Dagur - Tíminn Akureyri - 30.08.1997, Blaðsíða 3
JDagur-'ðlímimT
Laugardagur 31. maí 1997 - 15
LÍFIÐ í LANDINU
Mikil stemmning er í kringum bikarleikinn.
Bikaiinn og hálf milljón
A morgun rennur
stóra stundin í ís-
lenskum fótbolta
upp. Eyjamenn og
Keflvíkingar fara úr
inniskónum og í
takkaskóna.
Það verður ekki eingöngu
bikarinn og heiðurinn sem leik-
menn reyna að vinna í bikarúr-
slitaleiknum, því mammon er
nefninlega líka á svæðinu. Sig-
urvegarinn í leiknum, Coca
Cola bikarmeistarinn, verður
einnig 500 þúsund krónum rík-
ari. Tapliðið fer heldur ekki
tómhent heim, því ásamt silfur-
peningunum, fær það 250 þús-
und krónur í
verðlaun fyrir ár-
angur sinn í bik-
arkeppninni. Það
er Vífilfell, um-
boðsaðili Coca
Cola, sem veitir
liðunum þessi
verðlaun.
Það er alveg
ljóst að það verð-
ur ekki aðeins
Vífilfell sem styrkir liðin með
rausnarlegum hætti. Bæjarfé-
lögin standa þétt við bakið á
sínum mönnum og því má
ganga að því vísu að veisluhöld
mikil verða í heimabæ sigur-
vegaranna. Leikmenn fá bónus
og boðið verður til sigurhátíðar,
þar sem einstaklingar og fyrir-
tæki grynnka af miklu örlæti á
sjóðum sínum félaginu til
handa. Afkoma félaganna getur
einfaldlega ráðist af því að lið
nái þessu takmarki, að verða
þátttakandi í stærsta knatt-
spyrnuviðburði
ársins. Auglýsinga-
tekjur og áheit
skipta milljónum
þegar að stóru
stundinni kemur.
Þjóðhátíð-
arstemmning
í flugskýli 4
Það eru ekki aðeins
stjórnarmenn félaganna sem
leggja nótt við dag til að gera
bikarúrslitaleikinn sem
glæsilegastan. Ófáir
stuðningsmenn liðanna
koma þar einnig við
sögu. Vestmannaeying-
ar, sem einnig áttu Uð í
úrslitum í fyrra, eru
með þeim frumlegri
þegar til stórátaka
kemur. í fyrra lögðu
þeir undir sig Hafnar-
strætið að morgni þess
dags er úrsUtaleikurinn fór
fram. Þeir slógu einfaldlega
upp útihátíð með þjóðhátíðar-
stemmningu í Hafnarstrætinu.
Nú dugar Hafnarstrætið ekki
lengur. Stuðningsmenn Eyja-
peyjanna hafa tekið flugskýli 4
á Reykjavíkurflugvelli á leigu
þar sem þeir ætla að hittast og
móta hugarfarið fyrir átökin í
Laugardalnum. Boðið verður
upp á miðlungssterkar veiting-
ar, söngvatn og annað er gleður
geð guma.
Þjóðflutningar
á Reykjanes-
brautinni
Keflvíkingar leggja
undir sig rútuflota
SBK og ætla að
flytja íbúa Reykja-
nesbæjar að Ölveri í
Reykjavík. Þar
munu Suðurnesja-
bændur leggja á
ráðin um árangursríkan stuðn-
ing við liðið. Málarameistarar
bæjarins mæta á svæðið og
mála stuðningsmenn Keflavíkur
í sínum réttu litum. Þá munu
stuðningsmannakórinn æfa ný-
endurbætt Keflavíkurlagið, sem
fyrrum landsliðsmarkvörður og
Keflvíkingur, Þorsteinn Ólafs-
son, samdi á sínum tíma. Þor-
steinn sér sjálfur um flutning-
inn ásamt gömlu félögum sín-
um og landsliðskempunum úr
Hljómum og Keílavík, Rúnari
Júlíussyni og Karli Hermanns-
syni. Topp tríó þar á ferð.
gþö
Kjartansþáttur Mássonar
Einn er sá maður sem mætir
stoltur til leiks á morgun. Vest-
mannaeyingurinn, Kjartan
Másson, er sá þjálfari sem síð-
ast vann tilil með ÍBV. Hann
þjálfaði Eyjamenn er þeir unnu
bikarinn árið 1981. Undanfarin
ár hefur hann þjálfað Keflvík-
inga með frábærum árangri og
hann lagði grunninn að því leiði
sem Keflvíkingar eiga í dag.
