Dagur - 26.01.2001, Síða 20

Dagur - 26.01.2001, Síða 20
Landslagsmyndir og líkan Ólafur Jakob Helgason opnar myndllstarsýningu í Gerðubergi föstudaginn 26. janúar kl. 16.00. Ólafur Jakob er fæddur 1920 á Patreksfirði og stundaði húsasmíðar þar til hann hætti störf- um 1990 vegna aldurs. Síðustu ár hefur hann smíðað líkön af gömlum fiskibátum og málað íslenskar landslagsmyndir. Mél- verkin á sýningunni, sem öll eru máluð með akríllitum, eru frá ýmsum stöðum á landinu. Einnig getur þar að líta eitt af líkön- um Ólafs Jakobs af fiskibáti sem faðir hans var á til fjölda ára sem síðar fórst við Engey. í tilefni opnunarinnar mun Gerðu- bergskórinn syngja undir stjórn Kára Friðrikssonar, við harm- óníkuundirleik Benedikts Egilssonar og píanóundirleik Unnar Eyfells og félagar úr Tónhorninu leika fyrir dansi. Söngvar frá sjónarhóli barna Margrét Bóasdóttir, sópran og Miklós Dalmay, píanóleikari halda tónleika í Tíbrá, tónleikaröð Salarins í Kópavogi mánu- daginn 29. janúar kl. 20.00. Efnisskrá þeirra ber heitið • „Söngvar frá sjónarhóli barna" og eru það íslenskir og er- lendir Ijóða-söngvar sem allir fjalla um börn eða eru lagðir börnum í munn. í þeim er lögð áhersla á hið ríkulega ímynd- unarafl sem börn hafa og einnig einlægni þeirra og heiðar- leika. Lagaflokkurinn „Bamaherbergið" er frábært dæmi um allt þetta, þar sem drengurinn Mischa á sinn ævintýraheim en barnfóstran sér um ávítur og huggun allt eftir því hvort úlfur eða hestaferðin verður of hættuleg. Mar- grét og Miklós hafa starfað að tónlistarmálum á fjölbreyttum vett- vangi bæði hér og erlendis, en þessir tónleikar eru þeir fyrstu sem þau vinna saman. Sættir fullkomna sundrung Pétur Halldórsson opnar sýningu í Gall- eríi Sævars Karls laugardaginn 27,jan- úar nk. Sex verk eru á sýningunni, þrjár ol- íumyndir og þrjú tákn. Olíumyndirnar eru gerðar síðustu fjögur árin, táknin fimm síðustu árin og eru verkin öll „í ró- legu þróunarferli," eins og Pétur kemst að orði. Pétur segir fullum fetum að þetta sé hans besta sýn- ing. „Hún er heild- stæð vegna þess að hún sættir fullkomna sundrung sem í henni felst. Sú veröld lita og forma sem ég dvel í hefur leitt mig á vit pælinga um ævaforna tölfræði og heimsmyndarfræði. Uppbygging frumforma á sér fleiri hundruð ára þróunarsögu á íslandi. Allt varð eðlilegt á mínum bæ við að nota táknin mín sem „jarðveg" undir olíuverkin. Jarð- veg í ýmsum skilningi. í jarðveginum geymist þróunin. Málverkin mín fjalla yfirleitt um landslag og heita oftast „Landslag" sem efnið undir fótum okkar - jarðvegur- inn.“ ÞAD ER KOMIN HELGI Hvað ætlar þú að gera? Guðný Sverrisdóttir. Þorrablót og Þengilshöfði „Þorrablót er það sem hæst ber hjá mér um helgina,“ segir Guðný Sverrisdóttir sveitarstjóri á Grenivík. ,JK laugardagskvöld er haldið árlegt þorrahlót hér í Grýtubakkahrcppi sem verður í íþróttahúsinu í Grenivík. Venjan hefur verið sú að þarna mæti um þrjú hundruð gestir og raði í sig þorramat og á eftir er dansleikur. Af þorramatnum þá finnast mér harðfiskurinn og hákarlinn vera það besta og einnig stendur hangikjötið alltaf fyrir sínu. Þá er á blótinu veitt Þengilsorðan þeim sem skarað hefur framúr á sviði menningar og lista í sveitarfélag- inu á árinu - lagt sítt af mörkum til uppbygg- ingar samfélagsins. Orðan er nefnd eftir Þeng- ilshöfða sem er skammt hcr sunnan við kaup- túnið og hver veit nema ég gangi á höfðann þegar ég fer í heilsubótargöngu á sunnudag." Hreinsað undan kálfimuin „Eg verð heima um helgina, þarf eitthvað að vera að vinna,“ segir Þórólfur Sveinsson, bóndi á Feijubakka í Borgarfirði og formaður Lands- sambands kúabænda. „Eitthvað þarf ég að vera að stússa úti við eins og að taka inn rúllu og hreinsa undan kálfunum í fjósinu, en einnig verð ég eitthvað inni á stússa í pappírum, bæði Þórólfur Sveinsson. 