Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1982, Side 37
DAGBLADID & VÍSIR. MÁNUDAGUR 2S. JANÚAR 1982.
41
I gærkvöldi
I gærkvöldi
Helgarskammtur af Ómari
Ragnarssyni eða gólfskúr-
ingar um miðnætti
Mamma mín kom í bæinn um
helgina. Ég ákvað að ég yrði að taka
til. Eins og venjulega 1 vikulok var
alltískít og drasli.
En fram eftir kvöldi hékk ég í
sófanum, yfir sjónvarpinu, lömuð af
vikuþreytunni. Sá Ómar Ragnarsson
og fleiri yfirheyra hverspjallamenn.,
eins og Flosi er búinn aðskíra þá.
Undir ellefu hífði ég mig upp og
skrúfaði frá útvarpinu, nánast af
rælni. Þar var þá kominn Ómar
Ragnarsson að nýju ásamt undir-
leikara sínum, lækninum Kristjáni,
og voru þeir kvöldgestir Jónasar
Jónassonar.
Er skemmst frá að segja að Jónas
var bráðlipur við að rekja garnirnar
úr þeim félögum og Ómar varð að
standa fyrir máli sínu. Hvað með
glannalegan akstur, klúryrði og
klám? hjálpaði hann til við heimilis-
störfin? trúði hann á guð?
Og Ómar sagði frá misheppnuð-
ustu stundum ævi sinnar, bæði sem
skemmtikraftur og sem bílstjóri, og
virtist bæði trúa á æðri handleiðslu
og illa anda, klykkti hann út með
sögu um djöflatrúarfólk.
Húsverkin gengu eins og leikur, ég
hefði haldið áfram að skúra til
morguns, en því miður lauk
þættinum kl. eitt, svo mamma þurfti
bæði að vökva blómin og þvo
klósettið þegar hún kom. En mér
finnst þetta kjörinn þáttur að endur-
varpa á öðrum tíma.
Á laugardagskvöldið sá ég „Sjón-
minjasafnið’’ og hver var þar kom-
inn í allra kvikinda líki nema Ómar
enn. Þarna voru rifjuð upp ýmis
atriði frá eldri árum sjónvarpsins og
Óntar var samvizkusamur föndur-
kennari, leikfimikennari, ,,launað
I ífl” og guð má vita hvað.
Þetta var svona „útúrsnúnings-
þáttur,” sem Hrafn Gunnlaugs og
Þórarinn Eldjárn höfðu sett saman.
Mér fannst hann bráðfyndinn og
táningaflokkurinn, sem hefur bæki-
stöð heima hjá mér, skemmti sér líka
afspyrnuvel..
Það er mikill léttir að þurfa ekki að
taka þetta alvarlega líf alvarlega.
Inga Huld Hákonardóttir.
Andláf
Arni Þórarinsson, Skjólbraut 3 Kópa-
vogi, fyrrverandi hafnsögumaður í
Vestmannaeyjum, lézt 18. janúar 1982.
Hann var fæddur 25. maí 1896 að Fossi
í Mýrdal. Eftirlifandi kona hans er
Guðbjörg Þórðardóttir, þeim varð ekki
barna auðið en ólu upp systur Guð-
bjargar og hennar mann. Árni starfaði
til sjós, á m/b Goðafossi og m/b Geir.
Hann lauk skipstjórnarnámskeiði 1
Vestmannaeyjum og keypti linuveiðar-
ann Venus, ásamt fleirum, en hann var
seldur árið 1930 og gerðist Árni þá
hafnsögumaður. Hann flutti frá Eyjum
1948, bjó í Ytri-Njarðvíkum í 20 ár
en fluttist þá i Kópavoginn. Hann
starfaði síðustu árin á vegum vitamála-
þjónustunnar. Hann verður jarðsung-
inn í dag frá Fossvogskapellu kl. 13.30.
Gyða Berþórsdóttir, Bláskógum 14,
sem lézt i Landspítalanum 16. þ.m.,
verður jarðsungin á morgun, þriðju-
daginn 26.janúar kl. 13.30 frá Dóm-
kirkjunni.
Jón Tómasson frá Hrútstungu, Álfa-
skeiði 64 Hafnarfirði, lézt í Landspítal-
anum að morgni 22. janúar.
Jón Grétar Sigurðsson lögfræðingur,
Melabraut 3 Seltjarnarnesi, andaðist í
Landakotsspitala 21. janúar.
Klara Stefania Steinsdóttir, verður
jarðsungin frá Fossvogskapellu í dag,
25. janúar, kl. 15.00
Tilkynningar
Námskeið í Hamragörðum.
Liflegt starf var í Hamragörðum sl. haust og von-
andi verður jiað ekki síðra nú á nýju ári. Eins og fyrr
verður mikiö um að vera i námskeiðahaldi.
