Dagur - 16.03.2001, Blaðsíða 20

Dagur - 16.03.2001, Blaðsíða 20
20- FÖSTUDAGUR 16. MARS 2001 .Ðxgur Heiða, Fjóla og Ingedda Laugardaginn 17. Mars verður opnuð sýning í Gallerí Geysi milii kl. 16:00 og 18:00. Þar munu frænkurnar og listaspírurnar Heiða, Fjóla og Ingedda sýna rýmisverk, mósaik og textílverk. Léttar veitingar verða í boði á opnuninni og lifandi tónlist á staðnum. Sýningin stendur til 2. Apríl. Allir velkomnir. Píanótónleikar í Hveragerðiskirkju Næstkomandi laugardag, 17. mars 2001 kl. 16:00, heldur Jónas Ingimundarson píanótónleika í Hveragerðiskirkju. Við- fangsefni hans að þessu sinni eru verk eftir Ludwig van Beethoven, Claude Debussy og Franz Liszt. Eftir Beethoven leikur Jónas Andante favori og Waldstein sónötuna. Seinni hluti efnisskrárinnar eru fjórar prelúdíur eftir Debussy og Gosbrunnarnir við Villa d’Este og Ballata nr. 2 í h- moll, hvoru tveggja eftir Liszt. Sýning opnar í Slunkaríki Ragnhildur Stefánsdóttir myndhöggvari opnar sýningu á verkum sínum laugardaginn 17. mars í Slunkaríki á ísafirði. Hún nam myndlist við Mynd- lista-og handíðaskólann, Minneapolis College of Art and Design og Carnegie-Mellon Uni- versity Pennsylvania. Einkasýningar Ragnhildar eru á annan tug hér heima og erlendis og var hún með einkasýningu í Slunk- ariki árið 1997, en sam- sýningarnar fylla hins veg- ar þriðja tuginn. Verk Ragnhildar má sjá víða í opinberi eigu og söfnum. Sýningin hefst kl. 16 og eru allir velkomnir. Slunk- aríki er opið fimmtudaga til sunnudaga frá kl. 16 til 18. ÞAD ER KOMIN HELGI Hvað ætlarþúað gera? Sigurður Fannar Guðmundsson. Smmudagur í sveitinni „Föstudagskvöldið verður rómantískt,“ segir Sig- urður Fannar Guðmundsson tryggingaráðgjafi á SeIfossi.“Þá ætlum við hjónaleysin að borða saman; fá okkur vel kryddað nautakjöt og drekka rauðvín með. Fforfa síðan saman á sjónvarpið. Þetta verður rómantiskt kvöld. A laugardaginn verð ég að vinna, ætla þá að verða í Þorlákshöfn og selja fólki lífeyrissparnað. Selja því bjarta framtíð. Laugardagskvöldið er næsta óráðið en sunnudagurinn er alltaf bókaður sem fjöskyldu- dagur. Eg byrja á því að fara með drenginn á leikvöll en eftir hádegi förum við í heimsókn í sveitina til tengdaforelda minna en sunnudags- ferð í Flóann um helgar er alveg föst á dag- skránni." Handbolti og heillandi þing „Eg verð fyrir sunnan alla helgina á flokksþingi Framsóknarllfikksins,“ segir Jakob Björnsson bæjarfulltrúi á Akureyri. „Þessi þing eru alltaf mjög skemmtileg, að minnsta kosti fyrir þá sem hafa áhuga á stjórnmálum - og sjálfum þykir mér skemmtilegast að taka þátt í umræöum um byggðamálin í víðustu merkingu þess orðs. Einnig er mjög heillandi við þessi þing að maöur hittir fólk víða að og þetta er kjörið tækifæri að fara yfir málin með þeim. Síðan þarf ég inn á milli að skjótast á einn handboltaleik; það verður leikur Vals og HK sem verður í Valsheimilinu á föstudagskvöldið, - en sonur minn leikur einmitt með Kópavogsliðinu. Þann leik verða „mínir menn" að vinna, enda er mikið í húfi.“ Lúðvík Bergvinsson. Frnidir og fótboltafélagar „Ég þarf að vera á einhverjum fundum um helg- ina, svo sem á fundi suður í Vogum á föstudags- kvöldið þar sem stofna á nýtt Samfylkingarfélag,” segir Lúðvík Bergvinsson þingmaður Samlýlk- ingarinnar. „A Iaugardag þarf fjölskyldan að fara í verslun og kaupa nytt sjónvarp; við erum búin að vera að sjónvarpslaus í mánuð og það er farið að trufla yngsta fjölskyldumeðliminn mjög. Síðdegis ætlum við síðan að hittast nokkrir gamlir fót- boltafélagar úr Eyjum og borða saman. Á sunnu- daginn getur verið að ég kíki eitthvað