Dagur - Tíminn - 07.09.1996, Side 16
28 - Laugardagur 7. september 1996
ÍDagur-®mrám
ICONUNGLEGA SÍÐAN
sem á dynur, æðrast ekki þótt á
móti blási og alls ekki láta bug-
ast af stormum fjölmiðlafársins
sem leikið hafa um hana. -
Raunar er hún þeirrar skoðun-
ar að það eigi alls ekki að
skrifa um vel uppaldar konur í
dagblöð nema þrisvar sinnum
á ævinni; þegar þær fæðast,
giftast og deyja, eða eins og
hún kallar það „hatch, match
and dispatch".
'i’ Því hefur verið haldið
fram að Camilla sé ákaflega
sterk og einbeitt kona sem fái
því framgengt sem hún vilji.
Sagt er að Camilla og önnur
vinkona Karls, lafði Dale
Tryon, hafi valið Díönu sem
hentugt kvonfang handa Karli.
- Stúlkan var vel upp alin og af
góðu kyni. Allt benti til þess að
hægt yrði að móta hana sem
fyrirmyndar eiginkonu og móð-
ur í takt við kröfur konungs-
fjölskyldunnar. Hafandi ætt
Díönu og uppruna í huga hafa
vinkonurnar vafalaust gengið
út frá því að hún yrði Karli
ekki Qötur um fót í sambandi
hans og Camillu. En Díana hef-
ur sannað það að mýs geta líka
urrað!
hana. - Hver er þessi kona?
W Karl og Camilla kynntust
þegar hann var 23 ára og hún
25 ára. í ævisögu sinni segir
prinsinn að hún hafi verið
stóra ástin í lífi sínu. Þau hafi
átt í heitu ástarsambandi í sex
mánuði áður en hann var kall-
aður til átta mánaða fjarveru í
sjóhernum. Meðan Kárl sinnti
skyldustörfum sínum á sjónum
frótti hann að Camilla hefði
gifst einum besta vini hans,
Andrew Parker Bowles, for-
ingja í hernum. Af hverju hún
gerði það er ráðgáta, ef ástin á
milli hennar og prinsins var
eins heit og hann lýsir í bók
sinni. Prinsinn segir á sama
stað að hann hafi verið særður
djúpu hjartasári þegar hann
frétti af fyrirhuguðu brúðkaupi
þeirra Camillu og Andrews.
W Frásögn prinsins í ævisög-
unni um hvernig sambandi
hans og Camillu hafi verið
háttað í áranna rás er mun
þokukenndari en meðal huldu-
fólkssaga. Eftir trúlofun hans
og Díönu 1981 segist hann hafa
slitið öllu sambandi við Camillu
í fimm ár, eða allt þar til honum
varð ljóst að hjónabandið var
með öllu vonlaust. Á þessum
tíma hafi hann aðeins tvisvar
sinnum talað við Camillu. í
fyrra skiptið skömmu fyrir
brúðkaup aldarinnar, þegar
hann færði henni skilnaðargjöf,
nánar tiltekið armband, og í
seinna skiptið til þess að til-
kynna henni að Díana væri
ófrísk og að ríkiserfinginn væri
á leiðinni. Hvað geta glöggir
lesendur lesið út úr þessu? Jú,
getur annað verið en að prins-
inn og Camilla hafi átt í ástar-
sambandi eftir að hún giftist?
Og af hverju hringir hann í
hana til að tilkynna um ríkis-
arfann? - Er það ekki bara til
þess að segja að hann hafi
hann staðið sig í stykkinu gagn-
vart þjóðinni og nú sé öllu
óhætt? - Hvað sem þessu Iíður
hneigist prinsinn augljóslega til
þess að mála rómantíska og
fegraða mynd af ástarsambandi
sem þjóðin hans er ósátt við.
W Ætt og uppruni skipta höf-
uðmáli þegar samskipti við
kóngafólk eru annars vegar og
það af praktískum ástæðum
einkum þegar um hjákonu
verðandi konungs er að ræða.
Camilla er af yíirstéttarfjöl-
skyldu og hlaut hefðbundið
uppeldi, sem hæfir þeirri stétt.
