Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1982, Qupperneq 26
30
DAGBLADIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 1982.
ÞAÐ ER HÆGÐARLEIKUR AÐ BÆTA MELTINGUNA
Trcfjar eru nauðsynleg næringaraukaefni, vegna
þess hve trefjasnauður algengasti matur er. FIBLET
eru ávaxtatrefjar í töfluformi, sem innihalda öll
nauðsynlegustu trefjaefnin.
Svo við snúum okkur beint að efninu. Óeðlilega
harðar hægðir valda vanlíðan. Þetta vita allir, en
fæstir gera þó nokkuð til úrbóta. Þar sem venjulegur
matur inniheldur of lítið af trefjum á fjöldi fólks í
erfiðleikum með hægðir og enn fleiri þjást vegna
meltingartruflana.
En hægðatregða er aðeins hluti af þeim vandamál-
um sem trefjaskortur veldur. Rík ástæða er til þess
að borða meira af trefjum, einkum af ávöxtum og
grænmeti. Það getur reynzt erfitt að fá nægjanlegt
magn trefjaefna í algengasta mat án þess að fá um
leið of margar hitaeiningar.
1/2 KG AF KARTÖFLUM
Vissir þú, að úr venjulegum dagskammti af FIBLET, færð þú jafn-
mikið magn af trefjum og úr 1/2 kg af óskrældum kartöflum en
cngar hitaeiningar.
Hvort sem þú hefur meltingartruflanir, hægðatregðu eða átt í
baráttu við línurnar þarfnast þú FIBLET.
vax á andlit - vax á fætur
Andlftsböð
Húöhreinsun unglinga — Litun
- Kvöldsnyrting — Handsnyrting
Dömur athugið
Sérstakur afsláttur af
^4. 3ja skipta andlits-
. ,, nuddkúrum.
LJÓSMYNDAVÉL
Ashai Pentax SP2 myndavél ásamt 35 mm Pentax linsu til
sölu, iítið notuð, vel með farin.
Verð kr. 2.000,-
Uppl. í síma 77133.
ÚTSALAN
HÓFST
ÆT
l
MORGUN.
Aðoins í
nokkra daga
MIÐBÆJARMARKAÐNUM 021015
Margt á seyði
hjá Jazzvakningu
Jazzvakning, áhugafélagið sem séð
hefur landsmönnum fyrir jazztónlist
síðustu ár, hefur haft hægt um sig
undanfarið en ekki er annað að sjá en
að félagið sé tilbúið með storminn á
eftir logninu. Reikna má ineð að
félagið taki langþráðan jazzklúbb til
starfa í marzmánuði. í samvinnu við
veitingastaðinn Hornið er ætlunin að
stækka hið svokallaða Djúp og reka
klúbb með lifandi jazztónlist, inn-
lendri sem erlendri.
þar sem albúmið verður tvöfalt) mikið af áður óútkomnu efni. Stílað
komi til með að geyma glefsur af ferli er á 22. marz sem útgáfudag, en það
Gunnars og að þar muni koma á plast var afmælisdagur Gunnars heitins.
Til að kóróna svo starfsár jazz-
vakningar er ætlunin að halda tón-
leika með Art Ensemble of Chicago í
byrjun aprílmánaðart og gera
forsvarsmenn jazzvakningar sér
vonir um Þjóðleikhúsið sem væntan-
legan tónleikastað. Ekki er að efa að
jazzáhugafólk og annað áhugafólk
um svarta tónlist fagnar þessum frétt-
um en sem dæmi um þann virðingar-
sess sem hljómsveitin skipar erlendis
er að síðustu tvö ár hafa gagnrýn-
endur jazzblaðsins „Downbeat”
valið Art Ensemble of Chicago
hljómsveit ársins. Plötur þeirra
félaga hafa einnig notið vinsælda og
virðingar víðast hvar. Þar sem Art
Ensemble of Chicago fer sjaldan í
hljómleikaferðir mega íslendingar
telja sig stálheppna og er hægt að
fullyrða að um einstakan tónlistar-
viðburð sé að ræða.
Jazzvakning lét nýlega frá sér fara
hljómplötu með Bob Magnusson og
félögum og hyggur á útgáfu á
minningarplötu með Gunnari Orm-
slev. Margir munu eflaust fagna
plötu með Gunnari enda einn vinsæl-
asti jazzleikari íslands um áratugi eða
allt þar til hann lézt á síðasta ári.
Frétzt hefur að platan (plöturnar.
Ánægjuauki fyrír íslenzkt skíðaáhugaf ólk:
SJÓNVARPIÐ VERÐUR MEÐ
MARGRA TÍMA ÚTSENDINGU
FRÁ HMMÓTUNUMÁ SKÍDUM
,,Við verðum með margra klukku-
stunda efni frá báðum þessum heims-
meistaramótum,” sagði Bjarni Felixs-
son, íþróttafréttamaður sjónvarpsins er
við spurðum hann að því hvað sjón-
varpið myndi sýna mikið frá heims-
meistaramótunum í alpagreinum og
norrænum greinum sem verða á næst-
unni.
Heimsmeistarakeppnin í norrænum
greinum verður í Osló í Noregi og hefst
með pompi og pragt 18. febrúar og
stenduryfirí lOdaga.
,,Við fáum mikið efni þaðan,” sagði
Bjarni. „Meðal þess er 15 og 30 km
skíðaganga karla, 5 km skíðaganga
kvenna, boðganga karla og kvenna,
svo og skíðastökk af 70 og 90 metra
palli.”
Heimsmeistarakeppnin í alpagrein-
um verður um næstu mánaðamót í
Schladming í Austurríki og stendur
yfir í 12 daga. Bjarni sagði að þaðan
fengi íslenzka sjónvarpið tíu tima út-
sendingarefni en það væri þar í sam-
floti með finnska sjónvarpinu.
„Það sem við fáum þaðan er svig,
stórsvigi og brun karla og kvenna,”
sagði Bjarni. „Við komum aldrei til
með að sýna þetta allt — höfum ekki
tíma í það —en tökum það bezta úr og
sýnum.það sama gerum við með efnið
sem við fáum frá heimsmeistaramótinu
í Noregi.”
Mikill áhugi er fyrir því hér á landi
að sýnt verði frá þessum mestu skíða-
mótum ársins á öðrum timum en í
íþróttaþáttum sjónvarpsins. Norð-
menn, Finnar og Svíar og margar aðrar
þjóðir verða með beinar útendingar á
hverjum degi frá þessum mótum. Danir
sem ekki eru taldir mestu skíðaáhuga-
menn í heimi verða með útsendingar í
sjónvarpinu hjá sér í hverjum degi í þá
liðlega 20 daga sem þessi skiðamót
standa yfir og skíðaáhugafóiki hér
finnst við ekki geta verið eftirbátar
þeirra í þeim efnum -klp-
AUtbazta skíðafólk heims, eins og td. Ingemar Stenmark, veröur inni í stofum hji isionzkum sjónvarpsáhorf-
endum í næsta mánuði.