Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1981, Blaðsíða 4
4
DAGBLAÐIÐ&VfSIR. FIMMTUDAGUR3. DESEMBER 1981.
Björgvin Guðmundsson borgarráðsmaður Alþýðuflokksins:
Býst við því að Davíd
verði borgarstjóraefni
- hefði varla verið hægt að ganga fram hjá Albert ef hann hefði orðið efstur
Björgvin Guflmundsson: Kvennalisli
gæli fengifl oddaaðstöðu í borgar-
stjórn. Framboðslisti umhverfis-
verndarsinna gæti komifl fram.
„Þessi úrslit eru, að því er varðar
efsta sætið, eins og ég átti von á,”
sagði Björgvin Guðmundsson
borgarráðsmaður Alþýðuflokksins í
Reykjavík er DV bað hann að lýsa
áliti sínu á nýafstöðnu prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins fyrir borgar-
stjórnarkosningarnar í vor.
,,Ég reiknaði með því að Davíð
Oddsson yrði hlutskarpastur, þar
sem hann hafði verið kosinn leiðtogi
borgarstjórnarflokks Sjálfstæðis-
flokksins. Það kom mér hins vegar
nokkuð á óvart að Markús Örn
Antonsson yrði í öðru sæti. Þó hafði
maður heyrt að hin skörpu átök
Alberts og Davíðs leiddu til þess að
þriðji maður kæmi upp og þá annað
hvort Markús örn eða Magnús L.
Sveinsson. Samt sem áður reiknaði
ég með Albert Guðmundssyni í öðru
sæti ef hann næði ekki því fyrsta.
Ég býst við að Davíð verði borgar-
stjóraefni Sjálfstæðisflokksins. Þótt
mjótt sé á mununum þegar litið er á
efstu sætin er líklegt að flokkurinn
velji þann mann sem efstur varð. Það
hefði varla verið hægt að ganga fram
hjá Albert, ef hann hefði orðið
efstur, þótt hann mæti andstöðu
ýmissa manna í borgarstjórnarflokki
Sjálfstæðisflokksins.
Þessi listi, sem virðist vera að
fæðast, þ.e. þau 12 sæti sem þegar
hafa verið birt, boðar litla breidd.
Það er litið af fulltrúum atvinnu-
lífsins. Sjálfstæðisflokkurinn lagði
áherzlu á það áður að halda mikilli
breidd fulltrúa atvinnulífsins á listum
sínum, en nú eru atvinnustjórnmála-
menn mest áberandi. Þá á ég von á
því að fylgjendum Sjálfstæðisflokks-
ins finnist vanta konur á þennan
lista.
Fjölgun borgarfulltrúa í 21 minnk-
ar möguleikana á því að flokkur eða
flokkasamsteypur nái meirihluta á
minnihluta atkvæða. En slík fjölgun
auðveldar fleiri framboð. Það
virðist nokkuð ákveðið að kvenna-
listi verður í boði og framboðslisti
umhverfisverndarsinna gæti komið
fram. Ég skal ekki segja um hvað
slíkir listar gætu gert. Kvennalisti
dregur að öllum líkindum fylgi frá
öllum flokkum og gæti fengið odda-
aðstöðu i borgarstjórn. Slíkur listi
þyrfti ekki nema 1—2 menn til þess.
Hins vegar ætti að vera búið að af-
sanna þá kenningu Sjálfstæðisflokks-
ins að allt fari í glundroða ef hann
missti meirihluta sinn í Reykjavík.”
-JH.
Kristján Benediktsson borgarráðsmaður Framsóknarflokksins:
„ÞETTA ER ÞEIRRA MAL”
— en sjónarsviptir að ýmsum þeirra sem hætta í borgarstjórnarflokki
Sjálfstæðisfiokksins „Ég get ekki „kommenterað” á
það,” sagði Kristján Benediktsson
borgarráðsmaður Framsóknar-
flokksins er DV bað hann að lýsa áliti
sínu á niðurstöðum prófkjörs Sjálf-
stæðisflokksins. „Þetta er þeirra
mál.” „Mér finnst hins vegar sjónar-
sviptir að ýmsum þeim, sem nú hætta
i borgarstjórnarflokki Sjálfstæðis-
flokksins, mönnum, sem ég hef lengi
starfað með. Hið unga fólk, sem
kemur í staðinn er óreynt, en getur að
sjálfsögðu reynzt vel.”
