Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1981, Blaðsíða 15
DAGBLAD1Ð& VÍSIR. FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1981.
15
leigu þeirra er búa úti á landi og
ferðakostnað í kjördæmum okkar.
Ég nenni ekki að uppfræða frúna um
það, því ég veit að hún skilur það
ekki, að þar er um hreina endur-
greiðslu að ræða á útlögðum
kostnaði s.s. almennt gerist. Ég segi
þetta ekki til að væna frúna um
heimsku — heldur aðeins vegna þess
að ég veit of vel um þetta trúaratriði
alltof margra og trú þeirra læt ég
friðhelga.
En þegar kemur að þvi, að við al-
þingismenn höfum hækkað kaup
okkar í fyrra þá veit frúin áreiðanlega
betur, nema hún fylgist aldrei með
neinu nema því sem lætur eyrum
hennar nógu vel.
Forsetar þingsins — þ.á m. er ég
nú í augnablikinu — gengust fyrir því
ásamt formönnum þingflokkanna að
breyta lögum um ákvörðun þing-
fararkaups á þann veg, að Kjaradóm-
ur kvæði þar á um í stað fyrri laga
um ákveðna viðmiðun, sem kaup
þingmanna skyldi miðast við. Það
var því hlutlaus Kjaradómur sem
ákvað hækkun þingfararkaups og
ákvað raunar allar greiðslur til þing-
manna. Aðalheiður verður því að
beina geiri sínum að Kjaradómi hvað
þetta snertir. Þar komu þingmenn
hvergi nærri, Aðalheiður mín. Og vel
máttu hugsa um það, að meðan þing-
menn sáu um þetta sjálfir, að vísu
með ákveðna lagaviðmiðun að leiðar-
Ijósi, þá hækkuðu laun þingmanna
miklu minna en nú við ákvörðun
Kjaradóms — miklu minna.
Allt framhaldið um hræsnina og
tvöfeldnina og kýrhausinn hennar
Aðalheiðar eiga því ekkert skylt við
staðreyndir og tjóar því ekki að tala
við hana um þessi mál á neinum
vitrænum grundvelli.
Þessa trú sína verður hún að eiga,
ef hún vill og sælir eru þeir sem trúa
einhverju í einlægni, þó á röngum
forsendum sé trúin byggð. Svo skal
ég gefa frúnni að endingu góða eink-
unn fyrir stíl og orðaforða, en um
leið hlýt ég að samhryggjast svo orð-
glaðri og orðhagri konu með þekk-
ingarskortinn, sem skín hvarvetna í
gegn, því miður. En hún er hvergi
nærri ein um þetta og mörg verri
dæmi má finna um það hjá. þeim,
sem miklu betri hafa upplýsingar og
þekkingu en blessuð frúin hefur
greinilega.
Verði það þér huggun og lifðu
áfram vel í þeirri trú að þú sért að
fórna þér fyrir þessa landsbyggðar-
ómaga. Þjáning af því tagi veitir oft
sælutilfinningu, og þeirrar
tilfinningar ann ég þér svo sannar-
lega. En hljóttu samt betri heilsu en
fram gengur af grein þinni. Ekki mun
af veita.
Helgi Seljan
alþingismaður.
Jólatilboö sem hlustandi er á
SL—B202
Einn af hinum frægu TECHNICS spilurum. Hálfsjálf-
virkur með hraðafínstiili og stjórnborði fyrir utan lokið.
ST-ZllL
Étvarps, 3 bylgjur, FM stereo, MW,
LW með útsendingarnæmnisljósum.
RS-M205
Kassettutæki. Framhlaðið með
snertitökkum, fyrir allar tegundir af
spólum og með DOLBY. Svið 20—
17.000.
SU-211
Stereomagnari 2X25 sínusvött við 8 ohm á sviðinu
20—20.000 (lægsta vatta tala). Toppmagnari með öllum '
tengimöguleikum og flúorsent Ijósum.
SB-3030
Hátalarar 50 sínusvött (75 músik), 3
hátalarar, hátiðni, miðtóna og bassi.
SH-553
Viðarskápur á hjólum og með glerhurð.
Verö aöeins
kr, 11.674 staögr.
■ ■
JAPIS
BRAUT ARHOLTI2. - SÍMl 27133
SÉRHÆFÐ HLJÓMTÆKJAVERSLUN
STOB
í kvöld — 18 umferðir
Só/ar/andaferð frá
Útsýn
oingó
PHIUPS
kann tökin á tækninni
Borðtennissamband íslands heldur stórbingó í Sigtúni fimmtudag
3. des. og hefst kl. 20.30. Húsifi opnað kl. 19.15.
FRÁBÆRIR VINNINGAR, meðal annars Philips HiFi hljómtæki og
Bose hátalarar, Philips litsjónvarpstæki, Philips og Kenwood
heimilistæki og Superia reiðhjól.
Heildarverðmæti vinninga um kr. 65 þús. (6,5 millj. g. kr.) Gófiir
aukavinningar.
Verfi ó spjaldi kr. 30.- Ókeypis aðgangur. Spilaðar 18 umferðir, auk
sórstaks leikf angabingós fyrcr yngri kynslóðina.
Mætið vel og stundvíslega.
Borðtennissamband ísiands.