Dagur - 03.03.2001, Side 7
1^*M-
LAUGARDAGUR 3. MARS 2001 -7
þessu sambandi má nefna
veitustofnanir og almennings-
samgöngur. Eg væri Iíka illa
svikinn ef umhverfismálin
væru ekki ofarlega á baugi í
okkar málefnaskrá."
- E/ vinstri hreyfingin býður
frmn i Reykjavík finnst þér þá
koma til greina að hi'tn gangi til
liðs við Sjálfstæðisflokkinn ef
hægt væri að mynda meirihlnta
í borgarstjórn á þann hátt?
„Ég hef aklrei verið fylgis-
maður þess að mynda meiri-
hluta með Sjálfstæðisflokki.
Stjórnmálaflokkar eru myndað-
ir um stefnu og bvggja einnig á
hagsmunum. Við viljum gæta
almannahagsmuna og erum
reiðubúin að setja fjármagninu
skorður. Sjálfstæðisflokkurinn
hefur hins vegar fjármagnið í
fyrirrúmi. Það hefur hann sýnt
í verki. Hagsmunir og stefna
Sjálfstæðisflokksins og Vinstri
hreyfingarinnar - græns fram-
boðs stangast beinlínis á,
þannig að mér fyndist það væg-
ast sagt fjarlægur kostur að
Sjálfstæðisflokkur og vinstri
grænir mynduðu samsteypu-
stjórn, hvort sem það væri í
Reykjavík eða á landsvísu."
Dugnaður Björns
til vandræða
- Hvað finnst þér um þá hug-
mynd að Björn Bjarnason leiði
lista Sjálfstæðisfloklisins í næstu
borgarstjórnarkosningum?
„Ég ætla ekki að gefa Birni
Bjarnasyni einkunnir aðrar en
þær að hann er duglegur mað-
ur, en einmitt í dugnaði Björns
yrði vandi Reykvíkinga fólginn,
næði hann kjöri. Við skulum
ekki gleyma því að er hann er
maðurinn sem segist ætla að
gefa leyfi fyrir einkareknum
grunnskóla í Hafnarfirði."
- I stjórnmálum samtímans
finnst manni að aukin áhersla
só lögð á hlutverk leiðtogans. Er
leiðtoginn svona mikilvægur?
„Það er alveg rétt, nú um
stundir eru menn mjög upp-
teknir af tali um leiðtoga og
stjórnendur. Þetta tal er af
sama meiði og kóngadýrkun og
í bland svolítið broslegt en þó
ekki alveg saklaust því það ýtir
nefnilega undir andlýðræðis-
lega hugsun. Inni á vinnustöð-
unum kætast forstjórarnir yfir
þessari hugmyndafræði því hún
stvrkir þá í sessi. Ég hef alltaf
verið gagnrýninn á allt sem
styrkir forstjóraveldi. Þegar
Kvennalistinn kom fyrst fram
hreifst ég af hugmyndafræði
þeirra sem að honum stóðu.
Kvennalistakonur á þessum
tíma sögðust vilja velta valda-
stólunum því það gagnaðist
samfélaginu öllu, vissulega
fremur konum en körlum, en
þó einnig körlum sem valdið
bitnar á. Síðan leið og beið og
smám saman leit kynskipt
kvótakerfi dagsins Ijós. Nú
skyldu jafnmargar konur og
karlar sitja á valdastólum, en
allt of fáir tala um að fella
þessa stóla og skapa forsendur
fyrir þjóðfélagi sem byggir á
jöfnuði og lýðræði."
- Nú hefur vinstri grænum
vegnað vel í skoðánakönnunum.
Kanntu skýringu á því?
