Dagur - 03.03.2001, Síða 13

Dagur - 03.03.2001, Síða 13
Da^ur. LAUGARDAGUR 3. MARS 2001 - 13 LIFIÐ í LANDINU Lands míns föður á sólrisuhátíð Lands míns föður á ís- firski sólrisuhátíð menntskælinga. Öflugt leiklistarstarf í bænum. Leikfélag Menntaskólans á Isa- firði frumsýnir á morgun, sunnudag, leikritið Lands míns föður eftir Kjartan Ragnarsson við tónlist Atla Heimis Sveins- sonar, í leikstjórn Elfars Loga Hannessonar. Frumsýningin markar upphaf sólrisuhátíðar skólans sem stendur yfir í um viku tíma. Almennt gera Isfirð- ingar ungir sem aldnir sér margt til gamans og gleði í tilefni þess að í hinum snotra kaupstað á eyrinni við Skutulsfjörð er sólin nú loks aftur farin að sjást þar sem hún lyftir sér upp fý'rir fjallabrúnir. „Bráðfyndin á köflum og ekki skemmir tónlistin“ Ohætt er að segja að Land míns föður sé meðal þeirra leikrita sem hvað mestri hylli hafa náð hérlendis á undan- förnurn árum. Þar er, eins og segir í frétt frá nemendum Menntaskólans á Isafirði, fjall- að um ungt par og þeirra nán- ustu í Reykjavík stríðsáranna. Ast, átök og ástand er sagt að séu ef til vill réttu orðin til að lýsa sögunni en hún er" ... bráðfyndin á köflum og ekki Ast, átök og ástand. skemmir tónlistin fyrir því hún er stórskemmtileg," segir orð- rétt. Alls koma um þrjátíu manns að sýningunni sem sýnd verður fjórum sinnum, það er sunnu- daginn 4. mars, kl. 20:30, þriðjudaginn 6. mars verður miðnætursýning sem hefst kl. 23:00, þriðja sýning verður fimmtudaginn 8. mars kl. 20:30 og lokasýning verður á sunnudag að viku Iiðinni á sama tíma. „Kómedfa og fært í stílinn“ „Það er kómedía í þessu verki og eins og títt er með menntaskóla- sýningar þá er í þessari leiksýn- ingu heldur fært í stílinn að því Ievti," segir Greipur Gíslason sem situr í sólrisunefnd ísfirskra menntskælinga. Hann segir það akk fyrir uppfærslu sem þessa hve leiklistarstarf ungmenna í bænum hafi verið öflugt á und- anförnum árum, þar þefur til dæmis verið starfrækt leikfélagið Morrinn samhliða Hnnuskóla Isafjarðarbæjar sem starfar á sumrin. Leiklistarstarf er einnig öflugt í grunnskólanum og í menntaskólanum hefur myndar- leg leiksýning einnig verið sett á fót á vetri hverjum um nokk- urt skeið. Það leggst því allt á eitt. Aðeins tjórar sýningar eru ráðgerðar á Land míns föður, en verði aðsóknin afar góð kemur til greina að bæta ein- hverjum við. Verkfall fram- haldsskólakennara hefur sett það strik í reikninginn að helst engum tíma megi verja til ann- ars en kennslu. „Það er okkur mikilvægt að þessi sýning gangi vel því þeir peningar sem við fáum inn með henni eru í raun það sem við fjármögnum sól- risuhátíðina með,“ segir Greip- ur Gíslason og er bjartsýnn á góða aðsókn. -SBS. Svipmynd af sviðinu. íslenska dvrastofna - komum í veg fyrir að nýir og hættulegir dýrasjúkdómar berist til landsins! Víða erlendis eru landlægir dýrasjúkdómar sem íslenskir dýrastofnar hafa sloppið við fram til þessa. Gin-og klaufaveiki sem nú breiðist út í Bretlandi og e.t.v. víðar er einn þessara hættulegu sjúkdóma. Ef hann bærist til íslands hefði það ófýrirsjáanlegar afleiðingar í för með sér. Áskorun til innlendra sem erlendra ferðamanna 3> Allur innflutningur á hráum matvælum er bannaður. Minnsta brot á þessum reglum getur valdið óbætanlegu tjóni. 1> Ferðist fólk um landbúnaðarsvæði í Bretlandi skal setja öll föt sem notuð eru í plastpoka strax að lokinni notkun og þvo og hreinsa í fatahreinsun strax eftir heimkomu. Skófatnað þarf einnig að sótthreinsa. Fólk sem hyggur á ferðir til Bretlands er varað við að heimsækja bóndabæi og landbúnaðarsvæði vegna smithættu. Þeir sem hafa ferðast um landbúnaðarsvæði í Bretlandi skulu auk þess -forðast snertingu við dýr hér á landi í að minnsta kosti fimm daga eftir heimkomu. Hönnun: G(sli B. Tövu- og myndvinnsla: Næst...

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.