Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1982, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1982, Side 11
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 1982. 11 VIÐTALIÐ: Nýr formaður í Landssambandi lögreglumanna LANDSSAMBANDID ÁADSAM- EINA ALLA LÖGREGLUMENN — segirHrafn Marinósson „Eitt af mínum fyrstu verkum verður að taka þátt í gerð sérkjara- samninga fyrir lögreglumenn. Núna þessa dagana er verið að skipa samn- inganefnd til þess að takast á við það verkefni. Er þar ærið verk að vinna. Gera þarf kjör lögreglumanna mann- sæmandi þó þeir leggi ekki nótt við dag í vinnu,” sagði Hrafn Marinós- son nýkjörinn formaður Landssam- bands lögreglumanna. Hrafn er lög- regluþjónn í Reykjavík og hefur starfað þar undanfarin 13 ár.Áður en hann hóf störf i lögreglunni hafði hann unnið í 14 ár sem rafvirki. Hrafn var kosinn formaður á all- stormasömu þingi Landssambands lögreglumanna sem haldið var helg- ina 15—17. janúar sl. Deilur voru þar miklar milli manna. Undanfarin ár hafa ýmis aðildarfélög Landssam- bandsins haft uppi háværar raddir um það að forysta þess og vinnu- brögð væru ekki sem skyldi. Einkum var það Lögreglufélag Reykjavíkur með fast að helmingi félaga í sam- bandinu að baki sem gagnrýndi. Hrafn var kosinn formaður sem nokkurs konar málamiðlun. „Mér sýnist svona í fljótu bragði að með því að sættast á mig en ekki þann mann sem Reykjavíkurfélagið vildi hafi verið náð sáttum. Sýnist mér strax horfa mun bjartar fyrir Landssambandinu,” sagði Hrafn. Hann var spurður hvert hlutverk þessa sambands væri. „Hlutverk þess er að sameina alla lögreglumenn á landinu. Fyrst og fremst í kjaramálum en einnig í öðr- um málum. Til dæmis hlýtur að vera betra að sambandið taki þátt í samn- ingum fyrir alla lögreglumenn en ver- ið sé að semja við örfáa menn á hverjum stað úti á landi. Þá verða líka kjör allra lögreglumanna þau sömu,” sagði Hrafn. Hann er kvæntur Sigríði Einars- dóttur og eiga þau þrjú börn á aldrin- um 17 ára til tvitugs. DS m---------► Hrafn Marínósson. DV-mynd Bjarnleifur. . :*v \* inl B távS.i'í 'i'?'- '' ,nctnuda — --Janúar ar og • Gallabur, stri. buxur h 'lr,> ffauelin Og '"Íttftitl‘nhÍ,abo/ir n^f0t’Of,kkar’ gflASAUi Símar 81666 og 81757 CLARK Michican 175A 1972 20 tonna 75B 197914 tonna 55 B 1979 12 tonna 45B1975 lOtonna Bröyt X2B 1969,1970,1974 Bröyt X20 TILSÝNIS. OKgrafa R-H 615 tonna OKgisfa R-H 14 32 tonna Bröyt X 30 og Bröyt X4 OK hjólaskófla 4 tonna liðstýrð 4X4 TILSÝNIS. Loftpressur Ingersoll og Rand 1405 1978 4,2 m’ TILSÝNIS Benz 1632 m/krana og 32 tonn þungavinnuvagni. Benz 11131973 TILSÝNIS Scania 1411978 Scania 1111978

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.