Dagur - Tíminn Reykjavík - 16.01.1997, Síða 9
,iDíigur-'2ítnttim
Fimmtudagur 16. janúar 1997 - 21
VETRARIÞROTTIR
ur þeirra vaxið hratt og sölutöl-
ur að sama skapi. Má t.d. geta
þess að tvö víðlesin vélsleða-
blöð völdu MX Z 580 sleða árs-
ins á sl. ári. Umboðsaðilinn,
Gísli Jónsson ehf., seldi marga
sleða í fyrra og salan hefur
einnig farið vel af stað nú. Bíla-
val selur Ski-doo á Akureyri.
Af ýmsu er að taka af nýj-
ungum hjá Ski-doo að þessu
sinni enda úr breiðri línu sleða
að velja. Ef byrjað er á vélunum
þá ber hæst þrjár nýjar „eld-
heitar" þriggja strokka vélar
sem eins og áður koma frá Rot-
ax. Minnst (en þó langt frá því
lítil) er Rotax 599 sem reyndar
var kynnt í Formula III í fyrra
en hefur nú enn verið endur-
bætt. Næst kemur Rotax 699
sem m.a. má finna í Mac 1 og
Grand Touring SE. Stærst er
síðan Rotax 809 í Mac Z og eitt
er víst að þar skortir ekki aflið.
Allar vélarnar eru með RAVE-
ventlum.
Allir sleðarnir koma á 10
tommu fjöðrun að aftan, sem
raunar er hægt að fá í fimm
mismunandi útgáfum eftir
notkunargildi sleðans, t.d.
keppnisútfærsla, ferðalagaút-
færsla o.s.frv. Að framan er 8
tommu fjöðrun sem ski-doo
kallar DSA. Fleiri sleðar koma
Arctic Cat ZR 440 er öflugur sleði sem smíðaður er með keppni í huga.
nú með „nýja boddíið“ sem er
enn léttara en það eldra. Þá
hefur nýr keppnissleði, MX Zx
440 LC, slegið í gegn í Banda-
ríkjunum.
Ónefnd er ein merk nýjung
sem er í glænýjum ferðasleða
frá Ski-doo, Grand Touring SE.
Hann er með nýju Rotax 699
vélinni, rafeindastýrðum blönd-
ungum og á stillanlegri loft-
púðafjöðrun að aftan. Verður
spennandi að fylgjast með
hvernig sá búnaður reynist.
Yamaha
Breyting er ekki rétta orðið
Flaggskip sportsleðanna hjá Lynx. Rave 670.
Stjórn LÍV. Frá vinstri: Jóhann Ólafur Halldórsson, Halldór Jónsson, Tóm-
as Búi Böðvarsson og Eiríkur Jónsson. Á myndina vantar Sævar Reynis-
son.
Ný stjórn LIV
Ný stjórn Landssambands
íslenskra vélsleðamanna,
LÍV, var kjörin fyrir
nokkru samfara því að sam-
þykktar voru skipulagsbreyting-
ar á sambandinu. Er LÍV nú
landssamband vélsleðafélaga
eða deilda en áður var
eingöngu um beina aðild ein-
staklinga að ræða.
Nýja stjórnin er að stærstum
hluta skipuð mönnum af Eyja-
íjarðarsvæðinu. Formaður LÍV
var kosinn Halldór Jónsson frá
Akureyri. Aðrir stjórnarmenn
eru: Tómas Búi Böðvarsson,
þegar rætt er um nýju Yamaha-
sleðana. Bylting væri nær
sanni. Sjö nýir sleðar frá grunni
með nýrri fjöðrun og þremur
nýjum vatnskældum vélum er
það sem stendur til boða og við-
tökurnar hafa ekki Iátið á sér
standa. Sleðarnir hafa hlotið
einróma lof í erlendum fag-
tímaritum og seljast grimmt.
Það sem Ymaha státar ekki
síst af umfram aðra er léttleik-
inn. Hvað mesta athygli hefur
vakið ný 3 stokka vél, 700 cm3.
