Dagur - Tíminn Akureyri - 30.08.1997, Qupperneq 6

Dagur - Tíminn Akureyri - 30.08.1997, Qupperneq 6
18 - Laugardagur 30. ágúst 1997 jDí:gnr-®tmti m MENNING OG LISTIR Daprir ráðherrar o g ægivald íhaldsins í viðtali við Kol- brúnu Bergþórs- dóttur rœðir Guðni Ágústsson meðal annars um hlutverk Framsóknarflokks- ins í nútíð ogfram- tíð, ráðherra flokks- ins sem hann segir ekki nógu glaða, of- urvald Sjálfstœðis- flokksins og nauð- syn nýrrar byggða- stefhu. JÁú ert einn af hópi sextán systkina, heldurðu að móðir þín hafi verið sátt við að eign- ast svo mörg börn? „Það er mikið álag á eina konu að fæða sextán börn á tuttugu og einu ári, og ég er ekki viss um að hún hafi verið sátt við það, nema þegar frá leið. Móðir mín var einstakur dugnaðarforkur, fyrst á fætur á morgnana og seinust í rúmið á kvöldin. Það ríkti agi á heimil- inu, en engin harka. Haft var á orði í sveitinni að krakkarnir á hinum bæjunum yrðu að læra að vera jafn stillt og Brúna- staðabörnin. Það var helst að mikið færi fyrir okkur strákun- um í hetjuleikjum sem við höfð- um yndi af. Við smíðuðum okk- ur sverð, brugðum okkur í hlut- verk eftirlætishetju okkar og börðumst. Mín hetja var Gunn- ar á Hlíðarenda." Og hvað œtlaðir þú að leggja fyrir þig þegar þú yrðir stór? „Sem lítill drengur ætlaði ég að verða prestur, klifraði upp á eldhúsborðið og predikaði yfir yngri systkinum mínum, sem tóku boðskap mínum af þohn- mæði. Ég varð ekki prestur, en í dag er með mig eins og marga aðra, að þegar eitthvað bjátar á hugsa ég til Guðs almáttugs eins og mér var kennt og skammast mín ekkert fyrir það. Ég vUdi ekki vera trúlaus, en trúin er eitthvað sem ég á fyrir sjálfan mig og ég ber hana ekki á torg.“ Össur Skarphéðinsson sagði mér einhvern tímann að þú vcerir biskupsefnið í hópi þing- manna, talaðir af kennivaldi. Hvaðan fékkstu orðaforðann og stílinn? „Faðir minn hafði geysilega sterkan stfl, talaði gullaldar ís- lensku og var mjög áheyrilegur ræðumaður. Stfll minn og orða- forði eru frá honum komin, en hafa einnig mótast af þeim bók- um sem ég las í æsku, sérstak- lega fornsögunum. Ennfremur af samferðamönnum. Ég var og er ungmennafélagi, Skarphéð- insmaður, og hreifst af mörgum góðum ræðumönnum sem ég starfaði þar með sem ungur „Ég held að hlutverk Framsóknarflokksins geti orðið mikilvægt í framtíðinni ef hann markar sér stefnu sem mild- ur, framsækinn flokkur, er mótar jafnaðarmannasamfélagið með jafnaðarmönnum.“ mynd: e.ú. maður. Mér þykir gaman af skáldskap og hef yndi af því að lesa ljóð og Davíð Stefánsson er í sérstöku uppáhaldi hjá mér. Reyndar er ég hrifnari af eldri skáldum, yngri skáld ná ekki til hjarta míns.“ Fœstu sjálfur við skáldskap? „Ég yrki eitt og annað fyrir konu mína og dætur, en þau ljóð verða aldrei til útgáfu." Sjálfstæðisflokkurinn á fjölmiðlana Snúum okkur að pólitíkinni, heldurðu að þú hafir erft áhug- ann á hennifrá föður þínum? „Líklega hef ég gert það, því við fórum snemma að ræða um pólitík. Ég stefndi þó ekkert sérstaklega að því að verða þingmaður, því ég var mjög meðvitaður um það álag sem fylgir starfinu. Faðir minn var þingmaður í átj- án ár og því mikið að heim- an. Á tímabili töpuðum við systkinin af honum, en náð- um honum þó aftur. Ég vildi ekki leggja þessa byrði á mína fjölskyldu, en einhvern veginn fór þó þannig. Einn daginn var ég kominn á áfangastað og það varð ekki snúið til baka.