Dagur - Tíminn Reykjavík - 16.01.1997, Blaðsíða 2

Dagur - Tíminn Reykjavík - 16.01.1997, Blaðsíða 2
14- Fimmtudagur 16. janúar 1997 jOagur-Œímxrm VETRARIÞROTTIR Vélsleðamenning hér á landi byggir á ef til vill hvað dýpstum rótum á Norðurlandi. Það er samkvæmt eðli mála snjóþyngra norðanlands á vetrum en gerist sunnan heiða. „Það er ekki nóg að sættast við þessa löngu og þungu vetur, við verðum einnig að njóta þeirra," segir Tómas Búi Böðvarsson, slökkviliðsstjóri á Akureyri og formaður Félags vélsleðamanna í Eyjafirði. Um 100 manns eru í félaginu. Menn heltast ekki úr lestinni Það var í kringum 1970 sem vélsleða- eign fór að verða nokkuð almenn á Norðurlandi. Áður höfðu þó Mývetningar eignast vélsleða í nokkrum mæli. „Það má segja að sami kjarni vélsleðamanna hafi nokkuð haldist í gegnum árin. Menn heltast ekki svo glatt úr lestinni, enda er þetta gefandi áhugamál. Það er ólýsan- leg tilfinning að aka um víðar snjóbreið- ur hálendisins á björtum vetrardögum í tæru loftinu, þegar ekki er skýhnoðri á himni,“ segir Tómas Búi, - og hann held- ur áfram: „Við vélsleðamenn héðan úr Eyjafirði ökum stimdum suður á Hofsjökul og þegar vel viðrar er útsýni þaðan vítt yfir landið. Vestur á Snæfellsnes, til hæstu Qalla á Suðurlandi og sé litið til austurs má sjá allt til Snæfells. Að sjá þetta verð- ur manni ógleymanlegt og í ferðalögum „Menn heltast ekki svo glatt úr lestinni, enda er þetta gefandi áhugamál.“ sínum verður enginn frjálsari, nema hann fari um á flugvél." Menn hita upp með styttri ferðum Þeir sem mynda Félag vélsleðamanna á Eyjaijarðarsvæðinu eru búsettir allt frá innstum dölum í Eyjafirði og út til Ólafs- fjarðar. Að sögn Tómasar Búa beina menn ferðalögum sínum nokkuð til sam- ræmis við búsetu sína. Akureyringar og Eyfirðingar fari gjarnan í ferðalög fram á hálendið, en þeir sem búa út með firði fara þess heldur í sleðaferðir um Trölla- skaga - sem er að sögn afar áhugavert vélsleðasvæði. „Venjulega byrja menn ekki í sleða- ferðum fyrr en komið er fram í janúar. Snjó setti hins vegar snemma niður á hálendinu og því hafa menn ótrúlega mikið ferðast um hálendið að undan- förnu svo sem inn í Gæsavötn og inn á Á vélsleðaferðalagi á hálendinu. Sprengisand. Einnig hafa menn verið að hita upp fyrir langferðir með ýmsum skemmri ferðum,“ segir Tómas. - Að- spurður um fyrirhuguð sleðaferðalög sín á þessum vetri segir Tómas að stefnan sé sett meðal annars á Tröllaskaga og eins austur á land til að heimsækja vél- sleðamenn þar. Bætum öryggismálin! Auk Tómasar Búa skipa stjórn Félags vélsleðamanna á Eyjaljarðarsvæðinu þeir Halldór Arinbjarnarson sem er rit- ari, Gottileb Konráðsson gjaldkeri, Jón S. Karlsson er varaformaður og Marinó Sveinsson meðstjórnandi. „Markmið félagsins eru til dæmis ör- yggismál vélsleðamanna - og raunar allt „Ekki nóg að sættast við þessa löngu vetur, verðum einnig að njóta þeirra,“ segir Tómas Búi Böðvarsson, formaður Félags vélsleða- manna í Eyjafirði. Mynd: Halldór Arinbjamarson. það sem bætt getur sleðamenninguna. Þá er ekki síður hlutverkið að mynda tengsl milli manna þannig að enginn fari einn síns liðs af stað í sleðaferð. Þá höf- „Markmið félagsins eru til dæmis öryggismál vél- sleðamanna - og raunar allt það sem bætt getur sleðamenninguna.“ um við einnig staðið fyrir ýmiskonar fræðslufyrirlestrum, til dæmis um notk- un staðsetningartækja og um hjálp í við- lögum. Allt lýtur þetta að fyrirbyggjandi starfi - í anda þess máltækis að fáir kunni sig að heiman í góðu veðri að búa,“ segir Tómas Búi Böðvarsson vél- sleðamaður. -sbs. „Ólýsanlegar tilíinningar á snj óbreiðunni“ Fjölbreyttar vetrarferðir Ferðafélag Akureyrar mun í vetur bjóða uppá ijöl- breyttar ferðir um Eyja- ijarðarsvæðið. Starfsemi félags- ins er þróttmikil og margt er í boði í starfsemi þess. Að sögn Ingvars Teitssonar, formanns félagsins, verður farið í all- margar skíða- ferðir á útmán- uðum. Má meðal annars nefna þriggja daga skíðaferð um Flateyjar- dalsheiði um bænadagana. 37 ferðir fyrirhugaðar Alls eru 37 ferðir fyrirhugaðar á vegum félagsins í ár. Dagskrá félagsins kemur út undir lok þessa mánaðar og verður þá kynnt frekar á sérstökum fé- lagsfundi. Fyrsta ferð þessa árs verður laugardaginn 1. febrúar, þegar verður farið á skíðum að Baugaseli í Barkárdal. Þann 15. febrúar verður farið í létta skíðaferð um Svarfaðardal. Um bænadag- ana verður far- ið í áðurnefnda ferð á Flateyj- ardalsheiði. Helgina 19. til 20. apríl verður farið í skíðagönguferð í Suður- árbotna í Odáðahrauni. Ekið verður að Svartárkoti í Bárðar- Alls eru 37 ferðir fyrirhuguðar á vegum félagsins í ár. Úr skíðaferð Ferðafélags Akureyrar á Vinheimajökul sl. vetur. Mynd:ingvarTeitsson. dal og gengið þaðan á skíðum í skálann Botna, sem er nýr skáli félagsins og var tekinn í notkun sl. sumar. Sama leið verður far- in til baka á sunnudegi. - Sum- arferðir félagsins eru svo enn íjölbreyttari og verða kynntar nánar þegar þar að kemur. Ingvar Teitsson segir að ferð- ir Ferðafélags Akureyrar séu mjög misjafnlega sóttar. „Oft eru þetta þó 10 til 15 manns í hverri ferð. Og ferðir okkar eru mjög íjölbreytilegar, stundum er gengið, stundum farið ak- andi, stundum á bát og á dag- skrá þessa árs er meira að segja ein reiðhjólaferð," segir hann. Gönguleiðir og kortaútgáfa Á síðustu árum hefur mikið starf verið unnið á vegum fé- lagsins við merkingu göngu- leiða í nágrenni Eyjaíjarðar og víðar. Má þar nefna Glerárdal. Fyrir þremur árum gaf félagið einnig út kort um gönguleiðir í dalnum og verður það endurút- gefið síðar á þessu ári - þá í samvinnu við Atvinnumála- nefnd Akureyrar. í samvinnu við nefndina mun félagið einnig gefa út síðar á þessu ári kort um gönguleiðir austan Akur- eyrarpolls og Eyjaijarðarár. -sbs.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.