Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1982, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1982.
9
Útlönd Útlönd
Matarskortur
í Portúgal
ur á að efnafólk hafi hamstrað mikið af
hrísgrjónum áður en ríkisstjórnin
hækkaði verðið á þeim um 17% nú um
áramótin.
Sykur er líka ófáanlegur en þar til ár-
ið 1975 fengu Portúgalar allan sinn
sykur frá nýlendum sínum í Afríku,
sem nú hafa hlotið sjálfstæði. Þeir hafa
sjálfir aldrei komizt upp á lag með að
framleiða sykur en hafa orðið að flytja
hann inn.
Tóbak er einnig á þrotum og hefur
stjórnin þvi ákveðið stranga skömmlun
á tóbaksvörum.
Uggvænlegur matarskortur er víðar
vandamál en í Póllandi. T.d. er ástand-
ið í Portúgal nú orðið mjög slæmt hvað
lífsnauðsynjar snertir. Vörur eins og
hrísgrjón og sykur sjást ekki lengur í
verzlunum í Lissabon og mikill skortur
er á mjólk og kartöflum.
Portúgalskir bændur eru yfirleitt
gamalmenni og langt á eftir tímanum
hvað tækni snertir. Landið getur ekki
lengur brauðfætt þær 10 milljónir sem
þar búa og í fyrra varð að flytja inn
74% af öllum matvörum. Skuldirnar
við útlönd uxu þar af leiðandi hratt á
árinu.
Hrísgrjón hafa löngum verið ein
aðalfæðutegund Portúgala en nú fást
þau sem sagt ekki lengur. Leikur grun-
Ávaxtatinsla í Portúgal: 74% matvæla flutt inn á sl. ári.
Ef la öryggisvörzlu
diplómata USA
Bandaríska sendiráðið í París segir,
að hér eftir munu diplómatar sendi-
ráðsins njóta meiri verndar, en hernað-
arráðunautur þess var skotinn til bana í
gær.
Lítt þekktur hópur, sem kallar sig'
„Vopnuðu líbönsku byltingarsveit-
ina”, hefur lýst morðinu sér á hendur
og hótar frekari hermdarverkum gegn
Bandaríkjamönnum.
Charles R. Ray, ofursti, var á leið
að heiman frá sér, þegar morðinginn
vatt sér að honum og skaut hann í
ennið með skammbyssu af dauðafæri.
Eini sjónarvotturinn, sem er að morð-
inu, segir, að morðinginn hafi gengið í
rólegheitum burt af vettvangi eftir
glæpinn.
Gifffith Galbraith, sendiherra, sagði
fréttamönnum eftir árásina, að lítið
hefði borið opinberlega á Ray ofursta
i starfi, og því ekki þótt ástæða til sér-
stakrar öryggisverndar honum til
handa. „Auðvitað munum við efla
öryggisgæzlu starfsmanna,” sagði
sendiherrann.
Lögreglunni þykir margt líkt með
morðinu og tilræðinu, sem Christian
Chapman, þáverandi sendiherra, var
sýnt i París fyrir tveim mánuðum.
Aðilar, sem sömuleiðis kenna sig við
Líbanon, lýstu því verki á hendur sér
einnig.
í Washington fordæmdi Reagan for-
seti morðið á ofurstanum.
Bandarískir stjórnarerindrekar hafa
ekki áður verið myrtir í Frakklandi, en
diplómatar ýmissa annarra rikja hafa
verið fórnarlömb hryðjuverkamanna á
síðustu árum. Þar á meðal fimm tyrk-
neskir, sem myrtir voru af ofstækis-
fullum Armenum.
HUS HRYNURI
PISA A ÍTALÍU
Það slys varð í borginni Pisa á
ítaliu að hús eitt í miðbænum hrundi
til grunna eftir sprengingu. Óttast er
að um 20 manns séu enn grafnir
undir rústunum.
Segja björgunarmenn að fjöldi
manns hafi setið að snæðingi á
veitingastað á neðstu hæð hins fjög-
urra hæða húss er sprengingin varð.
Það fólk sem bjargazt hefur úr
rústunum var þegar flutt á sjúkrahús
og eru margir taldir alvarlega særðir.
Talið er að gasleki hafi valdið
sprengingunni.
m
Smurbrauðstofan
BJORIMIIMN
Njólsgötu 49 - Simi 15105
Stærðir:80x80 — 90x90 — 70x90
Auðveft / uppsetningu, aðeins þarf að
tengja vatn og frárennsli.
PÓSTSENDUM
B^gingflvöruvsr^lao
Trgggvn Hflnnessonflr
SIDUMÚLA 37-SlMAR 83290-83360
FRISTANDI
STURTUKLEFAR
BAHCO
með s/áffsti/lan/egum blöndunartækj-
um. Hentar alls staðar fyrir heimili og
vinnustaði.
Tízkublaðið L'rí
er mest lesna og g/æsi/egasta
tímarit iandsins
Þar er að finna tízkuna í fatnaði, snyrtingu og lífsstíl.
Vandaðar greinar og viðtöl. Líf og list á sviði leiklistar, kvikmynda,
bókmennta, tónlistar. Heimilið, matur og drykkir,
handavinna o.fl.
Til Tízkublaðsins Líf, Ármúla 18.
Óska eftir áskrift að ABC:
Nafn ................................................
Heimilisfang ........................................
............................. Simi...................
Áskriftarsímar
82300 og 82302