Dagur - 26.01.2001, Síða 11

Dagur - 26.01.2001, Síða 11
FÖSTUDAGUR 2 6. JANÚAR 2 00 1 - 11 ERLENDAR FRÉTTIR L. Þýski licrÍTin dæmdur tíl að taka við konum Evrópudómstólliim úrskurðaði í fyrra að það væru brot á mannréttmdum að meina konum að gegna herþjónustu. 244 þýskar stiilkur gengu í þýska herinn í ársbyrjun og eru farnar að æfa vígaferli við hliðina á strákunum. Fram til þessa hefur herinn ekki tekið við konum til að gegna herþjónstu, nema í lækna- og hjúkrunarsveitir og í hljómsveitir herdeildanna. Þýski herinn telur nú 320 þús- und manns og eru konur ekki nema örh'tið brot af þeim fjölda, en þeim mun fara mjög fjölgandi á næstu árum. Langt er samt í að konur komist til metorða inn- an hersins, því það tekur mörg ár að þjálfa hermenn til að verða yfirmenn og næstu 25 til 30 árin eru litlar líkur taldar á að konur verði yfirhershöfðingjar landhers og flota eða aðmírálar. Af þeim 244 stúlkum sem hófu herþjónustu um áramótin völdu 151 að ganga í landher- inn, 76 eru í llughernum og 17 kustu að gagna í sjóherinn. Ekki er enn ákveðið hve margar þeir- ra verða þjálfaðar til að taka þátt í átökum á vígvelli, þær verða valdar úr síðar þegar lengra er liðið á þjálfunina. Farið verður að þjálfa lýrstu yfirmannaefnin í júlí næstkomandi. Umsóknir stúlkna um herþjónustu eru margar og er reiknað með að um næstu ármót verði þúsund konur kontnar í herþjálfun. Þýskar sagnir segja frá mörg- unt herskáum og vel vopnfærum konum, eins og vel kemur fram í íslensku Eddunum. En á síðari öldum hafa konur ekki stundað hermennsku í Þýskalandi. Þegar dró að lokum heimstyijaldarinn- ar sendi Hitler unga drengi og gamla karla á vigstöðvarnar, en aldrei datt honurn í hug að skyl- da konur til að taka þátt í bar- dögum. En þýski herinn tók ekki sjálf- viljugur við kvenfólkinu. Það var Evrópudómstóllinn sem kvað upp úrskurð um það á síðasta ári að óheimilt væri að meina kon- um að gegna herþjónustu þar sem það stangaðist á við ákvæði Evrópusambandsins um jafn- rétti. Málið var tekið fyrir af Evr- ópudómstólnum þegar Tanja Kreil, rafeindaverkfræðingur kærði að hafa verið meinað að fá stöðu í viðgerðardeild hátækni- væddra hersveita vegna kynferð- is síns. Eftir að dómur var fallinn dró hún umsóknina til baka, en eftir stóð að herinn er opinn konum sem körlum. Konur geta nú sótt um stöður í öllum deildum hersins, en varla mum bera ntikið á þeim fyrst um sinn, því um þessar mundir hefja einnig 22 þúsund ungir karlar herþjónstu. Þýski herinn hfur verið íhaldsamastur Natoherjanna hvað varðar herþjónustu kvenna. I honum eru nú um 4.400 kon- ur í sjúkradeildum og 60 konur í tónlistardeildunum. Konur eru margar í breska, franska og dan- ska hernum, en þær eru ekki þjálfaðar til að taka þátt í bar- dögum. En eftir úrskurð Evr- ópudómstólsins verða herir þessara Ianda að endurmeta af- stöðu sína til kvenna og búa þær undir að fara í fremstu vígh'nur þegar og ef þörf krefur. Urn 92% starfa í bandarísku herdeildunum eru opnar kon- um. En landherinn þjálfar enn ekki konur till að taka þátt í bar- dögunt á vígvöllum. En þar mun jafnréttið sigra um síðir. Barak svartsýnn TABA, Egyptalandi - Samn- ingamenn Isrela og Palestínu- manna hófu friðarviðræður sínar á ný í gær þrátt fyrir að talsvert hafi verið um átök og árekstra á Gazasvæðinu og þrátt fyrir að Ehud Barak for- sætisráðherra Israel hafi látið falla nokkur afar svartsýn orð varðandi möguleikann á sam- komulagi. Deiluaðilar hafa mikinn áhuga á að ná saman um að minnsta kosti drög að samningi áður en gengið verð- ur til forsætisráðherrakosninga í ísrael þann 6. febrúar, en það er talið minnka verulega líkur á að hinn herskái Sharon muni sigra Barak í kosningunum. Fréttamenn í Taba í Egypta- landi greindu þó frá þvf að stemningin meðal samingamanna hafi minnkað talsvert í kjölfar þess að fréttir bárust af því að tveir Palest- ínumenn hafi verið skotnir til bana. Enn tefjast stríðsbætur BERLIN - Slavar sem Iifðu af ofsóknir nazista undir Þriðja ríkinu ásamt öðrum sem máttu þola svipaðar ofsóknir geta nú búist við því að enn frekari dráttur verði á bótum eftir að dómstóll