Dagur - Tíminn Reykjavík - 12.04.1997, Qupperneq 5

Dagur - Tíminn Reykjavík - 12.04.1997, Qupperneq 5
,IDítgur-®mmm Laugardagur 12. apríl 1997 -17 MENNING O G LISTIR Þrír listamannanna í norska hópnum. Norskir listamenn á ferð um landið Reykjavík, Húsavík, Akureyri eru áfangastaðir norsks hóps listamanna sem kom til landsins í vikunni og mun hópurinn setja upp sýningu á hverjum stað fyrir sig. Hópurinn er frá Nordjjord og hefur verið í samvinnu við listafólk á Húsavík og Akureyri um nokkurra ára skeið. Norski hópurinn telur alls 15 manns og fyrir honum fara hjónin Inge Rote- vatn og Siv Jörstad sem bæði eru listamenn. Inge er forstöðu- maður listadeildar við Lýðhá- skóla í Nordfjord og í hópunum eru átta nemendur úr skólan- um auk fullorðinna listamanna og handverksfólks. Sýningarnar þrjár eru hver með sínu sniði. Su fyrsta var opnuð á fimmtudag í anddyri Norræna hússins og eru þar til sýnis myndlist og skúlptúr eftir listafólkið. Sú sýning kom til þegar búið var að ákveða ferð- ina til Akureyrar og Húsavíkur. í dag eru listamennirnar staddir á Ilúsavík þar sem þeir, í samvinnu við heimamenn, munu opna norsk-íslenska text- flsýningu í Safnahúsinu klukkan 18:30. Á morgun er síðan kom- ið að Akureyri. Par verður opn- uð sýning á hefðbundnum vefn- aði og textfl frá Nordfjord. Opn- unin verður klukkan 17:00 í Gallerí Allrahanda. Dvelja á Húsavík Sýningarnar þrjár eru ekki eina ástæðan fyrir þessari ferð því í næstu viku munu nemendurnir og hinir fullorðnu listamenn dvelja á Húsavík og vinna að list sinni og hafa þeir fengið inni í Framhaldsskólanum á Húsavík. Tengiliður hópsins á Húsavík er Guðrún Kristfn Jóhannsdótt- ir. IJún segir fyrri tengsl ástæðu þess að hópurinn ákvað að koma til Húsavíkur. „Ég hef verið í samvinnu við fólk frá Nordfjord frá því árið 1991 þegar skólar á þessum stöðum unnu saman að verkefni á sviði landræktar og skógræktar. Verkefnið hét Lifandi skógur og var í formi söngleiks sem Norð- menn sömdu,“ segir hún. Stór hópur ungmenna kom til Húsa- víkur af þessu tilefni og síðar fóru húsvísk ungmenni til Nor- egs. Einnig hefur handverks- hópurinn Kaðlín á Húsavík ver- ið í samstarfi við handverkshóp í NordQord. „Þannig að þessi tengsl hafa undið upp á sig,“ segir Guðrún. Vantaði far Sýningin á Akureyri er til kom- in vegna vinskaps hjónanna Inge og Siv við Þóreyju Eyþórs- dóttur sem rekur Gallerí Allra- handa. „Hann gekk óvart inn í galleríið mitt fyrir nokkrum ár- um. Var á leiðinni til Húsavíkur og ætlaði að taka leigubíl. Þar sem það er svo dýrt buðumst við til að keyra hann,“ segir Þórey um fyrstu kynni hennar af Inge. Hún fann strax að þarna fór maður með áhuga- mál lík hennar eigin og segir að sérstök tengsl hafi myndast sem síðan hafi ekki rofnað. „Hann hefur alveg eldlegan áhuga á því sem hann er að gera,“ segir hún og ítrekar að ferð norska hópsins til íslands sé afrakstur margra mánaða, jafnvel ára, skipulagningar og sýningarnir séu svo sannarlega allrar athygli verðar. AI Sýnishorn af hefðbundnum vefnaði sem sýndur verður í Gallerí Allra- handa. Kennarastöður á Raufarhöfn Grunnskótinn á Raufarhöfn er einsetinn skóli og verða í honum tæplega 70 nemendur í 1.-10. bekk á næsta skólaári. Kennara vantar í nokkrar stöður fyrir næsta skólaár. Kennslugreinar: Tungumál, raungreinar, almenn kennsla, tölvukennsla, heimilisfræði, íþróttir og kennsla yngri barna. Flutningskostnaður verður greiddur og ódýrt húsnæði er til staðar á vegum sveitarfélagsins. Raufarhöfn er tæplega 400 manna sjávarþorp í N.