Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1982, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1982, Blaðsíða 7
DV-HELGARBLAÐ. LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1982. 7 Af Jörfa og öðr- um næturklúbbum Það fannst ekkert nafn á lítið þorp við Beringsundið norðarlega í Alaska fyrir nær 200 árum, þegar svæðið var kortlagt í fyrsta sinn. Kortlagningar- mennirnir skrifuðu því ,,NAME?” á kortið. Arftakar þeirra lásu nafnið „NOME” úr þessu kroti 70 árum síðar og hefur þorpið heitið það síð- an. Nú er svipað vandamál komið upp á íslandi. Fyrir utan Ragnar stendur viðskiptalifið þar ekki frammi fyrir neinum vanda jafn-stórum og nafna- skortinum. Framkvæmdasemin er slík að þeir sem ekki stofan eitt fyrir- tæki á ári dragast aftur úr. Afleiðing, öll nöfn búin. Ver og kjör uppurin og ekkert val eftir nema Kjarval. Ef ekki hefði uppgötvazt á síðustu stundu, að latína og erlend staðarnöfn eru lika lögleg, hefði viðskiptaheimurinn hrunið og lesendadálkar dagblað- anna tæmzt. En nú er svo komið að búið er að plægja Bandaríkin líka. Aðeins nokkur nöfn eftir í Texas, en hver að verða síðastur. Enda skemmtanasíð- urnar orðnar óþekkjanlegar frá sambærilegum síðum í Texas Tribune og ekki mátti á milli sjá, hvor dagur- inn væri haldinn hátíðlegri í Holly- wood í sumar 4. júlí eða 17. júní. Vitanlega eru allir yfir sig hneyksl- aðir á þessum landráðum, nema ég. Ég hef alltaf verið á því, að láta kan- ana hafa þetta flugmóðurskip i skiptum fyrir 2—3 góð hótel fyrir allt liðið í sólinni á Florida. Auk þess sé ég alveg, hvað vakir fyrir þessum út- sjónarsömu mönnum með nafnavali sínu. Broadway er eins og sardínudós á hverju kvöldi. Dallas uppselt á allar sýningar, þótt enn sé óvíst, hvenær opnað verður, en Borgarbíó farið á hausinn. Þöll er hætt störfum en Texas Snack Bar gerir það gott á sama stað. Húsmæður vestur í bæ hafa séð til þess, að nýju fyrirtækin skorti ekki auglýsinguna. Kunningi minn í Keflavik var heldur ekki lengi að kveikja og opnaði verzlun með fáránlegu amerisku nafni. Þegar lesendadálkur Suðurnesjatiðinda er búinn að aug- lýsa fyrirtækið og allt fullt út úr dyr- um, ætlar vinurinn að iðrast, fella niður útlenzka nafnið og taka upp rammíslenzkt. í blaðaviðtölum og fréttum, sem birtast mui\u um fram- takið ætlar hann að skora á aðra kaupsýlumenn að vera ekki eftirbátar hans i föðurlandsástinni að gera slíkt hið sama. Af umtalinu verður örtröðin nú slík að opna verður útibú víðsvegar um Suðurnesin. Sú skoðun er orðin ríkjandi að aðeins stutt og hljómþýð nöfn geti laðað viðskiptavini að fyrirtækjun- um. Ef ekki íslenzk, þá erlend. Þetta er alrangt og sannast bezt á flösku- dögum í verzlun, sem heitir „Áfengis- og tóbakseinkasala rikisins”. í einkarekstrinum eru lögmálin Úr ritvél Jóns Björgvinssonar önnur. Þeir mundu endurskýra „Áfengis- og tóbakseinkasölu ríkis- ins” „Vínval” og „Sölunefnd varna- liðseigna” „Hergagnahöllina”. Við þjóðnýtingu Karnabæjar yrði nafninu á hinn bóginn breytt í „Ríkiseinkafatasölu unga fólksins” og „Völuskrín” yrði nefnt „Leik- fangastofnun ríkisins — smásölu- deild”. Hvaða nöfn verða fyrir valinu, þegar diskótekdeild félagsheimila- sjóðs þjóðnýtir diskótekin er hins vegar stór spurning. Ef ég verð skip- aður deildarstjóri ætla ég að vera þjóðlegur og breyta Hollywood, Broadway og Manhattan í Hjalla, Jörfa og Hruna eftir frægustu nætur- klúbbum íslandssögunnar Þá get ég auglýst „Glatt á Hjalla, gleði að Jörfa og dansað í Hruna” — á hverju kvöldi. öll réttindi vitanlega áskilin. Daglega erljósritaö á 500þúsund Xerox vélarí 80 löndum. AfköstXerox véla eru 10-120 Ijósritá mínútu. Fullkomin þjónusta. Vélartilafgreiöslustrax. 5 ára ábyrgöarviöhald. SKRIFSTOFUTÆKNI HF ARMÚLA 38,105 RBKJAVIK, SÍMI85455, PO. BOX 272, XEROX Leiðandi merki í Ijósritun Chrystor Le Baron árg. 79, hvhur, ekinn aöeins9000km. Einn með meira en öllu. Góður á gæsírnar. Saab 99 GUárg. 91, ekinn aöeins 2000km. Af tæknilegum ástæðum er þessi óskabill húseigandans tilsölu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.