Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1982, Blaðsíða 19
DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1982.
19
(þróttir
(þrótt
(þrótt
íþróttir
, markvörður KR, átti ekki möguleika að
DV-mynd: Friðþjófur.
11
8. írland 2,923
9. Frakkland 2,902
10. Holland 2,901
11. Skotland 2,893
12. Finnland 2,886
; 13. Ungverjaland 2,875
14. Argentína 2,790
15. Svíþjóð 2,788
I 16. Belgía 2,736
17. Noregur 2,725
18. Austurríki 2,719
19. Tékkóslóvakía 2,674
20. Búlgaria 2,663
21. Portúgal 2,654
22. Rúmenia 2,611
23. England 2,556
24. Alsír 2,526
25. Spánn 2,500
26. Júgóslavía
27. Grikkland 2,422
28. Rússland 2,277
29. Pólland 2,242
30. ísraei 2,027
31. ítalia 2,021
32. Marokkó 1,974
33. Tvrkland 1,880
Eins og sést á þessu þurfa íslenzkir
knattspyrnumenn ekki að kvarta. Það
þótti saga til næsta bæjar 1975 þegar
fimm af fyrstu sex leikjunum í 1. deild
enduðtt með jafntefli — 0:0. Sem betur
fer kemur það ekki oft fyrir hér á landi
að ekki sé skorað mark í leik. -SOS
Spennandi keppni í
3. deildinni
íhandknattleik
Staöan í 3. deildarkeppninni í hand-
knallleik er þessi, eftir leiki helgarinn-
ar:
Selfoss—Reynir S.
Grólla—Ármann
Akranes—Ögri
Akranes
Ármann
Þór Ak.
. Grólla
Keflavík
Reynir S.
Selfoss
Dalvík
Ögri
Skallagrímur
Skallagrímur
Dalvik og Þór á Akureyri um helgina
( en leikjunum var frestað þar sem
Skallagrímur komsl ekki noröur.
-SOS
26 :26
i 18 :17
51 :15
12 8 1 3 354:242 17
11 8 1 2 270:197 17
10 8 1 1 269:216 17
10 7 1 2 262:195 15
9 6 0 3 224:165 12
10 3 1 6 235:257 7
8 2 1 5 147:186 5
10 2 0 8 226:265 4
11 2 0 9 196:338 4
7 0 0 7 100:222 0
átli að leika gegn
Landsliðsþjálfarar um riðlaskipan á HM:
Þeir skozku beztir
mest á reynir
þegar
„Sovclríkin hafa á aö skipa mjög
leiknum leikmönnum og þeir eru
meöal hinna beztu i Evrópu. Þeir
verða erfiöir mólherjar og ég held að
sigurvegararnir í fyrsta leiknum sigri í
sjölta riölinum,” sagöi Tele Santana,
landsliösþjálfari Brasilíu i knalt-
spyrnunni, eflir að dregið hafði verið
í riöla í HM á Spáni á laugardag.
Brasilfa og Svoétríkin leika fyrsla
leikinn i 6. riðli í Sevilla 14. júní.
Lið Brasilíu er talið sigurstrangleg-
ast i keppninni á Spáni. Hefur þrisvar
orðið heimsmeistari og eina þjóðin
sem hefur sigrað í HM þegar ekki
hefur verið leikið í eigin heimsálfu.
„Sovétríkin verða helzti teppi
nautur okkar í forkeppninni en ég bei
einnig fulla virðingu fyrir liðum
Skotlands og Nýja-Sjálands. Skotar
leika hraða, sterka knattspyrnu.
Mjög sterkir líkamlega í brezka stíln-
um. Lið Nýja-Sjálands er skipað ung-
um leikmönnum og aðall þeirra er
hraði og mikil hlaup,” sagði Santana
ennfremur. Þess má geta að Sovétrík-
in eru eina landið sem sigrað hefur
Brasiliu frá því Santana tók við sem
landsliðsþjálfari fyrir tveimur árum.
Betri þegar á reynir
„Því harðari sem keppnin er því
betur taka leikmenn mínir við sér.
Auðvitað verðum við lágt skrifaðir.
Brasiliumenn verða taldir sigur-
stranglegastir í 6. riðli og siðan Sovét-
ríkin. En ef við náum okkar bezta
leik, leikum af fullri getu, er allt
mögulegt,” sagði Jock Stein, lands-
liðseinvaldur Skota á laugardag.
