur að dauðsföll-
um vegna heróinofneyslu fjölgi
svona herfilega vegna þess að
framboðið er meira en nokkru
sinni fyrr. Heróínneytendurnir
fundust yfirleitt látnir með
sprauturnar í æðunum.
En allt hitt fólkið sem lést dó
yfirleitt vegna langvarandi of-
neyslu og eins hins, að mikið er
um að blandað sé saman ólíkum
eiturefnum og vita neytendurnir
oft á tíðum ekki hvað þeir eru að
inn byrða.
Réttarlæknar segja að f raun
skipti ekki svo miklu máli hvort
sjúklingur deyr vegna ofur-
skammts af heróíni eða öðrum
fikniefnum. Rétta talan um
látna á liðnu ári sé 1 50 manns
þótt mikið sé gert úr þeim 34
sem létust með heróínnálarnar í
sér.
Fyrir áratug voru fíklar flokk-
aðir í alkóhólista, amfetaminista
og heróínista. Nú er þetta allt
notað, jafnvel samtímis og
blandan leiðir til þess að fíklarn-
ir lifa mun skemur en áður.
Ný og ný efni koma á markað-
inn. Áður bvrjuðu flestir fíklar
að fikta með hass og leiddust
síðan til að misnotka önnur og
sterkari efni. Nú hefja ungling-
arnir sinn hættulega feril með E-
pillum. Meðal þeirra 150 fíkla
sem dóu í Málmey í fyrra voru
nokkrir sem lifðu ekki af að gley-
pa E-pillur. Dæmi eru um ung-
linga sem fengu sér pillu í partíi
til fjörga upp á tilveruna og lágu
á borðum réttarlækna þrem sól-
arhringum síðar.
Enginn veit hve margir
eiturlyfjaneytendur eru í Málm-
ey, en 1.200 manns koma reglu-
lega til að fá skammt í stöð sem
rekin er af hinu opinbera til að
líkna þeim sem langt eru leiddir.
I Svíþjóð allri eru eiturfíklar
taldir vera um 30 þúsund, en
enginn veit með neinni vissu hve
margir nota fíkniefni að stað-
aldri eða annað slagið. Sjúkra-
rými eru alltof fá og meðferðar-
stofnanir ráða ekki við að taka
við þeim fjölda sem þarfnast
meðferðar. Og þeir sem komast í
meðferð eru sjaldnast nógu lengi
undir læknishendi til að ná full-
um bata og sækir oft í sama
horfið þegar aftur er komið á
götuna.
EiiLkaþjóim Díönu sakaóur um stuld
LONDON - Fyrrum einka-
þjónn Dfönu prinsessu var í
gær látinn laus úr haldi yfir-
valda gegn tryggingu en hann
var handtekinn af breskri lög-
reglu vegna gruns um að hafa
stolið ýmsum eigum
prinsessunnar, að því er fram
kemur í tilkynningu frá lögg-
unni. Paul Burrell, sem Díana
kallaði „steininn sinn“ vegna
þess hversu tryggur hann var
henni, var yfirheyrður í gær eft-
ir að lögreglumenn höfðu gert
húsleit á heimili hans í Chester
á Norður Englandi á fimmtu-
dag. Handtakan kom í kjölfar
þess að módel af skipi sem hafði verið brúðkaupsgjöf til þeirra Karls
frá emírnum af Bahrain fannst, en þessum hlut hafði verið stolið frá
vistarverum Díönu í London.
ísraelar íhuga tHboð um
maraþonfuud
JERUSALEM - ísrael frestaði því í gær að
bregðast við tillögum Palestínumanna um að
heíja maraþonviðræðufund nú, en Cliriton
skoraði á deiluaðila í kveðjuávarpi að láta ekki
deigan síga í viðræunum. Í gær var haft eftir
fulltrúa Palestínumanna í samningaviðræðun-
um að hann hefði fegnið um það skilaboð frá
ísraelskum kollegum sínum að ekki væri að
vænta svars við tillögum um maraþonsamn-
ingafund fyrr en í dag, Jaugardag. Annars geng-
ur tillaga Palestínumanna út á það að halda
viðræðum áfram rétt utan við Kaíró og sitja
meðan sætt sé. í gærkvöldi var búist við að sérstakt trúnaðarmanna-
ráð Ehuds Baraks myndi koma saman til að ræða þessa tillögu, sem
ættuð er frá Arafat sjálfum.
Ehud Barak.
Paul Burrell ásamt vlnkonu sinni á
góðri stund.
■ frTdegí
LAUGARDAGUR 20. JANÚAR
20. dagur ársins, 345 dagar eftir.
Sólris kl. 10.42, sólarlag kl. 16.37.
Þau fæddust 20. jan.
• 1860 Árni Þórarinsson prófastur.
• 1873 Johannes V. Jensen, danskur rit-
höfundur sem hlaut Nóbelsverðlaunin í
bókmenntum árið 1944.
• 1889 Leadbelly, bandarískur söngvari.
• 1920 Federico Fellini, ítalskur kvik-
myndaleikstjóri.
• 1946 David Lynch, bandarískur kvik-
myndaleikstjóri.
• 1947 Þórhallur Sigurðsson (Laddi)
skemmtikraftur.
TIL DAGS
stjórnmálamaður og fyrrverandi andófs-
maður í Sovétríkjunum.
Þetta gerðist 20. jan.
•1841 afhentu Kínverjar Bretum Hong
Kong.
• 1957 kusu Samtök íþróttafréttamanna
Vilhjálm Einarsson íþróttamann ársins
1956.
•1981 var 52 bandarískum gíslum sleppt
úr haldi í Teheran eftir 444 daga gísl-
ingu.
•1991 brann Skíðaskálinn í Hveradölum,
en var byggður upp aftur ári síðar.
• 1996 var Yasser Arafat kosinn leiðtogi
sjálfstjórnarsvæða Palestínumanna.
Afmælisbam dagsins
I dag eru liðin 175 ár frá fæðingu Bene-
dikts Sveinssonar eldri. Hann var al-
þingismaður frá árinu 1861 og tók við
hlutverki sjálfs Jóns Sigurðssonar sem
helsti merkisberi þeirra sem lengst vildu
ganga í sjálfstæðisbaráttunni við Dani
eftir að Jón féll frá. Hann barðist m.a.
fyrir endurskoðun stjórnarskrárinnar
frá 1874. Benedikt fæddist árið 1826
en lést árið 1903.
Sannleikurinn er öruggasta Iygin.
Spakmæli frá Gyðingum
Vísa dagsins
Þunglega þylur í skeggið
Þorrí og hrækir skakkt,
þykist mí hríð og hreggið
hafa í sinni makt.
Bjarni Gissurarson (1621-1712)
HeUabrot
Hver er það sem sífellt þarf að fá eitthvað
til að nærast á, en sleiki hann fingur manns
þá svíður illa undan?
Lausn á síðustu gátu verður birt á
þessum stað í næsta þriðjudagsblaði.
Vefur dagsins
Vefsíður íslensku kvikmyndarinnar Villi-
ljós, sem frumsýnd var í gærkvöld, er á
www.zikzak.is
1948 Anatoly Shcharansky, ísraelskur