í bók, ég hef lengi verið með ókláraða þriðju bókina um Einar Ben á náttborðinu hjá mér. Mér finnast fvrri bækurnar tvær vera stórkostlega góðar og gefa mikla innsýn í mannlíf, móral og málefni í samtíð þessa fræga skálds og athafnamanns." ■ HVAB ER Á SEYDI? HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ TÓNLIST Stórtónleikar í Neskirkju Lúðrasveit Reykjavíkur mun halda stórtónleika laugardaginn 17. mars n.k. 16:00 í Neskirkju. Á tónleikun- um munu fjórir söngvarar syngja með sveitinni en þeir eru Andrea Gylfa- dóttir, Egill Olafsson, Guðbjörn Guð- björnsson og Margrét Eir Hjartar- dóttir. Yngsti þátttakandinn á þessum tónleikum er Gylfi Sigurðsson slag- verksleikari en hann er aðeins 9 ára gamall og leikur í einu lagi sem gestaleikari, þess má geta að hann á þrjú eldri systkini í sveitinni. Sá elsti er Halldór Einarsson básúnuleikari sem er 75 ára og búinn að spila í Lúðrasveit Reykjavíkur í yfir 50 ár. Vegna umfangs þessa verkefnis mun hljómsveitin þurfa að selja inn á þessa tónleika en það hefur ekki ver- ið gert í mörg ár. Stjórnandi Lúðra- sveitar Reykjavíkur er Lárus Halldór Grímsson. Allir eru hjartanlega vel- komnir. Einleikaratónleikar tónlistarskólanema í Salnum Laugardaginn 17. mars kl. 14:00 í Saln- um, Tónlistarhúsi Kópavogs, einleikara- próf, Víkingur Heiðar Olafsson, pfanó. Verk eftir Bach, Mozart, IJgeti og Liszt. Sunnudaginn 18. mars kl. 14:00, ein- leikarapróf, Karen Erla Karólínudóttir, flauta, Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanó. Verk eftir Bach, Damase, Danzi, Poulenc, Bruynél og Muczynski. Hljómsveitartónleikar í Seltjamarneskirkju Arlegir hljómsveitartónleikar Tónskóla Sigursveins D. Kiistinssonar verða í Sel- tjarnarneskirkju laugardaginn 17. mars kl. 14. Þar munu þrjár strengjasveitir og gítarsveit framhaldsnemenda, samtals 70 tónlistarnemar, flytja verk eftir AI- beniz, Lennon & McCartney, Scott Joplin og Elías Davíðson. Stjórnendur sveítanna eru Páll Eyjólfsson og Sigur- sveinn Magnússon. Allir eru velkomnir. Verk Gunnars Reynis í kvöld kl. 21:00 verða haldnír í Kaffi- leikhúsinu tónleikar þar sem flutt verður tónlist eftir Gunnar Reyni Sveinsson. Á dagskránni verða lög sem hann hefur samið við Ijóð Hrafns Andrésar Harðar- sonar, Steins Steinarrs og Tómasar Guðmundssonar auk nokkurra píanóv- erka. Þetta verður frumílutningur flestra Iaganna og hafa hin sjaldan heyrst áður. Flutningurínn verður í höndum Önnu Sigríðar Helgadóttur og Maríu Kristínar Jónsdóttur. Aðeins er um þessa einu tónleika að ræða. Rússibanar eiga almæli Undarlegt en satt það eru liðin fimm ár síðan hið fíruga og eldhressa en þó fág- aða band Rússíbanar stigu á stokk í fyrsta sinn. Tími og tækifæri til að fagna og bjóða upp á afmælistertu, eða hvað? Laugardaginn 17. mars stíga þeir allir á stokk í Kaffileikhúsinu, Einar, Guðni, Jón, Matthías og Tatu til að fínstilla saman hljóðfæri sín og þá er engrar undankomu auðið, sverðdansinn, tangó, jæv og svo auðvitað hin fijálsa aðferð. Söngbræður í Ými Karlakórinn Söngbræður í Borgarfirði efnir til tónleika í tónlitarhúsinu Ymi við Skógarhlíð í kvöld, föstudaginn 16. mars, kl. 20.30. Dagskráin er bæði fjörug og falleg. Vortónleikar Karlakórs Reykjavíkur Karlakór Reykjavíkur heldur vortón- leika sína í húsi kórsins, Ymi við Skógarhlíð dagana 17. til 24. mars. Tónleikarnir um helgina, bæði laug- ardag og sunnudag hefjast kl. 16.00. og engir tónleikar verða á mánudag. Á efnisskránni eru m.a. lög eftir Pál Pampichler, negrasálmar, lög úr Kátu ekkjunni, Dóná svo blá eftir Strauss og Grænlandsvísur eftir Sigfús Ein- arsson. Anna