Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1982, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1982, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 1982. 13 Kjallarinn AríTrausti Guðmundsson almennings alla til að að hætta að ganga út frá því sem vísu að Sovétrík- in séu dæmi um sósíalískt riki. Þá er erfitt að álykta í hring eins og gert er nú. Kannski er þögnin um Kína merki um erfiðleika manna við að hring- sóla. í hamaganginum gegn sósía- lismanum er oftast sneitt framhjá þróuninni þar. Mun jákvæðari afstaða til Kína meðal almennings og mun jákvæðari stefna Kínverja en Comecon-ríkjanna hentar ekki sækjendunum að sósíalismanum. Tilraunastarfsemin, sveiflur milli öfga og lítil kreddutryggð hentar enn síður. Reynslanaf Einingu „Vinnur Eining gegn sósíalism- anum” — spyrja menn. Leiti þeir að sósíalískum tilvitnunum eða lofgjörð um kapítalismann, finna þeir fátt. Og það er ekkert undarlegt því tilkoma Einingar er skilyrt af baráttu launa- manna í ríkiskapítalsísku landi sem dylst bak við „sósíalisma”. Hlutlægt mat leiðir í ljós framsækni Einingar og ávinninga hennar fyrir sósíalisma í Póllandi. Lýðræðiskröfur sem bera keim af vestrænum umbótum tákna gífurlegar framfarir í landinu. Efna- hagsstefna sem stefnir að því að fá núverandi kerfi til að brauðfæða þjóðina táknar það sama. Þróunin mun svo ekki stöðvast við þetta. Við þurfum að ætla pólskri alþýðu meiri tíma en fáein ár til að hefja umræðu um sósíalískt efnahagskerfi. Eining og forysta hennar vinnur ekki gegn sósíalisma, heldur býr veí í hag fyrir hann um leið og hún ætlar að ná því þjóðfrelsi sem þarf til að Pólverjar geti ráðið sinni framtíð sjálfir. Vissu- leg þarfnast pólsk alþýða pólitísks forystuafls, vissulega þarfnast hún sósialiskrar stefnuskrár og vissulega þarfnast hún vopna. En það eru miklir einfeldningar sem dæma 100 m hlaup af fyrsta metra hlauparans. Áttin er það eina sem sjá má með vissu. Allaballar falla á prófi Sóknin gegn sósíalismanum krefst mikils af sósíalistum. Alþýðubanda- lagið hefur mætt til leiks með fræði- legt ^alil!irot og jafnvel þá orðið með í sóknarliðinu í mörgum málum. Hér skulu til nefnd þrjú atriði: Afstaðan til Sovétrikjanna, flótti til kratískra kenninga og launastefna í þágu atvinnurekenda. Þrátt fyrir maklega gagnrýni á mannréttindaskort í Sovétríkjunum og stuðning við Tékka og Pólverja eru Sovétríkin enn einhvers konar „gallað verkalýðsríki” eða ávinn- ingur á leið heimsins til nýrrar efna- hagsskipanar í málflutningi flokksins. Stöku flokksmenn segja annað, en uppgjör og alvarleg greining á Sovétríkjunum hefur ekki komið fram. Allaballar hjálpa þvi lítt upp á sakirnar i vörninni fyrir sósialismann. Þegar ljóst var að flokkskenning- ar, ríkiskenningar og taktik kommúnista á fyrri hluta aldarinnar þurfti lagfæringa við og sósíalisminn beið ósigur i mörgum löndum, brugðust allaballar rangt við. í stað náms, umræðna og hlutlægni var óþægilegum spurningum og ófull- komnum kenningum kastað fyrir borð. Nauðsyn virks flokks, samfylk- ingar við aðra og beinnar valdatöku vinnandi fólks var ekki virt og í stað- inn komu gamlar kratalummur. Flokkurinn varð að virkum kjarna embættismanna og skriffinna og venjulegum kosningaflokki. Fjölda- samvinna vék fyrir meirihlutamynd- unum í nefndum, stjórnum og á þingi og leiðin til kjarabóta eða sósíalisma liggur um kjörkassana. Gagnrýni og skoðanabarátta innanflokks og við aðra sést varla. í sókninni gegn sósíalismanum er lítil vörn að x G! Framleiðið betur upp íkaupið Á íslandi þurfa menn að vinna um II klst. fyrir ákveðnum pakka af nauðsynjavöru. Á hinum Norður- löndunum frá 4 upp í 7 klst. Þetta er ekki náttúrulögmál sem ræðst af hnattstöðu