1 e'g'n bókhaldi og eins störfum fi'rir Lands- ----- samband kúahænda. Reyndar stóð til að vera á kóræfingu alla hclgina, en af henni verður víst ekki. Ég syng með Samkór Mýramanna sem bráðlega heldur uppá tuttugu ára afmæli sitt og höfum við undanfarið verið að æfa dagskrá fyr- ir afmælistónleika sem verða haldnir eftir um einn mánuð." Skáldanótt og fluguköst „Það er heilmargt framundan hjá mér um helg- ina,“ segir Bubbi Morthens, tónlistarmaður. „Eitthvað ætla ég að gera með krökkunum á laugardaginn, þó ekkert sé enn ákveðið hvað það veröi. Einnig þarf ég að setja saman minn vikulega pistill sem birtist á netmiðlinum reykjavik.com. Um kvöldið ætluðum við svo í Borgarleikhúsið að sjá leikritið Skáldanótt sem þar er á fjölunum, ég veit reyndar ekkert um það en á gott veit að það sé eftir Hallgrím Helgason. A sunnudag fer ég, venju samkvæmt á æfingu, hjá Armönnum í íþróttahúsi KHI þar sem við æfum fluguköst og hver veit ég nema hnýti einhveijar flugur um kvöldið." ■ HVAD ER Á SEYDI? HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ TÓNLIST Föstudagsbræðingur Hins hússins A tónleikum Föstudagsbræðings sem haldnir verða í kvöld og hefjast kl. 20.00 koma fram hljómsveitirnar For- garður Flelvítis, Snafu, Andlát og fleiri. Tónleikarnir eru haldnir af dording- ull.eom í samvinnu við Hitt húsið. SÝNINGAR I skjóli valds og vegtyllu Rússnesk kvikmynd frá árinu 1993 veður sýnd í bíósal MIR, Vatnsstíg 10, sunnudaginn 28. janúar kl. 15.00. Myndin hefur hlotið nafnið „í skjóli valds og vegtyllur" á íslensku, en heitir á frummálinu „Kodéks béz tsestíja". Myndin gerist í Moskvu og Zurich í Sviss á síðustu mánuðum Sov- étríkjanna, þegar upplausnarástand ríkti þar og margir valdsmenn í stjórn- sýslu og Flokki notuðu tækifærið til að hrifsa til sfn eignir þjóðarinnar og koma þeim undan til útlanda. Var þá einskis svifist. Leikstjóri er Vsevolod Shilovský. Aðgangur ókeypis og öllum heímill. Shakespeare og siðferðislausung Leikfélag Kópavogs tekur nú upp þráðinn frá því fyrir áramót og sýnir Líku líkt (Measure for measure) cftir WiIIiam Shakespeare. Leikritið sem hefur aldrei áður verið fært upp á ís- lensku leiksviði, er í leikstjórn Þor- geirs Tryggvasonar. Gamanleikurinn Líku líkt, gerist meðal vændiskvenna, böðla og raunar nunna, hertoga og annarra íbúa Vínarborgar. I borginni hefur ólifnaður og siðferðislausung náð að blómstra í skjóli mildra yfir- valda. sýningar verða: lau. 27/1, fim. 1/2 og sun. 4/2. Ekki eru ráðgerðar fleiri sýningar. Frekari upplýsingar og miðapantanir eru í síma 554-1985 eða með því að senda póst á mida- saIa@kopIeik.is Múmínsnáðinn og halastjarnan Nú eru að hefjast að nýju kvikmyndasýningar fyrir börn í Norræna húsinu. Sýningarnar verða einu sinni í mánuði á sunnudögum kl. 14.00. Fyrsta myndin vcrður sýnd þann 28.1. og kemur frá Finnlandi. Þar segir frá Múmínálfunum sem Tove Janson hefur skrifað svo skemmtilega um. Myndin er teiknimynd og hcitir Múmínsnáðinn og halastjarnan. Sýningin tekur rúma klukkustund og er ókeypis aðgangur. Söguþráðurinn er á þessa leið. Það gerast undarlegir hlutir í Múmíndal. Múmínálfarnir eru varaðir við því að eitthvað skelfilegt nálgist utan úr geimnum. Múmfnsnáðinn, Snabbi og Mía Iitla ákveða að halda af stað til að bjarga málunum. Eftir margs konar erfiðleika komast vinirnir að Einmanafjalli og fá þar að vita hjá stjörnufræðingum að halastjarna komi æðandi í átt að jörðinni. Nú flýta vinirnir sér aftur heim því að nú verður að bjarga Múmíndal. En ætli þeir komist heim í tæka tíð? Á ferðinni verður ýmislegt til að tefja og halastjarnan nálgast alltaf meira og meir ... Sýningar í Hafnarborg í Hafnarfirði Nú standa yfir sýningarnar „VILLT“, sýning á skúlptúrum og ljósmyndum eftir Kaisu Koivisto og „LANDIГ, sýning á Iágmyndum úr gifsi eftir Sari Maarit Cedergren. Kaisu Koivisto er frá Finnlandi og list hennar fjallar gjarnan um samband manna og húsdýra. Hún hefur sýnt víða síðustu -sex árin og eru verk hennar í öllum