Rétt eins og Karl var hún send
í afar strangan skóla. Bak-
grunnur Camillu og óskrifaðar
siðareglur breska aðalsins, hafa
veitt henni það í vegarnesti að
láta sér hvergi bregða hvað
Karl var 23 ára og Camilla 23 ára
þegar þau kynntust.
„Hvað sér hann við hana?“ spurðu margir þegar myndir
birtust af viðhaldi prinsins. Þau kynntust árið 1972 og svo
virðist að Camilla sé stóra ástin í lífi Karls Bretaprins.
Camiila ásamt fyrrverandi eiginmanni sínum Andrew Parker Bowles sem
hefur gifst aftur.
W í rauninni eru vandfundn-
ar meiri andstæður en Díana og
Camilla. Camilla hefur sig lítið
til nema við sérstök tækifæri.
Hún stillti sér t.d. upp fyrir
myndatöku fyrir frægt tímarit í
krumpuðum buxum! Díana
hefði frekar skilið við Karl
strax á árinu 1985, þegar þau
Camilla og Karl tóku saman
aftur, en að láta sjást til sín
þannig til fara á almannafæri,
enda er Díana tískuviti á
heimsmælikvarða. Díana er
borgarbarn en Camilla unir sér
best í sveitinni við garðyrkju,
vatnslitamálun og hesta-
mennsku. Hún hefur því sömu
áhugamál og prinsinn. Karl og
Díana áttu aftur á móti fátt
sameiginlegt á því sviði sem
öðrum.
Camilla skildi við eigin-
mann sinn á síðasta ári eftir 21
árs hjúskap. Hún er 49 ára og
lítur ekki út fyrir að vera degi
yngri. Eftir skilnaðinn keypti
hún sveitasetur á 85 milljónir
króna þaðan sem er aðeins um
20 mínútna akstur til High-
grove, heimili Karls. Það er því
stutt að fara þegar Camilla
þarf að taka á móti gestum í
bústað Karls, en hún hefur um
langan tíma verið húsfreyja þar,
þegar Karl heldur einkasam-
kvæmi.
Hún heldur sig í sveitinni og
tekur lítinn þátt í opinberu
samkvæmislífi, enda hundelt af
íjölmiðlum.
W Hver er þá staða Camillu
og Karls? Harla lítil von er til
þess að þau geti nokkurn tíma
gifst þar sem andstaða al-
mennings er of mikil, a.m.k. ef
Karl ætlar að verða kóngur.
Mun Camilla sætta sig við að
vera áfram í skugganum og
styðja Karl án þess að deila
með honum virðingarstöðunni?
Það verður tíminn að leiða í
ljós. Kannski væri það hent-
ugra fyrir alla aðila að Karl
fyndi sér nýjan lífsförunaut.
Það er möguleiki sem Díana
yrði sjálfsagt sáttari við eftir
áralangan ijandskap gagnvart
Camillu, sem hún kallaði Rot-
weiler (ófrýnilegt hundakyn),
og hún getur ekki hugsað sér
að Camilla verði stjúpmóðir
prinsanna.
BÚBBA
segir frú tíðindum úr bresku
konungsfjölskyldunni.
Camilla Parker Bowles er
ein umtalaðasta kona
Bretlands, sumir myndu
segja hataðasta kona konungs-
ríkisins. - Fyrir hvað? Jú, hún
var hjákona Karls Bretaprins
um margra ára skeið og ást-
kona hans eftir að gengið hefur
verið frá skilnaði Karls og Dí-
önu. - Karl vill örugglega giftast
Camillu en meirihluti Breta get-
ur ekki hugsað sér að hún
verði drottning. - Hvað sér
hann eiginlega við hana? Þetta
er spurning sem margir veltu
fyrir sér þegar myndir af
hjákonunni tóku að birtast í
gulu pressunni. Því verður
ekki neitað að í samanburði
við draumaprinsessuna Dí-
önu er Camilla heldur
óspennandi að sjá og með
ólíkindum að hún hafi
heillað prinsinn svo að
hann leggur nærri því
allt í sölurnar fyrir
Hj ákona
prmsins