Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1981, Side 5
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1981.
5
Alexander Stef ánsson um heilsugæzlustöðvar:
„Umtalsverðar upphæðir sem
læknar stínga í vasann"
—án þess að leggja til lyf, áhöld eða aðstöðu
,,Ég er þess fullviss, að það eru
umtalsverðar upphæðir sem læknar
stinga í eigin vasa. Fyrir tveim til
þrem árum nam slík upphæð á
meðalheilsugæslustöð 4—5 milljón-
um gamalla króna og sú upphæð
hefur hækkað til muna síðan”,
sagðis Alexander Stefánsson er DV
spurði hann um. hlunnindi lækna á
heilsugæslustöðvun sem eru ekki í
tengslum við sjúkrahús.
f fyrirspurn þingmannsins til heil-
brigðis- og tryggingaráðherra á Al-
þingi kom fram, að heilsugæslu-
læknar stinga í eigin vasa gjaldtöku
fyrir röntgen- og slysaþjónustu, án
þess að þeir leggi til áhöld, umbúðir,
lyf eða aðstöðu. Því spurði Alex-
ander hvort langt yrði að biða útgáfu
gjaldskrár um greiðslu sjúkrasamlaga
til heilsugæslustöðva vegna
umræddrar þjónustu.
,,Ég held því fram, að orðið hafi
óeðlilegur dráttur á að semja reglu-
gerð um þessa þjónustu,” sagði Alex-
ander. ,,Ég hef á tilfinningunni, að
læknar hafi haft einhver áhrif á þann
drátt, þar sem tilkoma umræddrar
gjaldskrár myndi óhjákvæmilega
hafa í för með sér tekjumissi fyrir þá.
Hins vegar myndu viðkomandi
sveitarfélög fá auknar tekjur með til-
komu hennar, því þau fjármagna
rekstur heilsugæslustöðvanna.”
-JSS.
Líf oglistfatlaðra:
Menningarvökunni lýkur á morgun
— breytingar á dagskrá tveggja síðustu daganna
Menningarvakan ,,Líf og list” fatl-
aðra í Reykjavík tekur nú brátt enda,
en henni lýkur á morgun með lokahófi í
Vikingasal Hótels Loftleiða.
Dagskránni, þessa tvo síðustu daga
vökunnar, hefur verið breytt lítillega
vegna óviðráðanlegra orsaka og þykir
því ástæða til að birta hér dagskrá
hennar eins og hún verður í dag og á
morgun. Vakan er sem kunnugt er
haldin í Félagsheimili Seltjarnarness.
í dag kl. 3 verður sýnd í félagsheim-
ilinu kvikmynd um málefni fatlaðra, en
í kvöld kl. 8 verður haldin kvöldvaka,
þar sem m.a. syngja félagar í Ömmu-
kórnum svonefnda, lög eftir Eirík
Bjarnason frá Hveragerði. Leikþáttur-
inn, „Hvernig er að vera heyrandi í
heimi heyrnarlausra,” sem heyrnar-
laus börn flytja og Tinna Gunnlaugs-
dóttir mun lesa upp úr ljóðum Ingi-
bjargar Gestsdóttur. Einnig má geta
þess að þroskaþjálfanemar munu flytja
leikþátt um þau vandamál vangefinna
sem þeir mæta í daglegu lífi.
Á morgun hefst síðan vakan með
barnaskemmtun í félagsheimilinu og
verður Bryndís Schram kynnir. Þar
koma m.a. fram hljómsveitin Árblik,
Tóti trúður og þær stöllur Hallveig
Thorlacius og Helga Steffen^en
koma á staðinn með brúðuleikliús.
Lokahóf Menningarvökunnar
verður síðan um kvöldið kl. 8.30 eins
og áður segir, í Víkingasal Hótels Loft-
leiða, þar sem boðið er upp á margs-
konar skemmtiatriði og dans fram eftir
kvöldi. Aðgangur er að sjálfsögðu
öllum opinn.
-SER
Bögglapóstur eyðilagðist í eldi í Hamborg:
„FA EKKIKRONUIBÆTUR”
— segir bögglapóststofan um þá er ekki höfðu tryggt sendingarnar
Mikið tjón varð í bruna á hafnar-
svæðinu í Hamborg, er bögglapóstur er
fór utan með m.s. Eyrarfossi 4. nóvem-
ber sl. brann. Ríflega 90 póstpokar
urðu eldinum að bráð, þar á meðal
stór ullarvörusending frá Hildu hf. Er
tjónið áætlað allt að milljón krónum.
