Dagur - 26.01.2001, Page 6
6-FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2001
ÞJÓDMÁL
1 Damnr
Mtmmmmmiim: mmzm m mmm (T ^ Jf)
Útgáfufélag: dagsprent
Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson
Ritstjóri: elías snæland jónsson
Aðstoðam'tstjóri: birgir guðmundsson
Skrifstofur: strandgötu 3i, akureyri,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVIK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
Símar: 460 6ioo OG 800 7080
Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is
Áskriftargjaid m. vsk.: 1.900 kr. Á mánuði
Lausasöluverð: 150 kr. og 200 kr. helgarblað
Grænt númer: 800 7080
Netföng auglýsingadeiidar: vaidemar@dagur.is- augl@dagur.is-gestur@ff.is
Símar auglýsingadeildar: (reykjav(k)563-i615 Ámundi Ámundason
(REYKJAVÍK)563-1642 Gestur Páll Reyniss.
(AKUREYR 1)460-6192 Valdemar Valdemarsson
Símbréf auglýsingadeildar: 460 6161
Simbréf ritstjórnar: 460 6i7i(AKUREYRl) 551 6270 (REYKJAV(K)
Óvissa um Evrópustefnu
í fyrsta lagi
Umræðan í Framsóknarflokknum um afstöðuna til Evrópu-
sambandsins hefur þokast einu skrefi lengra með skýrslu Evr-
ópunefndar flokksins. Efnislega byggir nefndarálitið augljós-
lega á þeirri ítarlegu skýrslu um Evrópumálin sem utanríkis-
ráðherra lét vinna og birtist á síðasta ári, en reynt er að kom-
ast nokkru lengra í að skilgreina þau markmið sem Islending-
ar hljóti að setja sér í samskiptum við Evrópusambandið. Hins
vegar tekur nefndin ekki afstöðu til þess hvaða leiðir að því
markmiði eigi að fara - varpar einungis fram þeim valkostum
sem áður hafa verið í umræðunni. Það skref sem nefndin stíg-
ur er því ekki stórt, enda ljóst að málið þarfnast rækilegrar um-
ræðu innan flokksins.
í öðru lagi
Þegar litið er til þeirra markmiða sem Evrópunefnd Framsókn-
arflokksins telur mikilvægust íyrir Islendinga í evrópsku sam-
hengi, hljóta margir að efast um að sumum þeirra verði náð
með inngöngu í Evrópusambandið. Enda ljóst af samhenginu
að nefndin telur að aðild verði því aðeins raunhæfur kostur að
samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið (EES) hætti að
koma íslendingum að þeim notum sem verið hefur og er enn.
Framtíð EES-samstarfsins mun einkum ráðast af því hvernig
staðið verður að hugsanlegri stækkun Evrópusambandsins á
næstu árum og áratugum, en eins af þeim innri breytingum
sem gerðar verða á bandalaginu á komandi árum - en um
hvort tveggja ríkir enn óvissa.
í þriðja lagi
Þótt fyrir liggi pólitískar yfirlýsingar um stórfellda stækkun
Evrópusambandsins til austurs á næstu árum, eru margir ef-
ins um að sú verði raunin einfaldlega vegna þess hversu mörg
Austur-Evrópuríki eru enn vanþróuð efnahagslega og stjórn-
málalega. Helmut Sehmidt, fyrrum kanslari Þýskalands, er
einn sanntrúaðra Evrópusinna sem varar mjög við að hraða
slíkri þróun, meðal annars vegna þess gríðarlega kostnaðar
sem það hefði í för með sér fyrir skattborgara núverandi aðild-
arríkja bandalagsins. Elias Snæland Jónsson
Yppon Davíðs
Öryrkjamálið er nú að snúast
upp í einn allsherjarsigur fyrir
Davíð Oddsson, manninn sem
allir stjórnmálaskýrendur héldu
að væri búinn að missa „tötsið“
fyrir nokkrum dögum. En Dav-
íð er sterkur í endataflinu og
sýndi hreint ótrúlega útsjónar-
semi á lokasprettinum sem
gerði það að verkum að hann
getur nú rólegur tekið gleði
sína á ný og farið að birtast
þjóðinni sem káti og hressi for-
sætisráðherrann. Já það má
segja að Davíð standi nú með
pálmann í höndunum
og það mun eflaust fara
fyrir honum eins og
landsliðinu í handbolta
í leiknum gegn Svíum,
enginn vill muna eftir
slæma kaflanum í leikn-
um, en allir vilja muna
eftir síðustu 20 mínút-
unum, þegar íslending-
arnir stóðu sig eins og
hetjur.
Betra að tapa
Já í rauninni má segja að Davíð
hafi gjörsamlega mátað alla.