íslands. Hér lifir um leið forrík yfirstétt sem heldur sínu með því að kalla fram verðhækkanir jafn- harðan og tilkostnaður i atvinnu- rekstri eykst. Þessu mæta allaballar ekki með baráttu fyrir uppskurði á kerfinu, heldur viðgerðum á því. Því er svo lýst yfir að forsenda kjarabóta sé aukin framleiðsla. Fölsk kaup- máttaraukning er búin til með því að nota ónýta framfærsluvísitölu og meðaltalstölur um útreiknaðan halla fyrirtækja notaðar til að halda aftur af launafólki. Nú mætti vel hugsa sér að sósíal- ískur flokkur grípi til kapítalískra aðgerða við erfiðar aðstæður. Slíkt þyrfti þá að útskýra heiðarlega. En AB-forystan pakkar öllu inn i sósíal- ískan vaðal — og andstæðingarnir skíra delluna og mistökin svo líka sósíalisma, til að fæla menn frá honum. Það er hægt að auka kaupmátt með því að minnka afrakstur fyrir- tækja og lifeyri eigendanna. Það þarf enga framleiðsluaukningu (sem vel er þó athugandi sem markmið). Auðvitað ætti AB að beita sér fyrir því að fá opinberaðan tapútreikning- inn og viðurkenna í verki að það er óhæfa að um 60% launamanna nái rétt 50% framfærslueyris með dag- vinnu. Það er sósialísk reisn. Auðvitað ætti AB að fá fram afkomutölur allra atvinnurekenda í VSÍ og hætta að predika launaköku- kenninguna sem miðast við að at- vinnurekendur ákvarði sjálfir launa- köku til að launamenn geti rifist um sneiðarnar. Það er vörn fyrir sósíal- ismann. Eða eru allaballar ef til vill að bíða eftir hentugu tækifæri til að gera allt þetta, en halda hjólunum gangandi á meðan? Ef þeir eru að bíða eftir að verða fleiri til þess að geta gert „eitthvað sósialískt,” má alltaf reyna samvinnu við okkur sem erum utan við flokkinn — maóista- grey, kratafífl, ihaldskurfa ogfákæna alþýðumenn (milli kosningaú Af þessu mætti vera ljósara en áður að fólk fær ekki mikið álit á sósialismanum með AB fyrir augunum. Vonandi hafa kjallaragreinarnar tvær verið einhver vörn. Sóknin gegn sósíalismanum krefst þess að áhuga- fólk um hann og yfirlýstir vinstri- sinnar komi á betri umræðum en hingað til. Ég hef heyrt hugmyndir um málþing sósíalista. Kommúnista- samtökin og Verkalýðsblaðið væru vafalítið reiðubúin til þátttöku í framtaki sem þessu. Ari T. Guflmundsson. kennari. ^ „Sóknin gegn sósíalismanum krefst mikils af sósíalistum. Alþýðubandalagið hefur mætt til leiks með fræðilegt gjaldþrot og jafnvel þá orðið með í sóknarliðinu í mörgum málum. Hér skulu til nefnd þrjú atriði: Afstaða til Sovétríkjanna, flótti til kratískra kenninga og launastefna í þágu atvinnurekenda”, segir Ari Trausti Guðmundsson meðal annars í grein sinni. þessi merki og virt þau. Sumum erþekking takmörk. íslendingar sigla veikburða skipum yfir opið haf lang- an veg og finna stórt ónumið land. En hvers vegna eru skrælingjar að hafa fyrir því að reka þá úr Vestur- heimi, óbyggðum þar sem nægilegt landrými var fyrir báða? Skrælingj- arnir hafa verið búnir að helga sér landið með merkjum sem íslendingar hvorki þekktu né virtu. Að mati skrælingja var land þetta fullnumið. Frá okkar sjónarhóli er sagan um fífldjarfa íslendinginn meingölluð. Það vantar vinninginn, sem íslend- ingurinn hættir sér fyrir. Varla hefur landi okkar verið að hætta lífi sínu til þess eins að auka spennuna í skot- keppninni. Áhœtta til vinnings Eins og sagan geymist meðal eskimóa getum við verið þeim alveg sammála. íslendingurinn kemur fram sem fífldjarfur og glannafenginn auli sem hættir lífi sinu innan um grimma landa sina, til einskis, og það þvi fremur sem hann er lélegur skotmað- ur. Undir slíkum kringumstæðum hefði þurft að vera til mjög mikils að vinna til þess að svo mikil áhætta væri tekin og því fremur sem maður- inn var lélegur skotmaður, ellegar að hann væri