Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1981, Blaðsíða 18
18
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1981.
Fólk
Fólk
Fólk
Fólk
„Fatlaðir eiga líka sína listamenn"
Jólasteikin veidd
Rjúpnaveiði er vinsæl íþrótt
meðal margra landsmanna og eflaust
ofarlega í huga þeirra þessa dagana
því einmitt ura þessar mundir
stendur rjúpnaveiðitíminn yfir.
Vafalítið leggur mörg skyttan fjöll
undir fót einhverja næstu daga til
þess að næla sér í jólamatinn, enda
ekki seinna vænna, þvi jólin nálgast
nú óðfluga.
Því hefur jafnan verið haldið
fram að hangikjötið sé hinn eini og
sanni jóiamatur og engin jól verði
haldin nema þessi þjóðarréttur
íslendinga sé hafður á borðum, helst
í öll mál meðan þau vara, en án efa
verður breyting á nú hin næstu jól, ef
marka má síðustu uppgötvanir
læknavísindanna. Og síðan er bara
að vona að þær verði ekki þess vald-
andi að rjúpnastofninn hljóti skaða
af.
En hvað um það. Myndina hér að
ofan tók fréttaritari DV í Árnessýslu,
Halldór G. Kristjánsson, af nokkrum
knáum rjúpnaveiðimönnum og af-
rakstri þeirra eftir eina helgarreisu
um Eyjafjöllin og ekki er annað að
sjá en þeir séu glaðir á svip og horfi
með hlýhug til næstu jóla. -SER
Hér á landi er staddur saudi-ara-
biskur blaðamaður, Monizir Azis
Saad að nafni, sem starfar við þarlent
viðskiptatímarit. Hann hefur verið
að kynna sér störf og hætti islenskrar
alþýðu til lands og sveita undanfarna
daga og hefur lent í ýmsum svaðil-
förum að því er hann tjáði blaða-
manni DV.
,,Á dögunum fór ég í kynnisför
austur yfir heiði og skoðaði m.a.
hverasvæði og önnur háhitasvæði
þar í kring sem komu mér eðlilega
mjög spánskt fyrir sjónir,” sagði
Saad.
„Það var mjög undarlegt fyrir mig
að sjá þennan gífurlega hita koma
upp úr jörðinni og allan þennan snjó
í kring. Þetta eru skemmtilegar and-
stæður sem ég hef aldrei augum litið
áður á minni lífstið.
Svo lenti ég í því, að rútan sem ég
var í festist i miklum snjóskafli á veg-
inum og þá voru allir sendir út að ýta,
en það er eitt af þvi sem ég hef aldrei
gert áður. En ég held að mér hafi
bara tekist vel upp, allavega losnaði
rútan eftir þó nokkurt erfiði og
pústur.
Allur þessi snjór fyrir mig er rétt
eins og eyðimörkin fyrir ykkur og þið
getið rétt ímyndað ykkur ef þið ættuð
eftir síðar á lífsleiðinni að ýta föstum
bíl úr sandskafli einhvers staðar á
vegum Saudi-Arabíu,” sagði Monizir
Azis Saad að lokum. -SER.
OG SVO...
... er það vísa dagsins, sem ku hafa veriö ort af óncfndum aðila í einhverjum
samningaviðrœðunum niður i karphúsi.
Hér er rifist h vildarlaust
svo hófi engu nemur
vetur sumar vor og haust
og verst þá einhver semur.
Ekki meira um það.
— litið inn á menningarvöku fatlaðra
Menningarvakan, „Líf og list fatl- I Fólksíðan leit inn á Borgina og
aðra”, stendur nú sem hæst á Hótel skoðaði sig um. Eins og við mátti
Borg og ávallt margt og mikið að búast var margt að skoða, listaverk
gerast hvern dag. | eftir fatlaða héngu á veggjum, alls-
Höröur
Erlingssson fram-
kvæmdastjóri
Menningar-
vökunnar
„UfogHst
fatlaðra."
DV-mynd
Friðþjófur.
„Listin getur
í sumum tii-
fellum verið
eini tjáningar-
máti fatiaðs
manns", seg-
ir Hörður.
DV-mynd
Friðþjófur.
„Skn'tið að sjá allan
þennan snjó”
— saudktrabískur blaðamaður hér á landi
Monizir Azis Saad: „ ... þá vildi óg fremur eyðimörkina en allan þennan
snjó".
DV-mynd: Einar Ólason.
Viðskiptavinum skenkt kaffi i boHana og ekki er annað að sjá en jtað
mælist velfyrir.
DV-mynd. GVA.
konar upplýsingar um störf og hagi
fatlaðs fólks, að ógleymdu fólkinu
sem virtist skemmta sér hið besta við
pianóleik, ljóðasöng og ljóðaupp-
lestur.
Framkvæmdastjóri Menningar-
vökunnar Hörður Erlingsson varð á
vegi okkar og hann var spurður hver
tilgangurinn væri með menningar-
vöku sem þessari.
„Með þessari vöku viljum við sem
að henni stöndum vekja athygli á
hversu listin er mikilvægur tjáningar-
máti fyrir hinn fatlaða mann og getur
f sumum tilfellum verið hans eini
tjáningarmáti. Listsköpun er mann-
bætandi fyrir alla aðila, ekki bara
fyrir hinn ófatlaða heldur líka fyrir
fatlaða og jafnvel miklu fremur.
Það er staðreynd, að alltof fáir
fatlaðir einstaklingar eiga kost á því
að fara út að skemmta sér. Með þess-
ari vöku viljum við bæta úr því. Auk
þess vonumst við til þess að þetta
auki skilning manna og kynni af mál-
efnum fatlaðs fólks.
En með þessari hátíð erum við ekki
að aðgreina fatlað fólk frá ófötl-
uðum. síður en svo. Við höfum farið
þá leið t.d. hvað tónlistina snertir að
reyna að blanda þessum hópum
saman. T.d. flytur ófötluð söngkona
lag fatlaðs tónskálds eða ófatlaður
leikari les upp ljóð vangefins skálds
og svo má áfram telja.
Hvað málverkasýninguna snertir,
þá fórum við þá leið að nafn hvers
höfundar er undir hverri mynd, en
ekki nafn stofnunarinnar sem hann
dvelur á.
Við erum að vekja máls á því, að
það eru líka til listamenn i hópi fatl-
aðra og því skyldi maður vona að á
næstu Listahátíð í Reykjavík fái fatl-
að fólk að koma á framfæri sinni list
til jafnréttis við hina ófötluðu. Ef svo
verður, þá er tilgangi þessarar vöku
náð,” sagði Hörður.
Og svo er bara að hvetja alla, fatl-
aða sem ófatlaða, að láta sjá sig á
menningarvökunni, en hún stendur
fram á föstudag.
-SER.
Fólk
VIÐSKIPTAVINIR
LEIDDIRINN í JÓL Ar
STEMMNINGU
Verslunin Blóm og ávextir hélt
viðskiptavinum sinum veglegt kaffi-
hóf á dögunum, svona rétt til þess að
minna þá á að jólahátíðin er innan
seilingar og viðeigandi innkaup henni
samfara fara i hönd.
Hér er örugglega um nýmæli að
ræða og ekki af lakara taginu, því að
hvað er betra en að geta sest niður
yfir kaffibolla með kaupmanninum
og rætt verðlag og gæði varanna, sem
keyptar eru hverju sinni. -SER.