-Þingeyjarsýslu. Þorpið er á austanverðri Melrakkasléttu og er nyrsti þéttbýlisstaður á íslandi. Vinna við sjávarútveg er burðarás atvinnulifsins auk ýmis konar þjónustu. Mjög góð aðstaða er til íþróttaiðkana, svo sem nýtt íþróttahús, sund- laug, tækjasalur og fleira. Leikskólinn er rúmgóður og vel búinn. Á staðnum er t.d. starfandi leikfélag, kór, íþróttafélag og tónlistar- skóli. Skólaþjónusta Eyþings er að hefjast handa um sérstakt þróunar- verkefni við grunnskólann í samvinnu við Raufarhafnarhrepp. Verk- efnið hefur það að markmiði að efla skólastarf á staðnum, bæta skólann sem vinnustað fyrir nemendur og kennara og auka virkni foreldra í skólastarfinu. Okkur vantar til starfa metnaðarfulla kennara sem vilja starfa við kennslu í litlu en öflugu sjávarþorpi úti á landi, þar sem markmið heimamanna er góður skóli sem stenst kröfur tímans. Nánari upplýsingar veita: Sveitarstjóri í síma 465 1151, skólastjóri í símum 465 1241 og 465 1225 og formaður skólanefndar í síma 465 1339. ÞJÓDLEIKHÚSID Stóra sviðið ki. 20.00 FIÐLARINN Á ÞAKINU Eftir: Bock/Stein/Harwick; FRUMSÝNING föstud. 18. apríl. Örfá sæti laus. 2. sýn. laugard. 19. apríl. Uppselt. 3. sýn. miðvikud. 23. apríl. Örfá sæti laus. 4. sýn. laugard. 26. april. Uppselt. 5. sýn. miðvikud. 30. apríl. Nokkur sæti laus 6. sýn. laugard. 3. mai. Nokkur sæti laus 7. sýn. sunnud. 4. maí. Nokkur sæti laus VILLIÖNDIN eftir Henrik Ibsen l' kvöld laugard. 12. april. Nokkur sæti laus Sunnud. 20. apríl. Fðstud. 25. apríl Ath. Fáar sýningar eftir KÖTTUR Á HEITU BLIKKÞAKI eftir Tennessee Wiliams 7. sýn. í kvöld. Uppselt. 8. sýn. sunnud. 13. april Uppselt. 9. sýn. miðvikud. 16. april. Örfá sæti laus. 10. sýn. fimmtud. 24. apríl. Örfá sæti laus. 11. sýning sunnud. 27. april. Nokkur sæti laus 12. sýning föstud. 2. maí LITLI KLÁUS OG STÓRI KLÁUS eftir H.C. Andersen Sunnud. 13. apríl kl. 14.00 Sunnud. 20. april kl. 14.00 Þriðjud. 22. apríl kl. 15.00 Sunnud. 27. apríl kl. 15.00 Smíðaverkstæðið kl. 20.30 LEITT HÚN SKYLDI VERA SKÆKJA eftir John Ford í kvöld laugard. 12. apríl kl. 20.30. Uppselt. Sunnud. 20. apríl kl. 20.30. Uppselt. föstud. 25. apríl kl. 20.30. Aukasýning laugard. 19. apríl kl. 15.00. Uppselt. Aukasýning fimmtud. 24. apríl kl. 15.00 Sumardagurinn fyrsti. Örfá sæti laus Aukasýning laugard. 26. apríl kl. 15.00. Örfá sæti laus Aukasýning þriðjud. 29. apríl kl. 20.30 Síðustu sýningar Listaklúbbur Leikhusskjallarans mánud. 14. apríl „Listamannahjónaband" - Bréf Carls Nielsen og Anne Marie Danskir listamenn frumsýna hér nýtt verk um stormasamt hjónaband hins þekkta tónskákJs Carl Nielsen og myndhöggvarans Ónnu Maríu Brodersen. Leikkonan Fritze Hedemann les bréf Ónnu Maríu en Claus Lembæk, óperusóngvari viö Konunglega leikhúsið í Kaupmannahófn syngur bréf Carts. Með þeim leikur einn þekktasti pianóleikari Dana, Mogens Dalsgaard, verk Carls Nielsen. Sýningin hefst ki. 21. Húsið verður opnað kl. 20.30. Miðasala við innganginn. Athygli er vakin á að sýningin er ekki við hæfí barna. Ekki er hægt ad hleypa gestum Inn isalinn eftir að sýnlng hefst. Miðasalan er opin mánudaga og þriðjudaga kl. 13-18, frá miðvikudegi til sunnudags kl. 13-20 og til 20.30 þegar sýningar eru á þeim tíma. Einnig er tekið á móti símapðntunum frá kl. 10 virka daga. Wmn B] Ht R IfSI W1 WlfiftfiiRll 5153 »1 LEIKFÉLAG AKUREYRAR Handrit: Halldór E. Laxness og Trausti Olafsson Tónlist og leikhljóð: Kristján Edelstein Lýsing: Jóhann Bjarni Pálmason Búningar: Hulda Kristín Magnúsdóttir Leikmynd: Finnur Arnar Arnarson Leikstjórn: Halldór E. Laxness Aðalhlutverk: Þorsteinn Bachmann og Marta Nordal Auk þeirra: Hákon Waage, Guðbjörg Thoroddsen, jón Júlíusson, Sunna Borg, Aðalsteinn Bergdal, Þráinn Karlsson, Þórey Aöalsteinsdóttir og Jónsteinn A&alsteinsson. 2. sýning laugardaginn 12. apríl kl. 20.30. - UPPSELT Mi&asalan er opin alla virka daga nema mánudaga frá kl. 13-17. Sími í mi&asölu er 462 1400. |Dagur'®mmm - besti tími dagsins! Leikfélag Akureyrar Vefarinn mikli frá Kasmír Leikverk byggt á skáldsögu Halldórs Laxness

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.