Dagur - 17.02.2001, Side 7

Dagur - 17.02.2001, Side 7
 LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2001 -7 flokknum á meðan Samfylking- in hefur verið skotmark Sjálf- stæðisflokksins frá upphafi. Sjálfstæðismenn hafa mjög skipulega ráðist á málflutning Samfylkingar á meðan þeir hafa oft og tíðum hlíft vinstri grænum. En við kvörtum ekki undan sh'kum árásum og í mín- um huga stafar hann af því að þeir líta á okkur sem ógnun við sig, en eru rólegri vegna tilvist- ar vinstri grænna. Það er engin önnur skýring á þessu að mínu mati.“ - Var einhver efi í þínum hnga hvert þú ættir að fara þeg- ar þií þurftir að gera það upp við þig hvorl þú ættir að fylgja Alþýðuhandalaginu inn í Sam- fylkinguna eða fj'lgja Steingrími P „Nei, aldrei og ég efaðist aldrei um gildi og nauðsyn þess að stofna Samfylkinguna og ég er fullviss um að það v'ar rétt að gera. Alþýðubandalag og Al- þýðuflokkur voru orðnir mjög þjakaðir af bardögum sem þeir háðu sín á milli á tímum kalda stríðsins og áttu mjög erfitt með að taka þátt í þeirri um- ræðu um stjórnmál sem nútím- inn krafðist. Flokkarnir voru fastir í kaldastríðs gír, eins og Sjálfstæðisflokkurinn er nú oft og tíðum, lil dæmis í utanríkis- málum. Margir í Alþýðubanda- laginu og Alþýðuflokknum v'oru mjög samstiga hinum flokknum í flestum málum nema þá kannski utanríkismálum eða verkalýðsmálum, en það var al- veg fráleitt að skipta fólki í sér- staka flokka á grundvclli þess- ara sjónarmiða sem voru meira og minna orðin úrelt vegna breyttrar heimsmyndar. Sú uppstokkun sem varð og leiddi til stofnunar Samfylking- ar var mjög nauðsynleg, jafnvel þótt hún liafi kostað það að hluti þeirra sem voru í Alþýðu- handalaginu fundu sér annan vettvang. Það er bara ekkert við því að gera ef það fólk finnur sig betur hjá vinstri grænum. Það kom aldrei til greina af minni hálfu að fara inn í sam- starf með vinstri grænum af þeim ástæðum að þeirra mál- flutningur á ekki við mig og mínar pólitísku skoðanir, eins og cg rakli hér áðan." - Enfinnst þér aldrei að þetta sé dálítil synd, því samkvæmt skoðanakönnunum væri jafnað- armannaflokkur sem rútnaði hæði vinstri græna og Samfylk- ingu með 40-4 5 prósent at- kvæða og stærri en Sjálfstæðis- flokkurinn? „Það er nú spurning um það hvernig maður kýs að horfa á hlutina. En ef við hefðum haft VC með okkur, þá er ekkert víst að Samfylkingin væri sá flokkur sem hún er í dag. Mjög líklega hefði það haft áhrif á allt ferlið og allt eins víst að við hefðum ekki verið stærri en við erum. Það er ekki hægt að reikna svona saman fylgi gömlu flokkanna, því á bak við stjórn- málahreyfingar er fólk og það er þeirra endanlega að gera upp við sig hvernig atkvæðun- um er varið. Að mörgu leyti er það kannski heilbrigðara fyrir stjórnmálalífið að hafa hér einn flokk lengst til vinstri. Það er ákveðinn hópur kjósenda sem telur sig eiga samleið með slíkum flokki, en ég sé ekki fyr- ir mér að slíkur flokkur muni njóta meira fylgis í framtíðinni en 10 lil 15 prósent, en það kemur hara í ljós í næstu kosn- ingum. Þessa stundina erum við að horfa upp á að Samfylkingin og Vinstri grænir eru að fá 45 pró- sent í skoðanakönnunum og í sjálfu sér er mjög ánægjulegt að það sé svo mikið fylgi við vinstri sjónarmið og félagsleg sjónarmið að hér sé jafnvel möguleika á að mynda tveggja flokka félagshyggju rfkisstjórn. Þetta eru líka ákveðin skilaboð líka frá kjósendum og mjög al- varleg staða fyrir ríkisstjórnina, sem hefur hægt og sígandi ver- ið að tapa fylgi á síðasta árinu. Það er hún sem ætti að hafa áhyggjur, við getum vel við unað.