„Það er mikil samheldni í
hreyfingunni og hún á marga
góða talsmenn fyrir sinn mál-
stað bæði innan þings og
utan.Við erum sjálfum okkur
samkvæm og erum hið stöðuga
og áreiðanlega mótvægi við
tjármagnshyggjuna. Það sem er
ekki síður mikilvægt er að fólk
finnur að við erum ekki niður-
njörvuð í viðjar hugmynda-
fræði. Að sönnu byggjum við á
traustum hugmyndagrunni og
skýrri framtíðarsýn en við tök-
um afstöðu til hvers máls kosta
þess og galla. Éyrir fáeinum
áratugum voru vinstri menn
mjög hugmyndafræðilega
þenkjandi, svo mjög að hug-
myndafræðin bar þá stundum
ofurliði og oft var línan alþjóð-
leg. Hægri mennirnir voru hin-
ir praktísku menn sem vildu
bregðast við aðstæðum hverju
sinni. Núna hefur þetta snúist
við. Hægri mennirnir fram-
kvæma í samræmi við hug-
myndafræði og spyrja hvorki
um kosti né galla. Þeir einka-
væða skóla í blindni vegna þess
að hugmyndafræðin býður
þeim að gera það. Þetta er
einnig veikleiki evrópsku
kratanna og sömu tilhneigingar
gætir einnig mjög í þeirra her-
búðum hér á landi. Og linan er
alþjóðleg, hún liggur til Brus-
sel. Við viljum hins vegar
breyta í samræmi við dóm
reynslunnar og styðjast við eig-
ið hyggjuvit. Þetta gerir okkur
frjáls og í frelsinu felst lykillinn
að árangri okkar.“
- Heldurðu að fylgi ykkar
muni halda þegar nær dregur
kosningum?
„Við höfum mælst upp undir
30 prósent í skoðanakönnun-
um og aldrei skal maður segja
aldrei, en heldur finnst mér
ótrúlegt að fylgið verði svo
mikið í kosningum. Hins vegar
er ljóst að við höfum verið með
nokkuð stöðugt fylgi í kringum
20 prósent. En hvort sem við
mælumst í þremur prósentum
eða 30 þá munum við halda
okkar striki."
- En er ekki orðinn raunhæf-
ur möguleiki að mynda þriggja
flokka vinstri stjórn eftir næstu
þingkosningar?
„Hvaða flokkar ættu það að
vera? I síðustu skoðanakönn-
unum höfðu Vinstri hreyfingin-
grænt framboð, Samfvlkingin
og Frjálslyndir meirihluta. Eg
er ekki viss um að Frjálslvndir
vilji kenna sig við vinstri
stefnu, þótt þeir séu að mínum
dómi félagslega þenkjandi um
margt. Annars eru VG og Sam-
fylkingin nærri því að geta
myndað meirihluta. Maður
þorir ekki að hugsa til fram-
sóknar sem er í langvarandi,
traustu ástarsambandi.“
Getulítil ríkisstjórn
Andstæðingar ykkar hafa
gagnrýnt ykkur fyrir að horfa til
fortíðar. Hvernig lítur framtíð-
arþjóðfélag ykkar út, ríkir þar
mikil fortíðarhyggja?
„Stjórnendur Búnaðar-
bankans virtust hafa
bein f nefinu til að
standa uppi í hárinu á
ríkisstjórninni og
standa vörð um hags-
muni bankans. En hvað
gerist þá? Engu er lík-
ara en að bankinn og
yfirstjórn hans sæti
skipulegum ofsóknum
og þar fari fremstur
sjálfur viðskiptaráð-
herrann, sem mætir í
sjónvarpsviðtöl og
dylgjar um bankann.
Þetta er makalaus
framkoma og vinnu-
brögð af þessu tagi eru
ótæk.“
„Þegar menn tala um þetta
sakna ég þess að þeir skilgreina
ekki hvað þeir eiga við. Það er
margt í sögunni og fortíðinni
sem við viljum halda til haga,
og við viljum bvggja á því góða
sem þjóðin hefur smíðað. Hins
vegar finnst mér við horfa
bjartari augum til framtíðar-
innar en flestir aðrir. Við sjáum
vaxtarsprotana í íslensku at-
vinnulffi og viljum hlúa að
þeim. Ég er til dæmis sann-
færður um að Islendingar eiga
í þessum heimi mengunar og
sjúkdóma mikla framtíð fyrir
sér í matvælaframleiðslu, og
ýmsum iðnaði sem tengist
henni. Við höfum verið tals-
menn framfara og reyndar lít
ég svo á að okkar pólitík eigi
ekki aðeins erindi við samtím-
ann heldur einnig við þá öld
sem nú er að renna upp. Þá á
ég við áherslur okkar á jöfnuð
og félagslegt réttlæti, og sömu-
leiðis stefnu okkar í umhverfis-
málum. A þessu þarf framtíðin
að halda. Ég held að fortíðar-
draugarnir séu þeir, sem með
ótakmörkuðu valdi fjármagns-
ins og þeirri misskiptingu sem
því fylgir, eru að reyna að stýra
íslensku samfélagi gegnum
baksýnisspegilinn aftur til
kreppuára 20. aldarinnar. Það
er hin eiginlega fortíðarhyggja.