Tölvunámskeið hefst laugardaginn 30. janúar kl.
14.00. Námskeiðið fer fram í Tölvuskólanum að
Borgartúni 29. Alls 9. skipti á laugardögum frá kl.
14.00—17.00. Námsgjald kr. 875.00. Leiðb.: Reynir
Hugason. Ath.. Ef þátttaka verður góð verður
annað námskeið á laugardögum kl. 10.00 til 13.00
Sjá nánar auglýsingar á vinnustöðum.
Leiklistarnámskeið hefst mánudaginn 25. janúar
kl. 20.00. Alls 7 kvöld frá kl. 20.00 til 23.00 á
mánudögum. Námsgjald kr. 330.00. Leiðb: Baldvin
Halldórsson
Knska — Samtalshópur: Hefst mánudaginn 18.
janúar kl. 17.30. Alls 10 kvöld frá kl. 17.30 til 19.30
á mánudögum. Framhald af námskeiöi sl. haust, en
hægt að bæta við örfáum þátttakendum. Námsgjald
kr. 330.00. Leiðb: Anne Cosser.
Námskeið i félagsrekstri hefst þriðjudaginn 9.
febrúar kl. 20.00. Alls 4 kvöld frá kl. 20.00 til 23.00
á þriðjudögum. Námsgjald kr. 200.00 og leiðb:
Guðmundur Guðmundsson. Leiðbeint um skipu-
lagningu og áætlanagerð félaga, bréfaskriftir,
skjalavörzlu og bókhald.
Námskeið í fundastörfum: Þetta námskeiö hefst
þriðjudaginn 9. marz kl. 20.00 og er i beinu
framhaldi af því fyrra. Alls 4 kvöld kl. 20.00 —
23.00 á þriðjudögum. Námsgjald kr. 200.00 og
leiðb: Guðmundur Guðmundsson. Lciðbcint um
ræðugerö og kappræðutækni, skipulag vinnufunda,
ráðstefna og þinga. Ath: Námsgjald fyrir þá sem
sækja bæði námskeiðin kr. 350.00
Bútasaumur hefst miðvikudaginn 27. janúar kl.
20.00. Alls 8 kvöld frá kl. 20.00 til 23.00. Námsgjald
kr. 400.00 og leiðb: Sigrún Guðmundsdóttir. Þátt-
takendur þurfa að hafa saumavélar með sér.
Slysahjálp: Námskeiðið hefst miðvikud. 27.
janúar kl. 17.30. Alls 7 kvöld frá kl. 17.30 til 19.30 á
miðvikudögum. Námsgjald kr. 220,00 og leiðb:
Nína Hjaltadóttir. Því er sérstaklega beint til allra
yfirmanna á vinnustöðum að senda þátttakendur á
þetta námskeiö.
Postulínsmálun hefst laugard. 6. febrúar kl.
13.00. Alls 10 skipti frá kl. 13.00 til 15.30. Náms-
gjald kr. 600,00 og Ieiðbeinandi Sólveig Alexanders-
dóttir. Ef þátttaka verður mikil eins og sl. haust
verður annað námskeið á laugardögum frá kl. 16.00
til 18.30.
Ráðgjöf um skattaframtöl: Eins og oft áður
verður lciðbeint um gerð skattframtala, en að þessu
sinni á annan hátt. Miðvikd. 3. febrúar kl. 17.00 til
20.00., fimmtud. 4. febrúar kl. 20.00 til 23.00 og
mánud. 8. febrúar kl. 17.00 til 22.00, munu starfs-
menn á skattstofunni veita ráðgjöf um gerð skatta-
framtala. Hér er ekki um gerð skattframtala að
ræða, heldur lciðbeiningar.
Timaskipulagning: Þetta námskeið verður á
fimmtudögum og hefst 11. marz kl. 20.00. Alls 3
kvöld frá kl. 20.00 til 23.00. Leiðbeinandi: Sigurjón
Pétursson. Þetta námskeið er sérstaklega ætlaö þeim
starfsmönnum sem skipuleggja sinn starfsdag
sjálfir.
Skráning þátttakenda og upplýsingar simi 21944:
Nauðsynlegt er að tilkynna þátttöku sem allra fyrst
til Hamragarða í síma 21944 frá kl. 9.00 til 19.00 eða
til fulltrúa viðkomandi félags í hússtjórn Hamra-
garða. Tilkynnið þátttöku minnst 2 dögum áður en
viðkomandi námskeið hefst.
Greiðsla námsgjalds: Námsgjald greiðist i fyrsta
tíma hvers námskeiðs. Engar bækur eða efni er
innifalið í námsgjaldi.
