Dagur - Tíminn Reykjavík - 07.05.1997, Page 8

Dagur - Tíminn Reykjavík - 07.05.1997, Page 8
20 - Miðvikudagur 7. maí 1997 Jlagur-®mróm FOLK Pau gera það gott! Skinnastofan á Akureyri er að sprengja allt utan af sér með vaxandi velgengni. „Þetta er ítalska aðferðin, “ segja hjónin Steindór Kárason og Jóna Þorðardóttir, sem nú eru staðsett í hinum sögufrœga „gamla banka“ á Ak- ureyri. Lofthœðin í kjallaranum er ekki í neinu samrœmi við háleit áformin. Þau hanna, sníða og framleiða lújfur, skó og húfur sem þau selja til Japans og Þýskalands. Salan er í gegnum póstbœkling þar sem margar íslensk- ar framleiðsluvörur eru falboðnar erlendis. Þau vonast nú eftir viðskiptum við rússneskan heildsala. ítalska að- ferðin er að hanna og sníða, en fá saumakonur til starfa. Þœr vinna t. d. heima hjá sér úti á Grenivík og víðar. Þannig skapast störf fyrir heimavinnandi og sýnt að bœta verður við á nœstunni. Þetta er alíslensk fram- leiðsla, skinnin koma frá Skinnaiðnaði á Akureyri, hönnun og hugvit er hjónanna, saumafólkið er hingað og þangað við störf sín, og salan fer fram í íslenskum bœklingi. Og nýjasta afurðin? Smíðavesti með hettu fyr- ir uppfinningamann sem þarf að hafa tœki og tól hang- andi utan á sér og fá skjól fyrir veðrum og vindum líka! Myndir: GS Þórður „Doddi“ Steindórsson sonur Jónu og Steindórs með hlýlega húfu. Þórður starfar hjá foreldrum sínum þegar tækifæri gefst frá námi. —— -------....___________ . • taka saumavél heim til sín og SrffiSSÆSST,- iaríÍ'1 1* Þ* «" •»“ "”'r‘ tíma með fjölskyldu sinm. ÞaðE^^®saumhen5 egar il|a viðrar i Þessum lúffum. Dúllulegt, ekki satt. Þessir barnaskór voru saumaðir fyrir fimmtán árum

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.