Dagur - Tíminn - 07.12.1996, Side 5

Dagur - Tíminn - 07.12.1996, Side 5
íOítgur-ÍEinTOm Laugardagur 7. desember 1996 -17 MENNING O G LISTIR Dauðinn og hlutleysi sköpunar- verksins Tóma miðjan í verkum mínum táknar tómt leg mitt. Ég hefði helst alltaf viljað vera ólétt, það var svo hollt fyrir _______ sköpunina. Með því er ég ekki að segja að ég hefði vilj- að eignast fleiri börn, ég er eingöngu að tala um meðgönguna _________________ og þau áhrif sem hún hafði á list mína,“ seg- ir Myriam Bat-Yosef, myndlist- armaður, sem opnar sýningu á Akureyri í dag. Ævisaga Myriam Bat-Yosef er nýlega komin út og er víst að þar er engin lognmolla á ferð- inni. Pessi sérstæða kona er „Gyðingurinn gangandi“ hold- gerður, eins og Oddný Sen, höf- undur ævisögunnar, orðar það. Mjriam er fædd í Berlín en flúði þaðan ásamt ijölskyldu sinni fjögurra ára gömul til Pal- estínu. Þegar pabbi Myriam féll í átökum við araba, en hann var virkur meðlimur í and- spyrnuhreyfingunni Haganah, fór hún til Parísar ásamt móður sinni, en þaðan urðu þær að flýja vegna ofsókna nasismans. Þær náðu síðasta skipinu sem fór frá Frakklandi áður en heimsstyrjöldin síðari skall á. Myriam ólst upp í Ísraelsríki en fór þaðan til náms við Lista- akademínuna í París þar sem hún kynntist bóhemalífi til fulls. Þaðan fór hún til Flórens á ítal- íu og kynntist listamanninum Erró. Ég vildi ekki vera eiginkona Myriam og Erró voru gift í níu ár og í ævisögunni, Á flugskörp- um vængjum, segir frá storma- sömu hjónabandinu og erfiðum skilnaði. Þegar talið berst að Erró er listin efst í huga Myri- am enda var það hún sem var örlagavaldur- inn. „Guðmundur er með stóra sýningu núna í Þýskalandi sem hann nefnir Pólitísk málverk. Ég sá verkaskrána og hugsaði þá með mér að svona myndi engin kona mála. í verkunum er árás og kraftur og þar er hvergi að finna auðan blett. Þetta er í raun eins og fréttir sem hellast yflr okkur; stríð og ofbeidi o.s.frv. - Annars er ekki hægt að bera okkur Er- ró saman sem lista- menn því við erum gjör- ólík. Karlmenn hafa meiri áhuga á því sem er að gerast utan við þá en konurnar hugsa „Erró vildi ekki að ég vœri listamaður, hann sagði að ef ég vœri konan hans yrði ég að haga mér sem slík “ meira um líðanina í kringum atburðina.“ Myriam segir að hjónabandið hafi ekki gengið upp sökum ______________ samkeppni. „Erró vildi ekki að ég væri listamaður, hann sagði að ef ég væri kon- an hans yrði ég að haga mér sem slík, ___________ efda og o.s.frv. Ef þú eignast barn, sagði hann við mig, þá el- ur þú það upp ein, því hann vildi ekki börn. En ég vildi ekki vera eiginkona og valdi að vera listamaður." Tómleiki legsins Lárus Hinriksson rithöfundur sem starfar á Listasafni Akur- eyrar segir verk Myriam mjög sérstök og einkennast af endur- spegluðum kvenleika. „Hún vinnur mikið með þessa hug- mynd um tómt leg og meðgöngu barns og ég vil segja að hún sé kvenlegur heimspek- ingur sem náð hefur miklu jafn- vægi í sínu ___________________ lífi.“ Myriam fremur líka gjörning og stundar hk- amsmálun sem tengist reyndar hugmyndinni um hvernig hún ætlar að................... deyja. „Þegar ég dey vil ég hylja allar mínar gömlu hrukkur og verða eins litrík og viðfangsefni mín. Þá hverfur allt. Kynið, aldurinn og ég næ þessu hlutleysi sköpun- arverksins. Ég vil líka gera at- höfn úr eigin dauða og deyja sem hluti af list minni. Ég er Myriam Bat-Yosef við eitt verka sinna í Listasafninu á Akureyri. líka sáttari við sjálfa mig mál- aða en eins og ég er í dag með allar þessar hrukkur." Myriam sem er meðlimur í samtökum um líknardráp í Frakklandi hefur sagst ætla að falla fyrir eigin hendi 75 ára gömul? „75 ára er svona táknræn viðmiðun. Ég þurfti að horfa upp á móður mína mjög veika. Hún vildi deyja en enginn sem gat vildi hjálpa I I 4 ! EfrrlMm tíOííl jlSll U! WjftíRtlíil jy S 5 5 hÍnjLaiijsjy LEIKFELAG AKUREYRAR „Þegar ég dey vil ég hylja allar mínar gömlu hrukkur og verða eins litrík og viðfangsefni mín. “ Á brúðkaupsdegi Myriam og Ferrós. Myndin er fengin úr nýútkominni bók eftir Oddnýju Sen, A flugskörpum vængjum. henni til þess og við urðum að setja hana á spítala. Hún var orðin elli- ær en átti sín- ar stundir. Þegar hún gekk einu sinni framhjá spegli sagði hún: „Hvernig er ég eiginlega orðin“, og bað okkur um að hjálpa sér að deyja.