-JH.
Kristján Benediktsson: „Ég gel ekki
„kommenterað” á þafl.”
Ólafur Kagnarsson afhendir forsætisráflherra fyrsta eintakifl.
Samtalsbókin við
dr. Gunnar Thor-
oddsen komin út
—Ólaf ur Ragnarsson ræðir við
forsætisráðherra
Samtalsbók Ólafs Ragnarssonar við
dr. Gunnar Thoroddsen forsætis-
ráðherra kom út í gær. Bókin ber
einfaldlega heitið Gunnar Thoroddsen,
Óhætt er að segja að margir hafi
beðið spenntir útkomu þessarar bókar.
Um tíma var óttazt að hún „brynni
inni” vegna verkfalls bókagerðar-
manna en raunin hefur orðið önnur.
Og það sem meira er, í bókina hefur
verið bætt kafla um nýorðna atburði á
stjórnmálasviðinu, landsþing Sjálf-
stæðisflokksins.
Það mun hafa verið um mitt sl.
sumar sem Ólafur kom að máli við
Gunnar og nefndi hugmynd sína við
hann. Eftir nokkurn umhugsunartíma
sló Gunnar til. Tók Ólafur síðan
viðtöl sín við hann, mestmegnis sl.
haust, og þá oftast nær í ró og næði á
Þingvöllum.
Gunnar Thoroddsen sagði á fundi
með fréttamönnum í tiltefni af útkomu
bókarinnar í gær að hún væri þættir
um einstök mál en ekki samfelld
ævisaga. Hefði hann sjálfur jafnvel
hug á því að skrifa eigin endurminning-
ar síðar.
Að sögn Ólafs Ragnarssonar, skýrir
Gunnar í bókinni á hreinskilnislegan
hátt frá mörgum málum á sínum langa
stjórnmálaferli og vitnar m.a. til einka-
samtala við ýmsa þjóðkunna menn.
Megi í bókinni finna ýmislegt sem ekki
hafi áður komið fram fyrir sjónir al-
mennings.
Vaka, fyirtæki Ólafs Ragnarssonar,
gefur bókina út. Hún er 320 blaðsíður
að stærð, skiptist í 15 efniskafla, og
kostar kr. 356 út úr búð. Fjöldi mynda
er í bókinni.
Þess má geta að sunnudaginn 13.
desember verður bókakynning í
Norræna húsinu á vegum Vöku.
Verður þá lesið úr bókinni en í
framhaldi af því mun Gunnar
Thoroddsen svara fyrirspurnum.
-KMU.
Svarthöfði Svarthöfði Svarthöfði Svarthöfði
Dagblöð eiga að taka breytingum
Eðlilegt er að samruni Dagblaðsins
og Vísis kunni að mælast misjafniega
fyrir, einkum hjá þeim aðilum, sem
hafa talið sér hag í því að dagblöðin
væru Ivö síðdegis. Verður þó ekki
annafl sagt en þeir skynsamari hafi
tekið breylingunni vel, enda er augljósl
mál afl eiti slerkl sifldegisblað er mikils-
verðara um alla hluli en tvö blöð, sem
þurfa að berjast um takmarkaðan
kaupendamarkað. Það rask sem fylgl
hefur i kjölfarifl er óhjákvæmilegt,
þótt það í sjálfu sér geti verifl erfitt.
Enginn gerir afl gamni sínu að valda
einstaklingum erfiðleikum, en alveg er
eins og einskonar óknyttir liggi til
grundvallar, þegar hagsmunafélög eru
að samþykkja ávitur út af
samrunanum.
Hvað hinn almenna kaupanda
snertir, þá mun eitthvað hafa borið á
því afl þeir telji að breytingin hafi
orðið of einhliða. Hafa andstæðingar
breytingarinnar verið fljótir að finna
flöt á slíku tali, og staflhæfa fullum
fetum, að Vísir hafi verið innlimaður í
Dagblaðið eða eitthvað í þá áttina.
