Dagur - 16.03.2001, Page 13

Dagur - 16.03.2001, Page 13
FÖSTUDAGUR 16. MARS 2001 - 13 Thypr hætt. Hún sé nýlegt andlit og gefi flokknum ferskari ásýnd. Kenn- ingin um kynbundna parakeppni hefur líka heyrst, að konur muni kjósa Jónínu og Siv. A móti telja sumir að Jónína hafi lagt frama sinn að veði og ef útkoman verði slök, sé framboð hennar pólitísk mistök. l>á segja framsóknarmenn að Olafur Orn hafi unnið ötulleg- ast þessara þriggja að kjörinu og það geti orðið honum til fram- dráttar að hann sé óhræddur við að standa á „prinsipum" sínum. En þótt Guðna sé spáð sigri, voru viðmælendur blaðsins sam- mála um það í gær að ótímabært væri að segja fyrir um niðurstöð- una. A flokksþingum er beitt ákveðinni aðferð til að veiða at- Ólafur Örn Haraldsson: Ég er fyrst og fremst baráttumaður. kvæði. Fylkingar eru myndaðar utan um hvern kandidat og síðan er notuð „maður á mann" aðferð- in, þar sem ráðabrugg er í al- gleymi nánast allan sólarhringinn frá föstudagsmorgni og þangað til kosið verður síðdegis á sunnudag. „Það er lausafylgið sem ræður úr- slitum," sagði einn þingmanna flokksins í gær. Ólafur er baráttumaður Dagur tók varaformannskandi- datana tali í gær og spurði m.a. um muninn á þeim þremur og hvernig þeir mvndu meta helstu áherslur flokksþingsins. Ólafur Örn Haraldsson segir að varafor- mannsefnin þrjú hafi verið saman á framboðsfundi í Reykjavík í Siv Friðle/fsdóttír: Talin sigurstrang- leg í ritaraslagnum. fyrrakvöld. Einkar gott hafi verið milli frambjóðendanna á þeim fundi og þeim hafi öllum verið vel tekið. Spurður um muninn á hon- um og hinum segist Olafur ekki vilja gefa öðrum einkunn en hann sé hins vegar alhliða baráttumað- ur fyrir flokkinn. „Minn bak- grunnur er mjög breiður. Eg hef unnið víða í íslensku samfélagi og tel mig vera fyrst og fremst bar- áttumann. Framsóknarmenn geta metið mig af baráttu minni núna. Eg gef mig alltaf allan í það sem ég geri,“ segir Ólafur. Þingmaðurinn segir að skýrsla Byggðastofnunar hljóti að hafa áhrif á flokksþingið, byggða- og alvinnumál séu enda eitt helsta kjörsvið Framsóknarflokksins. Hjálmar Árnason: Sá ekki fyrir sam- keppnina af háifu Sivjar. Spurður um byggðakvóta, þorir Olafur ekki að spá fyrir um niður- stöðu þess máls. Hitt sé ljóst að byggðirnar standi og falli með þvf að til þeirra berist hráefni og hann segir að það verði að tryggja. Olafur nefnir byggðamál, endur- skoðun almannatryggingakerfis- ins (kjör öryrkja og aldraðra) fylgi flokksins, félagskerfi og starf flokksins sem lielstu mál þings- ins. Nýju lögin geri ráð fyrir miklu skilvirkara flokksstarfi, skýrari ábyrgð forystunnar og breyttu vægi miðstjórnar sem dæmi: „Eg heyri það á mínum heimsóknum út um allt land að menn eru að kalla á miklu líflegra flokksstarf," segir Olafur Örn. Sífelld endurskoðun Guðni Ágústsson segir að aðalmál flokksþingins séu ný Iög ffokksins og endurskoðun grundvallar- stefnuskrár hans. Þar muni rísa hæst umræður um málefni fjöl- skyldunnar og byggða- og sjávar- útv'egsmál. Varðandi sjávarútvegsmálin og byggðakvóta segir Guðni að Framsóknarflokkurinn hafi alla tíð verið reiðubúinn að ræða breytingar á fiskveiðistjórnunar- kerfinu og í raun boðað sífellda endurskoðun. „Við trúum því að meginmarkmið um verndun fiski- stofna hafi náðst en framsalið hefur verið umdeilt í flokknum. Eg vil ekki sjá allan kvótann á fáum höndum, en ég vil ræða hugmyndir sem taka meira tillit til byggðanna og fiskvinnslunnar." -Flokksbróðir þinn, Kristinn H., segir niðurstöðuna áfellsidóm fyr- ir kvótakerfið. Sammála því? „Eg hef ekki kynnt mér skýrslu Byggðastofnunar til hlítar. Marg- ir hafa reynt að skilgreina kosti og galla þessa kerfis. Við vitum að prófessorar hafa skrifað lærðar bækur um hagkvæmni kvótakerf- isins og það er litið til þess sem fyrirmyndar víða um heim. Ég hef ekki skilið það þannig að þessi