Dagur - Tíminn Reykjavík - 16.01.1997, Blaðsíða 5

Dagur - Tíminn Reykjavík - 16.01.1997, Blaðsíða 5
IDagur-®hmrat Fimmtudagur 16. janúar 1997 -17 VIÐTAL DAGSINS Undirbýr starfsemi ríkislögreglusti óra Ný lög um endurskipulagningu lögreglunnar í landinu tóku gildi um síðustu áramót. Samkvœmt þeim á að leggja niður Rannsóknarlögreglu ríksins, RLR, og stojha embœtti ríkislögreglustjóra. Bogi Nilsson hefur verið ráðinn í emb- œttið og vinnur hann nú að undirbúningi og uppbyggingu embœttisins eða þar til RLR verður lagt niður 1. júlí í sum- ar. Um þessar mundir er verið að senda út bréf til að minnsta kosti 60 starfsmanna þar sem þeim er tilkynnt um skipulagsbreytingarnar og bent á að sœkja um störf hjá öðrum embœttum. etta eru verulegar breyt- ingar. Þær erú annars vegar í því fólgnar að stofna nýtt embætti og leggja niður annað og talsvert sem felst í því, til dæmis flutningur á verkefnum og eignum og nátt- úrulega fólki. Hins vegar eru þetta breytingar á ákæruvald- inu. Það flyst að verulegu leyti heim í hérað til lögreglustjóra," segir Bogi Nilsson ríkislögreglu- stjóri. Umboð ráðherra Embætti ríkislögreglustjóra er, að sögn Boga, sett á laggirnar til þess að annast málefni lög- reglunnar í umboði dómsmála- ráðherra en hann er æðsti yfir- maður lögreglunnar í landinu. Bogi segir að hlutverk ríkislög- reglustjóra lúti fyrst og fremst að samræmingu og samhæfingu lögreglunnar í landinu. Ríkis- lögreglustjóri eigi að styðja lög- reglustjóra vítt og breitt um landið til þess að leysa verkefni sín á sem bestan og hagkvæm- astan hátt. - En eru þetta kostnaðar- samar breytingar? „Ég skal ekki segja. Allar breytingar kosta náttúrulega eitthvað en ég efast um að þær séu svo voðalega kostnaðar- samar í sjálfu sér. Hins vegar er þörfin fyrir löggæslu meiri en hún hefur verið talin fram að þessu. Það leiðir ekki endilega af breytingunum. Það er kannski bara verið að taka á þessu með skipulagðari og skarpari hætti en áður,“ svarar hann. Setja reglur Bogi segir að ekki sé fyllilega afráðið hvernig staðið verður að skipulagsbreytingum 1. júlí. Þannig sé til dæmis ekki rétt að sínum dómi að skipuleggja löngu fyrirfram hvaða starfsfólk kemur til með að gegna hvaða störfum. Embættið verði bara að hefja starfsemi sína 1. júlí og vera þá búið að undirbúa ýms- ar grundvallarbreytingar. „Það eru nokkur atriði sem verður að setja skifmerkifega í reglur, tif dæmis á þetta emb- ætti að reka efnahagsbrota- rannsóknadeifd og það þarf að setja skýrar reglur um hana, verksvið hennar og valdsvið. í grundvallaratriðum finnst mér ekki ástæða til að setja miklar reglur. Lögin standa fyrir sínu,“ segir hann og kveður undirbúninginn meðal ann- ars felast í því að flytja verkefnin frá RLR til ann- arra. Starfsfólkið skiptir mestu „Það er starfsfólkið sem skiptir kannski hvað mestu í þessu sambandi. Það er að fá tilkynningar um að þetta embætti er lagt niður og bent á að stöður verði laus- ar í öðrum embættum. Það þarf væntanlega að sækja um stöður þar. Síðan er ver- ið að vinna að reglum um rannsóknadeild efnahags- brota og huga að reglum sem nauðsynlegt þykir að settar verði áður en þetta fer í gang,“ segir Bogi. - En telar hann að starf- semi lögreglunnar hafi náð jafnvœgi aftur í lok ársins? „Ég vona að hún hafi náð jafnvægi og meira en það. Ég vona að hún verði orðin styrkari en hún var fyrir en