Dagur - Tíminn Akureyri - 30.08.1997, Síða 19

Dagur - Tíminn Akureyri - 30.08.1997, Síða 19
jDagur-®tminrt Laugardagur 30. ágúst 1997 - 31 Stefán Jón Hafstein skrifar Við Kári köttur lágum og sleiktum sólskinið, hann líka framloppurnar, og svo reisti hann gestaspjót og þreif sig vandlega á völdum stöðum. Það var logn, megin- landsmistur yfir hæðinni sem speglaðist í vatninu; ég sá enga fiska vaka en vissi að í lítilli vík við nesið var alltaf einhver fisk- ur. „Jæja kall,“ sagði ég við köttinn, sem er viðræðugóður. „Þú reisir aldeilis gestaspjót lagsmaður," bætti ég við og ákvað að gera mig kláran fyrir kvöldverðarboð nokkurra iluguveiðimanna sem ég átti von á. Við gengum út með vatni, ég þurfti að kanna kosti nýrrar sil- imgastangar sem mér áskotn- aðist, leggja nokkrar þurrflugiu- með henni og athuga hvort kötturinn fengi ekki í soðið. Nei, ekki í soðið. Við Kári settumst á pallinn með litla bleikju sem glaptist á þurrflugu og ég flak- aði hana; kötturinn fékk annað flakið fyrir sig og borðaði hrátt, ég fyrir mig og borðaði hrátt í smábitum með soyasósu. Ég sagði Kára að um daginn hefði ég fengið urriðahrogn beint af skepnunni, í soyasósu, og við borðað hrá í veiðhúsinu. Hann sleikti út um. Hefðarkattar- og herramannsmatur. Við komum okkur saman um að hrár smá- silungur væri kjörinn með síð- degisdrykk og sólskini meðan maður skipulegði sælkeramál- tíð fluguveiðimanna. Sjóbleikja Það yrði sjóbleikja í matinn. Rautt holdið freistaði kattarins, en hann er stilltur þegar búið er að gefa honum með sér; þetta var fín bleikja að norðan sem ég hafði flakað í það sem kaninn kallar „fiðrildaflak"; bændur í Mývatnssveit skera einfaldlega niður með hryggn- um að ofanverðu og breiða hana út svo hún hangir saman á kviðnum. Jú, líkist fiðrildi. Þetta lagði ég á grillklemmu sem ég var búinn að smyrja létt með olíu (af því að það var von á gestum). Yfir holdið kreisti ég hálfa sítrónu. Ég sagði kettinum að hafa sig hægan. Svo setti ég eina heila bleikju í aðra klemmu því það er svo flott - með haus og sporði, skar fyrst í holdið þverrendur á hvorri hlið og kreisti sítrónu yfir og í kvið- arholið líka, saltaði. Yfir gashelluna setti ég kart- öflur frá Þórunarstöðum í Eyja- firði. Hreinasta lostæti. Horfði fullvissuaugum á smjörpakkann sem beið eftir að bráðna yfir þær. Meðan kartöflurnar suðu náði ég í kryddolíuflöskuna. Hún er stolt mitt þessa dagana. Ég náði mér í ólivuolíu (frum- gerða - ,,virgin“) þarna um daginn og færði í sérstaka flösku. Ofaní setti ég tvo góða kvisti af rósmarín frá krydd- jurtabóndanum í Laugarási Biskupstungum. Þá kom ferskt 3G LAND Fluguveiðar aft sumrí (33) Sæludagar Bleikjan er svo feit á grillinu að fitan lekur af henni. Heilsteikt. Hér búið að flaka og setja í grindina. Blóðbergskvistir gefa gott bragð, það er uppskerutími á íslandi í dag! blóðberg, nokkrar greinar, frá sama býli, og svo þétt hvít- lauksrif, 4-5, með. Nokkur svört piparkorn. Nú var þessi olía orðin fín yfir nýja íslenska tóm- ata sem ég skar í skál með gúrku sem ég spái að hafi kom- ið af Suðurlandi. En ég skipti um skoðun þegar við Kári höfð- um rætt málið. Grænmeti og brauð Við kötturinn komum okkur saman um að tómatasalatið yrði annað hvort án olíu eða bara með fínasta balsamediki frá ítah'u. Svarta flaskan með gullnu stöfunum fór á borðið. (Örn í Heilsuhúsinu velur þetta handa okkur landsmönnum.) En ólívuohuna ákvað ég að setja yfir brauðið sem beið eftir að vermast á grillinu. Höfug ohan hneig á sneiðarnar og ht- aði grænar, þetta lét ég standa. Gulræturnar voru komnar á grilhð. Þær voru langar og mjó- ar og gott ef ekki hfrænt rækt- aðar, ég reyni oftast að hafa þær frá Eymundi í Vallanesi austur á Héraði eða frá þeim í Pétursey, en gæðin eru söm. Sama með blómkáhð. Gulrætur og blómkál skreyttu nú grillið. Ég setti ögn af herbamare í olíu og penslaði grænmetið. Nú færu gestirnir að koma. Ég athugaði hvort hvítvínið væri nógu kalt í kælikassanum þar sem ég hafði geymt silunginn. Sannfærðist þegar ég var búinn að opna og skála við köttinn. Hvítvín er svo sem enginn flottræfilsháttur