„Við lítum á engan leik i riðlinum
sem léttan leik. Ef við hugsum um að
við getum sigrað í þessum leik, náð
stigi úr öðrum, komizt áfram ef við
gerum eitt og annað þá verðum við í
vandræðum,” sagði Stein ennfrem-
ur. „Fyrir dráttinn undirbjuggum við
okkur fyrir það versta. Nú verðum
við að vona það bezta,” sagði fyrir-
liði skozka landsliðsins, Danny Mc-
Grain. Sjötti riðillinn er almennt tal-
inn sá sterkasti í HM.
Sterkir riðlar
,,í heimsmeistarakeppni eru auð-
vitað sterk lið í öllum riðlum. Við
teljum að það séu tveir erfiðir mót-
herjar í okkar riðli, Frakkland og
Tékkóslóvakía en Kuwait er óskrifað
blað,” sagði Ron Greenwood, lands-
liðseinvaldur Englands.
„Þetta er rnjög áhugaverður riðill
og án alls efa mjög erfiður. Ef við
ætlum að komast í milliriðil verðum
við að ná góðum árangri í tveimur
fyrstu leikjununi gegn Frakklandi
(16. júní) og Tékkóslóvakíu (20.
júni),” sagði Greenwood.
„Riðillinn er hagstæður fyrir okk-
ur þó það verði mikil vinna að kom-
ast áfram,” sagði Kevin Keegan, fyr-
irliði enska landsliðsins.
Höfum góða möguleika
„Það er möguleiki, já. ég held að
heppnin hafi verið með okkur. Við
ættum að hafa góða möguleika á að
komast i milliriðil,” sagði Guy Thys,
landsliðsþjálfari Belgiu, á laugardag.
„Við erum ekki óánægðir með að
lenda í riðli með Argentinu og Ung-
verjalandi, auk þess E1 Salvador. Ég
vona að viðgerum jafntefli í fyrri leik
keppninnar við Argentínu i Baree-
lona 13. júní,” sagði Thys.
Louis Wouters, formaður belgíska
knattspyrnusambandsins, er sár
vegna þess sent hann kallaði „skipu-
lagðan drátt”, sagði. „Ég er ekki
óánægður nteð að við mættum mót-
herjum í svipuðum gæðaflokki og
belgíska landsliðið er, jafnvel þó
Argentína sé mjög erfitt íið að leika
við.” Belgía verður án eins bezta leik-
manns síns, varnarmannsins Walter
Meeuws, í fyrsta leiknum, við
Argentinu. Hann er í eins leiks banni
ÍHM.
írska heppnin?
„Þetta var góður dráttur fyrir okk-
ur. frska heppnin? Hvers vegna ekki?
Við vorum lítill fiskur í drættinum í
stórum polli og áttum þvi skilið smá-
heppni,” sagði Billy Binghant, lands-
liðsþjálfari Norður-írlands.
„Leikurinn við Júgóslavíu (17.
júni) er iykillinn í sambandi við
ntöguleika okkar i riðlinum. Við
verðunt að sigra Slavana til að korn-
ast í milliriðil. Ef okkur tekst það —
eða náum að minnsta kosti jafntefli
— og Spánverjar sigra svo Júgóslav-
ana í næsta leik (20. júni) mundi það
þýða að Spánverjarnir þyrftu ekki
stig þegar við leikum við þá (25.
júní),” sagði Bingham ennfremur.
„Ef við reiknum dæmið rétt höf-
um við ntöguleika á að bóka stað i
milliriðlunum eftir tvo fyrstu leiki
okkar I 5. riðlinum,” sagði Gerry
Armstrong, Watford, sem tryggði ír-
um úrslitasæti i HM þegar hann skor-
aði sigurmarkið gegn fsrael i loka-
leiknum í forkeppninni.
Góðir möguleikar
„Ég er sjálfur mjög ánægður með
riðil okkar. Staðarval og loftslag
hentar okkur. Ég held að við höfum
góða möguleika á að komast í milli-
riðil,” sagði Karl Sekanina, forntað-
ur knattspyrnusantbands Austurrík-
is. Austurríki er í riðli nteð erkifjend-
urn sínum, Vestur-Þjóðverjum, Chile
og Alsír og leikið verður í Gijon og
Oviedo á Norðaustur-Spáni. Austur-
riki hefurekki landsliðsþjálfara. Karl
Stotz var rekinn í desember sl. Sekan-
ina er að reyna að fá Ernst Happel,
stjóra Hamburger SV. Hann getur
ekki tekið við liðinu fyrr en samning-
ur lians við Hamborgar-liðið rennur
út í vor, þremur vikum fyrir heims-
.meistarakeppnina. Hamburger SV
hefur neitað Happel að taka við aust-
urríska landsliðinu meðan hann er
samningsbundinn við félagið.