“ Misnotkun valdsins - Hvaða áherslubreytingar viltu sjá í málflutningi Samfylking- ar? „Eg hef verið nokkuð ánægð með áherslur Samfylkingarinn- ar frá því hún varð formlega að stjórnmálaflokki, og mér finnst þær hafa verið að skýrast mjög mikið. Það eru þó nokkur mál sem við þurfum að taka fastari tökum og formaður flokksins hefur þegar undirbúið slíka vinnu. Fyrst vil ég þar nefna afstöðuna til Evrópusambands- ins. Við erum með hóp manna í vinnu við að undirbúa ráð- stefnu um þau mál, þar sem verða lagðar fram hugmyndir þess hóps um samningsmark- mið okkar ef til aðildar að ESB kæmi og um stöðumatið í hvcrjum málaflokki. Þessi vinna verður síðan rædd og metin á vettvangi flokksins. Þetta er brýnt fyrir okkur að gera, því ég cr sannfærð um að EESsamningurinn mun ekki duga okkur að neinu viti mikið lengur og ábyrgur stjórnmála- Hokkur verður að taka afstöðu til þess hvað eigi að gera ef til þess kemur. Það dugir ekki að fara leið VG og Sjálfstæðis- flokksins og loka augunum fyr- ir þeirri þróun sem er að eiga sér stað. Svo Iangar mig til að nefna einn málaflokk sem ég ber mjög fyrir brjósti. I vetur hefur Samfylkingin verið að vinna að stefnumótun í lýðræðismálum og ég hef Ieitt þá vinnu. Þetta er málaflokkur sem stjórnmála- Hokkarnir hafa sinnt mjög lítið og þar vil ég sjá Samfylkinguna taka mjög myndarlega á, og ég held að það sé líka vilji fram- kvæmdastjórnar og forystu flokksins, sem fól mér að vinna þessa vinnu. Undir þennan „Þegar menn hafa haft mikil völd mjög lengi er hætt við að þeir fari að misnota þau. Við höfum dæmi um Kohl sem var sterkur leiðtogi og við völd mjög lengi og setti svo sterkt mark á sitt þjóðfélag að menn ótt- ast mjög að lýðræðinu í Þýskalandi stafaði hætta af. Hans menn voru alls staðar og voru vaktmenn kerfisins. Ég held að við þurfum að vera vakandi fýrir þess- ari hættu hér á landi málaflokk falla gríðarlega mörg svið, allt sem snýr að þrískipt- ingu ríkisvaldsins, bættri stjórnsýslu og bættri meðferð valdsins. Abyrgð valdhafa þarf að vera meiri, þannig að menn sæti ábyrgð ef þeir fara illa með vald sitt. I flestum lýðræð- isríkjum tíðkast að ráöherrar segi af sér misstigi þeir sig illa í einkalífi og eins þegar þeir gera þau mistök í starfi að eðlilegt þykir að þeir sæti ábyrgð fyrir. A íslandi hefur þessu verið öðruvísi farið og lögin um ráð- herraábyrgð hafa verið óvirk og kerfið alltof stíft til að hægt sé að bregðast við. Þetta er mála- flokkur sem Vilmundur heitinn Gylfason hélt vel utan um, og Gylfi Þ. Gíslason skrifaði reyndar um þessi mál þegar árið 1945 og var langt á undan sinni samtíð. Stefnumótun í lýðræðismálum held ég að sé stórt verkefni sem Samfylking- in hefur þegar lagt mikla vinnu - Nú dalar fylgi við ríkis- stjórnina samkvæmt skoðana- könnunum. Það mætti ætla að þetla sé tímabundið fall vegtia öryrkjamálsins, eða hvað? Held- urðu að fólk sé kannski orðið þreytt á þessari ríkisstjórn? „Ég held að fólk sé orðið þreytt á ríkisstjórninni og tilbú- ið