“ Að deyja með virðingu Myriam fór síðan að hugsa meira og meira um tilgangs- leysið í því að halda fólki lifandi á spítölum. „Hvers vegna á fólk að þurfa að ganga í gegnum þetta, af hverju ekki að hjálpa fólki að deyja með virðingu? - En 75 ára aldurinn hjá mér er svona viðmiðun því ég vil deyja áður en ég verð elliær og hætti kannski við!“ Myriam er íslensk og lítur á ísland sem heimaland sitt. En á hún sér uppáhalds íslenskan málara? „Já, Kjarval. Hann gaf mér andlitsmynd af Erró fjög- urra eða fimm ára sem var máluð þegar Erró var að alast upp á Kirkjubæjarklaustri. Allir eru núna að reyna að kaupa málverkið af mér en ég vil ekki selja.“ Að lokum. „Ég hef lifað svo ríku og fullu lífi að ég er að byrja að finna fyrir þreytu. Það kemur alltaf að því að maður fær nóg af hlutunum og því er ágætt að setja sjálfum sér við- miðunarlengd á eigin lífi“, segir Myriam og brosir. -mar Undir berum himni eftir Steven Tesich Frumsýning á „Renniverkstæðinu" (Slrandgötu 49) sunnudaginn 29. des. kl. 20.30. 2. sýning mán. 30. des. kl. 20.30. 3. sýning fös. 3. jan. kl. 20.30. 4. sýning lau. 4. jan. kl. 20.30. 5. sýning sun. 5. jan. kl. 20.30. Athugið takmarkaðan sýningarfjölda. Leikhúsunnendur athugiÖ! Leikfélag Akureyrar opnar nýtt leiksvið á 80 ára afmælisári sínu. I tilefni af því verður þeim gestum sem koma á einhverja af fyrstu fimm sýningunum boðið aS fá nöfn sín rituÖ á sérstaka árnaðaróska- skrá í leikskránni. Til þess þurfa leik- húsunnendur aS tryggja sér miða fyrir 15. desember. Miðasalan er hafin. TryggiS ykkur miSa. Dýrin í Hálsaskógi eftir Thorbjorn Egner Sýningar: Laugard. 7. des. kl. 14. Sunnud. 8. des. kl. 14. Sunnud. 15. des. kl. 14. Ath! Síðustu sýningar. Miðasalan er opin alla virka daga nema mánud. kl. 13.00-17.00 og fram aS sýningu sýningardaga. Símsvari allan sólarhringinn. Sími i miðasölu: 462 1400. Himna- ríki Höfundur: Ámi Ibsen Leikstjóri: Amór Benónýsson 4. sýning sunnu- daginn 8. des kl. 21.00. 5. sýning föstudaginn 13. des. kl. 21.00. Síðustu sýningar fyrírjól. Miðapantanir í síma 464 3107. Ath. takmarkaður sætaíjöldi. EFLING. íDagur-QImTÍnn - besti tími dagsins! ÞJÓDLEIKHÚSIÐ Stóra sviðið kl. 20 KENNARAR ÓSKAST eftir Ólaf Hauk Símonarson 5. sýn. á morgun, sunnud. 8. des. Örfá sæti laus. S/dasfa sýning fyrír jól. NANNA SYSTIR eftir Einar Kárason og Kjartan Ragnarsson. í kvöld, laugard. 7. des. S/ðasta sýning fyrír jól. KARDEMOMMUBÆRINN eftir Thorbjorn Egner Aukasýning á morgun, sunnud. kl. 14. Allra síðasta sýning. Smíðaverkstæðið kl. 20.30 LEITT HÚN SKYLDI VERA SK/EKJA eftir John Ford Á morgun, sunnud. Síðasta sýning fyrir jól. Athygli skal vakin á að sýningin er ekki við hæfi barna. Ekki er hægt að hleypa gestum inn í salinn eftir að sýning er hatin. Litla sviðið kl. 20.30 í HVÍTU MYRKRI eftir Karl Ágúst Úlfsson I kvöld, laugard. 7. des. Síðasta sýning tyrír jól. Athugið að ekki er hægt að hleypa gestum inn í salinn eftir að sýning er hafin. ★ ★ ★ GJAFAKORT í LEIKHÚS - SÍGILD OG SKEMMTILEG GJÖF ★ ★ ★ Listaklúbbur Leikhúskjallarans mánud. 9. des. Aukasýning SPAUGSTOFUNNAR á .HRÓLFI'. Spaugstofuna skipa þeir Sigurður Sigurjónsson, Öm Ámason, Pálmi Gestsson, Karl Ágúsl Úlfsson og Randver Þorláksson. Aðeins þetta eina sinn. Húsið opnað kl. 20.30, flutningur helst kl. 21.00. Miðasalan er opin mánudaga og þriðju- daga kl. 13-18, miðvikudaga til sunnudaga kl. 13-20 og til 20.30 þegar sýningar eru á þeim tíma. Einnig er tekið á móti símapönt- unum frákl. 10virkadaga. Simi 551 1200.

x

Dagur - Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.