Dagur - 03.03.2001, Side 2
2
LAUGARDAGUR 3. MARS 2001
X^twr
HELGARPOTTURINN
Lesendur Vísis.is ráku upp stór augu í vik-
unni þegar þeir sáu tilkynningu um atburð
sem er næsta sérkennilegt innlegg í að-
dragana flokksþings Framsóknarflokksins.
Tilkynningin var eftirfarandi. „Kristinn H.
Gunnarsson heldur gítartónleika miðviku-
dagskvöldið 28. febrúar kl. 20 í Salnum í
Kópavogi. Efnisskráin er fjölbreytt og
spannar langt tímabil f tónlistarsögunni." Það
er því greinilegt að menn innan framsóknar
ætla ýmsum meðölum að beita til að tryggja
sér brautargengi í flokkstarfinu - og jafn-
framt sanna að fleiri framsóknarmenn en
ísólfur Gylfi geta spilað á gítar. Nema þá
að Kiddi sleggja eigi sér alnafna!
Þáttur sá sem Helga Braga Jónsdóttir
leikkona hefur annast á Stöó 2 á miðviku-
dagskvöldum þar sem fjallað hefur verið um
mannleg málefni hefur nú verið blásinn af.
Undirtektir voru ekki sem skyldi og jafnframt
þótti sjónvarpsáhorfendum annað betra bjóð-
ast á öðrum bæjum, þannig að áhorf var ekki
svo sem menn væntu. Skjár einn setti á þátt-
inn Fólk með Sigríði Arnardóttur sem gert
hefur góða lukku og dregið marga að skjánum
- í tvíeinni merkingu þess orðs.
Rás 1 byrjar í næstu viku útsendingar á
þáttum þar sem fjallað verður völundarhús
viðskiptanna og helstu hugtök sem ríkja þar
innandyra, en þættirnir bera yfirskrifina „Er
markaðsfrelsið allt og sumt?“. Sþurningar
sem varpað verður upp eru meðal annars
um markaðsvaldið, fákeppni, framþróun,
framleiðni og stjórnvisku. Jón Ásgeir Sig-
urðsson annast gerð þessara þátta en auk
þáttagerðar hjá Útvarpinu hefur hann að
undanförnu lagt stund á MBA - nám í
stjórnunarfræðum við Háskóla íslands og
ætti því að þekkja viðfangsefnið vel.
Kristinn H.
Gunnarsson.
\ Efstaleiti er einnig kominn til starfa Krist-
ján Sigurjónsson, sem um árabil starfaði
hjá Rfkisútvarpinu á Akureyri, eftir að hafa
starfað um hríð hjá JPV-forlagi. Á miðviku-
dag í næstu viku fer á Rás 1 í loftið fyrsti
þátturinn af sjö sem ber yfirskriftina Sjö dag-
ar sælir þar sem fjallað verður um sögu viku-
daganna. Ávormánuðum verður Kristján síð-
an með þætti sem fjalla um lítil málsamfélög,
meðal annars í nágrannalöndum okkar.
Tveir bankastjórar Búnaðarbankans eru að
láta af störfum þesssa dagana, þeir Stefán
Pálsson og Jón Adolf Guðjónsson. Sá
síðarnefndi sagðist í viðtölum hætta sáttur og
gerði uppskátt að sín biði að skrifa sögu
bankans. Sagnaritun bankans fer raunar að
verða sérkennilegt eilífðarverkefni og margir
eru kallaðir til því fyrir tæpum áratug hafði
Indriði G. Þorsteinsson þennan starfa og
skrifaði sögu bankans sem aldrei hefur kom-
ið út. Tók Indriði - þegar hann byrjaði að
grúska í bankasögunni - raunar við handriti
að bankasögunni frá gamalreyndum starfs-
manni sem ríslaði sér við þetta í ellinni.
Aðalfundur STEFS var haldinn á dögunum
og bar þar margt á góma. Mönnum svall
móður og hver talaði upp í annan þannig að
Herbert Guðmundssyni söngvara og farand-
sala þótti nóg um og sagði; „Geti þið ekki
talað einir í einu." - Til tíðinda dró svo að
fundi loknum þegar Gaflararnir Björgvin
Halldórsson og Magnús Kjartansson
voru á heimleið og húkkuðu sér far. Þeim
fyrrnefnda þótti sem svo að bílstjórinn veitti
sér helst til of litla athygli og sþurði því
„Veistu ekki hver ég var“ - og var þar væntanlega að vísa til popp-
stjörnunnar með sfða hárið og brotnu tönnina sem endur fyrir löngu
söng Þótt líði ár og öld.
í helgarpottinum er saga af því sögð að starfsmaður hjá Dagvistun
barna f Reykjavík hafi fengið símhringingu frá konu sem spurði eftir
því hvort ekki væri að styttast í að röðin kæmi aó hennar barni í hin-
um langa biðlista eftir leikskólaplássi. Konan nánast hvíslaði erindi sitt
í símann þannig að borgarstarfsmaðurinn sem var á hinum enda lín-
unnar bað konuna um að tala aðeins hærra. Áfram hvíslaði konan og
aftur var borin fram sama bón. Að tala hærra. „Ég get það illa,“ sagði
konan „þú verður að fyrirgefa, ég er nefnilega við jarðarför."