-hsim.
Tæki spænska rikishappdrættisins voru notuð i riðladrættinum og reyndust ekki vel.
IPSWICH 0G TOTTEN-
HAM í UNDANÚRSUT
Undraverð markvarzla Peter Shilton gat ekki bjargað Forest
Sjaldan hefur leikmaður verðskuld-
aö eins aö vera i sigurliði og enski
landsliðsmarkvörðurinn Peter Shillon í
gærkvöld, þegar Tottenham og Nottm.
Forest léku í 8-liða úrslitum enska
deildabikarsins í Lundúnum. Þulir
BBC áttu varla orð til að lýsa snilli
Shiltons en allt kom fyrir ekki. Totten-
ham yfirspilaöi Forest og Oswaldo Ar-
diles skoraði eina mark leiksins á 58.
mín. eftir að Shilton haföi varið frá
Tony Galvin glæsilega. Knötturinn
hrökk til argentínska heimsmeistarans,
sem renndi honum í autt markið. Tott-
enham vann 1—0 og leikur við annað-
hvort Aston Villa eða WBA i undanúr-
slitum. Ipswich sigraði Watford 2—1 i
sömu keppni og leikur við annaðhvort
Liverpool eða Barnsley.
Forest var án sex aðalmanna sinna af
einni eða annarri ástæðu en Brian
Clough stjórnaði liðinu á ný eftir las-
leika. Leikmenn Forest léku aðra fiðlu.
Shilton varði tvívegis glæsilega áður en
Tottenham fékk vítaspyrnu á 37. mín.
Bryn Gunn felldi Garth Crooks. Glenn
Hoddle tók spyrnuna en Shilton varði.
Mark Proctor var hins vegar inni í víta-
teig og dómarinn fyrirskipaði, að
spyrnan yrði tekin á ný. Þá skoraði
Hoddle en nú var Tottenham-leik-
maðurinn Mark Falco inni í teignum.
Enn varð Hoddle að reyna. Leikmenn
hreyfðu sig þá ekki nema Shilton og
Hoddle og markvörðurinn varði! I
Leikurinn hélt áfram og Tottenham
sótti mjög. Shilton varði allt þar Ardil-
es skoraði á 58. min. eftir hörkuskot
Galvins. Annað mark hans á leiktíma-
bilinu. Eftir það varði Shilton oft á
undraverðan hátt en Forest tókst ekki
að jafna. Nýja stúkan á White Hart
Lane, sem kostað hefur 4,5 milljónir
sterlingspunda, var tekin í notkun í
gær.
Ipswich lenti í harðri raun gegn Wat-
ford úr 2. deild. Aðeins snjöll mark-
varzla Paul Cooper kom í veg fyrir að
Watford skoraði í f.h. Á 52. mín. náði
Ipswich forustu með marki John
Wark. John Barnes jafnaði þremur
min. síðar. Atlan Brazil skoraði sigur-
mark Ipswich á76. mín. Frábært mark
og leikmenn Ipswich sluppu með
skrekkinn.
Í leik Tottenham og Forest voru liðin
þannig skipuð: Tottenham: Clemence,
Perryman, Miller Roberts, Houghton,
Ardiles, Villa, Hoddle, Galvin, Crooks
og Falco (Hazzard). Forest: Shilton,
Gray, Needham, Gunn, Mills, McGov-
ern, Proctor, Rober, Ward, Wallace og
Robertson.
FA-bikarinn
Fimm leikir voru í FA-bikarnum.
Sunderland sigraði Rotherham með
marki Mick Buckley í s.h. Jimmy Nich-
ols lék sinn fyrsta leik með Sunderland
sem lánsmaður hjá Man. Utd. Sunder-
land leikur við Liverpool á heimavelli í
4. umferð. Burnley vann Altrincham
6—1 (1—0). Billy Hamilton skoraði 3
af mörkum Burnley, Steve Taylor 2 og
Trevor Steven eitt. Howard skoraði
mark liðs Ron Sanders, fyrrum Vik-
ingsþjálfara. Burnley leikur við
Shrewsbury á útivelli í 4. umferð á
laugardag.
Chelsea og Hull skildu jöfn, 0—0; og
verða að leika á ný á fimmtudag.