„Því miður verður það að segjast
eins og er, að þeir sem ekki höfðu
endurtryggt bögglana hjá einhverju
tryggingafélaginu, fá ekki krónu í
skaðabætur,” sagði Kristján Hafliða-
son deildarstjóri á bögglapóststofunni,
er DV spurði hann hvort viðkomandi
sendendum yrði bættur skaðinn.
Sem fyrr sagði átti Hilda hf. stóra
sendingu sem eyðilagðist í elds-
voðanum. Er áætlað verðmæti hennar
um 315 þúsund krónur. Fyrirtækið
hafði endurtryggt sendinguna, að sögn
Kristjáns og fær skaðann því bættan.
Sagði Kristján ennfremur, að gripið
hefði verið til þess ráðs, að senda út til-
kynningu um eldsvoðann. Menn gætu
þá haft samband við bögglapóststof-
una og athugað hvort þeir hefðu átt
sendingar, sem lent hefðu í eldinum.
-JSS
Ingibjörg Gestsdóttir t.v., en lesiö verður upp úr ljóðum hennar i félagsheimili Sel-
tjarnarness i dag á Menningarvökunni „Líf og list fatiaðra”.
DV-mynd. Friðþjófur.
Byggingavörur
Timbur
• Flísar
• Hreinlætistæki
• Blöndunartæki
• Gólfdúkar
• Málningarvörur
• Verkfæri
• Baðteppi
• Baðhengi og mottur
• Harðviður
• Spónn
• Spónaplötur
• Viðarþiljur
• Einangrun
• Þakjárn
• Saumur
• Fittings
Ótrúlega hagstæðir greiðsluskilmálar
allt niður í
20%
útborgun og eftirstöðvar allt að
níu
mánuðum
Við höfum flutt okkur um set, að
Hringbraut 119,
aðkeyrsla frá Framnesvegi
eða inngangur úr Fatadeild JL-hússins
• Opið fimmtudaga til kl. 20, föstudaga
til kl. 22 og laugardaga kl. 9 til 12
ATH.: Við opnum kl. 8 á morgnana
— nema laugardaga kl. 9 —
fTpjl BYGGlNGflVðBURl
jiikynning
TIL AUGLÝSENDA
Vegna aukins álags á auglýsingadeild
og í prentsmiðju, eru auglýsendur beðnir að panta auglýsingar og
skila handritum og filmum fyrr en áður var, a.m.k. fyrst um sinn:
VEGNA MÁNUDAGS
skil á föstudegi fyrír kl. 12.00
skil á föstudegi fyrír kl. 17.00
skil á mánudegi fyrir kl. 17.00
skil á þriðjudegi fyrir kl. 17.00.
skil á miðvikudegi fyrir kl. 17.00.
skil á fimmtudegi fyrir kl. 17.00
____________________skil á mánudegi fyrir kl. 17.00
ATH. Aukalitír geta verið í öllum blöðum nema á mánudegi.
VEGNA ÞRIÐJUDAGS
VEGNA MIÐVIKUDAGS
VEGNA FIMMTUDAGS
VEGNA FÖSTUDAGS
VEGNA HELGARBLAÐS I
VEGNA HELGARBLAÐS II
I Fyrst um sinn verður einungis hægt að prenta fjórlitaauglýsingar
í Helgarblaði II (skil í síðasta lagi mánudaga kl. 17.00).
)|Tekið er á móti öllum stærri auglýsingum í Síðumúla 8, og sím-
inn þar er 27022.
Opið mánudaga — föstudaga frá kl. 9—17.30.
I SMÁ-auglýsingadeild Dagblaðsins & Vísis
er í Þverholti 11 og síminn er 27022.
Opið: mánudaga — föstudaga kl. 9—22
Laugardaga kl. 9-14 Sunnudaga kl. 14-22
I SMÁ-auglýsingaþjónustan er opin
mánudaga — föstudaga kl. 12—22. Laugardaga kl. 9 — 14.
1 SMÁ-auglýsingamyndir eru teknar í Þverholti 11 kl. 11—15
mánudaga til föstudaga.
Myndir eru alls ekki teknar um helgar.