Bæði lögmaður Öryrkjabanda-
lagsins og formaður samtak-
anna hafa Iýst því yfir í fjölmiðl-
um að úr því málið þróaðist
eins og það gerði hefði senni-
lega verið betra fyrir þá að tapa
málinu í Hæstarétti. Þetta
hlýtur að vekja alla þá sem ætla
í mál við Davíð og ríkið til um-
hugsunar - það er ekki nóg að
vinna mál fyrir rétti því sigur
gegn Davíð getur hæglega þýtt
tap. Og sigurvegararnir í ÖBI
hafa þannig, um stundarsakir
að minnsta kosti, lýst sig sigr-
aða. En ekl<i nóg með það. Með
því að fá Halldór Blöndal til að
skrifa Hæstarétti bréfið narraði
Davíð hæstaréttardómarana út
úr virki sínu þannig að þeir
urðu samstundis að skotspæni
bæði almennings, stjórnmála-
V.
manna og kollega. Þannig
hefnist réttinum fyrir að dæma
ekld eins og Davíð vill, með því
að hann missir virðingu og stat-
us og á endanum er það því
Davíð sem sigrar réttinn.
Yftrlýsing Ólafs
Og ekki nóg með að Davíð nái
höggi á ÖBI og Hæstarétti
heldur gerir hann stjórnarand-
stöðunni verulegan grikk líka
með því að fá Hæstarétt til að
túlka dóm sinn stjórnarliðum í
vil í lögfræðiáliti sínu. Stjórnar-
andstaðan situr eftir
með margfalt erfiðara
mál og skilur ekkert í
því hvernig allt gat snú-
ist svona við á örskots-
stundu! Og síðast en
ekki síst náði Davíð
góðu höggi á Ólaf
Ragnar Grímsson for-
seta með þessu öllu, því
eftir bréfaskriftirnar sá
Ólafur sig knúinn til að
gefa út yfirlýsingu sem gekk svo
langt að hann nánast afskrifar
sjálfan sig hvað þjóðmál varðar
það sem eftir er forsetatíðar
hans. Forsetinn hefur eflaust
talið sér skylt að útskýra afstöðu
sína og með því að ganga svo
langt að skilgreina sig frá úr-
skurðarvaldi í svona málum og
afskrifa raunar þjóðaratkvæða-
greiðslu líka, þá er Ólafur jafn-
framt að segja af sér sem virkur
forseti af því tagi scm hann tal-
aði um í innsetningarræðu
sinni. Endataflið var því snjallt
hjá Davíð, allir voru lagðir með
þessu eina bragði, sem var svo
útsmogið og margslungið að
menn eru enn að átta sig á
áhrifum þess. Hver var svo að
segja að máttur pennans færi
þverrandi, allt þetta náðist með
einföldum bréfaskriftum. Þetta
er sannkallað yppon hjá Davíð.
Davíð Oddsson
með yppon.
„Bréfin eru orðin rnörg. Og það
er margt bréfið." Þetta eru orð
gamla mannsins í Bláskógaheið-
inni þegar kóngsins bífalnings-
maður og prófoss stærði sig af því
að hafa hréf upp á valdsvið sitt og
að hann hcfði fulla heimild til að
brjóta niður klukku Iandsins,
sem hékk fyrir gafli gamla lög-
réttuhússins á Þingvöllum.
Framhaldið er alþekkt. Snæris-
þjófur af Akranesi var dreginn
upp úr Þrælakistunni á Bessa-
stöðum til að klifra upp á bjálk-
ann sem íslandsklukkan hékk í
og kvað klámvísur á meðan hann
hjó festingarnar. Kóngsins böðull
braut svo klukkuna og þjóðin átti
ekki lengur neina sameign sem
metin var til fjár.
Eina vitnið, gamli maðurinn í
Bláskógaheiðinni, horfði tinandi
augum út í bláinn.
Til skiLningsauka
Enn eru bréfín orðin mörg. Og
það er margt bréfið. Þrír forsetar
„Og það er margt bréfið66
landsins eru sestir við skriftir og
bréfa ýmist hver á annan eða til
þjóðarinnar. Forseti Alþingis
skrif’ar forseta Hæstaréttar og
biður um útskýringu á dómsúr-
skuði sér til
skilningsauka.
Forseti Hæsta-
réttar skrifar
forseta Alþing-
is bréf til að
útlista lögskýr-
ingar réttarins.
Þá sest for-
seti Islands niður og skrifar bréf
til að tjá sinn skilning á málinu
sem forseti Alþingis hafði ekki á
hreinu hvernig bæri að túlka og
forscti Hæstaréttar reynir í sínu
bréfi að koma Alþingi í skilning
um hver sé niðurstaða dómsins.
1 sínu bréfi afsakar forseti ís-
lands að hann neyðist til að fara
að landslögum í sínum stjórnar-
athöfnum og geti trauðla gengið
gegn vilja og ákvörðum meiri-
hluta Alþingis.
Áður hafði hann tekið við
bænaskjali og gefið vilyrði um
að hann væri reiðubúinn að taka
að sér úrskurðarvald í umdeildu
máli. Sendimenn, sem komu
með bæna-
skjalið, setti
hann niður
við ríkisráðs-
borðið á
Bessastöðum.