stöku sinnum: þetta var Montechillo sem fæst fyrir minna en 900 kafl í ríkinu og er alveg ágætt með grilluðum fiski á sólpalli. Það kraumaði værð- arlega undir kartöflunum. Papríka Það er hins vegar auðvitað bölvaður flottræfilsháttur að kaupa rauða papriku, en hana skar ég nú. Það er mikilvægt að hafa paprikuna í vænum sneið- um og láta hana grillast mjög vel, svo hún verði lungamjúk, en ekki stinn á eldinum. Gerir ekkert þótt hún brenni aðeins. Eins með púrruna sem ég skar nú í fingurlanga bita og lagði á eldinn. Grilluð paprika og púrra! Hvflikt sælgæti. Ég að- gætti gulræturnar og fann að þær voru farnar að mýkjast, að- eins brunnar yst, en það er bara betra. Skál köttur, sagði ég vinalega við Kára og fannst hfið gott. Gestirnir settust á pallinn úti í síðdegissólinni og vatnið var kyrrt svo endurnar stóðu á haus í því. Kára fannst nokkuð til koma. Þær nenntu ekki einu sinni að brabra á hann hvítan einsog endurskinsmerki milli steina. Aumingja Kári, sagði ég, getur aldrei veitt. „Hann ætti að fara á rjúpu,“ og það fannst okkur þjóðráð. Svona afslöppuð getur spekin orðið við grill fluguveiðimanna. Það er ekki tímabært að setja fiskinn á fyrr en kartöfl- urnar eru soðnar, paprikan full- steikt og gulræturnar líka, brauðið heitt og vínið komið í glösin og smjörið byrjað að bráðna. Þunn flökin í grillgrind- inni fara andartak á eldinnn. Roðhhðina var ég búinn að salta vel með herbamare og demdi henni nú á. Meðan roðið tók lit setti ég nokkra blóð- bergskvisti á holdið og saltaði; ekki má ofsteikja fiskinn svo nú gerði fólkið sig klárt og skammtaði sér balsamedik yfir tómatana (sem ég hafði bragð- bætt með ferskri basiliku af því að ég átti hana) og svo flaut smjörið yfir kartöflunar og brauðið gekk á milli. Ég grillaði hina hhðina á silungnum og vippaði svo upp á fjöl. Heil- steikta bleikjan beið aðeins lengur. Kári sleikti út um. Svona gott er nú lífið ef mað- ur er fluguveiðimaður. Þá getur maður búið til ómótstæðilega sælkeramáltíð úr landsins gæð- um. Bleikja af hafi komin í tæra bergvatnsá fyrir Norðulandi. Á sama tíma spretta sætar og safaríkar kartöflur undir mið- nætursól; í jarðhitasveitunum suðrænar kryddjurtir, laukar og dásemdir, í kúnum mjólkin sem gerir smjör á hvert strá. Við Kári þykjumst lukkunnar pam- fflar að lifa í gósenlandi veiði- mannsins. Hvflík sæla. LÖGREGLUSKÓLI RÍKISINS Krókhálsi 5a • 110 Rvk. • S: 577 2200 • Fax: 577 2201 GRUNNNÁMSDEILD Námið tekur tæp tvö ár. Fyrri önn stend- ur frá september til desember, um 550 kennslustundir. Námsgreinar eru ails 15 og önninni lýkur með prófum. Starfsþjálf- un í lögreglu tekur þá við í a.m.k. 8 mán- uði. Síðari önn stendur síðan frá janúar til maí, bóklegt og verkiegt nám, 650 kennslustundir. Námsgreinar eru alls 12 og lýkur önninni með prófum. Nemar í starfsþjálfun og þeirsem stunda nám á síðari önn teljast til lögreglumanna og er starf þeirra og nám launað. Námsgreinar í grunnnámi skiptast í lögreglufræði, lög- fræði, tungumál og sérgreinar og þjátfun. Meðal inntökuskilyrða er að viðkomandi þarf að vera orðinn 20 ára, syndur og með almenn ökuréttindi, ekki hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað og hafa lokiö tveggja ára námi í framhaldsskóla með fullnægjandi árangri. Jafnframt að stand- ast inntökupróf með sérstakri áherslu á íslensku og þrek. FRAMHALPSPEILD (framhaldsdeild skólans er starfandi lögreglumönnum veitt símenntun, framhaidsmenntun og sérmenntun. Fræðsluráð málmiðnaðarins Fræðsluráð málmiðnaðarins stendur fyrir fjölda tækninámskeiða fyrir málmiðnaðar- og netagerðarmenn víðs vegar um landið. Þar má nefna: Almenn- og sérhæfð málmsuðunámskeið Iðnreikningur netagerðar Loftkerfi Læstar þakklæðningar Plastefni í iðnaði Rafmagnsfræði og rafeindatækni Rennismíði Smíðamálmar Vökvakerfi Kynnið ykkur námskeiðin í útsendum fréttabréfum eða á netsíðu Fræðsluráðsins, www.isholf.is/malmfrae/ Fræðsluráð málmiðnaðarins Hallveigarstíg 1, P.O. Box 1704, 121 Reykjavík. Sími 562 4716, bréfsími 562 1774, netfang malmfrae@isho|f.is.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.