Dagur - 17.02.2001, Qupperneq 6

Dagur - 17.02.2001, Qupperneq 6
„Ég held að fólk sé orðið þreytt á ríkisstjórninni og titbúið að sjá eitthvað nýtt. Eins og ég sagði áðan þá hefur fylgið verið að síga hægt og bítandi siðasta árið og ráðherrar Sjálfstæðisflokks/ns komast vart á blað lengur i vinsætdakönnunum stjómmálamanna, sem hlýtur að vera þeim áhyggjuefni." myndir: e. úl í takt við nýja tíma Bryndís Hlöðvers- dóttir var nýlega kos- in þing- flokksfor- maður Sam- fylkingarinnar. í viðtali ræðir hún meðal ann- ars um framtíð Sam- fylkingarinnar og helstu áherslumál, stöðu vinstri grænna og störf ríkisstjórnar- innar. - Er eklii erfitt fyrir unga konu uð taku cu) sér embætti eins og formennsku í þingflokki þar sem eru margir karlmenn seni telja sennilega að þeir séu miklu frambærilegri í embætti af þessu tagiF „Nei, |iað var ekki erfitt, einkum í Ijósi þess breiða stuðnings sem ég fékk í kjör- inu, bæði hjá körlum og konum í þingflokknum. Konur eru auk þess í meirihluta í þingflokkn- um og ég geri ráð fyrir að þær hafi ekki síður talið sig fram- bærilegar í starfið en karlarnir. Ég hugsaði þetta nú ekki mikiö út frá kynferðinu, en í ljósi þess að karlmaður sinnir nú formennsku í flokknum er kannski ckki óeðlilegt að kona verði fyrir valinu sem formaður þingflokks. Við höfum haft það sem yfirlýst markmið að gæta jafnræðis á milli kvenna og karla í hvívetna, þannig að það má segja að þessi niðurstaða sé í anda þess.“ - Nú hefur gengið á ýmsit hjá Samfylkingunni. Steingrímur stofnaði VG og Sjálfstæðisflokk- urinn hefur farið hamförum gegn ykkur. Heldurðu virkilega að það lakist að mynda stóran og breiðan jafnaðarmanna- Jlókk? „Stóri jafnaðarmannaflokkur- inn er til. Samfylkingin á 17 manna þingflokk og ef þú skoð- ar stærðir þingflokka síðustu tveggja áratuga eða svo á AI- þingi þá eru þeir allir minni, ef frá er talinn þingilokkur Sjálf- stæðisflokksins. Ef þú skoðar næstu 20 ár þar á undan þá gerist það aðeins í þremur kosningum að til verða stærri þingflokkar en okkar og það var hjá Framsókn þeirra tíma, allt á árunum fyrir 1980. Sjálf- stæðisflokkurinn hefur á þessu tímahili verið með á bilinu frá 18 og upp í 26 þíngmenn. Vinstri grænir eru með 6 þing- menn. Samfylkingin er stór stjórnarandstöðuflokkur og ég er sannfærð um að hún á alla möguleika á að vera enn stærri, eins og margir hafa væntingar til. Það að Steingrímur stofn- aði VG er enginn dauðadómur yfir okkur, enda eru þeir ekki okkar höfuðandstæðingur í pólitík. Það virðist hafa verið pólitísk þörf fyrir slíkan flokk og því er ekkert að því að hann varð til. „Þessa stundina erum við að horfa upp á að Samfylkingin og vinstri grænir eru að fá 45 pró- sent í skoðanakönnun- um og í sjálfu sér er mjög ánægjulegt að það sé svo mikið fylgi við vinstri sjónarmið og fé- lagsleg sjónarmið að hér sé jafnvel möguleiki á að mynda tveggja flokka félagshyggju rík- isstjórn Hvað fylgiö varðar eru það jú atkvæðin upp úr kjörkössunum sem tclja. Við þekkjum mörg dæmi þess úr sögunni að flokk- ar fara í hæstu hæðir í skoð- anakönnunum og pompa svo niður í kosningum, og vice versa. Alþýðuflokkurinn var til dæmis með 30% fylgi í skoð- anakönnunum árið 1987 en fékk rúm 1 5% í kosningum það ár. Kvennalistinn fór einhverju sinni upp í 30% fylgi en fór hæst í 10% í kosningum. Borg- araflokkurinn er enn eitt dæmi um þetta og ég gæti nefnt fleiri. Svo vil ég minna á að Samfylkingin hefur á síðustu mánuðum verið að fara hægt og sígandi upp á við í skoðana- kiinnunum ef frá er talin ein könnun DV, sem hefur sýnt sig að vera úr fullkomnum takti við tvær aðrar og viðameiri kannanir sem voru gerðar á sama tíma. Þannig að ég vil ekki meina að það sé að síga á ógæfuhliðina hjá okkur núna. Það tók okkur tíma að kom- ast á flug en frá og meö haustinu hefur Samfylkingin verið á góðu róli. Það hefur verið kraftur í okkur, málefna- starf innan flokksins er með miklum blóma, við erum á kafi í umræðu um lýðræðið og höf- um haldið tvö öflug málþing um það og það þriðja verður haldið von bráðar. Kvenna- breyfing verður stofnuð á næstunni og kvennaþing haldið \ lok mars og mikil umræða er í gangi um málefni nýbúa. Þá er vinna í gangi vegna Evrópumál- anna sem mun skila sér með ráðstefnu þar um á næstu vik- um og ýmislegt fleira er í bí- gerð. Eins og þú heyrir er ég bara ánægð með gengi Sam- fylkingarinnar þótt við stefnum að sjálfsögðu á að gera enn betur." Vinstri grænir undarleg blanda - Finnst þér vinstri grænir vera límaskekkja? „Að mörgu leyti eru þeir tímaskekkja, en fyrst og fremst kannski undarleg blanda. Mér finnst þcir til dæmis ekki hafa gert það upp við sig hversu grænir þeir ætla að vera en það kernur fram í ýmsu hjá þeim. Sem dæmi má nefna að meðan Græningjaflokkar i Evrópu eru að mótmæla hvalveiðum víða um heim vill formaður vinstri grænna hefja hvalveiðar! Hvað tímaskekkjuna varðar þá er ég þeirrar skoðunar að stefna þeirra í alþjóðamálum og af- staðan til markaðarins sé arf- leifð síðustu aldar sem eigi ekki við í nútímanum. Þeir standa fyrir einangrunarhyggju í alþjóðamálum og eru mjög tregir til að hverfa frá ríkis- rekstri, jafnvel í þeim tilvikum sem ríkið er í samkeppnis- rekstri. Ríkið á ekki að standa í rekstri á slíkum sviðum, heldur að einbeita sér að grunnþjón- ustu vegna velferðarkerfisins, þjónustu sem er ekki í sam- keppnisrekstri. Vinstri grænir virðast hins vegar njóta ein- hvers friðhelgis hjá Sjálfstæðis-

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.