Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1982, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1982.
II
VIÐTAUÐ:
ff
Það eru margir hörkukaríar
í þessum skreiðarbransa"
— segir Hannes Hall, sem er nýráðinn annar f ramkvæmdastjóri
Skreiðarsamlagsins
,,Ég er búinn að vinna hérna síðan
1955 en þá byrjaði ég hér á skrif-
stofunni,” sagði Hannes Hall, sem
nýráðinn er annar framkvæmdastjóri
Samlags skreiðarframleiðenda í við-
tali dagsins.
„Ég tók svo að mér gjaldkera-
starfið hérna árið 1961 og hef verið
fastur í þvi síðan,” sagði Hannes.
— Fara þá ekki dágóðar upphæðir
í gegnum hendurnar á þér á hverjum
degi?
,,Það er misjafnt dag frá degi. Síð-
asta ár borgaði ég þó út hérna um 400
milljónir króna.”
— Hvað er það mikið í gömlu
krónunum — manstu það?
,,Já ætli það ekki. — Það eru 40
milljarðarH
Hannes Hall er 46 ára gamall og
borinn og barnfæddur Reykvíkingur
— sonur Steinunnar Hall og Gunn-
ars Hall kaupmanns sem margir eldri
Reykvíkingar muna áreiðanlega eftir
í sambandi við verzlun Ragnars H.
Blöndal í Austurstræti, þar sem nú er
verzl. Torgið. Hannes er giftur
Huldu Hall sem einnig er úr Reykja-
vík og eiga þau tvö börn.
— Hvaða breytingar verða á starfinu
hjá þér við að vera skipaður fram-
kvæmdastjóri?
„Til að byrja með verða
breytingarnar litlar. Ég verð áfram
með auraráðin þar til nýr gjaldkeri
kemur til starfa. Bragi Eiríksson
verður áfram framkvæmdastjóri en
mitt starfssvið verður aftur á móti
fólgið í því að hafa meira samband
við framleiðendur og skipuleggja
betur starfið hér innanlands.
Við erum með 180 aðila á okkar
snærum og ætli ég hafi ekki samband
við um 130 þeirra á dag í gegnum
sima. Það þarf að ræða við þá um út-
skipun, merki og að sjálfsögðu pen-
inga. Þetta er mikil vinna og erilsöni
oft á tíðum. Starfið á sér samt
margar bjartar hliðar og maður
kynnist mörgum i sambandi við það.
Það eru margir hörkukarlar í þessum
skreiðarbransa og barátta þar hörð
eins og í öðru tilheyrandi fiskinum.”
Hannes var mjög góður hand-
knattleiksmaður hér fyrr á árum —
lék með Sigurði Norðdal, Kjartani
Magnússyni lækni, Sigfúsi Einars-
syni lækni, og þeim frægu köppum
hjá Ármanni á sínum tima.
— Nú erl þú löngu hættur i hand-
boltanum. Hvað er áhugamál þitt
núna?
,,Það er golfið. Það er í 1.2. 3. og
4 sæti,” sagði Hannes og lyftist allur
upp í framkvæmdastjórastólnum við
það umræðuefni. Hannes er með-
limur í Golfklúbbi Ness á Seltjarnar-
nesi og er i stjórn klúbbsins. Hefur
þar titilinn gjaldkeri, enda vanur að
fást við peninga eftir 20 ár í þvi starfi
hjá Skreiðarsamlaginu.
-klp-
Atlantshafsflugið:
FLUGLEIÐIR FÆKKA FERÐUMIFEBRUAR
— ástæðan undirboð Pan Am
Flugleiðir hafa ákveðið að fækka
ferðum yfir Atlantshafið í febrúar. í
stað fjögurra ferða í viku á leiðinni
Luxemborg-Keflavík-New York verða
aðeins farnar þrjár ferðir. Verður flug
á fimmtudögum sameinað föstudags-
fiugi.
Helzta ástæðan fyrir þessum
samdrætti eru nýtilkomin undirboð
bandaríska flugfélagsins Pan Am á
Atlantshafsflugleiðinni, sérstaklega á
leiðinni New York-Frankfurt.
Flug á fimmtudögum verður aftur
tekið upp í marz og þá mun fimmta
ferðin bætast við er flug hefst aftur til
Chicago.
í vetur hefur ein DC-8 þota sinnt
Atlantshafsfluginu og annar hún því
auðveldlega.
Undirboð Pan Am slökktu vonir
þær sem menn voru farnir að gera sér
sl. sumar um að stöðugleiki væri að
færast i fargjaldamálin á Atlants-
hafinu. -KMU.
Enginn
sparnaður
að leggja
stofnunina
mður
— segirGarðar
Halldórsson, húsa-
meistari ríkisins
,,Ég gct nú ekki séð Itver
sparnaðurinn yrði af þvi að leggja
embættið niður, því hér eru engiti
þau störf unnin scm ekki þyrfti þá að
kaupa annars staðar frá,” sagði
Garðar Halldórsson, húsameistari
rikisins, i santtali við DV um þær
hugmvndir fjármálaráðherra að
kippa þeirri stofnun út úr kerfinu um
mittjrettaár.
,,Það hefur ekkcrt verið rætt um
þetta við okkur og engin gagnrýni
sett fram vegna reksturskostnaðar af
stofnuninni. Við störfum samkvæmt
reglugerð frá forsætisráðuneytinu og
eigum að sinna ráðgjafarstörfum i
sambandi við húsagerðarlist, þá sér-
staklega viðhald og hönnun á lag-
færingunt á húsakosti rikisins. Auk
þess eru ákveðnar byggingar sem
heyra alfarið undir okkar untsjón.
Það sem unnið cr utan þessa rantma,
svo og allar nýbyggingar, er alfarið
samkomulagsatriði viðkomandi
ráðuneytis eða stofnunar og okkar og
fyrir það er greitt eins og vinnu á
almennum markaði. Sá hluti stendur
að stórum hluta undir reksturs-
kostnaði okkar.”
Starfsmenn Húsameistara rikisins
eru að meðaltali um 26. Á siðasta
ári var veitt til embættisins á fjár-
lögum um 800 þúsund krónum, en i
ár er gert ráð fyrir um 1 milljón
króna.
,,Ég get ómögulega séð tilganginn
með þvi að leggja embættið niður út
frá sparnaðarsjónarmiði. Hitt er svo
annað mál hvort rikið eigi yfir höfuð
að Itafa aðgang að stofnun sem þess-
ari, sem og mörgum öðrum, i stað
þess að starfssemin væri færð yfir til
einkaframtaksins,” sagði Garðar.
-JB.
Barna- og tómstundab/að
— Þar cr að finna smásögur, viðtöl, fönáur,
þrautir, vcrðlaunaþrautir, fræðslu, íþróttir,
skátaefni, krossgátu, ævintýri og margt
flcira.
Klippið og scndið ABC, Ármúla 18.
Úska oftir áskrift í Tizkublaðinu Líf
Nafn ..............................
Hcimilisfang ......................
............................. Sími