helstu listasöfnun í heimalandi hennar. Sari Maarit Cedergren er fædd í Finnlandi en hefur búið og starfað hér síðan 1986. Verk hennar fjalla um landslagið og fjarvíddina, hvernig birta og skuggar kalla fram ýmis áhrif og stemmingu. Hafnarborg er opin alla daga nema þriðjudaga frá kl. 11- 17 og sýningarnar standa til mánudagsins 5. febrúar. Eva - bersögull sjálfsvarnareinleikur Þessi einleikur fjallar um Evu, konu á „besta aldri“. Hún gerir bráðfyndna úttekt á yngingarmeðulum, líkamsræktargaldralausnum og almennt öllum þeim endalausu hollráðum sem beint er að konum í fegurðar- og ungdóinsdýrkunarsamfélagi nútímans. En allir verða miðaldra. Einleikari: Guðlaug María Bjarna- dóttir. Næsta sýning er í Kaffileikhús- inu laugardaginn 27. janúar, kl. 21:00. Listasafn Islands Nú stendur yfir í Listasafni Islands sýning á verkum þýska málarans Ger- hards Richters undir heitinu Yfirsýn. Verk Richters eru ýmist fígúratíf eða abstrakt en margbreytileiki vinnuað- ferða hans gerir það að verkum að ekki er alltaf auðvelt að átta sig á hvort heldur er. Flest verkin á sýn- ingu Listasafns Islands eru frá síð- ustu fjórum árum, en hún er skipu- lögð af Institut fiir Auslandsbezi- ehungen í Þýskalandi. Samtímis sýn- ingu Richters eru til sýnis verk í eigu safnsins eftir Jón Stefánsson, einn af frumherjunum íslenskrar myndlistar. Þriðja sýningin sem nú stendur yfir í Listasafni Islands er á innsetning- unni Glerregni, frá 1984 eftir Rúrí. OG SVO HITT... Sannar frásagnir Herdís Sveinsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og dós- ent við hjúkrunarfræðideild Háskóla Islands, heldur opinn fyrirlestur í há- tíðasal Háskóla Islands í dag kl. 15.00 sem hún nefnir Sannar frá- sagnir: Um mótsagnakenndar niður- stöður rannsókna á líðan kvenna fyrir blæðingar“. Fyrirlesturinn byggir á doktorsritgerð Herdísar sem hún varði við háskólann í UmeA í Svíþjóð á síðastliðnu ári. Greint verður frá þremur rannsóknum sem allar fjalla um breytingar á líðan heilbrigðra ís- lenskra kvenna fyrir blæðingar. Nið- urstöður viðtalsrannsóknarinnar voru þær helstar að þátttakendur nota hugtakið „fyrirtíðaspenna“ til að lýsa algengri, eðlilegri og mjög breytilegri reynslu sem konur takast á við með notkun meðferðarúrræða sem al- mennt eru notuð í nútíma samfélagi til að takast á við lífið. Alyktað er að þátttakendur hafi tekið upp læknis- fræðilega skilgreint hugtak, fyrirtíða- spennu, og aðlagað að því sem þær telja eðlilegt fyrirbæri hjá konum. Þátttakcndur greindu frá því að þeir upplifi almenna umræðu, aðallega í fjölmiðlum og hjá karlmönnum, um fvrirtíðaspennu mjög neikvætt og al- mennt á þá vegu að verið sé að snúa eðlilegri reynslu kvenna gegn þeim. Frekari úrvinnsla viðtalanna bendir þó til þess að konur taki þátt í að við- halda þessari neikvæðu umræðu. 1 fyrirlestrinum verður leitast við að skýra mismunandi niðurstöður rann- sóknanna þriggja. Tækifæri og takmarkanir Gvða Björnsdóttir, hjúkrunarfræðing- ur MS og doktorsnemi við University of Wiswonsin-Madison flytur fyrir- lestur mánudaginn 29. janúar 2001 í Eirbergi, Eiríksgötu 34. Fyrirlestur- inn nefnist Notkun upplýsingatækni í hjúkrunarmeðferð: Tækifæri og tak- markanir. Málstofan mun fjalla um innreið upplýsingatækni í heilbrigðis- þjónustu og að hverju þarf að hyggja þegar hjúkrunarfræðingar nota þessa nýju tækni í þágu skjóstæðinga hjúkr- unar. Fyrirlesturinn byggir á rann- sókn um fræðslu og stuðning um Internetið til einstaklinga sem gcng- ist hafa undir kransæðaaðgerð. Fimmtánda Rask-ráðstefna Islenska málfræðifélagsins Laugardaginn 27. janúar verður fimmtánda Rask-ráðstefna íslenska málfræðifélagsins haldin í fundarsal Þjóðarbókhlöðunnar. Ráðstefnan hefst klukkan 11:00 og flytja sex fræðimenn fyrirlestra. Þeir eru: Jón G. Friðjónsson: Þýðing Biblíunnar, Magnús Snædal: Gotneska lýsingar-

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.