í Bandaríkjun- um frestaði þvi að afgreiða mál sem þar bíður afgreiðslu. Samkvæmt alþjóðlegum santningum um þessar bætur sem skrifað var undir f fyrra þurfa allar óafgreiddar kröfur og málaferli á hcndur þýskum fyr- irtækjum vegna fortíðar þeirra undir nazismanum að vera afgreiddar áður en hægt er að hefja greiðslur úr hinum 10 milljarða marka sjóði sem á að greiða þessar bætur. Krafan í Bandaríkjunum sem í gær var frestaö og er sú síðasta sem tafið getur þetta mál snýst um málaferli gegn bönkum í Þýskalandi. Engin uranveiMndi BRUSSEL - Nefnd nteð fulltrúum frá 50 þjóðlöndum sem sett var saman í miklum flýti fyrir 2 vikum hefur ekki fundið sannanir fyrir því að skert uranium hafi valdið sjúkdómum s.s. krabba í hermönn- um sem unnu með eldflaugaodda í Balkanstríðinu. Samkvæmt nefndinni eru hermenn sem voru við friðargæslu á svæðinu þegar um 40.000 svona oddum var skotið ekki veikari en aðrir sem höfðu ekki verið á svæðinu. Óveöur viö Galapagos PUERTO BAQUERIZO MORENO, Equador - Miklir straumar og vindur töfðu í gær mjög tilraunir til að hreinsa upp olíulekann sem nú ógnar lífríkinu í kringunt Galapagoseyjarnar rétt við Equador. Oldugangur var mikill í kringum flakið á skipinu Jessicu sem olían lekur úr, og hindraði að björgunarmenn gætu athafnað sig þar og dælt í burtu þeirri litlu olíu sem þar er eftir. Sjómenn af svæðinu, sem unnið höfðu við það að háfa olíubrákina upp í fötur hættu því í gær vegna veðursins. Ehud Barak. ■ FRÁ DEGI TIL DAGS FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 26. dagur ársins, 339 dagar eftir. Sólris kl. 10.25, sólarlag kl. 16.56. Þau fæddust 26. jan. •1781 Achim von Arnim, þýskur þjóð- sagnasafnari og rithöfundur. • 1891 Þura 1' Garði skáld. • 1904 Seán MacBride, t'rskur stjórn- málamaður sem hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 1974. • 1918 Nicolae Ceausescu, leiðtogi Rúnt- eníu frá 1965 þar til honum var varpað af stóli og tekinn af lífi í byltingu árið 1989. • 1925 Paui Néwrrián, bandarískur leik- ari. • 1927 Eartha Kitt, bandarísk söngkona. • 1935 Friðrik Ólafsson skákinaður og skrifstofustjóri. • 1944 Angela Davis, handarísk haráttu- kona lyrir réttindum svartra. • 1945 Barbara Kruger, bandarísk lista- kona. • 1958 Anita Baker, bandarísk söngkona. Þetta gerðist 26. jau. • 1799 var leikritið Narfi cftir Sigurð Pét- ursson í fyrsta sinn Ieikið á sviði. • 1838 samþykkti ríkisþingið í Tennesse bann við sölu áfengis, fyrst ríkja Banda- ríkjanna. • 1905 fannst stærsti demantur heims í námu í Suður-Afríku, en demanturinn hlaut nafnið Cullinan og er 3.106 karöt. • 1907 var Sláturfélag Suðurlands stofn- að. •1912 var íþróttasamband Islands stofn- að. • 1939 náði Francisco Franco hershöfð- ingi Barcelona á sitt vald og vann þar með sigur í spænsku borgarastyrjöld- inni. • 1950 var lýðveldið Indland stofnað eftir langvarandi nýlendustjórn Breta. Afmælisbam dagsius Bandaríski hershöfðinginn Douglas McArthur mun hafa veriö mikil stríðs- hetja í seinni heimsstyrjöldinni, stýrði Kyrrahafsflota Bandaríkjanna og hafði untsjón með hernámi Bandamanna í Japan að stríðinu loknu. Hann var ein- nig í forystu handaríska hersins í Kóreustríðinu. McArthur fæddist í Little Rock í Arkansas 26. janúar 1880, en hann lést í Washingtonborg þann 5. apríl árið 1964. Vísa dagsius Blindir dæma hest um lit, hárur í vindi þegja, í kálfunum er kóngavit, kýrnarfrá mörgu segja. Öfugmælavísa eignuð Bjarna Jónssyni Borgfirðingaskáldi Við hlægilega Iygisögu mýkist þjóðfélag- ið og fer að ljóma upp; jarðvegur sálar- innar verður jákvæður. I lalklor Laxness Heilabrot Hver ef það sem fer á fætur á morgnana til þess eins að elta mann allan liðlangan daginn? Lausn á síðustu gátu: I öllunt orðum kemur einn stafur tvisvar fyrir. Orðunum er svo raðað í stafrófsröð eftir þvf: tAskA, fÁmÁII, paBBi, DunDa, iÐnaÐur. Næsta orð í röðinni yrði því fErlEgt. ■TÍ Vefur dagsins Hið íslenska glæpafélag er félag áhuga- manna um íslenskar glæpasögur. Vefsíður félagsins eru á www.fa.is/~krist- inn/krimi/index.html _ , ____. U* ? ! 'Mj L

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.