Dagur - Tíminn - 07.09.1996, Page 15
JDagur-'ÍEímmn
Laugardagur 7. september 1996 -.
HVERNIG A E G AÐ VERA?
Heiðar Jónsson
snyrtir, svarar
spuringum lesenda
Ekki voru allir jafn hrifnir
af þeim ráðleggingum
Heiðars í síðasta þætti, að
leyfa unglingunum að ráða
klæðaburði sínum án afskipta
foreldranna. Öðrum fínnst sjálf-
sagt að krakkarnir skapi sér
eigin tísku, en áhrifavaldarnir
eru alltaf einhverjir hvort sem
það eru forráðamenn eða aðrir,
oftast kunningjar eða eftir-
breytniverðar fyrirmyndir. Að-
spurður situr Heiðar við sinn
keip og telur að unga fólkið geti
alveg eins verið hinum eldri
fyrirmynd og að klæðnaður
þess sé um margt skynsamleg-
ur, þótt deila megi um smekk-
inn. En hver eru aðaleinkenni
unglingatískunnar í vetrarbyrj-
un?
Smekkleysa og
skynsemi
Svar: Það er einkennandi fyrir
hausttískuna að manni finnast
húfurnar á höfðum krakkanna
óttalega ljótar, en svo hugsar
maður, þeim verður þá ekki
kalt á eyrunum á meðan.
Síðan er það þessi einkenni-
lega sídd, að vera í alltof stór-
um peysum og alltof stórum
bolum yfir það sem haft er al-
gjörlega á hælunum.
Það er eins og þetta séu fá-
tækir dvergar að fara í föt full-
vaxins fólks. Petta er ekkert
óskynsamlegt gagnvart veðrátt-
unni, en ég held þetta hljóti að
vera dálítið hreyfihamlandi.
En mömmurnar eiga að leyfa
krökkunum að ráða dálitlu
sjálfum og skemma ekki stíl
þeirra, en samt að hafa áhrif á
Ólafur Ragnar forseti og Guðrún Katrín forsetafrú geta haft þau áhrif að
fólk klæði sig eftir stífari reglum heimsmennskunnar.
um sínum aðhald, en án þess
að skemma þennan stfl.
Bóhemar eins og
Vigdís
Unga fólkið vill verða bóhemar
eins og Vigdís forseti, sem hefur
gefið yfirlýsingar um það. Þá
kemur að þeirri spurningu,
hvað skyldi Vigdís vera búin að
hafa mikil áhrif á þessa kyn-
slóð?
Vigdís hefur verið mikill for-
seti unga fólksins. Börn hafa al-
ist upp við að eiga hana sem
forseta. Hún hefur verið vel
klædd alla sína embættistíð, en
maður verður ekki hissa þegar
hún segir að nú verði hún bó-
liem, því innst inni hefur hún
alltaf verið dálítill bóhem, þó
hún klæði sig í stil við sitt starf.
Unga fólkið hefur orðið fyrir
einhverri skoðanabreytingu
gegnum tilveru Vigdísar. Hún er
ekki aðeins vel klædd, heldur
hefur hún ávallt verið skynsam-
lega klædd. Hún klæðir sig eftir
veðri og aðstæðum og er alltaf
eins glæsileg. Þetta hafa krakk-
arnir séð og eru hrifin af henni.
Stíf heimsmennska
Ef nýr forseti kemur til með að
hafa áfram áhrif á unga fólkið,
þá mundi maður ímynda sér að
það væri heldur veraldlegri stíll
sem myndi færast yfir unga
fólkið, ef honum ber gæfa til að
ná eins vel til þess eins og Vig-
dísi.
Núverandi forsetahjón eru
heimsfólk og eftir nokkur ár
getur eins verið að forsetinn og
frú hafi þau áhrif að fólk verði
klætt eftir stífari reglum heims-
mennskunnar. Og það er þá líka
af því góða, því hvort um sig
hefur góð og gild áhrif.
Vigdís forseti hefur áhrif á klæðaburð unga fólksins.
Forsetar
geta haft
góð áhrif
á tískuna
skynsemina eftir því sem þeir
fullorðnu hafa vit til. Allir þurfa
að klæða af sér kulda og bleytu.
Allsráðandi litir
í vetrartískunni eru tveir litir
allsráðandi og báðir góðir. Ég
hef grun um að unglingarnir
eigi eftir að tileinka sér þá dá-
lítið og báðir nokkuð fslands-
vænir. Það eru dökku berjalit-
irnir, svona purpuralitir, og síð-
an dökkbrúnt.
Þetta eru litir sem koma
fram í fatnaði í vetur, í snyrti-
vörum og öllu, og ég sé að ung-
lingarnir eru dáh'tið fljótir að
tileinka sér þessa liti. Þeir falla
vel inn í íslenska náttúru og eru
raunverulegir vetrarlitir fyrir
okkur.
