Dagur - Tíminn - 07.09.1996, Side 7

Dagur - Tíminn - 07.09.1996, Side 7
jDagm--Œímmtt Laugardagur 7. september 1996 -19 Á slóðum Indiana Jones Hin œvaforna borg Petra dregur að sér hundruðir þúsunda ferðamanna á ári hverju og ekki að ástœðulausu. Auður Ingólfsdóttir, blaðamaður Dags- Tímans, heimsótti borgina í sumar. Aliir hafa heyrt um pýra- mídana í Egiptalandi en færri að vita að hinum megin við Rauða hafið, sunnar- lega í Jórdaníu, eru fornminjar sem eru síst ómerkari en píra- mídarnir. Heil borg, ótrúlega vel varðveitt, er falinn innan klettaveggja og hefur staðið þar svo lengi að skáldin tala um hana sem borgina sem sé hálft eins gömul og sjálfur tíminn. Umheimurinn er smám saman að uppgötva borgina og ferða- mannastraumurinn þangað hefur aukist gífurlega á síðustu árum. Petra komst hka á kortið í Holliwood fyrir nokkrum árum þegar hluti þriðju Iniana Jones myndarinnar, Síðasti krossfar- inn, var tekinn þar upp. Gleymd í þúsund ár Flestir sem heimsækja Petru eru sammála um að yfir borg- inni sé töfraljómi. Margar bygg- ingarnar, sem eru höggnar inn í steinveggi, eru undurfagrar. Erfitt er að ímynda sér að þær hafi staðið þarna í yfir tvö þús- und ár, svo vel hafa þær varð- veist, en háir klettaveggir hafa varið þær gegn veðri og vind- um. Hluti af töfrunum er hin mikla dulúð yfir sögu borgar- innar. Talið er að menn hafi bú- ið í Petru allt frá því 9000 árum f. Kr. en blómaskeið borgarinn- ar var á tímabilinu 300 f. Kr. til 100 e. Kr. þegar Nabatea þjóð- flokkurinn bjó í borginni. Árið 106 e. Kr. náðu Rómverjar borginni á sitt vald og næstu tvær aldirnar fór borginni hnignandi. Dropinn sem fyllti mælinn var mikill jarðskjálfti árið 363, þó stærstu bygging- arnar hafi reyndar sloppið ósnertar. Ekki er vitað fyrir víst hvenær íbúar borgarinnar fluttu í burtu en á sjöundu öld „El Khazneh“ heitir þessi bygging sem þýðir „Fjársjóðurinn." Myndin gæti komið kvikmyndaunnendum kunnuglega fyrir sjónir en það var einmitt þarna sem síðasti hluti þriðju Indiana Jones myndarinnar, Síðasti kross- farinn, var tekinn upp. Myndir: AF Sólin í Jórdaníu er brennandi heit og miskunnarlaus yfir sumartímann og því vissara að verja sig vel gegn sólar- geislunum. Greinarhöfundur er lengst til vinstri á myndinni. er nokkuð öruggt að allir íbúar voru farnir. í yfir þúsund ár var Petra gleymd inn á milli klettaveggj- anna og það var ekki fyrr en árið 1812 að Svisslendingur, John Burckhardt að nafni, upp- götvaði borgina aftur og sagði frá henni í ferðabók sem hann síðar gaf út. Innrás nútímans Margt hefur breyst frá því að Svisslendingur- inn kom í þessa gömlu yfirgefnu borg. Nú er Petra langvinsælasti ferðamanna- staður Jórd- ana og lykill- inn að þeirri uppsveiflu sem verið hefur í ferðmanna- straumi til landsins. Þrátt fyrir innrás nýja tímans er sérstök upplifun að rölta um í Petra. Bflar eru bannaðir í borginni og því eina leiðin að ganga, eða leigja sér hest, asna eða jafnvel úlfalda við innganginn. Hér og þar eru litlir sölubás- ar þar sem heimamenn selja minjagripi og einnig er hægt að kaupa vatn og kalda drykki á uppsprengdu verði. Sölubás- arnir og fjöldi ferðamanna minnir óþægilega á nútímann sem á einhvern veginn ekki heima þarna á þessum stað og því er freistandi að segja skilið við ferðafélagana og kanna hella og byggingar á eigin veg- um. í’að er svo ótrúlegt að hugsa til þess að fyrir tvö þús- und árum hafi allir þessir litlu hellar verðir spriklandi af lífi; þarna hafi fólk fæðst og dáið. Nú eru hellarnir flestir tómir að undanskildu rusli sem hirðu- lausir ferðamenn hafa skilið eftir og lyktin í sumum þeirra bendir til þess að full ástæða væri til þess að bæta salernis- aðstöðuna á svæðinu. Himinhátt aðgöngverð Einn galli við heimsókn til Petra er verð á aðgöngumiðum sem er himinhátt Úlfaldar eru algeng sjón í Petra sem og annars staðar í Jórdaníu og lítið mál að komast á úlfaldabak gegn vægu gjaldi. miðað við verðlag í Jórdaníu al- mennt. Jórdaníubúar þurfa að- eins að borga hundrað krónur fyrir aðgöngu í borgina en er- lendir ferðamenn borga tutt- ugufalt gjald, eða um 2000 krónur íslenskar. Fyrir Evrópu- búa ætti þetta gjald þó ekki að vera fyrirstaða en verðmunur- inn kemur engu að síður spánskt fyrir sjónir. Við nánari eftirgrennslan verður þessi verðlagning þó skiljanlegri. Hér er á ferðinni enn einn anginn af deil- um milli Araba og ísraela og það var ekki fyrr en eftir að Jórdanía hafði viður- kennt ísrael og ísraelskir ferðamenn fóru að streyma til Petra að verðið fyrir er- lenda ferðamenn hækkaði upp úr öllu valdi. „ísraelar koma með stóra hópa af ferðamönn- um yfir landamærin til að heim- sækja Petra, taka með sér mat og fara aftur tilbaka til ísraels samdægurs. Petta er því eina leiðin til að fá einhverja pen- inga frá þeim,“ var svar heima- manna þegar spurst var fyrir um verðlagninguna. Hvað sem öllum pólitískum deilum líður stendur Petra enn fyrir sínu og enginn ætti að láta þennan for- tíðarreit fram hjá sér fara ef hann ferðast um á þessu svæði. Petra var höfuðborg Nabatea, þjóðflokks sem hafði allstór ríki á þessum slóðum frá 300 f. Kr. til 106 e. Kr. Talið er að um 30.000 manns hafi búið í borginni þegar flest var.

x

Dagur - Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.