“ Hvaða stjórnmálamönnum hefur þú haft mest dálœti á? „Ég held að Jónas frá Hriflu hafi verið mesti stjórnmálamað- ur íslendinga á þessari öld. ✓ „Eg er í engum vafa um að Finnur Hann var mað- „ ur alþýðunnar, Ingoljsson hejur verið vaskastur... en mér finnst hinir ráðherrar flokksins ekki nógu glaðir. “ hann í París: ur þorði að ganga gegn ofurvaldi auðs og emb- ættismanna og lét verkin tala. Ég get tekið undir það sem Albert Guð- mundsson sendiherra sagði við mig, þegar ég hitti Jónas jafnast á við Jón Sigurðsson forseta." Hermann Jónasson var mjög dáður á mínu æskuheimili. Ég tel að hann hafi verið mikilhæf- ur stjórnmálamaður, og það sama finnst mér eiga við um Eystein Jónsson og Bjarna Benediktsson. Steingrímur Her- mannsson var merkur leiðtogi á tímabih. Ég tel til dæmis að það hafi verið hans verk þegar verðbólgan var lögð að velli og þjóðarsátt komst á. Hann átti auðvelt með að leiða menn að sáttaborði, en hans ólán var að verða forsætisráðherra í rflds- stjórn þar sem margir flokkar komu við sögu. Of mikið af tíma hans fór í baráttu við að halda frið innan ríkisstjórnarinnar. Sjálfstæðisílokkurinn er líka miskunnarlausasti stjórnmála- flokkurinn í stjórnarandstöðu, ræður nánast yfir öllum (]öl- miðliun og á þar mjög pólitíska menn. Af erlendum stjórnmála- mönnum sem ég hef dálæti á vil ég nefna John F. Kennedy. Ég er eins og aðrir íslendingar, man hvar ég var staddur þegar ég heyrði fréttina af morði hans.“ Og hvar varstu? „Ég var í herbergi 36 í Hlíð- inni á Laugarvatni." Jafnaðarmenn og Framsókn Efþú lítur gagnrýnum augum á þinn flokk, Framsókn- arflokkinn, finnst þér hann ekki orðinn fremur hugsjónalítill? „Ég held að íslensk stjórnmál þurfi uppstokkunar við, það er nauðsynlegt að flokkarnir marki sér skýrari stefnu og fylgi henni eftir. Framsóknarílokkur- inn er bara eins og hinir flokk- arnir að þessu leyti. En á mörg- um sviðum held ég að hann sé á réttri leið, og á betri leið en hann var þegar veldi SÍS stóð sem hæst.“ Hvert er hlutverk Framsókn- arflokksins í dag? „Ég held að hlutverk Fram- sóknarflokksins geti orðið mik- ilvægt í framtíðinni ef hann markar sér stefnu sem mildur, framsækinn flokkur, er mótar jafnaðarmannasamfélagið með j afnað armönnum. “ Umrœðan um samstarf, jafh- vel sameiningu A-flokkanna er hávœr þessa dagana, en verður Framsóknarflokkurinn ekki að taka afstöðu í þeim málum? „Það kann vel að vera. Ég held samt að það komi í hlut vinstri flokkanna að fuhkomna þetta verk sitt. Takist þeim það, sem er ekki víst, munu í kjölfar- ið verða miklar breytingar á ís- lenskri pólitík. Það er auðvitað svo, að hér ber Sjálfstæðisflokk- urinn ægivald yfir íslensk stjórnmál og enginn getur stjórnað nema hafa hann með sér. Það er hin ógnvænlega staða. Alþýðuflokkurinn yfirgaf vinstri ríkisstjórn 1991, fór í faðminn á bjarndýrinu og í raun gat Sjálfstæðisflokkurinn valið hvaða flokk sem var eftir

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.