Dagur - 17.02.2001, Side 2
2
LAUGARDAGUR 17. FEBRUAR 2001
D&^twr
Haukur Holm.
Garðar Gíslason.
Jón Ólafsson.
HELGARPOTTURINN
Vaskur hópur frá fréttastofu Stöðvar 2 var á
Akureyri um sl. helgi, ekki í fréttaleit heldur til
skemmta sér og sýna sig og sjá aðra. í brekk-
um Hlíðarfjalls sást Haukur Hólm renna sér á
skíðum og um kvöldið sást hann einnig á
skemmtistöðum bæjarins, rétt eins og Bryn-
hildur Ólafsdóttir, Snorri Már Skúla-
son, Guðrún Gunnarsdóttir, Sigmundur
Ernir Rúnarsson og Thelma Tómasson -
svo nokkur úr Akureyrardeildinni á Lyngháls-
inum séu nefnd.
Enn eru á sveimi meðal helgarpottverja sögu-
skýringar um hin sérkennilegu bréfaskipti
Hæstaréttar og Alþingis á dögunum. Sagan
sem nú er í gangi er sú að upphaflega hafi
Ólafur Davíðsson, ráðuneytisstjóri í forsætis-
ráðuneytinu, haft samband við Garðar Gísla-
on, forseta Hæstaréttar, og óskaði eftir að
koma bréfi til réttarins vegna dóms í öryrkjamál-
inu. Garðar og Ólafur eru æskuvinir og ekki
skemmdi það fyrir því Garðar sagði Ólafi að for-
sætisráðuneytið gæti ekki sent slíkt bréf, það
yrði að koma beint frá Alþingi. Við það fóru skilaboðin til Alþingis og
Halldór Blöndal sendi bréfið. Hæstréttur beið eftir bréfinu, og einmitt
þess vegna komu skjótu svörin...
Hið endurnýjaða tímarit SKÝ er nú komið á
almennan markað eftir að hafa þjónað hlut-
verki sem skemmtiefni í innanlandsvélum
Flugfélags íslands undanfarin ár. Stærsta
boraban er greinilega „einlægt og opinskátt"
viótal við Jón Ólafsson ( heimsborgara-
klúbbi hans í London og á milljónaheimili
hans í sama bæ. Það hús átti kollega Jóns í
poppinu til margra ára, söngkonan Crissie
Hynde úr hinni frægu hljómsveit Pretenders,
svo þar er varla í kot vísað. Jón upplýsir í við-
talinu að hann eigi líka helgardvalarstað svona þegar hann vill bregóa
sér frá: þakhýsi á frönsku Rivierunni, en þangað skellir hann sér í orlof
að minnsta kosti mánaðarlega.
Á sunnudag verður bein útsending (Sjónvarp-
inu úr Ráðhúsinu og almennur umræðufundur
um flugvallarmálið sem brátt verður borið und-
ir atkvæði. Þar tala fulltrúar helstu baráttu-
samtaka, þeirra á meðal stór-stjórnarformað-
urinn og fv. forseti Flugmálafélags íslands
Friðrik Pálsson með og á móti félagi hans úr
stórviðskiptum, Bolli Kristinsson úr Sautján.
Báðir eru kanónur úr Sjálfstæðisflokknum og
hafa menn þetta til marks um hve þverpólitískt
málið er. Frá Akureyri kemur bæjarstjórinn
Kristján Þór Júlíusson til að tala máli landsbyggðar, en máli endur-
skipulagningar í Vatnsmýri talar Trausti Valsson. Sá gamalreyndi um-
ræðuþátta og þjóðfundastjórnandi Stefán Jón Hafstein stýrir um-
ræðum og með honum fyrrum dagskrárgerðarkona og nýbakaður rit-
stjóri Tímarits Máls og menningar; Brynhildur Þórarinsdóttir.
Samfylkingarfólk hefur síðustu vikunar verið
með alveg í mínus eftir svakalega útreið í
skoðanakönnun DV í janúarlok þegar fylgi
flokksins fór niður í úr 27% niður 16,5%.
Össur Skarphéðinsson var vitaskuld af-
skaplega ókátur með þessar tölur og sagði
þær vera afleiðingu þess að hann greip ekki
um Ingibjörgu Pálmadóttur þegar hún
féll í yfirlið í frægu sjónvarpsviðtali. Enda þótt
staða Samfylkingar hafi skánað skv. skoð-
anakönnunum eftir þetta benda menn í helg-
arpottinum nú hins vegar á að um líkt leyti og
hin afleita DV-könnun kom hafi verið heyrinkunnugt gert að Sighvatur
Björgvinsson væri á útleið af þingi til annarra starfa. Þvi hafi fylgis-
hrunið mikla fyrst og síöast verið persónufylgi Sighvats, sem hafi verið
stórum meira en nokkur gerði sér í hugarlund að raunin væri.
Snæfellingurinn Sturla Böðvarsson ráð-
herra tók f gær við viðkenningu frá borgar-
stjóra Albufeira í Algarve-héraói í Portúgal fyr-
ir hönd þeirra tugþúsunda íslendinga sem
hafa sótt í portúgalska sól frá þvi reglulegt flug
héðan og þangað út hófst fyrir réttum áratug.
íslendingar hafa í Portúgalsferðum, rétt eins
og öðru, slegið hlutfallslegt heimsmet og á
portúgalskri stönd spóka íslenskir herramenn
sig „á sundskýlu og ermalausum bol," eins og
segir í lagi Halla og Ladda. En nú búast Portú-
galir til gagnsóknar og í gær kom fram að
ferðaskrifstofur ytra væru að selja skipulagðar
ferðir fyrir portúgalska ferðamenn til íslands.
