Dagur - Tíminn Reykjavík - 16.01.1997, Side 8
20 - Fimmtudagur 16. janúar 1997
Jktgur-Βmimt
VETRARÍÞRÓTTIR
Stöðugar breytingar og
þróun
Vélsleðamenn bíða alltaf spenntir eftir því
að sleðaframleiðendur kynni nœstu árgerð.
Stöðugar breytingar eiga sér stað í vélsleða-
heiminum og í raun með ólíkindum hversu
mikið sleðar hafa þróast og breyst á tiltölu-
lega fáum árum. Ljóst er að 1997 árgerðar-
innar verður ekki minnst vegna stöðnunar,
þvert á móti. Hér á eftir verður drepið á
helstu nýjungar sem líta dagsins Ijós með
1997 árgerðinni og framleiðendurnir teknir
eftir stafrófsröð.
Ultra Touring frá Polaris er afar glæsilegur ferðasleði.
Arctic Cat
Allir sleðar frá Arctic Cat (AC)
koma nú með mun lengri íjöðr-
un en verið hefur. Þannig fer
ijöðrunin úr 8 tommum á sam-
sláttarpúða í búkka í 10 tomm-
ur og í 13,5 tommur ef miðað
er við aftasta búkkahjól (eins og
gjarnan er gert í Bandaríkjun-
um). Framfjörun hefur verið
lengd í 7,5 tommur. Athyglis-
vert er að þrátt fyrir þessa
lengingu fjöðrunar hefur tekist
að halda ásetu ökumanns í
sömu hæð með breytingu á
beltakassa og sæti.
Ef litið er á nokkra athyglis-
verða sleða frá AC þá kemur ZR
440 með framenda úr áli sem
hefur í för með sér að sleðinn
er léttari. Þá eru stimplarnir í
ZR 440 vélinni með sérstakri
húð þannig að þeir þola mun
meiri hita. Önnur athyglisverð
nýjung er í ZR 580 sem kemur
með beina innspýtingu (efl) sem
ekki krefst þess að batterí sé í
sleðanum.
Stór breyting hjá AC þetta
árið er ný drifkúpling í öllum
sleðum sem fyrirtækið fram-
leiðir sjáft og segir þar með
skilið við Comet-kúphngar. Nýja
kúplingin hefur fengið afar
góða dóma og virðist hafa
heppnast mjög vel.
Margir „kettirnir" koma á
plastskíðum og allir eru á gas-
dempurum (Fox eða Ridefox)
bæði í búkka og framfjöðrun.
AC býður upp á mesta úrvalið
af efl-sleðum og er raunar eini
framleiðandinn sem gerir það
af einhverju viti, nokkuð sem
mörgum, ekki síst á íslandi, lík-
ar afar vel. B&L flytur AC inn
sem fyrr en umboðsaðili á Ak-
ureyri er Straumrás.
Lynx
Tilkoma hinna finnsku Lynx-
vélsleða á íslenskan vélsleða-
markað verður að teljast með
stærstu tíðindum vertíðarinnar.
Sigurður Baldursson og Sveinn
Guðmundsson á Akureyri hafa
aflað sér einkaumboðs hérlend-
is fyrir Lynx og sala, viðgerðar-
og varahlutaþjónusta verður í
Bflaþjónustunni við Dalsbraut á
Akureyri.
En þá að sleðunum. fslend-
ingar hafa haft næsta litlar
spurnir af Lynx á undanförnum
árum, nema helst þeir sem
kaupa vélsleðablöð frá Skand-
inavíu. Þar eru Ljmx-sleðar þeir
söluhæstu, sem sýnir að það
hlýtur að vera nokkuð varið í
þá. Linx hefur oft farið þá leið
að nota ýmislegt frá öðrum
framleiðendum, þannig er vél-
búnaðurinn frá Rotax, líkt og í
Ski-doo og fleiri sameiginleg
einkenni má finna með Linxin-
um og hinum kanadíska bróður.
Framúrskarandi fjöðrun er
og hefur verið aðalsmerki Lynx
og margir bíða spenntir eftir að
skoða hana. Framfjöðrunin
kallast Lynx Vertical Suspensi-
on (LVS) og eins og nafnið ber
með sér þá er hún lóðréttari en
gengur og gerist sem hefur
ýmsa kosti. Þessi fjöðrun er
hönnuð af hinu þekkta Öhlins
fyrirtæki sem þekkt er fyrir
framleiðslu á hágæða höggdeyf-
um.
Sportsleðarnir frá Lynx eru
mjög athyglisverðir, Endoro
500, Enduro 600, Cobra Racing
og Rave 670. Afturijöðrunin
þykir afar góð og úthtið
skemmir ekki fyrir. Þeir eru
með áðurnefnda LVS-framQöðr-
un og lágan þyngdarpunkt sem
skilar sér í góðum aksturseigin-
leikum. Fyrir þá ferðaglöðu
býður Lynx upp á Grand Tour-
ing HC með 670 RAVE-vél,
miUilöngu belti og ýmsum bún-
aði.
Polaris
Sem fyrr heldur Polaris sig við
þá stefnu að stöðug þróun sé
betri en alger umbylting. Þessi
stefna hefur líka reynst Polaris
vel og hefur skapað stóran og
tryggan kaupendahóp sem veit
hvað fæst fyrir peningana með
því að kaupa Polaris. Fjöl-
breytnin er líka í fyrirrúmi því
velja má úr 41 sleða.
Sem fyrr má tína til ýmsar
nýjungar hjá Polaris. Margir
eru spenntir fyrir Ultra-sleðun-
um sem hafa fengið afar góða
dóma en þeir eru til í nokkrum
útfærslum og koma í nýjasta
„boddíinu". Vélin er 3 strokka,
679 cm‘. Þá kom einn algerlega
nýr sleði fram á sjónarsviðið að
þessu sinni, Indy 700, með
tveggja strokka vél sem fram-
leidd er hjá Polaris. Kemur
m.a. einn sleði í keppnisút-
færslu til landsins. Þá má nefna
að ný vél er í XCR 440.
Polaris hefur alltaf framleitt
góða ferðasleða og hjá umboð-
inu á íslandi er lögð áhersla á
ijóra ferðasleða (Touring). Fyrst
má nefna Indy Sport með 440
loftkælda vél, þá 500 Classic,
XLT með þriggja strokka 600
vél og loks Ultra. Allir eru vel
útbúnir og vatnskældu sleðarn-
ir á xtra-12 Qöðrun.
Langt er síðan Polaris kom
fram með hina rómuðu IFS
framíjöðrun sem síðan hefur
verið endurbætt nokkrum sinn-
um og í ár er hún bætt enn
frekar. Fjöðrunin er lengd í 9,5
tommur og nýr stýrisgangur
hefur í för með sér betri stýris-
eiginleika.
Þá má nefna endurbætt
blöndungskerfi sem stillir
blönduna í samræmi við loft-
þyngd og einnig eiga þeir að
vera ónæmir fyrir því þegar ek-
ið er í hríðarkófi, en þá vilja
blöndungssleðar stundum fara
að ganga illa.
Hjólbarðaþjónustan á Akur-
eyri hefur einkaumboð hérlend-
is fyrir Polaris en HK-þjónustan
selur sleðana á Reykjavíkur-
svæðinu.
Ski-doo
Gríðarlegar breytingar hafa
orðið á Ski-doo vélsleðum á
undanförnum árum. Hefur veg-
Ski-doo hefur sótt í sig veðrið á undanförnum árum sem skilað hefur betri
sleðum og aukinni sölu.