Dagur - Tíminn Akureyri - 30.08.1997, Page 9

Dagur - Tíminn Akureyri - 30.08.1997, Page 9
|Dagur-®mmm Laugardagur 30. ágúst 1997 - 21 LIFIÐ 1 LANDINU Elín segist vera „skólafrík", helst alltaf vilja vera í skóla og læra eitt- hvað nýtt. Hún hefur áhuga á öllu mögulegu milli himins og jarðar. Börn og unglingar hafa oft ekki mikið álit á sögunni. Hvorki íslandssögunni né þeirri erlendu. Þetta þykir þeim heldur leiðinleg námsgrein, mikið lesefni. En viðhoríið breytist þegar líður á og námskeið er varða sögu okkar, sem haldin eru á vegum Endurmenntunarstofn- unar Háskólans eru svo vinsæl að það er fullt á öll námskeið. Ehn Torfadóttir, ekkja Guð- mundar J. Guðmundssonar, hefur sótt námskeið hjá Jóni Böðvarssyni frá árinu 1989. „Það sem var kveikjan að þessu fyrst og fremst var það að ég kom eitt sinn heim úr skólanum, úr sögutíma með þær upplýsingar að Hallgerður Langbrók hefði kannski ekld verið algjör bredda og frekju- dós. Að það hefðu ef til vill ver- ið einhverjar skýringar á hegð- un hennar og afsökun. Við þetta vildi Guðmundur ekki una, hann var á þeirri skoðun að hún hefði verið frekjudós og út frá því spunnust rökræður. í framhaldi af þessum umræðum fórum við á Njálunámskeið hjá Jóni Böðvarssyni og fórum svo á hverju ári eftir það. Tókum fyrir Gísla sögu Súrssonar, Borgarijarðarsögm, Græn- landssögur, Laxdælu og margt fleira," segir Eh'n. Skólafrík Hún er ekki við eina íjölina felld í skólamálum, segist vera algjört skólafrík. Börnin hennar hafa á orði að ekki megi aka mjög nálægt skóla með mömmu, hún láti þá innrita sig í eitthvert fag. Hún hefur m.a. farið á tölvunámskeið, af því leiðir að hún ætlar að fá net- tengingu til að skoða Internetið betur, hún hefur lært bókhald og íslensku og allt mögulegt annað. Hún er uppeldismennt- uð, hefur xmnið í leikskólum og kennt í framhaldsskólum. „Að fara á námskeið, hvaða námskeið sem er, víkkar sjón- deildarhringinn, maður kynnist nýju fólki og sjónarmiðum. Bæði fólki sem hefur svipaðar skoðanir og áhugamál og mað- ur sjálfur og svo fólki sem er með allt aðrar skoðanir," segir Elín. Kennarinn frábær Það eru fá námskeið eins vinsæl og þau sem Jón Böðvarsson er með. „Það er alveg frábært hvað þessi námskeið eru vel sótt, þarna er hvert sæti skipað og komast færri að en vilja,“ segir Eh'n. „Fólkið er á öllum aldri og oft spinnast skemmti- legar rökræður. Ég var vön að hnippa dálítið í Guðmund, ég kunni ekki við að hann gripi fram í fyrir kennaranum og væri ekki sammála honum. En Jón bað mig endilega að láta það vera, hann vildi láta spyrja sig og vildi endilega fá umræð- ur. Það hvetti fólk til umhugs- unar og svo væru tímarnir svo miklu skemmtilegri ef margar skoðanir fengju að komast að.“ Að láta draiiminn rætast Margir 30-50 ára standa frammi fyrir spurningunni: Um hvað snýst líf mitt? Hvert er ég aðfara? Höskuldur Frímannsson, rekstrarráðgjafi, er með námskeið sem hann kall- ar „Að láta drauminn rætast“, þar keirnir hann fólki að finna drauminn sinn, að sjá hvað það er sem fólk raunverulega lang- ar til að gera með líf sitt. Á meðal þess sem farið er í eru atriðið eins og: -Ertu að fá það út úr h'finu sem þú vilt? -Markviss skref til að láta draumana rætast -Hverhig talar fólk saman? -Frá afsökunum til ábyrgðar. -Að ná betra