Við horfum fram á veginn og
það er ein ástæðan fyrir því að
okkar málstaður hefur fengið
góðan hljómgrunn."
- Nú hefur Ingibjörg Sólrún
gagnrýnt Sjálfstæðisflokkinn
mjög harðlega fyrir valdhroka
og pólitískt einelti. Tekurðu
undir þá gagnrýni?
„Ég gagnrýni ekki einungis
Sjálfstæðisflokkinn fyrir þetta.
Ég gagnrýni báða ríkisstjórnar-
flokkana. Þeir þjóna fjármagn-
inu vissulega af einurð en að
öðru Ieyti er ríkisstjórnin veik
og skortir bæði vilja og getu til
að vinna nokkur þjóðþrifaverk
að heitið geti. Þegar hún hefur
sitt ekki fram er gripiö til að-
gerða sem bera mjög keim af
hefndarráðstöfunum. Tökum
dæmi sem við blasir þessa dag-
ana. Landsbankinn og Búnað-
arbankinn sameinuðust ekki
eins og frægt varð. Stjórnendur
Búnaðarbankans virtust hafa
hein í nefinu til að standa uppi
í hárinu á rfkisstjórninni og
standa vörð um hagsmuni
bankans. En hvað gerist þá?
Engu er líkara en að bankinn
og yfirstjórn hans sæti skipu-
legum ofsóknum og þar fari
fremstur sjálfur viðskiptaráð-
herrann, sem mætir í sjón-
varpsviðtöi og dylgjar um bank-
ann. Þetta er makalaus fram-
koma og vinnubrögð af þessu
tagi eru ótæk.
- Hvað er ti 1 ráða?
„Við verðum að styrkja þingið
og fjölmiðlana. Oft hafa fjöl-
miðlarnir tekið ágæta spretti,
ekki ætla ég að gera lítið úr því,
hins vegar finnst mér veiklcikar
lýðræðisins hafi komið vel í ljós í
tengslum \ið eftirmála öryrkja-
dómsins svokallaða. Það er
margt sem bendir til þess að
valdaþáttunum þremur sem
stjórnskipan okkar byggir á -
dómsvaldi, framkvæmdavaldi og
löggjafarvaldi - hafi ekki verið
haldið aðgreindum eins og eðli-
legt hefði verið. Forsætisráð-
herra segir í skætingsviðtali á
sjónvarpsstöð að hann hafi ekki
vitað um samskipti Alþingis og
Hæstaréttar. Enginn grennslast
fyrir um hvort þetta er rétt, þótt
ferill málsins bendi til annars.
Forsætisráðherra neitar síðan
Iögmanni Oryrkjabandalagsins
um gögn í málinu, Hæstiréttur
kemst upp með að svara ekki
fjölmiðli um efni sem virðist
stjórnsýslulegs eðlis. Þeir menn
sem treyst er fyrir valdataumum
í þjóðfélaginu eiga ekki að kom-
ast upp með svona framkomu.
Og þegar eftir því var gengið á
Alþingi hvort forsætisráðherra
væri tilbúinn að beita sér fyrir
því að málið vrði upplýst þá
svarar hann með útúrsnúning-
um. Góðgjarnir menn skýra
þetta eflaust í ljósi lélegs mál-
staðar og jafnvel skorts á sjálfs-
trausti, eða hvað á að halda þeg-
ar menn treysta sér ekki til að
mæta andstæðingum sínum í
viðtölum í fjölmiðlum? Þarna er
ég að sjálfsögðu að vísa til for-
sætisráðherra landsins. Ég er
sannast sagna mjög hugsi vfir
þessu og mér finnst tímabært að
alþingismenn, fjölmiðlamenn og
aðrir sem láta lýðréttindi sig
skipta reyni að taka upp kröft-
ugra aöhald gagnvart mönnum
sem ekki kunna að fara með
vald sitt.“
„Mér finrtst timabært að alþingismenn, fjölmiðlamenn og aðrir sem láta lýðréttindi sig skipta reyni að taka upp kröftugra aðhaid gagnvart mönnum sem ekki kunna að
fara með vaid sitt.“