Guðný Guðmundsdóttir annast píanóleik á tónleikunum og hornleikarar úr Sinfóníuhljómsveit íslands leika með í nokkrum lögum. Kórinn heldur upp á 75 ára afmæli sitt á þessu ári. SÝNINGAR Fyrir börnin, lyrir börnin Fyrsta sýningin á einleikjadögum Kaífi- Icikhússins er barnaeinleikurinn Storm- ur og Ormur en hann verður svmdur sunnudaginn 18. mars kl. 15:00. Þrívíð Ijóð Guðrún Gunnarsdóttir myndlistarkona heldur sýningu á þrívíðum ljóðum í Listasafni ASÍ við Freyjugötu, Ásmund- arsal og Gryfju og stendur hún frá 17. mars - 1. apríl. 1 Ásmundarsal eru verk unnin úr vir og pappírsþráðum og í GrvTju eru verk unnin úr tré. Þetta er 15. einkasýning Guðrúnar og auk þess hefur hún tekið þátt í fjölda samsýminga, hérlendis og erlendis. Sýningin verður opnuð 17. mars kl. 15.00 og verður opin alla daga ncma mánudaga til 1. mars, milli kl. 14 og 18. Sýning í Hafnarborg Nú stendur yfir í Sverrissal og Apó- teki Hafnarborgar sýning á verkum eftir Barböru Vogler. Á sýningunni eru innsetningar og teikningar sem gerðar eru með blýanti, litblýanli og pastellitum á handunninn pappír. Þctta er í sjötta sinn sem Barbara heimsækir Island. Hún hefur dvalið í Straumi og Hafnarborg og hrifist að nátturu landsins. Sýningin stendur til mánudagsins 26. mars og er opin alla daga frá kl. 11 - 1 7 nema þriðjudaga. Ljósmyndasýning í Norræna húsinu Nú fer hver að verða síðastur að sjá ljós- myndasýninguna Þrá eftir þrá í Nor- ræna húsinu. Sex norrænir ljósmyndarar eiga verk á sýningunni eru þau: Eva Merz, Danmörku, Pia Arke, Grænlandi, Fin Serck-Hanssen, Noregi, Lars Tun- björk, Svíþjóð, Pekka Turunen, Finn- landi og Kristján Maack, Islandi. Sýn- ingunni lýkur sunnudaginn 18. mars. Rauða og hvíta blóðkornið í ævintýrum Leitin að nýrnasteininum heitir ævin- týramynd fyrír alla fjölskylduna sem sýnd verður í Norræna húsinu sunnu- daginn 18. mars, kl. 14.00. Efni hennar er svo lýst: „Kvöldið áður en Simen og afi hans ætla til Kaupmannahafnar gista þeir í kofa á lítilli evju. Þegar afi verður allt í einu veikur verður Simen hræddur. Hann skilur ekki hvað er að afa og leitar huggunar hjá traustum vini sínum, bangsanum." Anna Pavolva í MÍR Rússneska kvikmyndin Anna Pavlova verður sýnd í bíósal MIR, Vatnsstíg 10 sunnudaginn 18. mars kl. 15.00. Mynd- in var gerð 1983 og í henni er sagt frá lífi og listrænum ferli hinnar frægu rúss- nesku ballettdansmevjar Önnu Pavlovu sem uppi var 1881-1931. Margir af fremstu dönsurum óperu-og bellettleík- hússanna í Leningrad og Moskvu koma fram í mvmdinni og hljómsveitir leikhús- anna leika. Skýringar með myndinni á ensku. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Loðinbarði frumsýndur í Gerðubergi Sögusvuntan frumsýnir nýjan brúðu- leik eftir Hallveigu Thorlacius sunnudaginn 18. mars, bæði kl. 14.00. Sýningin heitir Loðinbarði og er eldgömul íslensk þjóðsaga um tröllkarlinn Loðinbarða og samskipti hans við systurnar góðkunnu Ásu, Signýju og Helgu. Til dæmis komumst við að því hvernig Helga komst úr öskustónni! Hallveig Thor- lacius hefur klætt þessa þjóðsögu í nýjan húning sem öll börn á aldrin- um 4-104 ættu að hafa gaman af. Leikstjórn og leikmynd er í höndum annarrar þekktrar brúðuleikkonu, Helgu Arnalds en Sigurður Kaiser sér um lýsinguna. Aðgangur er og öllum heimill. QG SVO Hin... Málþing um viðhorf til íslensku Laugardaginn 17. mars gengst Stofnun Sigurðar Nordals fyrir málþingi um við- horf til íslenskrar lungu í Þjóðarbók- hlöðunni og hefst þingið kl. 13.30. Að loknum framsöguerindum verða al- mennar umræður. Allir velkomnir.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.