Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1982, Blaðsíða 4
4
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 1982.
„Var oröinn sóbrennd-
ur ogilla sofbm ílokin”
— spjallað við Karl
Þorsteinssem
sigraðiáskák-
móti unglinga
íBrasilíu
„Þetta var æðislega gaman,
keppnin, ferðalagið og bara allt
saman,” sagði Karl Þorsteins, skák-
maðurinn 17 ára, sem um helgina
kom heim frá sigursælli keppnisför
til Rio de Janeiro í Brasiliu.
Þar tók hann þátt í óopinberri
heimsmeistarakeppni skákmanna, 17
ára og yngri, og sigraði að lokum
eftir einvígi við Zuniga frá Perú, en
þeir voru jafnir að vinningum þegar
hinum eiginlegu umferðum var lokið.
Þetta var sterkt mót og skemmti-
legt, skipulagning öll frábær og
aðstaða góð. Kcppendur voru 16 alls-
staðar að úr heiminum, en það voru
þrjú fyrirtæki i Brasiliu sem stóðu
fyrir mótinu. Þeir greiddu fyrir
okkur fargjald, uppihald og allan
kostnað, auk þess sem við fengum
vasapeninga. Verðlaunin voru vöru-
úttekt fyrir andvirði 500dollara.”
Og hvað gaztu valið fyrir þá
upphæð?
,,Æ, ég vis i ekkert hvað ég átti að
taka, svo ég lét bara velja fyrir mig.
Þeir völdu krystalsskál og silfur-
bakka og ég var bara ánægður með
það.”
Þegar þrjár skákir voru eftir í
mótinu tapaði Karl skyndilega, mjög
klaufalega að mati sumra, eftir að
hafa vegnað mjög vel i fyrri um-
ferðum. Hvað olli?
,,Ég var bæði ósofinn og illa
brunninn eftir sólböð á ströndinni,
auk þess sem ég vanmat andstæðing-
inn mjög. En þetta lagaðist, í næstu
skák náði ég jafntefli og vann þá
síðustu. Og þegar að einvíginu kom
var ég ekkert óstyrkur, vann með 2
1/2 vinning gegn 1/2”.
Fenguð þið mikinn tíma til að
sleikja sólina?
,,Já, já. Ferðin stóð alls i þrjár
vikur og við fengum fjóra heila
frídaga, auk þess sem hlé voru á
milli.”
Aðstoðarmann hafði Karl með séi
til Brasilíu, Egil bróður sinn, sem er
ári eldri.
„Það var fínt að hafa hann með til
að skoða biðskákirnar, annars lá
hann bara í sólbaði þess á milli og
hafði þaðgott.”
En hvað er svo næst?
Karl Þorsteinsson er að vonum hress eftir sigurinn i Brasiiiu. DV-mynd
Bjarnieifur.
„Reykjavikurmótið, þar sem ég
verð sennilega yngsti keppandinn.
Þetta verður sterkt mót, bæði
íslenzku keppendurnir og þeir
eilendu. Maður reynir að sjálfsögðu
sitt bezta,” segir Karl.
Fleiri erlend mót hafa ekki verið
ákveðin, en Karl bjóst fastlega við að
fara eitthvað í sumar. Skák er hans
aðaláhugamál og hefur verið í fjögur’
ár. Þar fyrir utan er hann í námi í
Verzlunarskólanum og stefnir að því
að Ijúka þaðan stúdentsprófi.
Og þrátt fyrir langt og erfitt ferða-
lag frá Brasiliu á föstudag og laugar-
dag var Karl mættur sólbrúnn og sæll
upp i Taflfélag Reykjavikur í gærdag
til að fylgjast með keppni því í skák-
inni ætlar hann að halda áfram og
stefnir hátt. -JB.
FuHtrúar Samtaka endurhæfðra mænuskaddaöra og forráðamenn Trygg-
ingastofnunar ríkisins. Reyndur var nýr iyftubúnaður fyrir hjólastóla í
anddyri Tryggingastofnunarinnar. DV-myndirS.
Vilja lifa mann-
sæmandi lífi
— félagar ísamtökum endurhæfðra mænuskadd-
aðra óska aðstoðar Tryggingastofnunar
Fulltrúar nýstofnaðra samtaka
sóttu heim Tryggingastofnun rikisins
fyrir helgi. Þar voru komnir fulltrúar
SEM, Samtaka endurhæfðra mænu-
skaddaðra. Sjö fulltrúar samtakanna
komu saman í hjólastólum til við-
ræðna við forráðamenn stofnunar-
innar. Alls eru í hinum nýju sam-
tökum um 70 manns.
Þessi hópur er nokkuð sérstakur í
hópi fatlaðra manna. Allir félagarnir
hafa áður lifað eðlilegu lifi en síðan
slasazt eða veikzt og verða nú að búa
við hjólastólinn. Að sögn Eggerts G.
Þorsteinssonar, forstöðumanns
Tryggingastofnunar rikisins ræddu
fulltrúar samtakanna sérstöðu sína
og þá ósk að fá að lifa mannsæmandi
lifi. Fóru þeir fram á aðstoð stofnun-
arinnar, sérstaklega til þess að
aðstoða nýja félaga, sem oft ættu við
mikla erfiðleika að stríða.