skýrsla sé úttekt á kerfinu í heild og vil því ekki tjá mig um hana frekar fyrr en ég hef kynnt mér hana betur," svarar Guðni. Spurður um leiðir til að auka fylgi flokksins, bendir Guðni á að skoðanakannanir sýni að staða flokksins sé sterk meðal unga fólksins og þetta eigi flokkurinn að nýta sér í auknum mæli. Einnig verði flokkurinn að vera duglegri að minna á verk okkar og stefnu. „Fólk í fyrirrúmi" er mjög lýsandi um störf flokksins þó sumir reyni að halda öðru fram. Við stöndum vörð um tjölskyldu- fólkið, barnakortin og stórauknar barnabætur. Við unnum að leng- ingu fæðingarorlofs og erum stoltir af því. Við berjumst af al- efli gegn fíkniefnum og ef menn halda að aukinn árangur toll- gæslu og lögreglu sé tilviljun þá eru það blindir menn. Þá hef ég ekki enn nefnt metnaðarfulla áætlun okkar um tjiilgun starfa sem gekk upp og aukna erlenda fjárfestingu. Hér hefur náðst mikill árangur og honum verðum við að koma til skila til fólksins." Flokkurinii þarf iiiig - En því ættu menn að kjósa Guðna sem varaformann frekar en einhvern annan? „Eg grundvalla framboð mitt einkum á þrennu. I fyrsta lagi er ég að bregðast við þeirri miklu hvatningu og þeim stuðningi sem ég hef fengið frá flokksmönnum alls staðar af að landinu. I annan stað hef ég mikla reynslu úr störf- um fyrir flokkinn, þekki söguna, stefnu og fólkið. I þriðja lagi tel ég að það styrki flokkinn ef mínar áherslur, sem eru öllum kunnar, verða settar í öndvegi. Að lokum vil ég nefna að ég hef víða farið á undanförnum mánuðum og hitt fólk á glæsilegum fundum og í smærri hópum. Ég hef átt gott með að blása baráttuanda í brjóst þeirra sem ég hitti. Ég held að flokkurinn þurfi á því að halda," segir varaformannsefnið og land- búnaðarráðherrann Guðni Ágústsson. Spuming ínii heildarsýn Jónína Bjartmarz segir að stefna landsmálaafls eins og Framsókn- arflokksins bvggi ekki á einhverju einu málefni þegar hún er spurð um aðalmáJ þingsins. „Hún bygg- ir á byggir heildarsýn á hagsmuni samfélagsins og hvernig þeirra verður best gætt. - Sjávarútvegs- málin hafa þó verið mikið í um- ræðunni og það er viðbúið að um þau verði mikið rætt," segir hún. „Ég styð hugmyndir um aukinn byggðakvóta með það að mark- miði að efla atvinnuöryggi fólks, enda hefur byggðakvótinn víða sannað gildi sitt. En það að kenna kvótakerfinu einu og alfar- ið um þá byggðaröskun sem við höfum horft upp á fær ekki stað- ist. Við hljótum að þurfa að horfa til þess hver staðan væri ef því kerfihefði ekki verið komið á, sem ekki er gert í skýrslunni," segir Jónína ennfremur. Jónína var spurð hvort hún tæki þá ekld undir með flokksbróður sínum, Kristni H. um að skýrsla Byggðastofnunar væri áfellisdóm- ur vfir kvótakerfinu segir Jónína: „ Nei, en skýrslan dregur fram ákveðna erfiðleika og vandamál sem við er að etja og á þeim þarf að finna lausnir bæði innan og utan sjávarútvégsins," Kyimtng málefna Jónína telur að nærtækasta lciðin til að auka fý'lgi Framsóknar- flokksins sé með bættri kynningu á málefnalegum grunni. Höfuð- borgarbúum ekki síður en öðrum landsmönnum þarf að kynna stefnumál flokksins og áherslur er byggja á sígildri hugmyndafræði og sýna fram á að þeir eigi sam- leið með honum. Aðspurð um hvers vegna menn ættu að kjósa hana sem varaformann frekar en einhvern annan sagði Jónína: „ Til að efla Framsóknarflokkinn, breikka forystu hans og nýta krafta mína, áhuga, vilja og metnað til að auka fylgi flokks- ins.“ Stjórnarsamstarfið Framsóknarflokkurinn hefur að ýmsu lcyti staðið sig vel í stjórnar- samstarfinu og haldið utan um erfið ráðuneyti. Sú er skoðun all- margra og dugnaður og farsæld utanríkisráðherrans er tíunduð. Oræð stefna, skuggi samstarfsins með Sjálfstæðisflokknum og ímyndarvandi eru aftur vandamál sem viðmælendur flokksins nefna gegnu mgangandi.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.