Dagur - Tíminn - 07.12.1996, Síða 15

Dagur - Tíminn - 07.12.1996, Síða 15
®agur-®mtmn Laugardagur 7. desember 1996-27 Eiimkenms- og starfsmannafatnaður Reynir á hugmyndaflugið íslendingar hafa margir hverjir verið á móti starfsmannabún- ingum vegna hræðslu við að tapa persónuleika sínum og verða staðlaðir. Ég er þeirrar skoðunar að enginn geti tapað persónuleikanum við að klæð- ast starfsmannafatnaði heldur reyni meira á hugmyndaflugið við að ákveða samsetningu á fatnaðinum. Reyndar hef ég orðið var við jákvæðara viðhorf fólks til starfsmannafatnaðar undanfarið m.a. af því að litið er á slíkan fatnað sem kjarabót. Þegar ég byrjaði fyrst að ráðleggja fyrirtækjum við val á starfsmannafatnaði var fatnað- urinn frekar einhæfur. Konur í viðskiptalífinu voru oft í tví- hnepptum beinum jökkum, þ.e. þær reyndu að líkja eftir fatnaði karlmanna. Ég hóf fljótlega að kynna fjölbreyttari snið fyrir konur þannig að konur líktust konum. Þeim var gefin kostur á að velja t.d. jakka sem væru stuttir, síðir, aðskornir eða beinir, allt eftir vaxtarlagi sínu. Það er mjög erfitt að vera í jakka sem er mjög síður og ætla að sitja í hönum allan daginn. Jakkinn krumpast oft að aftan og verður ljótur þegar viðkom- andi stendur upp. Stuttir jakkar henta því oft miklu betur. Vettvangskönnun á vaxtarlagi Erfitt getur verð að ákveða hvaða snið eigi að bjóða starfs- fólki tiltekins fyrirtækis. Það þarf að gera vettvangskönnun á vaxtarlagi starfsfólksins til að finna út hlutfall þeirra sem þurfa snið sem hæfa t.d. konum með breitt, langt eða stutt mitti o.s.frv. Þegar þessu er lokið er hægt að koma með tillögur að hentugum sniðum. Yfirleitt er boðið upp á þrenn snið af jökk- um og pilsum en tvenn af bux- um. Huga þarf einnig vel að lita- vali starfsmannafatnaðar. Við vitum öll að litir passa misvel saman. Sama gildir um liti sem mannfólkið notar. Ákveðnir litir fara sumum vel og öðrum illa. Til þess að geta valið liti sem fara flestum vef þarf ákveðna litáþekkingu. Betra er að vita hvaða fitir fara 90% vef en vefja liti sem fari eingöngu 10% vel. Einnig þarf að hafa í huga hver ímynd fyrirtækisins er eða á að vera. Fjölbreytnin í fötunum hefur mikið aukist frá því að ég byrj- aði að hafa afskipti af starfs- mannafatnaði fyrirtækja. Enn skortir þó oft á að valin séu nægilega góð efni. Val á efni getur verið erfitt og ekki á færi allra að geta metið gæði efna. Efnið má ekki glansa og hnökra eftir tiltölulega stutta notkun. Á „sú smekklega" að ráða? Stundum vill það gerast að fyr- irtæki telji sig vera að spara peninga með því að fá starfs- mann eða starfsmenn til að ákveða liti, snið og efni í starfs- mannafatnað. Þá er kannski valin „smekklegasta" konan í fyrirtækinu og henni falið að sjá um valið. Ekki er nokkur vafi á að sú manneskja leggur sig alla fram við að velja það rétta. En hvað hefur þessi manneskja á að byggja? Jú, eigin smekk. Ef viðkomandi velur þannig lit að hann fari eingöngu 10% starfs- manna vel getum við ímyndað okkur hver viðhorf annarra Anna F. Gunnarsdóttir s/crifar um tísku Undanfarið hefur færst í vöxt að fyrirtæki íjárf'esti í starfsmannafatnaði fyr- ir starfsfólk sitt. Óneitanlega gefur slíkur fatnaður fallegri heildaryfirbragð auk þess sem slíkur fatnaður kemur í veg fyr- ir að einstakir starfsmenn séu illa útlítandi. En til þess að ár- angur náist þarf að setja reglur um notkun fatnaðarins og fylgja því eftir að farið sé eftir þeim. Ekki gengur að starfsmönnum leyfist að mæta annað slagið í sínum eigin fatnaði því þá hætta þeir að bera virðingu fyr- ir tilgangi fatnaðarins og nota hann aðeins þégar þeim heritar. Þá er gildi íjárfestingarinnar farið. Sumir eiga það til að rugla saman starfsmannafatnaði og einkennisfatnaði. Einkennis- fatnaður er mun staðlaðri fatn- aður en starfsmannafatnaður og gilda strangari reglur um notkun og meðferð hans. Þegar talað er um einkennisfatnað er átt við alfatnað frá toppi til tá- ar. Þeir sem nota starfsmanna- fatnað geta aftur á móti sjálfir ákveðið skyrtur, boli, peysur, slæður o.s.frv. Þeir sem nota starfsmannafatnað geta sjálfir ákveðið skyrtur, boli, peysur, slæður o.fl. ólíkt því sem gildir fyrir þá sem eru í einkennigsbúningum. starfsmanna verði gagnvart fatnaðinum. Fólk yrði strax nei- kvætt og fljótlega færi að bera á starfsmönnum í sínum eigin fötum og þá er lítið farið fyrir sparnaðinum. Sama gildir um val á efni sem reynist ekki end- ast vel. Það væru ekki góð rök að spara kaup á innanhússarki- tekt þegar innrétta ætti skrif- stofuna og fá í staðinn starfs- mann til að sjá um það vegna þess hann ætti svo smekklegt heimili. Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar frá Egilsstöðum Er maðurinn hamingjusamur? Fíkniefnavandi, efnahagsvandi, mengun og eyðilegging um- hverfis, ofbeldi, sjálfsvíg, lyfja- notkun, hjónaskilnaðir, stríð, hungur og misskipting auðs og valds. Gefur þetta okkur þá mynd að við sem byggjum þessa jörð lifum í hamingju og sátt? Sátt við Guð og menn, sátt við móður jörð, og okkur sjálf? Nei, því er miður. Og hverju(m) skyldi vera um að kenna? Við gætum reynt að svara því til að við höfum verið svo óheppin með þá sem hafa stjórnað löndum heims í gegn- um árþúsundin, ríkisstjórnir, konunga eða einræðisherra. Eða við gætum skellt skuldinni á jörðina sjálfa og talið okkur trú um að hún hafi verið okkur, börnum sínum, óblíð. En þau svör komast einhvern veginn ekki að kjarna málsins. Með þeint værum við ba.ði að reyna að varpa ábyrgðinni yfir á ein- hverja aðra og horfa framhjá þeim allsnægtum sem jörðin gefur okkur. Ef vellíðan og hamingja byggðist á getu mannsins til að finna upp nýja tækni, hvers vegna er hinn vestræni heimur þá ekki orðinn að paradís á jörð? Hvað með alla nútíma- sjúkdómana, streituna og of- beldið? Maður sem beitir of- beldi, gerir það vegna þess að honum lfður illa. Maður sem lif- ir í sátt við sjálfan sig, lifir lika í sátt við umhverfið og aðra menn. Ef okkur, sem byggjum þessa jörð, liði vel, þá værum við ekki langt komin með að eyðileggja okkar eigin lífsskil- yrði og skilyrði alls lífs á jörð- inni. í frægri ræðu sem indíána- höfðinginn Chief Seattle flutti árið 1854, og fengið hefur yfir- skriftina „Ef vér seljum land“, sagði hann meðal annars: „Vér gerum oss ljóst að hinn hvíti maður skilur ekki lífshætti vora. Ein skák lands er honum ekki meira virði en hver önnur. Hann er gestur um nótt sem hrifsar það af borðum sem hann þarfnast. Jörðin er ekki systir hans - heldur mótstöðumaður, og þegar hann hefir yfirbugað hana fiytur hann sig bara um set. Hann skilur grafir feðra sinna eftir slyppar og snauðar og kærir sig kollóttan. llann rænir jörðinni frá sínum eigin börnum.“ f stað þess að læra af indíán- um hefur hvíta manninum tekist að ryðja þeim úr vegi vegna sinna eigin hagsmuna. Ég heyrði eitt sinn um indíánaþjóð- fiokk sem tók allar stórar ákvarðanir með það í huga hvernig þær kæmu við næstu sjö kynslóðir á eftir. Kynslóðin sem græddi sem mest á verðbólg- unni á íslandi hefur áreiðanlega ekki ætlað sér neitt illt. En hún gleymdi að hugsa til þess að skuldirnar skildi hún eftir fyrir afkomendur sína. Ef við sem nú erum að taka við, hugsuðum um hag næstu sjö kynslóða, jnynd- um við þá ekki ákveða að sigla í aðra átt? Myndum við þá ekki varðveita þetta einstaka land sem okkur er falið, og gæta þess að bæta ekki okkar eigin sorpi við arf komandi kynslóða? Það sem við gætum helst lært af hugsunarhætti indíána er að líta á hlutina í stærra samhengi. Samhengi fortíðar og framtíðar. Samhengi manns og jarðar. Samhengi allra manna og allra þjóða. Samhengi efnis og anda. Maðurinn getur aðeins séð þetta samhengi þegar hann viður- kennir að það er til máttur sem er honum æðri. Að hann er, með orðum Chief Seattle, aðeins „þráður í þeim vef sem lífið sló“. Heimild: „Ef vér seljum land“, ræða Chief Seattle, birt í Ganglera. Auralausir gefendur Ertu farin að kvíða Visareikn- ingnum eftir jólin? Og enn varla byrjuð á jólainnkaupunum? Hér koma nokkur atriði sem gott er að hafa í huga við jóla- gjafainnkaup ef við viljum halda skuldunum í lágmarki. • Ekki setja allt á Visa. Þannig frestar þú vandamálinu en losar þig ekki við það. Og varaðu þig á raðgreiðslum, þegar upp er staðið borgar þú töluvert meira en ef þú hefðir borgað allt í einu lagi. • Tilvalið áramótaheit er að setja sér að byrja fyrr á jólainn- kaup- unum næsta ár. Jafnvel hægt að byrja strax í janúar þegar útsölurnar eru í algleymingi! • Stundum gefum við stórar, dýrar gjafir til að róa slæma samvisku í þeim tilfellum sem við höfum lítið sinnt þeim sem okkur eru kærir. Væri ekki ráð að vinna aðeins minna, kaupa aðeins ódýrari jólagjafir, og eyða í staðinn aðeins meiri tíma með okkar nánustu?

x

Dagur - Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.