kúgaður til þess (sbr. sag- an um Vilhjálm Tell). En það að taka áhættu til annars en fæðuöflunar eða viðhalds daglegs lifs innan þekktra takmarka hefur verið eskimóum svo framandi að þeir hafa ekki skilið um hvað var keppt eða þá gleymt því og áhættutakan ein verður söguleg í þeirra augum. Að taka áhættu út af fyrir sig er ekki sögulegt i augum vestrænna manna. Það er grundvöllur menning- ar þeirra. Aðeins mikill árangur (sig- ur) eða mikið tap (ósigur) er sögulegt í þeirra augum. Við eigum ekki sér- stakar sögur um það eitt að taka áhættu. Það að hætta einhverju er hreyfiaflið í menningu okkarj óróinn og undirrót þekkingarleitar og út- þenslu á öllum sviðum mannlegs lífs. En til þess að hægt séað taka áhættu verður að vera svigrúm til ávinnings. Grundvöllur allrar áhættu er mögu- leiki á vinningi, ábata. Líkur til vinn- ings verða að vera meiri en líkur á tapi. Möguleikar eskimóa til ávinn- ings voru mjög litlar. Þeir gátu ekki vænzt meira en að lifa af. Hjá þeim ríkti algjör stöðnun. Á niðurlægingartímum íslenzku þjóðarinnar var líkt á komið með okkur. Til íslands komu á landnáms- öld frakkir víkingar sem tóku áhætt- una til vinnings. Eftir nokkurra alda búsetu í landinu er svo að þeim sorfið að þeir geta sig hvergi hreyft, nema til að skrimta. Allt var gjörnýtt. Eng- in tilbreytni. Engin framþróun. Algjör stöðnun. Við vorum að kom- ast í fastar skorður eins og eskimóar og lappar. En við vorum bændaþjóð en ekki veiði- eða hirðingjaþjóð. Á 19. öld fer að rofa til og svigrúm verður meira. Við komumst í nánari snertingu við umheiminn. Þjóðin vogar og hún vinnur. Það sýndi sig þegar á reyndi að þjóðin átti marga syni og dætur sem i bjó viljinn til að taka áhættuna. Strax og færi gafst tóku einstaklingarnir aftur áhættuna og sigruðu oftast þó að stundum slægi í bakseglin. Svigrúmið minnkar Nú er þetta smám saman að breyt- ast. Svigrúm einstaklinga til þess að taka eigin áhættu er þrengt með auk- inni skattheimtu, en sú áhætta sem menn taka nú felst í því að menn hætta annarra manna fé. Á þann hátt er oft spilað djarfar og glannalegar (Krafla). En menn sem hætta annarra fék gæta þess oftast ekki jafnvel að vinningslíkur séu nægar eins og þeir sem hætta sinu eigin fé. Því minnkar svigrúm heildarinnar einnig. Þegar búið er að þrengja svigrúm einstakl- inganna og síðan sóa svigrúmi heild- arinnar til áhættu á þjóðin ekki fram- ar fyrir höndum annað en hnignun og siðan stöðnun. Breidd áhættunnar í vestrænu samfélagi er mjög mikil, allt frá þeim sem enga áhættu taka og til þeirra sem eru sjúkir i áhættu eins og fjár- hættuspilarar. Allflestir leitast þó við að taka áhættu innan skynsamlegra marka og draga þá úr neikvæðum af- leiðingum áhættutökunnar. Stofnuð eru hlutafélög, tryggingarfélög, bankar, verkalýðsfélög, atvinnuleys- istryggingar, lífeyrissjóðir o.s.frv. Þar sem áhættan er jafnvel meiri en þessir aðilar eru reiðubúnir að taka á sig er ríkisvaldið eða hið opinbera ofl látið taka á sig áhættuna. Mörgum finnst að of miklu sé hætt, þegar allt þjóðfélagið er sett i veð fyrir fleiri og fleiri vafasamar áhættur. Slíka áhættu mégi aðeins taka ef mjög brýpa nauðsyn beri til. Því þurfi að takmarka mjög, frá því sem nú er, áhættu sem rikið tekur fyrir þegna sína. Ef við göngum of langt fram í því að draga úr áhættu einstaklinga til frumkvæðis hefst hnignun sem endar í stöðnun eins og hinir fornu eskimóar voru dæmi um. En nú er búið að rjúfa einangrun ná- granna okkar Grænlendinga og efast ég ekki um að sú þjóð á marga syni og dætur sem munu taka áhættuna þjóð sinni til framdráttar, ef hið opinbera kæfir ekki frumkvæði þeirra i fæðingu. Jóhann J. Ólafsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.