Dagur - Tíminn - 07.09.1996, Page 5
|Dagur-®ttntmt
Laugardagur 7. september 1996 -17
L I S T I R
Einar Helgason: „Það var ekki fyrr en á miðri ævi sem ég fór að hafa tíma til að sinni myndlistinni." MyndUHF
Vatnslitir og oiiukrít
*
austursal Listasafnsius á
Akureyri sýnir Einar
Helgason vatnslita- og
olíukrítarmyndir. Einar býr á
Akureyri og kenndi m.a.
myndmennt og íþróttir við
Barnaskólann og Gagnfræða-
skólann á Akureyri í 40 ár.
„Þetta er sambland af nýjum
myndum og gömlum. Meirihlut-
inn er þó nýjar myndir, sérstak-
lega olíukrítarmyndirnar, sem
ég hef ekki sýnt áður,“ segir
Einar um verkin á sýningunni.
Lengi vel vann hann nær
eingöngu með vatnsliti en fyrir
2-3 árum fór hann að vinna
með olíukrít sem hann segir
mjög ólíka vatnslitunum. Bæði
sé efnið gjörólíkt og einnig séu
stflbrögðin mismunandi. „í olíu-
krítinni er farið meira út í
óhlutkenndar myndir," útskýrir
hann.
Einar segir að sér falli mjög
vel að mála með vatnslitum.
Það hafi meira verið tilviljun
sem réði því að hann fór að
prófa sig áfram með olíukrít,
þótti hún skemmtilegt efni og
hefur því unnið margar olíu-
krítarmyndir upp á síðkastið.
Myndlist og íþróttir
Einar er menntaður bæði sem
íþróttakennari frá íþróttakenn-
araskóla íslands og teiknikenn-
ari frá Myndlista- og handíða-
skólanum og kenndi, eins og
fyrr segir, bæði íþróttir og
myndmennt á Akureyri í ára-
tugi. En hvernig ætli þetta
tvennt fari saman?
„Það var mjög gott að kenna
báðar greinar því það er dálítið
þreytandi að kenna sama fagið
upp undir 40 tíma á viku. Mér
féll því afar vel að geta skipt á
milli. Hitt er annað mál að á
meðan ég var sjálfur í íþróttum
að einhverju ráði var lítill tími
til að sinna myndlistinni. Það
var því ekki fyrr en á miðri ævi
sem ég fór að hafa tíma til að
sinna henni.“
Akureyrsk myndlist á
uppleið
Einar hefur fylgst með þróun
myndlistar norðan heiða í yílr
ijörutíu ár og ekki annað að
heyra á honum en að nú séu
góðir tímar. „Mér finnst mynd-
listin á Akureyri á mikilli upp-
leið. Þegar ég byrjaði að fást við
myndlist upp úr 1950 voru til-
tölulega fáir myndlistarmenn
hér en nú er mikið af myndlist-
arfólki í bænum. Við erum nátt-
úrulega misjöfn eins og alltaf
hefur verið en ég held að mynd-
listinn sé á góðri leið,“ segir
Einar og vill ekki síst þakka
Myndlistaskólanum á Akureyri
fyrir þessa miklu grósku í akur-
eyrsku myndlistarlífi. AI
þrjár nvjar sýningar í Listasafninu
Þrjár sýningar verða opnaðar í Listasafni Akureyrar í dag og þar á bæ
voru menn önnum kafnir við að undirbúa sig fyrir helgina. Einar Helgason
hengir upp myndir en Jón Laxdal, myndlistarmaður, fylgist með. Mynd: jhf
S
dag klukkan 16:00 verða
opnaðar þrjár nýjar sýn-
ingar í Listasafni Akureyr-
ar. Einar Helgason sýnir vatns-
lita- og olíukrítarmyndir í aust-
ursal, í miðsal sýnir Listasafnið
nokkur nýleg verk sem það hef-
ur eignast undir yfirskriftinni
„Nýleg aðföng“ og í vestursal
setja þær Kogga og Edda upp
sérstæða leirlistarsýningu.
Einar Helgason sýnir bæði ný
verk og eldri myndir en eins og
fram kemur í viðtali við hann
hér á síðunni hefur hann feng-
ist við myndlist í áratugi en er
þó aðeins nýlega byrjaður að
vinna með olíukrít.
