Dagur - Tíminn Reykjavík - 04.06.1997, Side 8
20 - Miðvikudagur 4. júní 1997
Jlaginr-®TOrám
LIFIÐ I LANDINU
Enda þótt þrjátíu ár séu
liðin síðan byggð lagðist
af í Flatey á Skjálfanda er
það alltaf víst að þangað koma
sumarfuglar; jafnt þeir sem um
loftin fljúga og hinir úr mann-
heimum sem koma þangað á
knörrum sínum og hafa
sumarsetu við að nýta landsins
gæði. Á eynni er mikið æðar-
varp og umhverfís hana eru
einhver bestu grásleppumið
heims. Síðan má ekki heldur
gleyma því að fyrir um fímmtán
árum var borað í setlög á eynni
og þá komu fram vísbendingar
um að þar væri ef til vill oh'u að
fínna. Pað skyldi þá aldrei vera
að eyjan yrði aftur forðabúr í
hallæri; þegar íslendingar fara
að skipa sér í flokk með olíu-
furstum. - Dagur-Tíminn var í
Flatey um liðna helgi og mynd-
aði þessa sérstöku eyðibyggð,
sem ef til vill á sér þó viðreisn-
ar von. -sbs.
Frá fyrstu öldum fslandsbyggðar
og fram á fyrstu ár þessarar aldar
stóð kirkja í Flatey, en þá var hún
flutt að Brettingsstöðum á Flateyj-
ardal. En þegar byggð þar lagðist
af var kirkjan aftur flutt í Flatey og
var endurvígð í júlí 1960. Fáum ár-
um síðar lagðist byggð í Flatey af,
en stundum á sumrin er þó mess-
að í eynni.
Er Flatey forðabúr í firamtíð?
Mörgum húsum f Flatey er vel við haldið og þar eiga gamlir Flateyingar
sér sumarsetur. Hér sjást húsin Berg og Sæberg en þau eru nákvæmlega
eins, byggð af bræðrunum Jóni og Ragnari Hermannssonum árið 1947.
Báðirfluttu þeir með fjölskyldum sínum í land á sama tíma; haustið 1967,
einmitt þegar síðasta fólkið fór í land og flutti til Húsavíkur. Myndin Sigurður Bogi.
Gunnar Gunnarsson grásleppukarl við eina af hrognatunnum sínum. A
þessu vori hefur hann náð að verka í alls 48 tunnur - sem hver tekur um
105 kíló.
Ferðafélag Akureyrar efndi síðasta
laugardag til ferðar í Flatey. Far-
kostur var báturinn Hrólfur frá Dal-
vík, sem aðallega er notaður til
hvalaskoðunarferða, en einnig
ferða sem þessarar. Stýrimenn og
stjórar voru Júlíus Snorrason, sem
er til vinstri á þessari mynd, og
Símon Ellertsson.
Svala Björgvinsdóttir dvelst með
móður sinni, Hólmdísi Jóhannes-
dóttur, í Flatey á hverju sumri í um
það bil sex vikur og vitjar þar um
æðarvarp. Hér er Svala við eitt
kolluhreiðrið í eynni. Æðarkollan
sem þarna verpir baðst hins vegar
góðfúslega undan myndatökum.
Það gengur bara betur næst!