jafnvægi. -Er í lagi að njóta velmegun- ar? „Með því að vinna með fólki í leit að draumi þess og draga fram það sem skiptir máli í líf- inu, þá er eins og tilveran öðhst nýja vídd. Ég kenni einfaldar aðferðir sem hjálpa fólki til að grípa það sem skiptir máh og þróa þær hugmyndir áfram. Við vitum innst inni hvað við viljum en þurfum kannski aðstoð við að koma okkur af stað, að sjá hvað skiptir máli í lífinu,“ segir Höskuldur Síminn hjá Höskuldi er 5536151. Höskuldur Frí- mannsson er vel þekktur rekstrarráð- gjafi, en hann vinnur líka mikið með fólk og hjálpar því að fram- kvæma það sem það vill með líf sitt. Gott að fara út Steinmm Ragnarsdóttir er að vinna hjá Menntasmiðju kvenna, en þar eru konur duglegar að sækja Punktinn. Þær vinna þar alla sína handavinnu og læra stöðugt nýjar að- ferðir. Steinunn fór á leirnámskeið eftir jólin. „Það myndaðist mjög góður andi í hópnum og sterk samstaða. Við náðum vel saman og ég hlakkaði alltaf til tímanna," segir Steinunn. Hún er með tvö lítil börn og finnst mjög gott að komast út á meðal fólks og vinna að hugðarefn- um sínum um leið. „Þetta er skemmtilegt áhuga- mál, við mótum leirinn, síðan er hann brenndur í rafmagnsofni og að lokum málaður. Eftir það er hægt að brenna hann aftur í rafmagnsofninum, eða ragubrenna hann. Þá er hluturinn settur í ofn úti, tveimur gasstútum stungið í ofninn og þegar hluturinn er orðinn rauðglóandi er hann tekinn út, honum stungið í ker með sagi, sem auðvitað brennur við þetta og myndar mynstur í hlutinn. Svo er hlutnum stungið í kalt vatn og þá sést hvaða áhrif sagið hefur haft. Það er aldrei hægt að segja tfl um það fyrirfram hvað kemur út, t.d. getur litur sem á að vera ljósblár orðið bleikur." Steinunn hefur búið til marga hluti, bæði fyrir sig og til gjafa og hún er mjög ánægð með Punkt- inn. Finnst hún hafa öðlast sjálfstraust og trú á sjálfa sig við að koma þar og vinna. Viðmótið yndislegt Sólveig Hjálmarsdóttir hefur komið í Punktinn frá því í vor, nánast daglega. Hún kom fyrst því hana langaði til að læra að vefa, en hefur síðan verið á keramiknámskeiði, postulíns- námskeiði, saumað veggteppi og fleira. Hún hefur líka komið með hluti sem hún átti ókláraða heima hjá sér og lokið við þá í Punktinum. Sólveig er í Háskólanum, á öðru ári í Kennaradeildinni og hefur því nóg að sýsla. Hún er samt ákveðin í því að halda áfram að koma í Punktinn, þrátt fyrir ann- ir. „Mér finnst svo frábært að koma hér, því viðmót fólksins sem hér starfar er yndislegt. Það er vel tekið á móti öllum og enginn mannamunur gerður," segir Sólveig, sem er hæst- ánægð með Punktinn. Hafdi aldrei séð rennibekk Ingigerður Einarsdóttir segist nánast búa í Punktinum, vera þar flesta virka daga. Hún kom fyrst fyrir 3 árum og byrjaði á því að læra á renni- bekk hjá Ingvari. Renndi uppistöður í stórar bókahillur og bjó til hornhillur sem hún hefur gefið. Hún hefur einnig búið til teskeiðabretti, sem notuð eru undir skrautteskeiðar. Eftir að hafa lært að renna, tók Ingigerður til við útskurð og skar meðal annars út saumakassa handa sér. Hún hefur líka tekið þátt í námskeiðum í postulínsmálun, saumskap og fleiru. Segir starfið í Punktinum alveg frábært og ætlar að koma þar áfram.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.