Middlesbrough tapaði á heimavelli
fyrir QPR eftir framlengingu. Simon
Steinrod skoraði tvö fyrstu mörkin
fyrir QPR á 21. og 40. mín. Heino Otto
minnkaði muninn á 52. mín. og Bobby
Thompson jafnaði á 55. mín. í fram-
lengingu skoraði Warren Neill sigur-
mark QPR. Colchester úr 4. deild
tapaði heima 3—4 fyrir Newcastle eftir
framlengingu. Chris Waddle og Alan
Shoulder skoruðu tvö fyrstu mörkin
fyrir Newcastle. Micky Cook og Tony
Adcock, viti, jöfnuðu. Síðan fram-
lengt. John Brownlie náði fcrustu fyrir
Newcastle, Adcock jafnaði úr víti. Það
nægði ekki. Imre Varadi skoraði sigur-
mark Newcastle rétt fyrir leikslok.
-hsím.
Óskar nálg-
ast 20 metra
íkúluvarpinu
„Ég er nijog ánægður með þennan
árangur. Þelta er górt bvrjun og nú er
bara að fylgja því eflir, komasl yfir 21)
metrana innanhúss í vetur," sagði Osk-
ar Jakobsson, ÍR, þegar l)V ræohli virt
liann í gær í l'exas. Á móti í Oklahoma
á laugardag náði Óskar síniim hezla
árangri í kiiluvarpi innanhúss. 19,81
melra. Álli bezl áður 19,60 m sem liann
náði á meislaramólinti hér lieima lyrir
læpu ári.
Óskar sigraði með rniklum yfirburð-
unt á mótinu i Oklahom.t og .,cil: þ.u
nýll skólamet. Keppnin var á vegum
háskólans í Oklahoma. Ntcsli kepp
andi í kúluvarpiiui var með 18,60 m. A
móli í Boslon fyrír rúniri viku sigraði
Óskar og varpaði 19,27 nt. Framför
hans er þvi mikil milli nióta.
„Ég keppi næst á móti i Dallas cflir
læpar tvær vikur. Oddur Sigurðsson
verður þar einnig meðal kcppenda."
sagði Óskar. -hsim
Sveiflur
íEyjum
— þegar Þór vann Fylki.
Ragna Birgisdóttir
skoraði 17 mörk í
2. deild kvenna
Þór sigraði Fylki 19—18 (8—9) í 2.
deild karla i handknattleik í Vest-
mannaeyjum á laugardag. Sigmar
Þröstur, markvörður Þórs, var aðal-
maður bakviö sigur Þórs. Varði meðal
annars tvö vítaköst og mörg skot úr
dauðafærum.
Árbæjarliðið byrjaði síðari hálfleik-
inn af krafti. Komst þremur mörkum
yfir 11—8. Þá tóku Þórarar heldur bet-
ur við sér. Skoruðu 11 mörk gegn
tveimur og breyttu stöðunni i 19—13.
Öruggur sigur virtist i höfn. Það var
þó ekki. Fylkir skoraði næstu fimm
mörk, 19—18, og hafði möguleika á að
jafna. Það tókst þó ekki.
Við sigurinn komst Þór i annað sæti í
deildinni. Fylkir hins vegar í fallbarátt-
unni. í liði Þórs léku Andrés Bridde,
sem var öruggur í vítaköstum, og Sig-
mar Þröstur aðalhlutverkin. Flest mörk
Þórs skoruðu Andrés 7/5, Karl Jóns-
son 4 og Páll Scheving 3. Hjá Fylki
skoruðu Einar Ágústsson 8/7, Jón Levi
3 og Einar Einarsson 3 mest.
í 2. deild kvenna sigraði ÍBV Grinda-
vík með miklum mun 28—15. Ragna
Birgisdóttir skoraði 17 af mörkum
ÍBV. -FÓV.
Csernai áf ram
hjá Bayern
Pal Csernaí, þjálfarinn frægi, sem
gert hefur Bayern Miinchen að vestur-
þýzkum meisturum í knattspyrnu síð-
ustu tvö árín, endurnýjaði samning
sinn við Bayern í gær fram til júní 1983
eftir því sem tilkynnt var i höfuðstöðv-
um Bayern. Csernai er 49 ára og gerðist
þjálfari hjá Bayern í desember 1978.
Það liefur aldrei veríð gefið upp hver
iaun hans eru hjá félaginu en talið er að
þau nemi um 25 þúsund mörkum á
mánuði eða rúmum 100 þúsund ísl.
krónum. Dálaglegur peningur það.
-hsím.