Það skíldu
þeir á Jiann
veg, að þeirra
Liprii bréfritaxar
Nú hafa allir bréf upp á það, að
forseti Alþingis skilur ekki hæsta-
réttardóma, að forseti Hæstarétt-
ar telur eðlilegt að hann geri sér-
staka grein fyrir eigin niðurstöðu
og að forseti Islands er bæði
valda- og áhrifalaus.
Það orð liggur á Islendingum
að þeir séu bréflatir, skrifi bréf
sín seínt og illa og séu trcgír að
svara bréfum. Hið gagnstæða
sannast á forsetunum öllum.
Þeir hafa sýnt það á síðustu dög-
um, þeir eru ólatir og einkar lipr-
ir bréfritarar. Einhverjir eru að
tuða um, að bréf þeirra væru bet-
ur óskrifuð, enda eigi þau það
sameiginlegt að gera þá alla
marklausa. Uni það verður
skeggrætt og deilt næstu daga og
mánuði.
Kóngsins böðull hafði bréf upp
á það, að hans verkefni væri að
brjóta niður klukku landsins. I
mikillæti sínu taldi hann sér skylt
að skýra fyrir örvasa gamalmenni
í Bláskógaheiðinni hvaðan liann
þáði vald sitt og uniboð, þegar
gamli maðurinn lýsti yl’ir undrun
sinni á athæfinu.
Forsetabréfin öll eru svipaðs
eðlis. Af þeim er ljóst, að þeir vita
varla hvort þeír eru að brjóta
stjórnarskrá eða mannréttindi.
Þeir telja sig knúna til að útskýra
og afsaka eigin gjörðir. Og allir
skrifa þeir bréf upp á það.
Forseti Forseti Forseti
íslands. Aiþingis. Hæstaréttar.
væri mátturinn.
Ertu sátt(ur) viðyfirlýs-
inguforseta íslands í
öryrkjamálinu ?
(í yfirlýsingunni segir ineðal annars
að það sé hvorki forsetans né þjóð-
arinnar að úrskurða í þjóðarat-
kvæðagreiðslu hvort lög brjóti
stjórnarskrá.)
Kristján Þorvaldsson
ritstjóri Séð og lieyrt.
„Eg kaupi alveg
rök Olafs. Það er
ekki í hans verka-
hring að kveða
uppúr með það
hvort lög hrjóti í
bága við stjórnar-
skrá, hann var ekki einu sinni í
aðstöðu til þess að taka sér um-
þóttunartíma og maður verður
að treysta því að prófessorinn
fyrrverandi í stjórnmálafræði viti
hvar hin fína lína í þessum efn-
um Iiggur. Hins vegar má alveg
búast við því af Olafi að hann
eigi einhvern tíma eftir að vísa
máli til þjóðarinnar.“
Þórunn Sveinbjamardóttir
þ ingmaðurSamJylkingar.
ijá, ég er alveg
sátt við hana.
Eins og fram
kemur í yfirlýs-
ingu forseta Is-
lands eru það að-
eins dómstólar
landsins sem geta kveðið uppúr
með það hvort lög samrýmist
stjórnarskrá eður ei. Dómur
Hæstaréttar í máli Öryrkja-
bandalags Islands frá 19. desem-
ber sl. var skýr, það var hins veg-
ar ríkisstjórnin sem ákvað með
lagasetningu í krafti meirihluta
síns á Alþingis að fara á svig við
dóm Hæstaréttar."
Björk Vilhelmsdóttir
formaðurBandalagsháskólamamia.
„Ef forseti íslands
myndi beita 26.
ákvæði stjórnar-
skrár um að stað-
festa ekki lög frá
Alþingi heldur
vísa þeim til þjóð-
aratkvæðagreiðslu vcrður slíkt að
vera hans eigin ákvörðun, óháð
þrýstingi utan úr þjóðfélaginu.
Ég Iít svo á að í þessu máli hafi
Verið gjá milli þings og þjóðar, þó
ég sé ekki viss um að hun hefði
verið brúuð nieð þjóðaratkvæða-
greiðslu. Það er alveg ljóst að
launþegahreyfingín mun standa
saman með ÖBÍ við að bæta kjör
öryrkja, enda eiga þeir það inni
hjá hreyfíngunni."
Sigurðiir Kári Kristjánsson
Jorm.Samb. tiugra sjálfstæðismanna.
„Já, ég er sáttur
við þessa yfirjýs-
ingu og ég tel að
forseti Islands
hafi rétt fyrir sér
þegar hann segir
að hvorki hann
né þjóðin fari með úrskurðarvald
um hvort liig standist stjórnar-
skrá eða ekki. Valdið er hjá dóm-
stólum. Hins vegar hefði ég vilj-
að sjá forseta íslands bæta því
við í þessa yfirlýsingu að enginn
gild rök hefðu komið fram fyrir
því að frumvarp ríkisstjórarinnar
í öryrkjamálinu brytu gegn
ákvæðum stjórnarskrár."