Nýju tveggja strokka 500 og
600 cm3 vélarnar hafa einnig
fengið mikið lof. Undirvagn
nýju sleðanna er nýr og liggur
gríðarleg vinna í hönnum á
honum þar sem saman fara
léttleiki og styrkur. Framfjöðr-
unin er nú allt önnur en þekkst
hefur á Yamaha og er tvímæla-
laust mikil framför. Yamaha
leggur mikla áherslu á gott
samspil fram- og afturfjöðrunar
Þeir sjö nýju sleðar sem þetta á
við eru VMax 500 XTC og 600
XTC, VMax 700 (hægt að fá
með stuttu og millilöngu belti,
þ.e. SX og MM), VMax 600 SX
(keppnisútfærsla með öhlins
framdepurum og sportijöðrun)
og Venture 500 og 600. Síðast-
töldu sleðarnir eru mjög vel út-
búnir til ferðalaga með tvöfóldu
sæti, millilöngu belti, bakkgír,
rafstarti, hita í handföngum
fyrir bæði ökumann og farþega
og „smart-carb“ bensínblönd-
urnarbúnaði sem stjórnar
blöndu lofts og bensíns inn á
vélina með tilliti til hitastigs og
hæðarbreytinga. Ekki má
gleyma því að verðið á Yamaha
er mun hagstæðara en undan-
farin ár.
Að lokum má geta þess að
Merkúr hf., umboðsaðili Yama-
ha, lét útbúa vandaðan og ítar-
legan bækling um sleðana á ís-
lensku. Glæsilegt framtak.
Höldur hf. selur Yamaha á Ak-
ureyri.
Dagbók vél-
sleðamannsins
Vetrardagskrá 1997
18. janúar 1997
Árshátfð Félags vélsleða-
manna við Eyjafjörð í Sjallan-
um á Akureyri.
18. -19. janúar 1997
Sýning Vetrarsport 97 í
íþróttahöllinni á Akureyri.
19. febrúar 1997
Félagsfundur LÍV-Reykjavík á
Hótel Esju.
1. mars 1997
Fjölskyldudagur vélsleða-
manna sunnan og vestan-
lands.
1. mars
Keppni í snjókrossi á Akureyri,
haldin á vegum Kappaksturs-
klúbbs Akureyrar.
15.-16. mars
íslandsmót í vólsleðaakstri í
Mývatnssveit, 1. umferð.
Keppt í öllum greinum.
29.-30. mars
íslandsmót í vélsleðaakstri. 2.
umferð. Keppnin verður hald-
in í Reykjavík á vegum Polar-
isklúbbsins og keppt í öllum
greinum.
12.-13. aprfl
íslandsmót í vélsleðaakstri á
Akureyri, 3. umferð. Keppt í
öllum greinum og mótshaldari
er Kappakstursklúbbur Akur-
eyrar.
26.-27. apríl
Fjórða og síðasta umferð í ís-
landsmóti í vélsleðaakstri
haldin á fsafirði á vegum
Snæfara.
31. maí 1997
Bikarmót Polarisklúbbsins í
vélsleðaakstri á Snæfellsjökli.
Akureyri, varaformaður; Eirík-
ur Jónsson, Akureyri, gjaldkeri;
Jóhann Ólafur Halldórsson,
Eyjafjarðarsveit, ritari og Sævar
Reynisson, Keflavík. Sævar er
fráfarandi formaður LÍV og
þannig skapast örugg tengsl
milli nýju stjórnarinnar og
þeirrar eldri.
Samþykkt var að árgjald til
Landssambandsins verði kr.
2.500 og skiptist sú upphæð
milli Landssambandsins og við-
komandi deildar í hlutföllunum
60/40.
ÁRSHÁTÍÐ IY LÍV) mudmdIBíiVÖUMO 1«. lAHðAR
rl SJAllANUM WU 19.30. BORÐAPANTANIR
OG AÐGÖNGUMIÐASALA Á SÝNINGU
LAUGARDAG
:tic cat
yamaha