auðvitað má búast við einhverjum hnökrum. Ég ef- ast ekki um að menn eigi eftir að reka sig á eitthvað. Ég er á því að það verði allt saman feysanfegt og leyst. Lögreglan verði styrkari eft- ir því sem tíminn líður. Og vinnubrögð öll vandaðri," segir Bogi Nilsson, nýr ríkis- lögreglustjóri. GHS Bogi Nilsson ríkislögreglustjóri vinnur nú að undirbúningi þess að Rannsóknar- lögregla ríkisins verði lögð niður og nýtt embætti taki til starfa 1. júlí í sumar. Hann vonast til að starfsemi lögreglunnar hafi náð jafnvægi og styrkst í lok árs- ins. Áramótaskaupið Berglind Steinsdóttir skrifar Er nokkur búinn að gleyma ára- mótaskaupinu þótt kominn sé mið- ur janúar? Ekki ég. Samt held ég að minni mitt hrökkvi kannski skammt því að innan þess rúmast svo sannarlega ekki sú mögulega staðreynd að áramóta- skaupið hafi nokkurn tímann byrjað á röngum tíma. Þrítugasta og fyrsta des- ember síðastliðinn klukkan 22:25 sátum við prúðbúin í stofunni og biðum sam- viskusamlega eftir bombu ársins, í þeirri trú að hún færi að bresta á. Ljúfar landslagsmyndir glöddu sjónir okkar, Gullfoss í klakaböndum, Þingvellir í haustskrúða, Heiðmörk, AkraQall og Skarðsheiðin, ekkert er fegurra en vor- kvöld... Frekar en að-halda niðri í okkur andanum 10 mínútum of lengi ákváðum við að gleðjast með þessum glöðu mynd- um. Við fórum í keppni og reynd- um að geta okkur til um hver væri að auglýsa? Hvaða banka var þessi litli fugl að kynna? Hvaða gosdrykkur átti að koma sér best í tengslum við þennan svarta sand? Hver myndi auglýsa síðast? Síðasta auglýsingin fengi væntanlega mesta áhorfið og þannig hlyti sá auglýs- andi að vera valdsmaður auglýsend- anna, óhjákvæmilega. Við vorum 9 stykki á aldrinum 3 til 75, og öll höfðum við einhverja skoðun (enda ekki vön öðru). Einn auglýsandi hlaut þó afgerandi hlutfall atkvæða, þ.e.a.s. flest héldum við að ákveðinn að- ili yrði með síðustu auglýsinguna. Stöð- ugt voru samt ýmis hávaðalítil fyrirtæki að koma okkur á óvart og kollvarpa sennilegum útreikn- ingum. Spekúlasjón- in snerist orðið fyrst og fremst um næst- síðustu auglýsinguna því að við vorum í litlum vafa um hver ætti heiðurssætið, efst í píramídanum. Margar tillögur voru bornar upp, studdar með rökum hinna eldri um að svona hefði það verið í fyrra og jafnvel hittifyrra (þeirra sem lengst muna aug- lýsingar), hinna yngri um að þessi aug- lýsing hefði sést fyrr á árinu og henni svipaði til auglýsingar frá þessum eða hinum. Sumar voru svo langar að við vorum búin að tæma tillögurnar þegar sjónvarpið kjaftaði því loksins. Okkur var stórkostlega skemmt og hláturinn var svo megn að við óttuðumst að við gætum ekki líka hlegið að skaup- inu. Allra skemmtilegast fannst okkur hvað við gátum verið stjórnlaust sniðug og gert okkur mat úr litlu. Við vorum búin að hnýta sameiningarbönd ijöl- skyldunnar í þvílíkan rembihnút að öll vorum við einhuga um að hvorki aðrar fjölskyidur né áramótaskaupið gætu toppað þennan litla íjölskyldugleðileik okkar. Svo horfðum við andaktug á skaupið sjálft og vorum sammála um að við hefð- um haft rangt fyrir okkur. Minnir mig. Við vorum búin að hnýta samein- ingarböndfjölskyldunnar í þvílík- an rembihnút að öll vorum við ein- huga um að hvorki aðrarfjölskyld- ur né áramótaskaupið gœtu toppað þennan litla fjölskyldugleðileik okkar. “

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.