Dagur - Tíminn Reykjavík - 16.01.1997, Blaðsíða 12

Dagur - Tíminn Reykjavík - 16.01.1997, Blaðsíða 12
24 - Fimmtudagur 16. janúar 1997 IDagur-'CEímtrat Bifreiðar og landbúnaðar- vélar tóku við umboðinu fyrir Rover bxla í ágúst síðastliðnum þegar BMW verk- smiðjurnar keyptu Rover verk- smiðjurnar. Árangurinn á síð- asta ári fór fram úr björtustu vonum manna, þannig að byrj- unin hefur lofað mjög góðu. Á síðasta ári seldu Bifreiðar og landbúnaðarvélar 35 Land Ro- ver Discovery, 14 Range Rover bfla og 2 Land Rover Defender, en það er í rauninni gamli góði Landróverinn. Þetta er hrein aukning í bilasölu hjá Bifreið- um og landbúnaðarvélum, en þess má geta að árið þar áður kom enginn nýr Rover bfll til landsins og árið þar áður lík- lega einn Range Rover. Landróverinn, gamli góði, er mikið endurbættur með gorma- Qöðrun, endurbættum gírkassa Bifreiðar og landbúnaðarvélar Róver í sókn og 2,5 lítra diesel turbo vél, þannig að bfllinn hefur breyst mikið frá fyrri tíð, enda virðist vera mikill áhugi fyrir honum hérlendis, ekki síst hjá björgun- arsveitum og fjallamönnum. Auk þess er hann klassískur hjá íslenskum bflaleigum og langi Landróverinn hefur verið keyptur í skólaakstur, enda fæst hann skráður fyrir allt að 11 farþega þegar um skólaakstur er að ræða. Bifreiðar og landbúnaðarvél- ar kynntu einnig nýjan BMW á síðasta ári, í 500 hnimni og það er töluvert mikil breyting á honum frá fyrirrennurunum. Langur Landróver kostar frá 2.690 þúsund krónum, stuttur kostar 2.440 þúsund. Discovery bflhnn kostar frá 2.780 þúsund og fæst bæði sjálfskiptur og beinskiptur. Bifreiðar og land- búnaðarvélar munu leggja aukna áherslu á Defender bfl- inn. Nýr og minni bfll er væntanlegur eftir ár, en sá á að keppa við bfla eins og RAV og Suzuki Vitara. Hekla Þrj ár gerðir jeppa A si l\a síðustu árum hefur Hekla hf. sífellt verið að ,uka við úrval jeppa sem seldir eru hjá fyrirtækinu. Mest seldi jeppi á íslandi síðastliðin tvö ár er Mitsubishi Pajero. Vin- sældir bflsins eru með ólíkind- um enda jafnasti staðlaður búnaður og aksturseiginleikar á við það sem best gerist í dýr- ustu fólksbifreiðum og verðið er einungis frá tæpum 2,8 milljón- um. Mitsubishi Pajero er fáanleg- ur með tveimur tegundum bensínvéla sem gefa 181 eða 208 hestöfl. Díselvélarnar eru einnig tvær, 2,5 eða 2,8 lítra og báðar með forþjöppu og milli- kæli. Meðal búnaðar í Pajero er fjöðrun og rafhitun í framsæt- um, rafdrifnar rúður, 31“ Good- year dekk á álfelgum, fjarstýrð- ar samlæsingar, stillanlegur fjöðrunarbúnaður, armpúðar á sætum ásamt mörgu fleiru sem eykur þægindi og gerir aksturs- eiginleikana ógleymanlega. Nýlega var settur á markað nýr Mitsubishi L200 sem leysir af hólmi þann gamla. Sá nýi er sem fyrr með forþjöppu en nú er einnig í honum millikælir sem gefur enn meira afl. L200 er fáanlegur í tveimur útfærsl- um og verð er frá kr. 2.280.000. Ekki er hægt að tala um jeppa án þess að minnast á Kia Sportage. Kia bflaverksmiðjurn- ar eru yfir 50 ára gamlar og fyrirtækið er eitt af fyrstu bfla- framleiðendum Suður Kóreu með sölukerfi um allan heim. Framleiðsla á Sportage hófst fyrir nímum tveimur árum eftir ítarlegar prófanir og reynslu- akstur við erfiðustu skilyrði svo sem París-Dakar rallið árið 1993 þar sem hann stóðst allar raunir með prýði. Nú er Kia framleiddur víðar en í Kóreu, en til íslands kemur hann frá Þýskalandi. Sportage jeppinn er með 2 lítra bensínvél sem gefur 128 hestöfl. Hann fæst bæði beinskiptur 5 gíra eða sjálf- skiptur. Verðið á Kia Sportage er frá kr. 2.030.000. Ingvar Helgason Subaru í 20 ár Ingvar Helgason hefur nú flutt Subaru inn til íslands í 20 ár. BflUnn hefur reynst einstaklega vel á landsbyggð- inni sem ferðabfll, ekki síst yfir vetrarmánuðina. Um þessar mundir heldur Ingvar Helgason upp á 20 ára afmæli Subaru á íslandi með því að bjóða Subaru á sérstöku afmæUsverði, þ.e. Subaru Leg- acy og Impreza tvflita með vindskeið, geislaspilara og íjar- læsingum. Aðeins verða boðin fáein eintök á þessu tilboði og er gert ráð fyrir að megnið verði uppselt þegar blaðið kem- ur út, slík er eftirspurnin. Subaru Legacy er fáanlegur í eftirfarandi útfærslum: Skutbfll með 2,0 1. vél, sjálfskiptur eða beinskiptur með tvískiptum kassa; Stallbakur með 2,0 1. vél, sjálfskiptur eða beinskiptur; Outback skutbfll með 2,5 I. 150 ha. vél, sjálfskiptur; Impreza, 5 dyra með 2,0 1. vél, sjálfskiptur eða beinskiptur, með tvískiptum kassa; Impreza stallbakur 4 dyra með 2,0 1. vél, sjálfskiptur eða beinskiptur og Impreza skutbfll með 1,6 1. vél, bein- skiptur með tvískiptum kassa. Nissan jeppar hafa reynst einstaklega vel hér á landi. Sér- staklega hefur Nissan Patrol verið vinsæll bfll hjá íjalla- mönnum sem eru að kaupa jeppa til þess að nota við hinar erfiðustu aðstæður. Oft má sjá í sjónvarpi að þar sem raflína hefur gefið sig undan ofsaveðri eru venjulega komnir á staðinn harðduglegir viðgerðamenn RARIK að línunni þar sem hún hefur bilað langt frá alfaraleið og hjá þeim stendur Nissan Patrol. Það eru bestu meðmæli sem þessi bfll getur fengið að starfsmenn RARIK velja hann til notkunar þar sem mest á reynir. Nissan Terrano II er mun léttari bfll. Hann býður upp á marga möguleika ef menn eru að hugsa um að breyta bflnum í íjallatröll. Ilann er fáanlegur með 2,4 1. bensínvél eða 2,7 1. díselvél sem er bæði með túr- bínu og millikæli og skilar þannig 125 hestöflum. Hægt er að setja undir þennan bfl 35“ dekk með litlum tilkostnaði. Þetta er vel rúmur 7 manna bfll á mjög hagstæðu verði. Auk þessa eru í boði Nissan Double Cab og King Cab.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.