Fyrir alla fjölskylduna: Ef það er ekki á hreinu, þá
er þátttaka í námskeiðum og öðru starfi
Hamragarða aö sjálfsögðu heimil og opin öllum •
fjölskyldu viðkomandi félagsmanns.
Mynd fré sýningunnl Nútimalisl fré
Búlgariu. Myndin er eftir Vassil Valev
og heitir Kona fré Sozopol.
Sýningin Nútímatónlist frá Búlgaríu
var opnuð í Listasafni alþýðu á sunnu-
dag klukkan 15. Á sýningunni eru 48
verk eftir ellefu myndlistarmenn. Sýn-
ingin er skipulögð af norska ríkislista-
safninu og fleiri aðilum í Noregi og var
hún sýnd í Ráðhúsinu í Osló á síðast-
liðnu ári. Hingað er sýningin komin
fyrir tilstilli Vináttufélags íslands og
Búlgariu í tilefni af 1300 ára afmæli
Búlgaríu, sem var á síðstliðnu ári.
Menntamálaráðherra, Ingvar Gísla-
son, mun P.ytja ávarp við opnun sýn-
ingarinnar. Sýningin verður opin dag-
lega klukkan 14—22 til 7. febrúar.
Tímarit Máls og menningar,
3. hefti 1981
er komið út. I upphafi er minningargrein um
Magnús Kjartansson eftir Þórarin Guðnason og
Um Gunnar Benediktsson eftir RögnvaldFinnboga-
son. Helzta uppsláttarefni á kápu er greinar um
kjarnorkuvigbúnaö í Evrópu. Tvær greinar fjalla
um kvennabókmenntir. Aðrar greinar eru Prest-
arnir I hórumanginu eftir Þorgeir Þorgeirsson, Eru
íslendingar kristnir? Þýdd grein eftir Ferene Feher,
Níundi áratugurinn i Austur-Evrópu.
Skáldskaparefni er mikiö og fjölbreytt i þessu
hefti, smásögur og ljóð. Umsagnir um bækur eru
eftir Silju Aðalsteinsdóttur.
Timaritið er 112 blaðsiður að þessu sinni, prent-
að i Prentsmiðjunni Odda hf. Kápumynd ,er eftir
Hilmar Þ. Helgason. Þess má geta að 4. heftið,
sem fjallar um bókmcnntir og menningu Suður-
Ameríku, tafðist i prentaraverkfalli en er væntan-
legt til félagsmanna nú á næstunni.
Happdrætti Þroskaþjálfa-
skólans
Dregið verður í námsfararhappdrætti 3ja bekkjar
Þroskaþjálfaskóla íslands á gamlársdag 1981.
Eftirtalin númer hlutu vinning:
63, 113, 238, 259, 326, 327, 328, 420, 443, 712,
715, 745, 1244, 1237, 1608, 2020, 2021, 2143, 2735,
4198,4479, 4752,4845.
Vinningar eru afhentir í Þroskaþjálfaskóla islands
milli kl. 9 og 13.
Árnað heilla
Brúðhjónum skal benl.á að sendi þau
brúðarmynd til birtingar í Dagblaðið
og Vísi, fá þau í brúðargjöf frá DV
áskrift á blaðinu í einn mánuð.
Laugardaginn 19. september voru gef-
insaman 1 hjónaband Sigrún Jensey
Sigurðardóttir og Kristján Bjarndal
Jónsson. Þau voru gefin saman af séra
Árna Pálssyni i Kópavogskirkju.
Heimili ungu hjónanna er að Starengi
2, Selfossi.
Ljósmynd MATS — Laugavegi 178.
Laugardaginn 17. okt. ’81 voru gefin
saman í hjónaband Sigrún Agnarsdótt-
ir og Helgi Jónsson. Þau voru gefin
saman af séra Sigurði Hauki Guðjóns-
syni í Bessastaðakirkju. Heimili ungu
hjónanna er að Miðvangi 41, Hafnar-
firði.
Ljósmynd MATS — Laugavegi 178.
Laugardaginn 31. okt. ’81 voru gefin
saman i hjónaband Jens Reynisson og
Birna Gunnlaugsdóttir. Þau voru gefin
saman af séra Árna Pálssyni í Kópa-
vogskirkju. Heimili ungu hjónanna er
að Hamraborg 26, Kópavogi.
Ljósmynd MATS— Laugavegi 178.
AKUREYRI
VERZLUNARHÚSNÆÐI
Verzlunar- og skrifstofuhúsnæði á jarðhæð, u.þ.b. 50
ferm., óskast til leigu á góðum stað i miðbæ Akureyrar.
Samband óskast haft við auglýsingaþjónustu DV í síma
91-27022.
H—700
Kemur
bílKnn
ó l/uxu-/eðH 4?.
GETRAUNIN
VERTU éJLI L7 ASKRIFANDI
ÁSKRIFTARSÍMINN ER 27022.