Hvað segir Kjartan, sem nú er
framkvæmdastjóri knattspyrnu-
deildar Keflavíkur, nú þegar lið-
in hans berast á banaspjótum
um bikarinn eftirsótta.
„Þetta getur ekki verið betra.
Bæði liðin eiga þetta skihð.
Þetta verður hraður og
skemmtilegur leikur. En nú er
ég Keflvíkingur og við ætlum að
vinna þennan leik. Ég á það
mikið í þessu Keflavíkurhði að
ég held að sjálfsögðu með því.
ÍBV er drauma andstæðingur-
inn og ég vh að þeir verði ís-
landsmeistarar en við fáum
bikarinn. Ég óska svo Eyjapeyj-
unum til hamingju með drátt-
inn í Evrópubikarkeppninni,“
sagði Kjartan Másson að lok-
um.
Karel Yala.
Sverrir Leósson.
Róbert Duranona.
Jón Baldvin
Hannibalsson.
Hannes Hólmsteinn
Gissurarson.
HELGARPOTTURINN
Handboltavertíðin er loksins
að byrja og nú spá KA menn
í nýja Alsírkappann sem byrjaður
er að æfa. Hörku“gormur“ og
sagður minna á Sigga Sveins -
sem lofar góðri skemmtun í vetur.
En svo er sagt að enn sé verið að
leita að rússneskum birni til að
ógna á hinum vængnum, á móti
„gorminum".
Og meira um KA sem nýtur
„sægreifaveldis" útgerðar-
bæjarins. Sverri Leósson útgerð-
armaður en nýbakaður hand-
boltaunnandi og lét sig ekki
muna um að ganga milli manna
til að fjármagna nýafstaðna
Þýskalandsferð: 7-800 þúsund í
frjálsum framlögum.
Og sögur af Dúranóna: Kom-
inn til Þýskalands en
ákveðnar raddir innan KA herma
að hann verði kominn með
„heimþrá" í nóvember ef ekki fýrr.
Heimþrá - ekki til Kúbu heldur í
norðurljósin!
Stöðugar umræður um að Jón
Baldvin Hannibalsson sé að
velta fyrir sér að hætta við að
hætta í pólitík hafa ekki styrkt
stöðu Sighvats Björgvinssonar.
Tæpast mun ný skoðanakönnun
draga úr óvissunni í forystuliði
kratanna. í henni er spurt um fylgi
við sameinað framboð jafnaðar-
manna, og síðan eru nefnd nokk-
ur nöfn, og fólk beðið að segja
hverjum það treysti best til að
leiða slíkan flokk. Meðal þeirra
sem spurt er um eru bæði Sig-
hvatur og Jón Baldvin. Gallup
framkvæmir könnunina, sem ber
öll merki þess að vera keypt af
áhugamönnum um sameinað framboð. Þrátt
fyrir ítarlega eftirgrennslan hefur Helgarpottin-
um ekki tekist að fá upplýst hverjir standa að
henni.
Hannes Hólmsteinn fær á
baukinn hjá Vef-Þjóðviljan-
um, sem Heimdallur heldur úti á
netinu. Ungu Heimdellingarnir
hafa ekki fyrr en nú áttað sig á
því að Hannes er inngróinn hluti
af samtryggingu kerfisins og það
kallaði fram eftirfarandi gremjuk-
ast í síðasta pistli Vef-Þjóðviljans:
„Eins og menn vita er Ríkisút-
varpið helsta hindrun þess að
Stöð 2 og Bylgjan... fái alvöru
samkeppni. Af einhverjum
ástæðum hefur Hannes Hólmsteinn Gissurar-
son, prófessor, hins vegar ákveðið að vera sér-
stakur talsmaður þess að ríkið haldi áfram
rekstri Ijósvakamiðla. Hannes var einnig stjórn-
málaskýrandi hjá Ævari Kjartanssyni í Víðsjá á
Rás 1 í gær. Þar kynnti Hannes nýtt baráttumál
sitt, sameiningu Sjálfstæðisflokks og Fram-
sóknarflokks. Hannes telur nefnilega að vinstri
menn eigi ekki að einoka sameiningarumræð-
una. Til að greiða fyrir sameiningunni mun
Hannes væntanlega styðja fólk til áhrifa í Sjálf-
stæðisflokknum á næstunni sem líklegt er að
framsóknarmönnum falli vel í geð.