Dagur - Tíminn Akureyri - 30.08.1997, Síða 15

Dagur - Tíminn Akureyri - 30.08.1997, Síða 15
^Dctgur-'ðlmTOtvt Laugardagur 30. ágúst 1997 - 27 Dragtirnar standa fyrir smu / mörgum tilfellum end- urspeglar vinnuklœðnað- ur fólks ákeðna ímynd og vekur traust. Þar eru verðbréfasalar og mark- aðsstjórar engin und- antekning. Sólveig Sigurðardóttir er mark- aðsstjóri hjá Lyíjaverslun ís- lands. Hún segir að það skipti miklu máli í hennar staríi að vera vel til fara. „Pað skiptir töluverðu máli að hta vel út þeg- ar maður er mikið í samskiptum við fólk. Aðallega veitir það mér öryggi.“ Aðspurð um klæðnað sem sé einkennandi meðal kvenna í svipuðum stöðum og hún, nefnir Sólveig að dragtirnar standi alltaf fyrir sínu. „Dragtir í dag eru svo Ijöl- breyttar. Maður getur alltaf fundið eitthvað við sitt hæfi og er alls ekki frúarlegur þó maður klæðist þeim. Ungar konur leita mikið í þann klæðn- að því dragtir geta verið mjög smart.“ -Hvað skiptir máli í klæða- burði að mati Sólveigar? „Númer eitt að klæðnaðurinn sé þægilegur og mér hði vel í honum. Óþægileg föt geta eyðilagt daginn fyrir mér. Síðan vil ég ekki hafa fatnaðinn mjög áberandi.“ Vil þægilegan fatnað „Konur hafa miklu meiri mögu- leika en karlar í klæðaburði. Við getum verið í pilsi og buxum, skyrtu eða bol og alltaf verið jafn fínar. Pað er auðveldara fyrir okk- ur að vera virðulega klæddar og ein dragt í fataskápnum getur bjargað miklu." -Hvernig kýs hún að vera klædd í vinnunni? „Ég er til skiptis í pilsi og bux- um en hef gaman af því að vera í góðri buxnadragt. En ekki það að ég sé alltaf í dragt. Helst ef það stendur eitthvað til í vinn- unni. Inn á milli er ég í þægi- legri klæðnaði, eins og buxum og stökum jakka.“ Sólveig talar um að hún eigi ekki jafn hægt um vik í klæðn- aði þessa dagana þar sem hún sé ólétt. „Það er fátt um fína drætti í óléttuklæðnaði. Það sem skiptir mestu máli er að vera þægilega klæddur og ég get bæði verið í buxum og pilsi ef það er er teygja í mittið. Síðan er ég í skyrtu utan yfir. Ég reyni að nota það sem ég á. Ég hef ekki úr jafn mörgu að velja í fataskápnum. Mynd: EÓI Mynd: Brink Þægilegur klæðnaður mMvægur Ákveðin ímynd ríkjandi Andri Teitsson er forstöðumaður Verð- bréfamarkaðar íslandsbanka á Akur- eyri. Hann segir jakkafötin ráðandi hjá karlmönnum sem vinna í verðbréfageir- anum. „Bindið er líka lykilatriði og hjá íslandsbanka er það skylda að karlmenn sem hafa samskipti við viðskiptavini hafi bindi. Svo er bannað að vera í gallabux- um. Þetta er allt partur af því að halda uppi ákveðinni ímynd gagnvart við- skiptavininum. Fólk er að koma til okkar með peningana sína og vill fá það á til- finninguna að hægt sé að treysta fólkinu sem ráðleggur því. Þetta er sérstaklega áberandi í þessum verðbréfaheimi því þar starfar ungt fólk og þá veitir ekki af að gera mann aðeins virðulegri." Aðspurður um það hvað skipti mestu máh í klæðaburði fyrir mann í hans stöðu segir Andri að snyrtimennskan verði að vera í fyrirrúmi. „En þó verður að passa það að verða ekki spjátrungs- legur, t.d. með slaufu eða gult bindi. Maður þarf að vera stflhreinn og má ekki fara yfir strikið." Er þá íhaldssemi í klæðaburði? „Já, alveg tvímælalaust. Margir myndu eiga frekar erfitt uppdráttar ef þeir mættu með lokk í nefinu. Það þarf að falla inn í ákveðna ímynd án þess að það sé manni eiginlegt.“ Ekki of framsækinn Hverju leitar hann eftir í klæðaburði? Andri reynir að vera smekklegur og látlaus í klæðaburði. „Ég vil ekki vera of framsækinn. Ég reyni líka að hafa kon- una með þegar ég kaupi mér föt. Það er alltaf betra að bera þetta undir ein- hvern.“ -Ert þú alltaf í jakkafötum? „Ég er oftar í stökum jakka og bux- um. Ég á um sex eða sjö jakka og þannig reyni ég að skipta á mifli.“ -Er aldrei hvimleitt að þurfa að vera klæddur á þennan hátt í vinnunni? „Jú, það er það. Það er oft hálfgert vesen, jakkinn krumpast þegar maður situr í bfl og það þarf alltaf að eiga straujaða skyrtu á morgnanna." -Þegar sótt er um vinnu hjá ykkur er fólki þá gerð grein fyrir æskilegum vinnuklæðnaði? „Já, það þarf að vera þannig. Hins vegar hef ég ekki hitt neinn sem hefur sótt eftir vinnu og ekki passað inn í ímyndina meira og minna fyrirfram. Það þarf h'tið að temja menn og siða.“ Andri bætir því við að það sé svolítið skrítið að þurfa að vera klæddur á þenn- an hátt í vinnunni til að fólk treysti sér fyrir peningunum sínum. „Sérstaklega þegar það er haft í huga að maður treystir fólki fyrir börnunum sínum á barnaheimili sem er í gallabuxum og peysu. Það er því ekkert náttúrulögmál að maður þurfi að vera klæddur á þenn- an hátt í vinnunni."

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.