Fulltrúar SEM reyndu og vígðu
nýja lyftu fyrir hjólastóla í aðal-
inngangi Tryggingastofnunarinnar.
Lyftan er fyrir viðskiptamenn
stofnunarinnar sem nota hjólastóla
og ekki síður þá starfsmenn sem eru í
hjólastólum. Áður komust þeir
starfsmenn ekki inn í húsið nema
bakdyramegin.
Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði
Dr. Gunnar búinn — Albert næstur?
Sjálfstæðisflokkurinn ástundar
hreinlífi um þessar mundir. Lokið er
skrifum „metsöluhóka" að sinni, en
þær eru orðnar tvær, Valdatafl í Val-
höll og samtalsbók við dr. Gunnar
Thoroddsen. Báðar þessar bækur
snúast um átök í flokknum út af
tveimur einstaklingum. Annar þeirra,
Geir Hallgrímsson, hefur verið talinn
fulltrúi fyrir þann hóp innan Sjálf-
stæðisflokksins, sem vitnar enn í dr.
Bjarna Benediktsson í málum, sem
þarf að ráða fram úr i dag, en gætir
að auki hagsmuna þeirra, sem til-
heyra hinum „fimmtán fjölskyld-
um” í Reykjavík, sem mynda öxulinn
Flugleiðir, Eimskip, Árvakur og
Shell. Hinn aðilinn, dr. Gunnar
Thorodsen, hefur lengst af staðið
álengdar i flokknum, þrátt fyrir trún-
aðarstöður, og ekki aukið á sam-
heldni með þvi að taka þátt í tvenn-
um forsetakosningum gegn hefð-
bundum fjölskylduböndum, og lítið
sinnt þörfum innsta trúnaðarmanna-
hóps flokksins með þeim afleiðing-
um, að hann einn sjálfstæðismanna
gat myndað rikisstjórn utan flokksins
og komist upp með það.
Nú er þvi sjónarspili að Ijúka, sem
dr. Gunnar stofnaði til, einfaldlega
vegna þess að hann hefur ekki um-
boð nema til miðs sumars 1983 til að
stýra ríkisstjórn. Eftir mikið hvass-
viðri er stjórnarandstöðu löggiltra
sjálfstæðismanna á þingi lokið, og
má segja að siðasti landsfundur
flokksins hafi mótað þá stefnu að
láta mál dr. Gunnars kyrr liggja úr
því sem komið er. Eftir situr flokkur
daufingja, sem hefur engar nýjar
lausnir fram að færa í þjóðmálum og
myndi að likindum ganga til stjórnar-
samstarfs við. kommúnista eftir
næstu kosningar ef Framsókn lokaði
ekki leiðinni og teldi sig einan flokka
eiga að vinna með Alþýðubandalag-
inu, m.a. vegna þess að orðið er inn-
angengt í fjós Alþýðubandalagsins
hjá þeim sveitaradíkölum, sem nú
fara með mál Framsóknar.
En Sjálfstæðisflokkurinn getur illa
látið vera að standa í mannapeðringi
og smámálum, og eygir nú nokkra
möguleika á að koma af stað nýrri
óánægju, fyrst Ijóst er að dr. Gunnar
verður ekki öllu lengur til að vekja
harmana. Svo vill til að borgarstjórn-
arkosningar eru framundan, og því
tilefni til, eftir prófkjör, að setja fólk
inn og út af listanum eftir geðþótta.
Þótt Ijóst sé að dr. Gunnar komi ekki
mikið við sögu eftir árið 1983, skal
freistað að koma við eínhverjum
hreinsunum, vegna þcss að fórnar-
lömb verður flokkurinn að hafa eftir
hina löngu baráttu fyrir fjölskyldun-
um fimmtán. Undanfarið hefur stað-
ið yfir nokkurt þref út af Albert
Guðmundssyni, sem stór hluti
flokksins kaus að hafa áfram á sínum
snærum fyrst hann, þ.e. flokkurinn,
vildi ekki styðja hann af fullum lieil-
indum í forsetakosningunum. Þá
þegar var Ragnar í Smára og gáfu-
fólkið í Sjálfstæðisflokknum látið
standa fyrir generalprufu á Albert.
Nú á að nota Davið Oddson og aðra
borgarliða innan Sjálfstæðisflokks-
ins til að efna til frumsýningarinnar.
Það er Ijóst að Albert vill tryggja
sæti sitt í horgarráði áfram, en
fundnar hafa verið upp nýjar reglur
til að varpa vafa á það atriði. Eru
þær reglur sömu rótar og prófkjörs-
reglurnar, sem hafa þokað Albert úr
fyrsta sæti í þriðja. Nú er Ijóst að
maður sem fékk nokkuð yfir tuttugu
þúsund atkvæði i forsetakosningum
myndi aldrei í neinum flokki, nema
Sjálfstæðisflokknum, vera álitin
hornreka. En jafnvel Sjálfslæðis-
flokkurinn verður að byggja á at-
kvæðum þótt hann eigi sinar
fimmtán fjölskyldur. Stuðningsmenn
Alberts hljóta að fylgjast með því
hvort honum vcrður meinað sæti í
borgarráði, eða hvort hreinsunar-
deildin ætlar að fá aðeins sex eða sjö
kjörna i næstu borgarstjórnarkosn-
ingum.
Svarthöfði