Bolli Kristinsson.
Sighvatur
Björgvinsson.
Sturla Böðvarsson.
Hér vinna hermenn
vió smíði bragga á
Valhúsahæð á Sel-
tjarnarnesi
K R
LvB ILWi
Bragqahverfi
Oírmnmm
IIIC# 111H
Alabaster, Pershing, Meeks, Hickam og Harley street. Allt voru þetta nöfn á
braggahverfum hér á landi á stríðsárunum. Á fræðslufundi Nafnfræðifélagsins
sem haldinn verður í Odda kl. 14:00 í dag stiklar Sævar Jóhannesson
lögreglufulltrúi á stóru um uppruna þessara nafna og annarra sem tengjast
þessum tímum. Hér gefur hann okkur nasasjón af nafnafræðinni.
Munur á nafngiftum Breta
og Bandaríkjamanna
„í Iok desember 1942 er talið að
kampanöfnin hafi verið um 300 á
landinu öllu.“ segir Sævar og held-
ur áfram: „Kampur þýðir vistar-
vera eða virki og það þurfti ekki
ncma einn hragga til að það kall-
aðist kampur en orðið var líka not-
að yfir braggahverfi sem voru mis-
munandi stór. Til dæmis voru á
þriðja hundrað hermannaskála í
Seyðisfirði.
Hér í Reykjavík voru um 80
kampar, frá Elliðaánum út að
mörkum Seltjarnarness. Nöfnin
voru hins vegar mun lleiri en 80
þvf sumir skiptu um nöfn oftar en
einu sinni. Sem dæmi má nefna
að inn við Elliðaár var yfirstjórn
hersins til húsa í kampi sem hét
upphaflega Kamp Ártún. Það var
ekki óalgengt að Bretar skírðu
kanipa íslenskum nöfnum, ef þau
fóru vel í munni. Þegar yfirstjórn-
in (luttist þangað var hann skírður
upp og kallaður Kamp Alabaster.
Það orð þýðir mjólkursteinn á ís-
Iensku en alabaster var leyninafn-
ið á þeirri hernaðaraðgerð Breta
að taka Island. Ég ímynda mér að
hvítur mjólkursteinninn hafi verið
tákn hins hvíta íss.
Þegar Bandaríkjamenn tóku yfir þá
fluttu þeir inn í Kamp Alabaster og
skírðu hann Kamp Pershing. Það
var svolítill munur á nafngiftum
Breta og Bandaríkjamanna. Bretar
sóttu nöfnin í bæjarnöfn í heima-
héruðum en Bandaríkjamenn köll-
uðu sfna kampa eftir sögulegum
stöðum sem tengdir voru orrustum,
frægum hershöfðingjum eða látn-
um hermönnum sem farist höfðu í
slysum. Kamp Pershing var til
dæmis skírður eftir John Pershing
sem var yfirhershöfðingi bandaríska
hersins í Frakklandi.
Herfangelsi og herskóli
Þrír kampar voru inn við Suður-
landsbraut. Einn þeirra hét Kamp
Caledonia. Það er rómanskt nafn á
Norður-Bretlandi. Hann stóð á móts
við Múla, beint upp af Laugardals-
höllinni. Islendingar kölluðu hann
Múlakamp. Þar var herfangelsi sem
meðal annars geymdi um tíma þýska
stríðsfanga, aðallega flugmenn af
niðurskotnum llugvélum og einu
sinni dvöldu þar samtímis 444 skip-
reka sjómenn af fimm þjóðernum og
14 skipum sem var sökkt suðvestur
af Islandi.
Fyrir austan Kamp Caledonia Her-
skólakampurinn. Þar var einn fyrsti
skólinn í heiminum sem kenndi
vetrarhernað. Skammt frá var svo
Kamp Harley Street, ncfndur eftir
hinni frægu læknagötu í London.
Þar voru hjúkrunarbúðir.
Beinagrindarhæðarbúðir
Uppi í Artúnsbrekku var einn kampur
sem hét Kamp Hickam. Nafnið má
rekja til bandarísks herllugmanns sem
hét Hóras M Hickam og fórst í flug-
slysi árið 1934 og þar sem Keflavíkur-
flugvöllur er nú var kampur sem hét
Kamp Meeks, skírður eftir bandarísk-
um orustuflugmanni sem fórst eftir
flugtak á Reykjavíkurfiugvelli.
Þar sem Hamraborgin er í Kópa-
voginum stóð einn kampur sem kall-
aður var Skeleton Hill Camp eða
„Beinagrindarhæðarbúðir". Ég veit
ekld til að fundist hafi nein beina-
grind þar en hins vegar er líklegt að
hermennirnir hafi heýrt af dysjunum
sem fundust niður við Kópavogslæk-
inn. Veg sem lá eftir hæðinni kölluðu
þeir Skeleton HiII Road. Hann heitir
Digranesvegur í dag.“ GUN.
MAÐUR VIKUNNAR FER TIL HOLLYWOOD !
Maður vikunnar er á leiðinni til Hollywood á Ósk-
arsverðlaunahátíðina miklu sem haldin verður í
næsta mánuði. Að sjálfsögðu er það Björk Guð-
mundsdóttir sem keppir nú um hina eftirsóttu gyll-
tu Óskarsstyttu við Bob Dylan og fleiri stórstirni í
poppheiminum. Hún var tilnefnd fyrir besta lag í
kvikmynd, og textahöfundarnir um leið, og mun
sjálf flytja það á hátíðinni sem er sjónvarpað um
víða veröld. Björk, sem er tvímælalaust frægust ís-
lendinga fýrr og síðar, mun því enn auka hróður
sinn, og þjóðarinnar í leiðinni.