að sjá eitthvað nýtt. Eins og ég sagði áðan þá hefur fylgið verið að síga hægt og bítandi síðasta árið og ráðherrar Sjálf- stæðisflokksins komast vart á blað lengur í vinsældakönnun- um stjórnmálamanna, sem hlýtur að vera þeim áhyggju- efni. Það eru líka augljósir brestir í stjórnarsamstarfinu og má benda á til dæmis skóla- málið í Hafnarfirði þar sem framsóknarmenn á þingi tóku afstöðu gegn stefnu Sjálfstæð- isflokksins og fleiri mál mætti nefna. Eg held auk þess að ör- yrkjamálið hafi haft miklu dýpri afleiðingar en hafa komið í Ijós nú. Maður skynjar það mjög þegar maður talar við fólk aö það mál allt hefur vakið upp spurningar sem við Islendingar höfum ekki verið að velta okk- ur svo mikið upp úr. Ég er þeirrar skoðunar að það sé mjög óhollt fyrir samfélagið að hafa stóran stjórnmálaflokk eins og Sjálfstæðisflokkinn við völd jafnlengi og raun er á. Eangur valdatími Sjálfstæðis- flokksins hefur mótað samfé- lagið og þetta má skynja mjög víða. Við getum nefnt sem dæmi umræðuna um Hæsta- rétt. í Degi var nýlega úttekt á stöðu Hæstaréttar þar sem bent var á að mikill meirihluti Hæstaréttar er skipaður af ráð- herrum Sjálfstæðisflokksins. Þetta þarf ekki endilega að benda til misnotkunar á valdi, en útilokar hana svo sannar- lega ekki heldur og býður upp á tortryggni. Þegar menn hafa haft mikil völd mjög lengi er hætt við að þeir fari að misnota þau. Við höfum dæmi um Kohl sem var sterkur leiðtogi og við völd mjög lengi og setti svo sterkt mark sitt á þjóðfélag að menn óttast mjög að lýðræðinu í Þýskalandi stafaði hætta af. Hans menn voru alls staðar og voru vaktmenn kerfisins. Ég held að við þurfum að vera vakandi fyrir þessari hættu hér á landi.“ Flokkur í mótun - Maður finnur óneitanlega stundum iil vorkunnsemi með Framsóknarflokknum í þessu stjórnarsamstarfi. Þú ert kannski miskunnarlausari og fitinur ekki til samúðar með þeim? „Eg hef samúð með Fram- sóknarflokknum að því leyti að hann stendur frammi fyrir sömu örlögum og margir sam- starfsflokkar Sjálfstæðisflokkn- um gegnum tíðina. Við höfum mörg dæmi þess úr sögunni að minni flokkum hafi blætt í samstarfi við Sjálfstæðisflokk- inn og nóg er að benda á ríkis- stjórnina sem Alþýðuflokkurinn sat í síðast með Sjálfstæðis- flokknum. Framsóknarflokkur- inn verður hins vegar að gera það upp við sig á hvorn póli- tíska ásinn hann ætlar að halla sér og síðan breyta eftir því. Það er ekkert annað fyrir hann að gera.“ - Hver er helsti styrkur Sam- f)lkingarinnar? „Fyrir utan að vera nútíma- legur jafnaðarmannaflokkur, scm er með mörg góð stefnu- mál á dagskrá, þá á Samfylk- ingin öflugt fólk í sínum röð- um, sem hefur sýnt að það get- ur beitt sér fyrir málstaðnum. Samfylkingin er ungur flokk- ur í mótun. Ég Iít á það sem styrk að leggja af stað með ákveðna hefð og ákveðna fortíð sem við berum virðingu fyrir og eigum rætur í, en vera að öðru leyti með autt borð og geta þannig mótað stefnu okkar upp á nýtt. Við erum nýtt afl sem vinnur í takt við nýja tíma. Það er styrkur okkar." „Ég lít á það sem styrk að leggja afstað með ákveðna hefð og ákveðna fortíð sem við berum virðingu fyrir og eigum rætur i, en vera að öðru leyti með autt borð og geta þannig mótað stefnu okkar upp á nýtt.“

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.