Mér finnst gaman að því, að
ég man ekki eftir eins miklum
bóhemstfl á unga fólkinu eins
og nú. Ég vil rneina að þetta sé
jákvæð uppreisn, að ungling-
arnir eru * umhverfismeðvitaðir
og það er dálítil hugsun á bak
við þetta. Svona skemmtileg
frjálshyggja.
Það sem forráðamennirnir
þurfa að gera er að veita börn-
Sigurborg Kr.
Hannesdóttir
skrifar
frá Egilsstödum
Að anda er að lifa
Að anda er að lifa. Það er lík-
lega fátt augljósara en sú
staðreynd. Enda hefst líf okk-
ar á þessari jörð með fyrsta
andardrættinum og því lýkur
með síðasta andvarpinu. En
það er eins og við gleymum oft
að anda þess á milli. Að anda í
gegnum lífið. Sem börn nýtum
við loftrýmið til hins ýtrasta.
En eftir því sem við.eldumst
þróast allt á verri veg. Við not-
um stöðugt minna af loftrým-
inu, og lendum í vítahring
streitu og líkamslegs álags.
Náttúran hefur gefið okkur
hæfileika til að taka inn sjö
sinnum meira súrefni en við
gerum venjulega. Taktu eftir
hvernig þú andar núna. Gerðu
síðan þessa einföldu æfingu:
Andaðu djúpt að þér. And-
aðu svo frá þér, mjög hœgt.
Endurtaktu þetta, andaðu
djúpt að og síðan hœgt, hœgt
frá. Gerðu þetta nokkrum
sinnum, eða þar til þú finnur
notalegan hrynjanda í öndun-
inni. Fráöndunin á alltaf að
vera hœgari en innöndunin.
Þú œttir nú þegar að finna
mun og finna fyrir meiri ró.
Þegar við öndum erum við
ekki aðeins að fá súrefni held-
ur líka að anda að okkur lífs-
orku, við erum að hlaða okk-
ur. Þess vegna geta langtíma
afleiðingar grunnrar öndunar
verið mjög alvarlegar. Streita
hleðst upp í líkamanum, sem
veikir mótstöðu hans gegn
kvillum og sjúkdómum. Það
getur síðan aukið streituna
enn frekar og þannig heldur
öndunin áfram að verða enn
grynnri. Þú ert komin(n) í
vítahring sem kostar þig það
dýrmætasta sem þú átt, heils-
una.
Það eina sem getur rofið
vítahringinn er dýpri öndun.
Hvort sem þú ferð að synda
eða ganga - og andar þar með
dýpra, eða hvort þú gerir önd-
unaræfingar t.d. í fimm mínút-
ur fyrir hverja máltíð, þá finn-
urðu fljótt fyrir árangrinum.
Það þarf ekki flóknar öndun-
aræfingar, þessi hér fyrir ofan
nægir til að byrja með. Um leið
og þú beinir athyglinni að önd-
uninni og dýpkar hana meðvit-
að, byggirðu brú milli hugar
og líkama. Brú sem er grund-
völlur heilsu og velh'ðunar.
Árangurinn; minni streita,
einbeiting, aukakflóin hverfa,
betri svefn, sjaldnar höfuð-
verkur, lægri blóðþrýstingur,
betri árangur í íþróttum,
ánægjulegra kynlíf betra útlit
og andlegt og líkamlegt jafn-
vægi. Heil og sœl!
jBpP tarfsfólk á videóleigum ætti að vera duglegra
við það að láta fólk vita af ýmsum afsláttar-
' kJ punktum og fleiru er viðskiptavinir vinna sér
inn þegar þeir leigja sér myndir. Einnig ættu margir að til-
einka sér það að niðurlægja ekki viðskiptavininn þegar upp
kemur misskilningur á skuld er ekki var vitað af.
f^að tekur því varla að opna bæjarskrifstofurn-
jfý I Jar á Akureyri. Opnunartími þeirra er ákaf-
' XT lega takmarkaður og ekki fyrir vinnandi
rnann að komast þangað til að sinna sínum erindum. Það
þyrfti að huga að því að opna þær „betur“.
T-^að er óþarfi fyrir eigendur skyndibitastaða að
| Jleita út fyrir landsteinana að hugmyndum að
r JL nýjum réttum. Akureyri er rétti staðurinn.
Þar er boðið uppá samlokur og hamborgara með frönskum
á milli og einnig er það sérkenni skyndibitastaða að selja
djúpsteiktar pylsur með osti og kryddi. Verðið á þessum sér-
réttum er hins vegar alltof hátt og ekki er hægt að ímynda
sér að verðmunur á pylsu og djúpsteiktri pylsu sé 100 krón-
ur.