Biörgvin Haiidórsson.
Jón Adolf Guðjónsson.
Sigurður Úrlygsson opnar
myndlistarvor i Eyjum.
Innspýtinq í
anaregár émm
Myndlistarvor í Eyjum. Fjórar sýningar fimm af framsæknustu myndlistarmönnum
landsins. Eyjamenn njóta alls hins besta.
Eyjamenn njóti rjómans
Verk Sigurðar Örlygssonar verða inn-
gangsstefið á Myndlistarvori í Vest-
mannaeyjum sem hefst í dag. Efnt er
til þessa sýninga halds nú þriðja árið
í röð, en það er tengt nafni Islands-
banka sem lagt hefur málinu lið með
veglegum styrk undanfarin ár. Sýn-
ingin á verkum Sigurðar - sem og
annarra - verður í Gamla vélasalnum
á horni Vesturvegar og Græðisbraut-
ar í Eyjum og hefst hún kl. 17 í dag.
Þeir framsæknustu
Myndlistarvorið verður með hefð-
bundnum hætti. Hugmyndin með
þessu sýningarhaldi var að kynna fyr-
ir Eyjamönnum sitthvað af Jrví
sem framsæknustu myndlistar-
menn á Islandi eru að gera í dag,
cn heimsóknir þeirra út í Eyjar
höfðu verið stopular í gegnum
árin. Þeir sem áttu hugmyndina
að Myndlistarvori voru tveir Eyja-
menn, Bencdikt Gestsson blaða-
maður og Börkur Gnmsson úti-
bústjóri Islandsbanka. Niðurstaða
af spjalli varð sýninga hald sem nú
hefur fest sig vel í sessi.
„Myndlistarvorið fékk strax góð-
ar viðtökur heimamanna og lista-
manna landsins, ekki sfst fý'rir
þeirra hluta sakir að menn sáu
sóknarfæri að þiggja og veita; vit-
andi það að hvorugur gæti án hins
verið. Með innspýtingu í andlegar
og Iíkamlegar æðar var ekki nokk-
ur leið að hætta, svo nú höfum við
ákveðið að skjóta enn fastari stoð-
um undir sýninga haldið með því
að hetja það til vegs hið þriðja
sinn,“ segir Benedikt.
Á Jiessu vori verða settar upp fjórar
sýningar fimm myndlistarmanna af
fastalandinu. „Það var alltaf hug-
myndin að Eyjamenn fengju að njóta
rjómans af því sem að listamenn
|)jóöarinnar væru að þenkja og glíma
við hverju sinni, enda finnst mér það
skylda listamanna að þeir rækti sam-
band sitt við þjóðina," segir Benedikt
Gestsson sem hefur haft brennandi
áhuga á myndlist allt frá því í barn-
æsku þegar hann komst í kompaní
við hóp myndlistarmenn sem þá voru
í fremstu röð hér á landi.
Sem áður segir er það Sigurður
Örlygsson sem ýtir Myndlistar\'orinu
úr vör að þessu sinni. Sýning hans
stendur Irá deginum í dag, 3. mars
og fram til hins 11, aðeins er opið
um helgar; frá kl. 14 til 19. Sýning
Birgis Snæbjörns Birgissonar og Sig-
tp-ggs Bjarnar Baldvinssonar stendur
frá 31. mars - 8. apríl og Bjargar Örv-
ar frá 28. apríl til 6. maí. Daði Guð-
björnsson sýnir frá 26. maí til 3. júní.
Allt leyfist
myndfistarmönnum
,ÁHt leyfist, ekki síður mér en mynd-
listarmönnum. Þar af Ieiðandi tel ég
mig lifa á heppilegum tímum. Það
er ekki nein meðvituð persónuleg
sýn mín sem birtist í vali lista-
mannanna," segir Benedikt
Gestsson sem segir alla þá lista-
menn koma í vor verta virta og „
... hafa getið sér gott orð jafnt
heima sem erlendis, og þó þeir fá-
ist allir við málverkið eru J>eir
engu að síður ólíkir í efnisvali og
meðferð miðilsins. Upphaflega
var lagt út í Myndlistarvorið í
þeirri fullvissu að Eyjamenn
myndu sýna slíku áhuga og vel-
vild, enda góður hugur sem lá að
baki. Nú er það þriðja í uppsigl-
ingu, sem segir þeim sem að vor-
inu standa og þeim góðu aðilum
sem styrkt hafa þetta sýningar-
hald að Eyjamenn hafi kunnað vel
að meta og þótt vorið jákvætt inn-
legg í menningarstarfsemi í Eyj-
um. Þannig er gott orðspor jafnan
bestu meðmælin og aflvaki góðra
hluta.“
-SBS.
Listamönnum leyfist allt.
mnmmnm
Félagshyggjuaflið Röskva vann sigur í stúd-
entakosningunum í vikunni eftir harðan slag
við Vöku. Þar sem Röskva hefur nú náð að
sigra þessar kosningar 11 ár í röð og slík
sigraröð er algjört met, þá verðskulda
Röskvumenn að vera útnefndir menn vik-
unnar. Munurinn á milli fylkinga var reynd-
ar minni núna en áður, en það breytir ekki
því að sigurvegarar vikunnar standa eftir
með pálmann í höndunum.