Sýningin „Nýleg aðföng" er
fastur liður í sýningarstarfi
Listasafnsins og er tilgangurinn
að leyfa sýningargestum að
fylgjast með nýrri listaverka-
eign safnsins. Að þessu sinni
verða sýnd verk eftir Rannveigu
Jónsdóttur, Sólveigu Baldurs-
dóttur, Gunnar Straumland,
Guðmund Ármann Sigurjóns-
son, Japanskar tréristur frá 19.
öld og Guðmund P. Ólafsson.
Tónverk tileinkað
leirverki
Sýning Koggu og Eddu, eða
þeirra Kolbrúnar Björgúlfsdótt-
ur og Eddu Jónsdóttir, er leir-
listarsýning og við opnun sýn-
ingarinnar mun Guðni Franz-
son flytja tónverk sem hann
hefur samið sérstaklega fyrir
leirverk þeirra. Leirlistarsýn-
ingin er sama sýning og Kogga
og Edda voru með á sumarsýn-
ingu Norræna hússins í sumar
og gekk sú sýning mjög vel. Um
10.000 gestir komu á sýning-
una og segir Haraldur Ingi Har-
aldsson, forstöðumaður Lista-
safnsins, að þessa mikla aðsókn
sé ein ástæðan fyrir því að leit-
að var eftir að fá sýninguna
norður til Akureyrar. AI
Sjálfsbjörg - landssamband fatlaðra
Viðurkenningar fyrir
gott aðgengi
Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra, veitir fyrirtækjum og þjón-
ustuaðilum um land allt viðurkenningar fyrir gott aðgengi
hreyfihamlaðra. Viðurkenningarnar eru veittar árlega á al-
þjóðadegi fatlaðra þann 3. desember. Um er að ræða tvenns
konar viðurkenningar.
1. Fyrir fullkomlega aðgengilegt húsnæði, bæði fyrir gesti og
starfsmenn fyrirtækja og stofnana.
2. Fyrir lagfæringu á áður óaðgengilegu húsnæði, til verulegra
bóta fyrir hreyfihamlaða.
Þeir aðilar, sem vilja koma til greina á þessu ári, geta óskað
eftir úttekt á aðgengi hjá Sjálfsbjörgu, l.s.f., fyrir 1. október
1996.
Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra,
Hátúni 12,105 ReyKjavík, simi 552 9133.
Vinnumálskrifstofa
félagsmálaráðuneytisins
(Atvinnuleysistryggingasjóður
og Ábyrgðasjóður launa)
er flutt í Hafnarhúsið v/Tryggvagötu
á 3. hæð. Skrifstofan verður opnuð
þann 11. september 1996.
Nýtt símanúmer verður
511 2500 og nýr bréfsími 511 2520.
Vegna flutningsins verður skrifstofan
LOKUÐ 9. OG 10. SEPTEMBER.
Vinnumálaskrifstofa félagsmálaráðuneytisins.
Verkalýbsfélagib
Eining
bobar félaga sína til
almennra funda um
komandi kjarasamninga
eflir starfsgreinum
Fundir verða í eftirfarandi starfsgreinum:
Ákvæbisvinna vib ræstingar:
8. september kl. 20.00, Alþýðuhúsi, 2. hæb.
Sláturhús og kjötvinnslur:
9. september kl. 17.00, Alþýðuhúsi, 2. hæb.
Veitinga- og gistihús:
9. september kl. 20.00, Alþýðuhúsi, 2. hæð.
Vaktmenn:
11. septemberkl. 17.00, Alþýðuhúsi, 2. hæð.
Hafnarverkamenn:
11. september kl. 20.00, Alþýðuhúsi, 2. hæb.
Braubgerbir:
12. septemberkl. 17.00, Alþýðuhúsi, 2. hæð.
Byggingamenn, tækjamenn, bílstjúrar og Slippur:
12. september kl. 20.00, Alþýðuhúsi, 2. hæö.
Dagskrá funda verbur:
1) Undirbúningur næstu kjarasamninga.
2) Önnur mál.
Hafðu áhrif- Mœttu á fundinn!!!
Stjórn Einingar.