Svarthöfði var á sínum tíma ekki talinn
neinn sérstakur Dagblaðsmaður, en
hann er fullkomlega sáttur við þann
blæ, sem er á nýja blaðinu, og veit að
ekki er fótur fyrir því að eitt blaðið
hafi verið innlimað i annað. Raufli
iiturinn á nýja blaðinu heldur sér frá
Dagblaðinu. Stafar það einfaldlega af
því, afl raufli liturinn er bjartari og
hressilegri en sá blái, einkum þegar
hann er kominn í bland vifl prent-
svertuna. Þá hefur verifl bent á að
fleira í útliti nýja blaðsins minni meira
á Dagblaðið en Vísi og er þar átt við
lelrið. Þetta er alveg rétt, en getur
varla oröið að undirstöðu mikils
metnaðartals. Sannleikurinn er sá, afl
nýja blaflið er sett í prentsmiðju Hilmis
hf„ sem Dagblaðið var sett í áður, og
má öllum vera Ijóst að leturstofn þeirr-
ar prentsmiðju setur sín einkenni á nýja
blaðifl.
Þannig á þetta mál sinar skýringar.
Að öðru leyti er um samsteypu að
ræða, sem enn er i mótun og mun
vonandi taka einhverjum breytingum á
hverju ári sem nýja blaflifl kemur út.
Það er nú einu sinni lífsmerki blaða, að
þau standi ekki í stafl árum eða ár-
tugum saman og verfli ekki að vana eða
kæk, sem maður opnar tilfinningalaust
og lokar enn tilfinningalausar. Er þess
að vænta að Dagblaðið & Vísir verði
blað stöðugra breytinga og nýjunga,
sem koma okkur á óvart, og
forustublafl i blaflaheiminum, hvað
það snertir. Tfminn hefur t.d. gengið i
gegnum nokkrar breytingar afl undan-
förnu og hafa þær allar verið til góðs.
Þannig vinna þeir mest á, sem sýna
eitthvert þrek i hlaðaútgáfunni, í stað
þess að halla sér á tapreksturssængina
meðnudd og nöldur fyrir dúsu.
Samruni síðdegisblaðannu og þær
æskilegu breytingar sem honum fylgja
geta orðið umhugsunarefni öðrum og
hvati til jákvæðra viðbragða. Áður er
Tímans getið en Morgunblaðið,
Þjóðviljinn og Alþýðublaöið hefðu
einnig gott af andlitslyftingu, svo lengi
hafa þau setið í sama farinu útlitslega
séð. Áð vísu mun sú regla gilda um
Morgunblaðið, að fyrst fjörutíu
þúsund kaupa það eins og það er, væri
fáránlegt aö breyta útlitinu í stór-
vægilegum atriðum. Tíminn, sem var
kominn neðarlega í útbreiðslu, átti
engan annan kost en að breyta.
Þjóðviljinn var á sínum tíma fremur
gott blað útlitslega séð, en þyrfti á
breytingum að halda og eins er um
Alþýðublaðið, sem verkar nú nánasl
sem sendibréf. Þannig ættu blaðstjórar
að iita í eigin barm áður en þeir býsnast
mikifl meira út af sjálfsögflum samruna
virtra og öflugra sífldegisblaða.
Svarthöfði.
1
WIAÐIÐ'm
' írjalst, aháð dagblað
i
I
i
8
i
*
Leédnri
Kjallarw
SvarMfði
Lesendabréf
SHH> 1611
Imlemiar
fréttir
12.13,26 11
•
Neytenda-
siður
— tHMi.ll.lS
Ericndar
DagMaðiöogVísirwröaHtt
Sameinaö og stærra
blað á markaðinn
tyni» >in» i gte* «jð«t «* |*e«* s*»:.i>tsnui**. ttm vw «■»£
tt iötpuw ÉyfjnvijttM* Mim Í V«*« t SKÍII hraík*f hta&n vfc>J , «***»?« >r> ■■■> >■-■
»f »»,>**wrow j«.i Wa<N. *rw s**reU»> >>*!» fcér » T"**
bóe«|«m:a<a4í>vð».t< *.«>-»< <> <««*» —.«■
M fréttir
\ -tHWt.lMí
m •
m Eriendgrein
Hl m ->ÍÍM>.1S •
W:> sæ ; Iþróttir
- u
i Fáik >>áM>.24
I •